Það er ekkert betra en íslenskt nammi

Nóa konfekt Í huga okkar flestra er alveg ljóst að ekkert slær út íslenska nammið. Það er eitthvað við súkkulaðið hérna sem er alveg einstakt, sérstaklega frá Nóa Síríus. Það er því gott að heyra að fólk erlendis pantar nammi héðan í kassavís af hinni skemmtilegu vefverslun á nammi.is, þar sem hægt er að kaupa allt hið besta af íslensku nammi.

Man að ég skoðaði síðuna fyrir nokkru og spurði mig eiginlega að því hvort að síðan væri að mala gull út fyrir landsteinana. Hvort að það væru kannski bara Íslendingar sem væru að panta þar. Það er gott að vita að svo sé ekki, og margar pantanir sem koma þar inn séu einmitt frá útlöndum. Þetta er skemmtileg markaðssetning sem vekur athygli hið minnsta.

Sérstaklega finnst mér áhugavert að Bretar, sem eiga mjög góðar súkkulaðitegundir, hrósi sérstaklega okkar afurðum, t.d. hinum frábæra Þristi. Þetta er ánægjuleg og óvænt útrás þykir mér, þó reyndar vitum við öll hvað íslenskt nammi er yndislega gott.

mbl.is Íslenskt nammi vinsælt vestanhafs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband