Vínberjaát í verslunum

Vínber

Alltaf gaman að hlusta á svæðisfréttirnar hérna á Akureyri. Missi aldrei af þessum héraðsfréttum og notalegt að geta alltaf gengið að þeim vísum á ruv.is þegar að ekki er hægt að hlusta á í beinni. Fannst skondið að hlusta á fréttina sem þar var sögð í dag um vínber í Hagkaup. Þar var komið með þá kostulegu tölfræðilegu staðreynd að viðskiptavinir Hagkaupa hér á Akureyri sporðrenni eitthvað um eða yfir 6 tonnum af vínberjum á ári hverju án þess að greiða fyrir þau.

Alveg kostulegt mál. Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt. Maður sér svosem oft fólk að versla í búðunum sem fá sér eitt og eitt vínber af stilkunum, en já 6 tonn er tala sem fáum órar held ég fyrir í raun þegar að þeir fara í búðina að versla.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Arnarsson

Já, og þegar búðahnupl er skoðað, þá hnupla Íslendingar úr búðum fyrir að meðaltali 9.000kr.- á ári. Það er ansi há upphæð.

Sveinn Arnarsson, 18.10.2006 kl. 02:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband