Aldarminning um Bette Davis

BetteDavisÍ dag er öld liðin frá fæðingu bandarísku óskarsverðlaunaleikkonunnar Bette Davis, sem var ein besta leikkona 20. aldarinnar - margfræg fyrir sín leiftrandi augu og svipmiklar túlkanir á miklum kjarnakonum. Söngkonan Kim Carnes samdi og söng yndislegt lag um augu leikkonunnar, Bette Davis Eyes, árið 1983, sem varð einn af stóru smellum níunda áratugarins. Það er í spilaranum hér á vefnum.

Enginn vafi leikur á því að túlkun Bette á leikkonunni Margo Channing í All About Eve er hennar besta á ferlinum. Myndin er auðvitað ein af mestu klassíkum kvikmyndasögunnar, skartar glæsilegum leikframmistöðum, skotheldri sögu og einu besta kvikmyndahandriti allra tíma. Svo innilega leiftrandi af mælsku, húmor og hnyttni - traust blanda af því allra besta frá gullaldarárum Hollywood og tekur leikhúslífið og gerir að því gys. Glamúrinn og glysinn verður þar allt öðruvísi en í öllum öðrum myndum.

Það er reyndar eiginlega eins og Bette sé að leika sjálfa sig í þessari mynd, enda að leika fertuga leikkonu sem hefur haft öll heimsins tækifæri en er allt í einu ekki lengur eins ung og geislandi og áður. Bette átti á þeim tímapunkti og hún nældi sér í hlutverk Margo orðið mjög erfitt með að fá hlutverk eftir einn glæstasta leikferil kvikmyndasögunnar. Bette hafði ung náð miklum frama og hlotið tvenn óskarsverðlaun fyrir leik í aðalhlutverki á fjórða áratugnum, í Jezebel og Dangerous, og voru allir vegir færir. Þegar að kom að lokum fimmta áratugarins hafði hún einhvernveginn fest sig í að leika hina ungu leiftrandi konu krafts og orðmælgis.

Það verður reyndar seint sagt um Bette Davis að hún hafi verið allra, hún var rétt eins og margar kvenpersónurnar sem hún lék bæði sjálfstæð og mikill eldhugi sem fór eigin leiðir. Þó að hlutverk Margo Channing hafi verið hennar allra besta vann hún ekki óskarsverðlaunin fyrir rulluna. Verðlaunin fóru til Judy Holliday og náði hún að sigra báðar gullnu stjörnurnar í bransanum, Bette og gyðju þöglu myndanna, Gloriu Swanson, sem átti leiftrandi endurkomu með túlkun sinni á Normu Desmond í Sunset Boulevard.



Þegar að ég minnist Bette gnæfir túlkun hennar á Margo upp úr. Ekkert annað er eftirminnilegra, enda tel ég það eina bestu túlkun leikkonu á síðustu öld, svo innilega leiftrandi og traust tjáning. Auk þess kemur einna sterkust fram í hugann túlkun hennar á Julie í Jezebel, Mildred Rogers í Of Human Bondage, Joyce í Dangerous, Gabrielle Maple í The Petrified Forest, Judith í Dark Victory, Charlotte í The Old Maid, Leslie í The Letter, Maggie Cutler í The Man Who Came to Dinner, Charlotte Vale í Now Voyager, Söru í Watch on the Rhine, Fanny í Mr. Skeffington og Regínu í Little Foxes.

Tvær túlkanir hennar frá síðari hluta ferilsins eur þó sérstaklega eftirminnilegar. Í Whatever Happened to Baby Jane verða augun hennar sérstaklega eldfim, ógnvekjandi og svo innilega kröftug í hinni mögnuðu túlkun á Jane Hudson. Þvílík upplifun að sjá þá mynd og þær tvær stjörnur gullaldaráranna, Bette og Joan Crawford, ná nýjum hæðum. Síðasta stórrullan hennar Bette, túlkunin á
Libby Strong í The Whales of August er svo innilega traust og heilsteypt og samleikur hennar með Lillian Gish, einni bestu leikkonu gullaldaráranna, var pottþéttur. Þær létust báðar skömmu síðar.

Má reyndar ekki gleyma túlkun Bette á hinni pjöttuðu og yfirdrifnu Marie í myndinni Death on the Nile, undir lok áttunda áratugarins, byggð á hinni frábæru sögu Agöthu Christie um einkaspæjarann Hercule Poirot. Þetta er besta mynd Ustinovs í hlutverki Poirot og myndin er mikið persónugallerí áhugaverðra karaktera - Bette Davis er einhvern veginn rúsínan í pylsuendanum sérstaklega í túlkun sinni.



Bette Davis var ein af hinum stóru stjörnu gullaldartímans í Hollywood. Það eru tveir áratugir frá því að hún dó en snilld hennar og leiftrandi túlkun mun aldrei gleymast. Þeim sem vilja upplifa þessa drottningu hvíta tjaldsins bendi ég sérstaklega á að horfa á All About Eve og Whatever Happened to Baby Jane. Svo sakar ekki að geta komist yfir The Whales of August, sem er hinn frábæri lokapunktur hins litríka leikferils.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband