Vinir Randvers sætta sig við brottreksturinn

Randver Það vekur mikla athygli að félagar Randvers Þorlákssonar í Spaugstofunni í tvo áratugi sætti sig við það að hann hafi verið rekinn. Þeim hlýtur þó að vera brugðið. Spaugstofan hefur verið heild fimm manna frá árinu 1989. Einn hlekkur er ávallt mikilvægur í keðjunni, er jafnan sagt. Þeim hlýtur að muna um Randver, þó sennilega telji mjög margir að hann hafi ekki verið besti gamanleikarinn í hópnum - en hann var einn þeirra sem áttu þátt í að Spaugstofan er einn vinsælasti grínþáttur sjónvarpssögu landsins.

Saga Spaugstofunnar verður aldrei skráð án þess að nafn Randvers verði nefnt. Í ljósi þess og hinnar löngu sögu þáttarins á dagskrá Sjónvarpsins, með hléum, frá árinu 1989 er frekar undarlegt að honum sé stjakað út úr þættinum með valdboði að ofan, eins og jafnan er sagt. Allt annað hefði verið ef Randver hefði ákveðið að eiga sín vistaskipti að eigin frumkvæði. Ég hélt að Spaugstofan væri fimm manna hópur. Þar gilti hið fornkveðna, allir fyrir einn - einn fyrir alla. Það virðist ekki vera. Þeir segjast vera hverjir aðrir verktakar hjá ríkisins miðlum og því sé nokkurn veginn í lagi að slá einn þeirra af með ákvörðunum þeirra sem valdið hafa.

Þetta er svolítið sviplegur endir á sögu fimmmenninganna í Spaugstofunni. Ég hef ekki alltaf verið sáttur við grínið þeirra, en þá bara skrifað um það. Hinsvegar hef ég alla tíð verið sannur aðdáandi Spaugstofunnar, fylgst með þeim frá byrjun og líka þáttunum sem þeir gerðu saman með Ladda fyrir árið 1989, en þar var Randver með líka. Þeir hafa markað spor í sögu grínefnis í sjónvarpi. Enginn gamanþáttur hérlendis hefur verið lífseigari og vinsældirnar haldið í gegnum þykkt og þunnt. Þó þeir hafi jafnan þorað að stuða, bæði yfirvöld stjórnmála og trúar, og tekið þjóðsönginn fyrir hefur þjóðin fylgt þeim.

Það má því segja í raun að endalok hópsins sem hefur starfað saman svo lengi er sviplegt. Og enn meiri athygli vekur að hópurinn líti ekki lengur á sig sem hóp heldur einstaklingsverktaka sem hugsi ekki um hópinn. En það verður vissulega fróðlegt að sjá framtíð Spaugstofunnar - nú sem kvartetts án Randvers Þorlákssonar.

mbl.is Randver hættir í Spaugstofunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Mér finnst þetta mjög leiðinlegt. Bæði er þessi hópur búinn að halda saman öll þessi ár auk þess sem Randver er alveg frábær grínisti, fyndnari en t.d. Karl Úlfsson að mínu mati. Randver náði Valgerði Sverrisd. einstaklega vel en nú verður líklega ekki svo mikið gert grín að henni meir. Kannski var hann látinn fara þess vegna.
Nei hvað veit maður?

Kolbrún Baldursdóttir, 13.9.2007 kl. 17:09

2 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Hvaða Vinir?? Mér finnst leggjast lítið fyrir kappana sem hann hefur starfað með fram að þessu.Það er alveg óhætt að afskrifa Boga og Örvar t.d.Ánnars samála því sem þú segir.

Ari G Hallgrímsson

Ari Guðmar Hallgrímsson, 13.9.2007 kl. 17:49

3 Smámynd: Janus

Mjög spes ég er ánægður að ég var ekki vinur spaugstofunnar og verið sparkað út úr saumaklúbbnum. Kannski kann Randver ekki að sauma???

 Sammála því sem þú segir....mjös spes!!

Janus, 13.9.2007 kl. 18:55

4 Smámynd: Erla Margrét Gunnarsdóttir

persónulega finnst mér að allir þessir kappar ættu að hætta að vera á spenanum hjá ríkinu. spaugstofan er löngu runnin sitt skeið og væri fjármununum mun betur varið í nýja og uppörvandi sjónvarpsdagskrá, sem rúv veitir nú ekki af.

Erla Margrét Gunnarsdóttir, 13.9.2007 kl. 23:55

5 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk kærlega fyrir kommentin.

Kolbrún: Notalegar pælingar, leist vel á þær. Finnst þetta leiðinleg endalok, það er bara þannig. Að henda Randver út eftir öll þessi ár og enginn skuli mótmæla í hópnum er fyrir neðan allt. Talið um verktakana var nú alveg til að kóróna vitleysuna. Þetta hefur alla tíð verið hópur og presenteraður þannig.

Ari: Þetta var reyndar húmor hjá mér. Þeir eru varla vinir sem sætta sig við svona.

Janus: Takk fyrir góð orð og fína pælingu. Skil ekki í þessu sparki í Randver allavega.

Erla: Já, vissulega er Spaugstofan ekki með alveg sama neista í denn. En þeir geta enn gert góða hluti. En kannski munu þetta verða endalokin. Þeir eru kannski að reyna að ná tvítugsafmælinu bara eftir tvö ár. :)

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 14.9.2007 kl. 00:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband