Baugsmálið fer í enn einn hringinn í viðbót

Jón Gerald og Jón Ásgeir Baugsmálið tók enn á sig nýja stefnu í dag þegar að Jón Gerald Sullenberger og Tryggvi Jónsson fengu skilorðsbundinn dóm og Jón Ásgeir Jóhannesson var sýknaður í þeim liðum sem Héraðsdómur hafði áður vísað frá en var gert að taka efnislega fyrir af Hæstarétti. Jón Gerald fær þrjá mánuði á skilorði en Tryggi fær tólf.

Þetta mál virðist ætla að velkjast um í kerfinu nær endalaust. Það virðist alltaf vera leið með áfrýjunum eða annarri efnislegri meðferð ef einhverjir liðir hafa ekki verið teknir fyrir. Ég er fyrir lifandis löngu hættur að skilja þetta mál og hvað þá að gera á milli aðalpunkta þess og aukaatriðanna. Þetta hefur allt öðlast ígildi lönguvitleysu hinnar mestu, altént í augum okkar sem fylgjumst með fréttunum.

Það er erfitt um að segja hvort að einhversstaðar í þessari lönguvitleysu sé að finna einhver viðunandi sögulok. Það virðist ekki vera von á raunhæfum endalokum hér heima, enda virðist svo geta farið að málið fari út til efnismeðferðar fyrir dómstólum erlendis. Ég myndi allavega ekki útiloka þann snúning svo að endaleysan haldi áfram og fari að leita að endanum á sér úti í heimi.

mbl.is Jón Ásgeir sýknaður en Tryggvi og Jón Gerald sakfelldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband