Leyndardómsfulla bréfið

Bréfið fræga Mál málanna í dag er hiklaust nafnlausa bréfið sem nú skekur Baugsmálið. Ekkert meira rætt í dag á bloggsíðunum og spjallvefirnir eru mjög áberandi á kafi í að ræða þetta bréf. Svosem varla við öðru að búast en að þetta bréf verði aðalpunktur málsins næstu daga. Meira að segja farið að velta því fyrir sér hver hafi skrifað það. Þetta mál verður sífellt kostulegra, bætist alltaf á það meiri mystík og spurningamerki. Ekki var þörf á meiri dulúð í þessu máli.

Það verður fróðlegt að sjá hvort bréfið komi verjanda eða ákæruvaldinu til góða. Heilt yfir varpar það rýrð á málið allt og gerir það enn vandræðalegra. Það er fyrir löngu orðið eins og farsi frá miðri síðustu öld, eða leikrit eftir Pinter; óskiljanleg langvella.

Það væri samt fróðlegt að vita hver skrifaði bréfið. Væntanlega þagna ekki efasemdir fyrr en það er ljóst. Væntanlega mun höfundurinn ekki áfjáður um að gefa sig upp, af mjög skiljanlegum ástæðum.

mbl.is Áttu stuttan fund um nafnlaust bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það eina sem er ekki trúverðugt við þetta bréf er að það er nafnlaust.   Ja, hérna illa er komið fyrir réttarfarinu í þessu landi.   Líklega þarf að stokka mál upp hér frá grunni.

Sigurður Jónsson (IP-tala skráð) 24.2.2007 kl. 03:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband