Lögreglan tekur á rasistunum á skapari.com

Með lögum skal land byggja! Það er mjög ánægjulegt að heyra að lögreglan ætli sér að taka af hörku á rasistunum sem skrifað hafa með ógeðfelldum hætti á vefinn skapari.com og tala þar mikið um Óvini Íslands. Það blasir við öllum að fjöldi laga er brotinn með skrifum á þessum vef, þar er meðal annars ráðist harkalega að forsetahjónunum, auk fjölda annars nafngreinds fólks.

Ekki er hægt að una við skrif af þessum toga eða þann boðskap sem þar sést. Það er engin furða að nafnleysi sé yfir skrifunum, enda vilja þeir sem að þessum boðskap standa væntanlega ekki fara í fangelsi eða svara til saka fyrir það. Held að lögreglan sé að senda góð skilaboð með þessu.

mbl.is Rannsókn hafin á kynþáttanetsíðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Mikið agalega er ég ánægð með þetta

Jónína Dúadóttir, 15.11.2007 kl. 08:44

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Sammála Stebbi gott mál.

Hallgrímur Guðmundsson, 15.11.2007 kl. 09:27

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Svakalega eru allir hástemdir. Var þetta ekki einhver unglingur, sem flosnað hefur upp úr skóla, að gera at? Ég nennti ekki einu sinni að lesa þetta sprell.

Sigurður Þórðarson, 15.11.2007 kl. 10:00

4 Smámynd: Fannar frá Rifi

Við verðum samt að gæta að einu í tilvikum sem þessum. að við förum ekki að banna skoðanir bara útaf því að við erum á móti þeim. hinsvegar eru allar hótanir um ofbeldi eða annað þaðan af verra, að vera sett í rannsókn undir eins og slík mál koma upp.

öll ritskoðun og höft á almennu málfrelsi ber að varast. jafnvel þó að meiningin sé góð með þeim. 

Fannar frá Rifi, 15.11.2007 kl. 10:08

5 Smámynd: Óðinn

Já þetta er pínu fasistakenndar aðgerðir hjá valdinu, en ég túlkaði þessa síðu sem grín frá upphafi til enda. Ef þið kannist við internet-hugtakið "troll" þá er ekki annað hægt en að hlæja að þessari síðu. Þarna eru notaðar klassískar leiðir til að vekja upp sterk viðbrögð með einhverju af eftirfarandi:

a) Úthýsingar og nafnaköll

b) Rökleysa færð út sem rök, þó áberandi sé að þau séu röng

c) Vinsæl slagorð og / eða tilvitnanir notaðar til að efla málstað sinn með samhengisleysi og mistúlkun.

Þessi síða gerist sek af öllum þessum hlutum og því má halda að annaðhvort er hér að ræða virkilega djarfann húmorista eða gífurlega heimskann aðila. Vitandi að hann hefur sett upp heila vefsíðu til að flytja soramálstað frá kolli sínum til samborgara sinna á svona gífurlega umdeildu málefni má ætla að þetta sé ekkert nema grín. Ef ekki, þá er kominn tími til að lögreglan hætti að dansa við Ármúlasöfnuðinn og fari að handtaka hann fyrir sínar skoðanir gagnvart þjóðfélagsflokkum eins og samkynhneigðum.

Til að vitna í síðuna:

"Once you go black, you never go back,"
"More like, once you go black, we don't want you back!"

Þið hljótið að sjá grínið - ekki er lögreglan að gera það. Ekki finnst mér Baldur Freyr fyndinn - takið á honum frekar. 

Óðinn, 15.11.2007 kl. 10:54

6 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Þakka kommentin.

Jónína: Já, þetta er gott mál.

Sigurður: Orðum verður að fylgja ábyrgð. Það verður að taka á þessu máli, ekkert hik á því. Orð á þessari vefsíðu voru þess eðlis að það verður að vita hver stóð að því og láta hann sæta ábyrgð.

Fannar: Þetta snýst ekki um skoðanir. Þetta snýst um klárt lögbrot. Þarna var fólki hótað vegna skoðana sinna og m.a. forsetahjónunum vegna þess að hún er af erlendu bergi brotin. Það þarf að taka á lögbrotum.

Óðinn: Má vera. Það þarf að kanna bakgrunn þessarar síðu, fá fram hver skrifaði og hverjar voru ástæður þessa. Það er fjarstæða að horfa þegjandi á þennan ósóma.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 15.11.2007 kl. 11:37

7 identicon

Verið ekki svona miklir hræsnarar. Fólk á að geta tjáð sig um allt.

Einu sinni voru samkynhneigðir vondir og ennþá má kirkjan segja það.....ok og allt í lagi.. en af hverju megum við hin það ekki líka ?

Ef honum finnst eitthvað að þessu fólki má hann mín vegna tjá sig um það. Mér finnst ekki eðlilegt að fólk sé að skipta sér af því.

Mér finnst líka allt í lagi að fólk viti það að ef við blöndum íslenska stofninn með öðrum kynstofnum, þá er það ekki aftur tekið. En það er bannað að tala um það nema ef um beljur væri að ræða.

Nú var td kaffi Akureyri að banna "dónalega pólverja", mér finnst það vera þvílíkur rasismi að banna þeim að koma þarna inn. Ég man nú vel eftir mörgum dónalegum Akureyringum hér á kaffi Reykjavík.....lol....Nú eru Pólverjar hvítir og margir mun glæsilegri og betur þjálfaðri en íslenskir sveitalubbar þarna fyrir norðan. Ef þeir hefðu verið dökkir hefði nú aldeilis heyrst í sumum...sem ekki hafa sagt nokkurn skapaðan hlut yfir þessum aðgerðum hjá Kaffi Akureyri.

Rasismi getur verið ýmiskonar, ég veit td um marga dökka rasista sem hata hvíta. Og hvíta sem hata hvíta sem hata svarta og svo framvegis.

Þannig að blessuð hættið þessu væli. Fólk á að geta haft  sínar skoðanir, án þess að það þurfi að handtaka hinn og þennan, eins og þetta land sé eitthvert helvítis kommúnistaríki. Viljið þið að þetta verði eins og Þýskaland þar sem meira að segja rúnir eru bannaðar?

Sigríður Bryndís Baldvinsdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2007 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband