Gleðileg tíðindi

SÞÍ miðjum hversdagslegum átökum um hin ýmsu mál samfélagsins hljóta allir að fagna glæsilegri útkomu Íslands á lista Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna um lífskjör. Þar erum við í efsta sæti. Enda var greinilega samstaða á þingi í dag um að lýsa yfir ánægju með þessa útkomu. Það er varla annað hægt en að gleðjast yfir því sem gott telst.

Þetta er auðvitað gæðastimpill fyrir okkur. Við getum talið okkur trú um að við séum á góðri leið. Samt sem áður verða alltaf til vandamál að einhverju leyti. Það er sennilega aldrei hægt að búa til svo fullkomið samfélag að allir séu hoppandi glaðir og sælir með sitt. Enda eru alltaf vandamál að einhverju tagi í heiminum. En þetta er samt vísbending um það að við getum glaðst yfir hinu góða.

Mikið er talað um misskiptingu hins góða í samfélaginu. Það á alltaf að vera markmið okkar að vinna að því að við séum sátt með okkar og hjálpa beri þeim sem ekki eru jafn lánsamir í lífinu. En þessi skilaboð frá Sameinuðu þjóðunum eru sannarlega jákvæð og hvað svo sem okkur finnst getum við metið þetta veganesti mikils. En við verðum alltaf að halda vöku okkar og muna að við verðum aldrei fullkomin, það er alltaf verk að vinna.


mbl.is Þingmenn gleðjast yfir góðum árangri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðbergur Daníel Gíslason

Þetta sýnir okkur það að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur verið að gera Ísland að sífellt betra landi. Það er að mestum leiti hægt að þakka Davíð Oddsyni fyrir, það kemst enginn með tærnar þar sem hann var með hælana. 

Ég fagna því að Ísland sé efst á lista þjóða heims um lífsgæði.

Auðbergur D. Gíslason
14 ára Sjálfstæðismaður

Auðbergur Daníel Gíslason, 27.11.2007 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband