15.7.2007 | 00:26
Einar Oddur Kristjánsson látinn
Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, er látinn, 64 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur í fjallgöngu í Dýrafirði í gær. Það er gríðarlegt áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn að missa Einar Odd með svo snöggum og sorglegum hætti. Það leikur enginn vafi á því í mínum huga að Einar Oddur var einn litríkasti þingmaður flokksins. Hann þorði að fara á móti straumnum og lét óhikað í sér heyra þegar að hann var andvígur málum, sem meira að segja voru lykilmál, á borð við öryggisráðsframboðið margfræga. Þá dáðist ég að honum.
Einar Oddur Kristjánsson fæddist á Flateyri 26. desember 1942. Hann hefur verið lykilmaður í starfi Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum í áratugi. Hann var framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Hjálms hf. á Flateyri um árabil og var ennfremur stjórnarformaður Kambs hf. Einar Oddur sat í rúman áratug í hreppsnefnd Flateyrarhrepps. Hann var formaður Vinnuveitendasambands Íslands í þrjú þýðingarmikil ár í íslenskri sögu, árin 1989-1992. Hann var einn lykilmanna í hinni sögufrægu Þjóðarsátt, vinnuveitenda og verkafólks, árið 1990, sem lagði grunninn að mikilli farsæld landsins í upphafi tíunda áratugarins. Eftir það var hann af mörgum nefndur Bjargvætturinn.
Einar Oddur Kristjánsson var kjörinn á Alþingi fyrir Vestfjarðakjördæmi í alþingiskosningunum í apríl 1995. Áður hafði hann verið formaður Sjálfstæðisfélags Önundarfjarðar, fulltrúaráðsins í V-Ísafjarðarsýslu og kjördæmisráðsins á Vestfjörðum. Einar Oddur kom inn á þing í stað Matthíasar Bjarnasonar, lykilforystumanns Sjálfstæðisflokksins um árabil á Vestfjörðum. Einar Oddur fyllti í sæti Matthíasar og gott betur en það. Hann reyndist sjálfstæðismönnum fyrir vestan traustur og öflugur leiðtogi í gegnum öll verk þessara tólf ára sem hann sat á Alþingi.
Einar Oddur Kristjánsson hefur verið litríkur stjórnmálamaður og aldrei hikað á sinni vegferð - hefur þorað og haft á sér blæ mannsins sem talar þegar að hann hefur skoðanir. Fyrir það verður hans minnst um alla tíð. Hafi hann þökk fyrir allt hið góða sem hann gerði. Lengi verður í huga mér spjallið okkar á veitingahúsinu Strikinu, eftir fund Sóknar um sjávarútvegsmál í október 2005 í Háskólanum hér á Akureyri. Það var kjarngott og skemmtilegt spjall um pólitík.
Ég votta Sigrúnu Gerðu, Brynhildi, Kristjáni og Teiti innilega samúð mína. Þau hafa misst mikið - það hafa líka sjálfstæðismenn á Vestfjörðum sem voru svo lánsamir að eiga Einar Odd, hinn trausta lykilmann, að sem þeirra trúnaðarmann í stjórnmálaforystu.
Guð blessi minningu Einars Odds.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.6.2008 kl. 15:18 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang (MSN): stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
- Boris Johnson á sigurbraut
- Sögulegur sigur hjá Trump - áfall fyrir demókrata
- Boris í lykilráðuneyti - klókindi hjá Theresu May
- Kvennabylgja fylgir Theresu May í Downingstræti 10
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Sæll Stebbi.
Takk fyrir hugleiðingu, ég votta öllum hlutaðeigandi innilega samúð.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 15.7.2007 kl. 01:03
Votta Sigrúnu Gerðu, Brynhildi, Kristjáni, Teiti
og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð.
Guð blessi minningu Einars Odds Kristjánssonar.
Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.7.2007 kl. 01:30
þetta er hræðilegt
halkatla, 15.7.2007 kl. 02:40
Vissulega er að mörgu að hyggja þegar sagt er frá andláti fólks, sérstaklega yfir hásumartímann þegar kannski erfitt er að ná í aðstandendur vegna sumarfría.
Sunnudagsblað Fréttablaðsins kom inn um bréfalúguna hjá mér fyrir rúmum einum og hálfum klukkutíma og á forsíðunni er andlátsfréttin birt.
Ég votta aðstandendum Einars Odds mína dýpstu samúð.
Björg K. Sigurðardóttir, 15.7.2007 kl. 03:06
Guð blessi aðstandendur Einars Odds og minninguna um hann.
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 15.7.2007 kl. 03:16
Sannarlega var Einar Oddur mikill stjórnmálaskörungur og ófeiminn við að láta sínar skoðanir í ljós. Sem hann og fylgdi fast eftir. Ég votta aðstandendum Einars Odds mína dýpstu samúð.
Hallgrímur Guðmundsson, 15.7.2007 kl. 03:53
Þetta er mikil sorgarfregn, dáinn langt fyrir aldur fram. Einar Oddur var einstaklega skýr og skemmtilegur áheyrnar, í raun heimilisvinur okkar allra, sem horfum á sjónvarp. Ég votta öllu hans fólki innilega samúð mína.
Jón Valur Jensson, 15.7.2007 kl. 03:57
Thar fer maður með eigin skoðanir allt of fljótt mikill er missir flokksins,ég votta fjoelskyldu hans mína dýpstu samúð.
María Anna P Kristjánsdóttir, 15.7.2007 kl. 09:43
Ég votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð. Guð blessi minngu Einars Odds.
Óðinn Þórisson, 15.7.2007 kl. 10:32
Ég endurtek einlæga samúðarkveðju mína, sem af einhverjum ástæðum hefur dottið út. Þar kvað ég Einar Odd heimilisvin okkar allra vegna kynna okkar af honum í sjónvarpi sem skýrum og skemmtilegum málsvara sinna hugsjóna og baráttumála. Og það er oft tekið þannig til orða, að hæfileikamenn deyi fyrir aldur fram, þegar allir hefðu vænzt þess, að þeim yrði mun lengri lífdaga auðið, landi og þjóð til blessunar. Með slíkum orðum var ég að sjálfsögðu ekki að hafna því, að Drottinn geti útmælt okkur tímann og kallað okkur til sín, eins og Honum lízt bezt. Guð blessi minningu Einars Odds og styrki aðstandendur hans alla.
Jón Valur Jensson, 15.7.2007 kl. 12:41
Þakka þer fyrir Friðrik,þú sagðir það sem þurfti við þessar sorglegu fréttir/Halli Gamli
Haraldur Haraldsson, 15.7.2007 kl. 16:03
Þetta eru afar sorgleg tíðindi og ég votta öllum aðstandendum samúð. Hræðilegt að missa kraftmikinn þingmann í fullu fjöri.
Lára Stefánsdóttir, 15.7.2007 kl. 22:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.