Smekkleysi í Efstaleitinu

Útvarpshúsið Mér finnst það algjört smekkleysi að troða auglýsingu inn í mitt áramótaskaupið. Var að vona að það yrði ekkert af þessu en eftir að það varð ljóst má heita svo að ég hafi blótað Ríkisútvarpinu í öðru hverju orði og það þó aðeins séu um hundrað klukkutímar til jóla. Á hverju eigum við eiginlega næst von? Að aftansöngur jóla á aðfangadagskvöld verði í boði Glitnis og biskupinn lofsyngi auðvaldið?

Þessi auglýsingafílingur hjá RÚV er farinn út í algjört rugl. Hef svosem getað sætt mig við að Útsvar og fleiri þættir séu klipptir í tvennt eða þrennt með auglýsingahléum en mér finnst það að klippa áramótaskaupið, helgustu stund flestra sjónvarpsáhorfenda, jaðra eiginlega við helgispjöll. Held að þetta verði ekki vinsælt hjá sjónvarpsáhorfendum og Remax sé ekki heldur að skora nein mörk með þessu.

Það er kominn tími til að einkavæða Ríkisútvarpið. Með svona markaðsheila innanborðs ættu þeir að geta spjarað sig án forgjafar frá ríkinu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Hvurslags öfugmæli eru nú þetta? Er ekki akkurat ástæðan fyrir því sem verið er að væla yfir hér sú, að þessi stofnun er að verða svo "markaðsdrifin" að menn eru að týna inn aura á öllum hornum til að réttlæta m.a. "markaðslaun" stjórans, sem enginn skilur?

Sé nú ekki alveg hvernig einkavæðing lagar umkvörtunarefnið, nema síður sé....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 21.12.2007 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband