3.4.2007 | 00:28
Hvernig verður að fá Ómar Ragnarsson á þing?
Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum er Ómar Ragnarsson á leiðinni á þing. Einn vinur minn spurði mig nýlega hvernig mér litist á það. Svar: Barasta vel, sérstaklega ef Ómar fellir Magnús Þór Hafsteinsson af þingi. Þá ætti ég að geta keypt mér gin í tónik og glaðst hvernig svo sem veröldin snýst að öðru leyti á kosninganótt. Annars er ég reyndar enn að hugsa um hvernig að Ómar verði sem þingmaður, venja mig tilhugsunina um hann sem stjórnmálamann.
Það má eiginlega segja með sanni að Ómar muni verða óvæntasti stjórnmálaleiðtogi þessarar kosningabaráttu, hvernig sem allt fer. Hann verður 67 ára á þessu ári, það sem flestir kalla löggilt gamalmenni. Ómar hefur með störfum á breiðum vettvangi víða öðlast sess í huga fólks. Ómar er auðvitað ein skærasta stjarna íslenskrar sjónvarpssögu, er mikill gleðigjafi og hefur verið í miðpunkti mannlífsins alla mína ævi. Einhvernveginn finnst mér hann einstakur, hann hefur fært okkur svo mikið með sjónvarpsþáttum sínum og fært okkur öllum sýn á landið sem er ómetanleg. Fyrir það hefur hann mína virðingu.
En er Ómar stjórnmálamaður. Ég man að ég hugsaði mig talsvert um þegar að hann kastaði af sér hlutleysisgrímunni í umhverfismálum í haust og hélt beint út í elginn. Hann fór eftirminnilega göngu niður Laugaveginn sem breytti kannski einhverju í huga þeirra sem þar gengu, ég veit það ekki, en allavega hafði engin áhrif á baráttumálið. Hann kom þar fram sem maður skoðana og krafts, það voru ekki allir sammála honum en innst inni held ég að margir hafi séð þar hlið á þessum fjölbreytta manni sem enginn hafði séð áður.
Reyndar hefur Ómar alltaf verið áhlaupsmaður, er mjög frjór og kraftmikill á sínum sviðum og hefur allsstaðar vakið athygli. Enda er ekkert hálfkák á honum. Ég verð að viðurkenna að ég sé ekki Ómar fyrir mér á næturfundum í þinginu eða sitjandi daga og nætur þar yfir höfuð. Hann hefur verið með ímynd mannsins sem alltaf er á ferð og flugi. Kannski er hann bara að slaka á með því að vera kyrr á einum bletti en beita allri orku sinni með öðrum hætti.
Það eru flestir sem spá í gengi Íslandshreyfingarinnar í vor. Ef marka má kannanir getur hún náð einhverju flugi. Það verður allavega fróðlegt að sjá næstu vikurnar hvernig flugi hún nær. Merkilegast af öllu er að Ómar leiði flokkinn. Hann er það þekktur í huga landsmanna að varhugavert er að útiloka að hann nái árangri og verði í oddastöðu, sérstaklega eftir að Frjálslyndir misstu fótanna og kaffibandalagið margfræga dó.
Ómar verður litríkur þingmaður komist hann þar inn. Hann yrði elsti þingmaðurinn næði hann inn, tæki við þeim sess af Halldóri Blöndal, sem brátt hættir á þingi eftir langan stjórnmálaferil. Halldór og Ómar eru svolitlar þjóðsagnapersónur; miklir sagnamenn og fróðleiksbrunnar. Það verður varla ládeyða í þingveislunum verði Ómar Ragnarsson þar fastagestur næstu fjögur árin og hann yrði varla litlaus maður úti í horni í þingsölum.
Það yrðu vissulega merk tíðindi ef að Ómar lyki starfsferlinum sínum sem þingmaður í löggjafarsamkundunni. Hann hefur aldrei verið frambjóðandi og vissulega verður athyglisvert að sjá hann í leiðtogaþáttum næstu 40 dagana með öðrum leiðtogum flokkanna. Þetta er nýtt hlutverk fyrir mann sem þegar hefur leikið mörg athyglisverð hlutverk um dagana.
Það má eiginlega segja með sanni að Ómar muni verða óvæntasti stjórnmálaleiðtogi þessarar kosningabaráttu, hvernig sem allt fer. Hann verður 67 ára á þessu ári, það sem flestir kalla löggilt gamalmenni. Ómar hefur með störfum á breiðum vettvangi víða öðlast sess í huga fólks. Ómar er auðvitað ein skærasta stjarna íslenskrar sjónvarpssögu, er mikill gleðigjafi og hefur verið í miðpunkti mannlífsins alla mína ævi. Einhvernveginn finnst mér hann einstakur, hann hefur fært okkur svo mikið með sjónvarpsþáttum sínum og fært okkur öllum sýn á landið sem er ómetanleg. Fyrir það hefur hann mína virðingu.
En er Ómar stjórnmálamaður. Ég man að ég hugsaði mig talsvert um þegar að hann kastaði af sér hlutleysisgrímunni í umhverfismálum í haust og hélt beint út í elginn. Hann fór eftirminnilega göngu niður Laugaveginn sem breytti kannski einhverju í huga þeirra sem þar gengu, ég veit það ekki, en allavega hafði engin áhrif á baráttumálið. Hann kom þar fram sem maður skoðana og krafts, það voru ekki allir sammála honum en innst inni held ég að margir hafi séð þar hlið á þessum fjölbreytta manni sem enginn hafði séð áður.
Reyndar hefur Ómar alltaf verið áhlaupsmaður, er mjög frjór og kraftmikill á sínum sviðum og hefur allsstaðar vakið athygli. Enda er ekkert hálfkák á honum. Ég verð að viðurkenna að ég sé ekki Ómar fyrir mér á næturfundum í þinginu eða sitjandi daga og nætur þar yfir höfuð. Hann hefur verið með ímynd mannsins sem alltaf er á ferð og flugi. Kannski er hann bara að slaka á með því að vera kyrr á einum bletti en beita allri orku sinni með öðrum hætti.
Það eru flestir sem spá í gengi Íslandshreyfingarinnar í vor. Ef marka má kannanir getur hún náð einhverju flugi. Það verður allavega fróðlegt að sjá næstu vikurnar hvernig flugi hún nær. Merkilegast af öllu er að Ómar leiði flokkinn. Hann er það þekktur í huga landsmanna að varhugavert er að útiloka að hann nái árangri og verði í oddastöðu, sérstaklega eftir að Frjálslyndir misstu fótanna og kaffibandalagið margfræga dó.
Ómar verður litríkur þingmaður komist hann þar inn. Hann yrði elsti þingmaðurinn næði hann inn, tæki við þeim sess af Halldóri Blöndal, sem brátt hættir á þingi eftir langan stjórnmálaferil. Halldór og Ómar eru svolitlar þjóðsagnapersónur; miklir sagnamenn og fróðleiksbrunnar. Það verður varla ládeyða í þingveislunum verði Ómar Ragnarsson þar fastagestur næstu fjögur árin og hann yrði varla litlaus maður úti í horni í þingsölum.
Það yrðu vissulega merk tíðindi ef að Ómar lyki starfsferlinum sínum sem þingmaður í löggjafarsamkundunni. Hann hefur aldrei verið frambjóðandi og vissulega verður athyglisvert að sjá hann í leiðtogaþáttum næstu 40 dagana með öðrum leiðtogum flokkanna. Þetta er nýtt hlutverk fyrir mann sem þegar hefur leikið mörg athyglisverð hlutverk um dagana.
Flokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:50 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Stefán Friðrik Stefánsson
Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang (MSN): stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
- Boris Johnson á sigurbraut
- Sögulegur sigur hjá Trump - áfall fyrir demókrata
- Boris í lykilráðuneyti - klókindi hjá Theresu May
- Kvennabylgja fylgir Theresu May í Downingstræti 10
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Sæll Stefán.
Skemmtilegar pælingar hjá þér. Satt að segja finnst mér bara góð tilhugsun að Ómar verði þingmaður. Fjölmargir sitja og hafa setið á Alþingi sem hafa haft mun minna til málanna að leggja en hann. Hann yrði góður þingmaður.
Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 3.4.2007 kl. 00:37
Já eg er þarna mjög sammála Omar yrði Alþingi og þjóð mikil fengur/Halli Gamli
Haraldur Haraldsson, 3.4.2007 kl. 00:45
Góður pistill Stefán. Ég hef mikið velt þessu fyrir mér með Ómar, Ómar á þing, hef bara alltaf séð hann fyrir mér, annaðhvort sem skemmtikraft, eða frábæran fréttamann, flytjandi fréttir af ýmsu sem annars hefði kannski aldrei komið fyrir almenningssjónir. Ef maður miðar hann við ýmsa aðra, misvitra menn sem hafa setið á Alþingi okkar þá stendur hann mörgum framar, og gæti ég hugsað mér að sjá á bak mörgum, til að Ómar fengi sæti, en samt sem áður, þá held ég að allavega ég muni fyrst og fremst líta á hann sem grínara og kannski hlægja að honum ef hann kemst alla leið í ræðustól Alþingis en ég er til að gefa honum séns, til að losna þá mögulega við aðra.
Ásdís Sigurðardóttir, 3.4.2007 kl. 01:29
Að fá mann inn á þing með hjartað pikkandi á réttum stað og laus við allan pólitíkus..? Einlægur og hreinn hugsjónarmaður! Mannvinur og verndari náttúruna af ástríðu..! OG LÍKA skemmtilegur !! Já takk takk.. kærkomin tilbreyting.
Björg F (IP-tala skráð) 3.4.2007 kl. 01:39
HUGMYNDASMIÐURINN ÓMAR RAGNARSSON verður frábær þingmaður og jafnvel ráðherra þar að auki. En það þarf að bakka hann upp með tölur og hagfræði. Ómar hefur með gríðarmiklum kynnum sínum af landi og þjóð öðlast meiri þekkingu og dýpri skilning á mönnum og málefnum en aðrir landsmenn hafa. Hann hefur farið um allt landið og hálendið, gangandi, akandi og fljúgandi, mörg þúsund sinnum, en samt halda flestir stóriðjusinnar því fram að hann sé hálfviti sem hafi ekki glóru um hvað hann er að tala.
Ómar hefur hins vegar öðlast allt aðra og miklu dýpri sýn á alla hluti en stóriðjusinnarnir með gríðarlegri þekkingu sinni og einlægri virðingu fyrir náttúrunni. Og ekki veitir nú af að einhverjir geri það í hagfræðilegri óstjórn undanfarinna ára, geysilegri verðbólgu og viðskiptahalla, mánaðarlegum hækkunum á öllu verðlagi og heimsmeti í háum vöxtum. Framtíðarsýn Ómars er hins vegar skýr og allir vita fyrir hvað hann stendur. Það er mikils virði.
Steini Briem (IP-tala skráð) 3.4.2007 kl. 04:32
Held að það sé rangt að hann eigi afmæli tveimur dögum fyrir kosningar, ég er 99% viss um að hann eigi afmæli 16. september. Ekki það að það breyti miklu.
Rúnar Birgir Gíslason, 3.4.2007 kl. 05:10
Takk kærlega fyrir kommentin.
Kári: Já, ég er viss um að Ómar verður ekki litlaus þingmaður. Það er alltof mikið af slíkum á þingi. Er í sjálfu sér ekkert ósáttur við að fá Ómar þar inn, enda veit ég hvar hann stendur og er ákveðinn og litríkur í senn. Það skiptir máli. Slíkir stjórnmálamenn eru alltaf kærkomnir að mínu mati, gildir þá einu hvort maður er sammála þeim.
Halli: Ómar yrði allavega ekki hornkarl færi hann á þing.
Ásdís: Takk fyrir góðar pælingar sem var gaman að lesa.
Björg F: Já, Ómar er þannig gerður að hann segir það sem honum finnst. Það er kostur að mínu mati.
Steini: Ómar kemur vissulega með nýja sýn og athyglisverða. Það verður fróðlegt að sjá hann á þingi, enda virðist flest stefna í að hann komist inn. Það verður spennandi þingvetur með hann innanborðs allavega.
Rúnar: Já, þetta er rétt hjá þér. Ég kannaði þetta eftir ábendingu þína. Mér hafði verið sagt að Ómar ætti afmæli tveim dögum fyrir kosningar. Það er ekki rétt og ég hef því að sjálfsögðu lagað þetta. Takk kærlega fyrir ábendinguna.
mbk.
Stefán Friðrik Stefánsson, 3.4.2007 kl. 14:48
Verð því miður að vera ósammála öllu hér að ofan, fyrir utan kannski Rúnari, ég hef enga hugmynd um hvenær Ómar á afmæli.
En ég held að Ómar verði ekki góður stjórnmálamaður (skemmtilegur kannski). Málið er að Ómar hefur enga stefnu í öðrum málefnum heldur en umhverfismálum. Hans eigið svar við þessu þegar hann var spurður um önnur málefni var: "Já,já við fáum bara einhverja snillinga í það."
Það minnir mig óþægilega mikið á anti-stóriðju stefnu Steingríms J. "Við gerum bara eitthvað annað". Þessi E-h stefna er ekki beint traustvekjandi í mínum huga þar sem það sýnir mér að þessir tveir rauðhærðu skallapopparar hafa annað hvort enga stefnu gegn stóriðjustefnunni eða hafa bara alls enga hugmynd um hvað þeir eru að gera.
Ég krefst þess af þeim stjórnmálamönnum sem kjörnir eru að þeir sé "professional" og hafi einhverja stefnu í sem flestum málefnum sem við kemur kjósendum. Ómar hefur ekki sýnt þessa hlið á sér en í kosningabaráttinni.
Ég ætla mér ekki að kjósa "E-h" pólitíkusa á þing.
Ég biðst afsökunar á hverjum þeim stafsetningarvillum sem kunna að vera í þessari athugasemd.
Jón Gestur Guðmundsson, 3.4.2007 kl. 14:51
Má ég þá heldur biðja um Magnús Þór en Ómar.
Magnús hefur ekki gerst sekur um að birta myndir af landi sem ekki sökk/sekkur við Kárahnjúka og sagt það munu sökkva sinni skoðun til framdráttar...
Ég hef líka lítið álit á þeim mönnum sem nýta sér stöðu sína sem fréttamenn til þess að breiða út áróður.
J. Einar Valur Bjarnason Maack , 4.4.2007 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.