9.3.2007 | 16:15
Mikil kvennasveifla til VG - aðrir flokkar síga
Nýjasta skoðanakönnun Gallups staðfestir endanlega mikla fylgissveiflu til vinstri grænna. Hún virðist aukast við hverja könnun og því sífellt meir að festast í sessi. Það er mikil kvennasveifla sem fer í áttina til þeirra fyrst og fremst. Það virðast vera stóru tíðindin að konur horfa í áttina til þeirra í æ meira mæli. Konur segja skilið við Samfylkinguna með áberandi hætti, þrátt fyrir það að kona sé þar í forystu. Miðað við þessa stöðu alla er VG að festa sig í sessi sem forystuafl til vinstri.
Þessi könnun er mjög vond fyrir Sjálfstæðisflokkinn, mjög vond. Það er algjörlega einfalt mál. Hann má varla neðar fara en þetta að mínu mati. Þetta eru þolmörk hans myndi ég ætla. Allt undir kjörfylginu 2003, 34%, boðar mjög vont. Hann er nú að mælast með svo til sama fylgi og í þeim kosningum. Miðað við það að ný forysta er tekin við flokknum er þetta mjög fjarri því að teljast ásættanleg útkoma í könnunum tveim mánuðum fyrir þingkosningar. Það er greinilegt að flokkurinn er að síga á höfuðborgarsvæðinu. Sú staða hefur verið áberandi alveg frá janúarkönnuninni. Það fólk sem Sjálfstæðisflokkurinn er að merkja í baráttusætum á höfuðborgarsvæðinu mælist úti og hefur gert lengi.
Ég fór í fréttaviðtal fyrir nokkrum vikum og varaði við framboði Árna Johnsen. Veit ekki hvort innkoma hans sé að valda okkur fylgistapi á höfuðborgarsvæðinu. Hallast þó mjög að því. Þetta er að fara í nákvæmlega þann gír sem ég óttaðist. Það kæmi mér þó ekki á óvart að fólk sé að gera alvöru úr hótunum sínum um að styðja ekki flokkinn vegna hans. Hann verður okkur akkilesarhæll í þessum kosningum. Það framboð mun ekki styrkja okkur neinsstaðar nema mögulega í Suðurkjördæmi af skiljanlegum ástæðum. Það sem ég hef áhuga á að sjá núna er mæling eftir kjördæmum og skipting þingsæta um allt land. Ef mér skjátlast ekki erum við að missa lykilsæti á landsbyggðinni nú.
Það er alveg ljóst á þessari stöðu að bylgja breytinga hljómar nú í samfélaginu. Sama ríkisstjórn hefur setið í tólf ár og virðist hún ekki eiga sér lífdaga auðið eftir 12. maí. Sterk staða vinstri grænna er til merkis um breytingar. Þetta er orðin svo ákveðin sveifla til vinstri grænna að hún verður ekki hunsuð. Þetta er afgerandi bylgja sem þeir eru á núna. Tal um stutta sveiflu á ekki lengur við. Það þarf ansi mikið að breytast til að þeir fái ekki um 20% í kosningunum, eiginlega þyrfti hrun til. Þeir fá aldrei yfir 25% en þeir gætu trompað Samfylkinguna sem næst stærsti flokkurinn, orðið leiðandi afl til vinstri. Það yrðu stórtíðindi.
Spurningin er hvernig stjórn gæti verið mynduð úr svona stöðu. Held að þar séu þrír kostir helstir; stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, VG og Sjálfstæðisflokks eða VG, Framsóknar og Samfylkingar. Síðasti kosturinn er sá sem ég óttast að myndi verða ofan á, sérstaklega ef Framsókn hysjast eitthvað upp. Það er enginn vafi að fái VG um eða yfir 25% muni þeir selja sig dýrt, allavega krefjast forsætis í vinstristjórn eigi að mynda hana. Þessi könnun er að því leyti svakalegt högg fyrir SF og Ingibjörgu Sólrúnu að Steingrímur J. er að myndast sem alvöru forsætisráðherraefni til vinstri. Hún er ekki drottnandi persóna til vinstri. Það eru stór tíðindi.
En ein könnun segir aldrei alla söguna. En samt. Þetta eru mjög sterk tíðindi og bylgjan til VG verður ekki hunsuð. Til þess er hún orðin of langvinn og afgerandi. En þetta verða spennandi kosningar. Spái mest spennandi og vægðarlausustu kosningabaráttu með gylliboðum og auglýsingakeyrslu í sögu lýðveldisins. Einfalt mál. Fasten your seat belts - it´s going to be a bumpy ride, segi ég eins og Bette Davis í eðalmyndinni All About Eve.
Þessi könnun er mjög vond fyrir Sjálfstæðisflokkinn, mjög vond. Það er algjörlega einfalt mál. Hann má varla neðar fara en þetta að mínu mati. Þetta eru þolmörk hans myndi ég ætla. Allt undir kjörfylginu 2003, 34%, boðar mjög vont. Hann er nú að mælast með svo til sama fylgi og í þeim kosningum. Miðað við það að ný forysta er tekin við flokknum er þetta mjög fjarri því að teljast ásættanleg útkoma í könnunum tveim mánuðum fyrir þingkosningar. Það er greinilegt að flokkurinn er að síga á höfuðborgarsvæðinu. Sú staða hefur verið áberandi alveg frá janúarkönnuninni. Það fólk sem Sjálfstæðisflokkurinn er að merkja í baráttusætum á höfuðborgarsvæðinu mælist úti og hefur gert lengi.
Ég fór í fréttaviðtal fyrir nokkrum vikum og varaði við framboði Árna Johnsen. Veit ekki hvort innkoma hans sé að valda okkur fylgistapi á höfuðborgarsvæðinu. Hallast þó mjög að því. Þetta er að fara í nákvæmlega þann gír sem ég óttaðist. Það kæmi mér þó ekki á óvart að fólk sé að gera alvöru úr hótunum sínum um að styðja ekki flokkinn vegna hans. Hann verður okkur akkilesarhæll í þessum kosningum. Það framboð mun ekki styrkja okkur neinsstaðar nema mögulega í Suðurkjördæmi af skiljanlegum ástæðum. Það sem ég hef áhuga á að sjá núna er mæling eftir kjördæmum og skipting þingsæta um allt land. Ef mér skjátlast ekki erum við að missa lykilsæti á landsbyggðinni nú.
Það er alveg ljóst á þessari stöðu að bylgja breytinga hljómar nú í samfélaginu. Sama ríkisstjórn hefur setið í tólf ár og virðist hún ekki eiga sér lífdaga auðið eftir 12. maí. Sterk staða vinstri grænna er til merkis um breytingar. Þetta er orðin svo ákveðin sveifla til vinstri grænna að hún verður ekki hunsuð. Þetta er afgerandi bylgja sem þeir eru á núna. Tal um stutta sveiflu á ekki lengur við. Það þarf ansi mikið að breytast til að þeir fái ekki um 20% í kosningunum, eiginlega þyrfti hrun til. Þeir fá aldrei yfir 25% en þeir gætu trompað Samfylkinguna sem næst stærsti flokkurinn, orðið leiðandi afl til vinstri. Það yrðu stórtíðindi.
Spurningin er hvernig stjórn gæti verið mynduð úr svona stöðu. Held að þar séu þrír kostir helstir; stjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, VG og Sjálfstæðisflokks eða VG, Framsóknar og Samfylkingar. Síðasti kosturinn er sá sem ég óttast að myndi verða ofan á, sérstaklega ef Framsókn hysjast eitthvað upp. Það er enginn vafi að fái VG um eða yfir 25% muni þeir selja sig dýrt, allavega krefjast forsætis í vinstristjórn eigi að mynda hana. Þessi könnun er að því leyti svakalegt högg fyrir SF og Ingibjörgu Sólrúnu að Steingrímur J. er að myndast sem alvöru forsætisráðherraefni til vinstri. Hún er ekki drottnandi persóna til vinstri. Það eru stór tíðindi.
En ein könnun segir aldrei alla söguna. En samt. Þetta eru mjög sterk tíðindi og bylgjan til VG verður ekki hunsuð. Til þess er hún orðin of langvinn og afgerandi. En þetta verða spennandi kosningar. Spái mest spennandi og vægðarlausustu kosningabaráttu með gylliboðum og auglýsingakeyrslu í sögu lýðveldisins. Einfalt mál. Fasten your seat belts - it´s going to be a bumpy ride, segi ég eins og Bette Davis í eðalmyndinni All About Eve.
Vísbendingar um að VG svari eftirspurn eftir framboði umhverfisverndarsinna" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:26 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Stefán Friðrik Stefánsson
Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang (MSN): stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
- Boris Johnson á sigurbraut
- Sögulegur sigur hjá Trump - áfall fyrir demókrata
- Boris í lykilráðuneyti - klókindi hjá Theresu May
- Kvennabylgja fylgir Theresu May í Downingstræti 10
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Ágætar vangaveltur hjá þér um möguleika nýrrar ríkisstjórnar.Ljóst er að fylgið er enn á fleygi ferð og framboð Margrétar og Ómars getur landað einhverjum þingsætum.Sé miðað við fyrri skekkjumörk í skoðunarkönnunum alþingiskosninga hjá Sjálfstæðisfl. gæti hann hæglega farið niður í 30-31%.VG gætu veruð að tryggja sig vel yfir 20% fylgi , Samf.mun eitthvað hækka frá núverandi Gallup könnun,Framsókn 10-12 % og Frjálsl.7-8% og Margrét er ennþá ?Svona hljóðar mín spá,hún er ekki uppörvandi fyrir okkar flokka Stefán.Þetta verða alla vega skemmtilegar og spennandi kosningar.
Kristján Pétursson, 9.3.2007 kl. 17:44
Nú er að bretta upp ermarnar!
Ólöf Nordal, 9.3.2007 kl. 17:57
Sæll Kristján og þakka þér fyrir kommentið. Sammála mörgu af því sem að þú segir. Það er mjög erfitt að spá í hvernig fer. Við erum hinsvegar með eintómar vísbendingar í höndunum. Ómögulegt að segja um hvort að það sem að nú stendur heldur til 12. maí. Sjáum til. Þetta verða spennandi kosningar.
mbk.
Stefán Friðrik Stefánsson, 9.3.2007 kl. 17:57
Takk fyrir kveðjuna Ólöf. Held að við stöndum mjög vel hér þrátt fyrir allt. Við erum með ferskan og flottan lista; tvo Akureyringa og tvo Austfirðinga og tvær konur í topp þrjú. Getur ekki verið betra. Held að við stöndum vel að vígi hér. Er mest hræddur með höfuðborgarsvæðið eiginlega. Minna fylgi þar getur farið að koma niður á okkur í jöfnunarsætum. En þetta verður fróðlegt að sjá. Mikil spenna. :)
mbk. Stebbi
Stefán Friðrik Stefánsson, 9.3.2007 kl. 18:12
Blóraböggullinn Árni Johnsen var nú fyrirmyndarfangi, gerði mörg og umfangsmikil listaverk á Kvíabryggju og þau hafa örugglega híft upp fylgið hjá Sjöllum, frekar en hitt. Framboð Hægri grænna á enn eftir að koma fram og það tekur langmest fylgi frá Sjöllum. Í næstu stjórn verða trúlega Vinstri Grænir, Samfó og annað hvort Frjálsblindir eða Hægri grænir, eða þeir báðir. Trúlega þeir báðir, ef Frjálsblindir deyja ekki Drottni sínum, því annars yrði meirihlutinn of tæpur. EF bæði Frjálsblindir og Hægri grænir fá mjög lítið fylgi verður Framsókn í stjórn með vinstri flokkunum. Steini verður trúlega í hásætinu. Honum liði ekki vel á NATO-fundum ef hann fengi kontór uppi við Rauðará. Hjá kvenþjóðinni er hann vinsæll og veit af því, og Imba rennir til hans hýru auga:
Þegar ég sé svona gæja eins og þig
finnst mér veröldin breyta um svip.
Þú hefur þannig áhrif á mig
að ég fell í yfirlið!
Sauðsvarta hetjan mín
hvernig ertu í lit?
Síðan þegar líður á kvöld
þú birtist mér á sjónvarpsskerminum.
Gæjalegur tekur öll völd
umvafinn sauðsvarta sjarmanum.
Píunum þú vefur um fingur þér
með því að sýna hörku, kjark og þor.
Þú veist ekki hve heitt ég óska mér
að vera bara komin í þeirra spor!
Steini Briem (IP-tala skráð) 9.3.2007 kl. 21:22
Ég er hreint ekki viss um að hægri grænir eiga eftir taka mikið af sjálfstæðisflokk, frekar hallast ég að því að samfylking og VG munu tapa fylgi vegna þess framboðs og þá einkum Samfylking. Vegna þess að mér sýnist þetta framboð (það litla sem maður er búin að sjá og heyra) sé mest megnis gamlir fúlir kratar.
Hitt er annað mál að ég sýti ekki Framsókn, ég spái samt því að þeir munu hífast upp í þetta 11-13% á landsvísu sem gefur þeim tækifæri á því að fara í stjórn með VG og Samfylkingu. Ég hef ekki trú á því að Frjálslindir munu koma til með að gera góða hluti og ég held hreinlega að þeir munu koma til með að enda einsog kvennalistinn sálugi ganga inn í annan flokk. Kannski verðu myndaður Frjálslyndur-Framsóknarflokkur sem yrði með fast kjörfylgi upp á 12-16% í framtíðinni. Þetta eru tveir miðjuflokkar hvort sem er pínulítið til vinstri og pínulítið til hægri og gætu hæglega náð saman.
Gunnar Pétur Garðarsson, 9.3.2007 kl. 22:06
Gamlir fúlir kratar hafa alltaf verið lauslátir og núna eru þeir aðallega í Sjálfstæðisflokknum, Regnhlífarsamtökum lýðveldisins. Þar eru margar vistarverur af ýmsum toga, allt frá kjallara og upp í hanabjálka, geymslur af ýmsum sortum, gamlir draugar sem vaktir eru upp af minnsta tilefni, ungir Sjálfstæðismenn sem ekki eru lengur ungir og búnir að gleyma erindinu, aldraðar konur með Hvatarslæður, gömul og fúin "Stétt með stétt"-skilti, endurnýtanleg svikin kosningaloforð, digrir og endurnýjanlegir kosningasjóðir, síungar og endurnýtanlegar klappstýrur, nýir vendir sem sópa best, nítján milljarðar í gullspesíum til sauðfjárræktarinnar í anda hægri stefnunnar... og margt fleira fróðlegt og skemmtilegt.
Steini Briem (IP-tala skráð) 9.3.2007 kl. 23:08
Rétt greint af þér og rétt athugað hjá þér.
róbert trausti árnason (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 10:13
Ég vona að allir geri sér grein fyrir því að það gengur ekki að vg komist í stjórn. s
Slíkur forræðishyggjuflokkur myndi gera lítið gott fyrir framtíð okkar.
Besta niðurstaðan að mínu mati er að sama stjórn fái umboð fólksins að halda áfram því góða starfi sem þeir hafa verið að gera undangengin ár.
Geir er eini maðurinn sem kemur til greina sem forsætisráðherra.
Vg fær aldrei nein 25% það er alveg klárt mál, 25% þjóðarinnar vill ekki búa í þjóðfélagi boða og banna.
Sf þarf a.m.k 4.ár til að fara yfir sín mál og nýr formaður sem verður væntanlega kosinn strax eftir kosningar þarf tíma til að púsla flokknum saman aftur. xd.
Óðinn Þórisson (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 11:08
Það er næsta víst að ekki verða allir Framsóknarmenn jafn heppnir og kalkúnninn Kex og sósa (Biscuit & Gravy) sem Bush Bandaríkjaforseti náðaði árið 2004.
Steini Briem (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 12:27
Þegar umhverfisráðherrann
hverfist umhverfis ráðuneytið
þá umhverfist alltaf ráðuneytið
um umhverfisráðuneytismann.
Copyright 2007, Eiríkur Kjögx
Steini Briem (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 13:46
Gunnar Birgis krúttikrútt,
krunkar sitt síðasta vers,
Kópavogur er kjúttipútt,
og kominn er á Players.
Steini Briem (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 15:09
Takk kærlega fyrir góð komment. Sérstaklega gaman að lesa komment Óðins, Sveins og Gunnars Péturs. Skemmtilegar pælingar.
mbk.
Stefán Friðrik Stefánsson, 10.3.2007 kl. 17:56
Ef VG fær eitthvað í áttina sem þeir hafa mælst með þá verður næsta ríkisstjórn mynduð af Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki. Það er ekki séns að Samfylking myndi ríkisstjórn með stærri VG.
Hákon B. Óttarsson (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 01:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.