Angelina Jolie fjölgar mannkyninu

Brad Pitt og Angelina JolieÞað verður nú seint sagt um óskarsverðlaunaleikkonuna Angelinu Jolie að hún sé feit, enda hefur hún alla tíð borið þá ímynd að vera mjög grönn. Nú eru hinsvegar sögusagnir um að hún eigi von á öðru barni sínu, en fyrir á hún eitt barn, Shiloh, og hefur ættleitt heilan helling af börnum, sennilega þrjú börn að mig minnir. Þeir sem hafa séð myndina Girl, Interrupted, sem færði Jolie óskarinn fyrir sjö árum, sjá þar ímynd hennar sem spengilegrar konu. Móðurhlutverkið hefur fært henni enn aðra ímynd.

Jolie þýðir fögur, það er réttnefni á Angelinu sem þykir með fögrustu konum kvikmyndaheimsins. Hún hefur enda verið kyntákn alla tíð. Miðnafnið Jolie er því ekki ættarnafn, heldur er ættarnafn hennar Voight, enda er faðir Angelinu óskarsverðlaunaleikarinn Jon Voight sem var einn af þekktustu leikurum sinnar kynslóðar, og hlaut óskarinn fyrir eftirminnilega túlkun á lamaða hermanninum í Coming Home, manninum sem kemur heim lamaður frá Víetnam. Jolie og Voight hafa ekki talað saman í ein fimm ár vegna ágreinings, en vinna í því að laga samskiptin núna.

Jolie hefur átt erfitt síðustu mánuði. Það eru nokkrir mánuðir síðan að móðir hennar, leikkonan Marcheline Bertrand, lést úr krabbameini og auk þess hefur stjarnan sokkið sér ofan í góðgerðarstarf um allan heim, einkum í Asíu, en hún er sem kunnugt er góðgjörðarsendiherra Sameinuðu þjóðanna þar. Hún hefur með því hlutverki fetað í fótspor margra þekktra leikara, t.d. Audrey Hepburn sem var mannréttindatalsmaður alla tíð samhliða leikferlinum og var í sama hlutverki og Jolie er eiginlega nú. Jolie hefur sinnt hlutverkinu vel og gott dæmi er að hún dvaldi um jólin 2005 á hörmungarsvæðunum í Asíu þar sem flóðbylgjurnar skullu á nokkru áður.

Áhyggjur hafa verið uppi um það að vinnan sé að sliga leikkonuna. Hún bæði borði og sofi of lítið og heilsan sé ekki í forgrunni. Þetta er skapmikil og ákveðin kona sem er ekki vön að láta karlana í kringum sig stjórna sér. Gott dæmi er um það hvernig að samskiptum hennar og föðurins lauk með hvelli fyrir nokkrum árum og hún lét Billy Bob Thornton gossa þegar að hann var farinn að skipta sér of mikið af hennar málum. Ekki er nú langt síðan að talað var um mikla erfiðleika hjá Jolie og Brad Pitt. Börnin hafa þó sameinað þau.

Annars hefur jafnan verið sagt um stjörnurnar að þær séu skapmiklar. Ætli Angelina Jolie sé ekki gott dæmi um það. Móðurhlutverkið verður henni sennilega enn og aftur mikilvægt við þessar aðstæður.


mbl.is Angelina Jolie sögð barnshafandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband