Vondar fregnir

Seðlar Það er óhætt að segja að það séu vondar fregir séu erlendir fjárfestar búnir að missa trúna á efnahagskerfinu okkar. Við höfum átt við afgerandi erfiðleika að etja sem við þurfum að vinna úr. Veit ekki hvort rétt sé að gefa íslensku krónuna upp á bátinn, hef ekki verið harður talsmaður þess, enda vil ég trúa því að við getum leyst okkar vandamál.

Þar veltur mikið á Seðlabankanum. Veit þó ekki hvort hann er að gefa gagn eða ógagn með ákvörðunum. Varð fyrir vonbrigðum með hann í síðustu ákvörðun sinni. Ég tel að upptaka Evru sé engin heilög lausn á vanda þjóðarinnar. En það þarf að ræða þessi mál þó fordómalaust. Það er fjarstæða að halda úti gjaldmiðli bara stoltsins vegna. Ef við getum ekki varið krónuna og stöðu okkar hér verður íslenska krónan sem myllusteinn um hálsinn á okkur.

Veit ekki á hvaða leið við erum, en það er þó ljóst að það er okkur til vansa missi fólk trúna á okkur, bæði getu okkar og styrkleika. Í þeim efnum er ekki hægt að una. Held þó að örlög krónunnar ráðist brátt. Ef okkur tekst ekki að verja hana bráðlega verður álitamál hversu sterk hún sé, til framtíðar.

mbl.is Hafa misst trúna á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband