Hrottalegur verknaður

Það er skelfilegt að heyra af hinni hrottalegu nauðgun í miðborg Reykjavíkur um síðustu helgi. Nauðgun er eitt af því ógeðslegasta sem til er, ógeðfelldur glæpur sem setur mark sitt á sálu þeirra sem fyrir verða um aldur og ævi. Það sem mér finnst mest sláandi við þessa frétt er að yfir 118 nauðgunarmál hafa borist neyðarmóttöku nauðgana. Það er ótrúlega há tala og fær alla til að hugleiða þessi mál frá grunni.

Þetta er óeðlilega hátt hlutfall grimmdarverknaðar af þessu tagi, altént í því samfélagi sem við flest viljum lifa í. Það verður að berjast gegn þessu með öllum tiltækum hætti. Það er aldrei barist nógu mikið gegn svona ógeði.

mbl.is Tveir grunaðir um hrottalega nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Kristinsson

veit að þessir tveir eru lettar, en er þessi mikla aukning á nauðgurum vegna aukins fjölda útlendinga, vona að íslenskir karlmenn séu ekki að bera minni virðingu fyrir kvenfólki

Haukur Kristinsson, 14.11.2007 kl. 20:55

2 identicon

Stefán ==> Það er aldrei barist nógu mikið gegn svona ógeði.

Erum við ekki sammála um að það er of mikið gert þegar saklausir menn eru dregnir ofan í svaðið ?

Fransman (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 22:39

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Gæti ekki verið meira sammála !

Jónína Dúadóttir, 14.11.2007 kl. 22:47

4 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Það sem er skelfilegast að vita í þessum málum er að ansi margir af þessum "mönnum" fá síðan litla eða enga refsingu þar sem lagaflækjur og formgallar verða þeim oft til hjálpar.  Það er algjörlega óþolandi

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 14.11.2007 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband