14.5.2008 | 10:48
Veruleikafirring Vilhjálms - snúa þarf vörn í sókn

Velti því reyndar mjög fyrir mér hvernig þeim líði núna sem unnu fyrir Vilhjálm Þ. baki brotnu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins haustið 2005 og sögðu hann vera með reynsluna sem þyrfti í leiðtogastöðuna. Hann fór sérstaklega fram þá með slagorð tengd rúmlega tveggja áratuga borgarfulltrúaferli sínum og löngu starfi fyrir flokkinn. Frægar sögur eru af símtölum þar sem stuðningsmenn Vilhjálms Þ. töluðu gegn Gísla Marteini vegna þess að hann væri svo óreyndur og gæti aldrei orðið sterkur leiðtogi, annað en Vilhjálmur Þ. sem hefði reynsluna og aldurinn í hlutverkið.
Mjög dapurlegt hefur verið að fylgjast með pólitískri framgöngu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á þessu kjörtímabili. Hann fékk gullið tækifæri til að leiða Sjálfstæðisflokkinn rétta leið eftir tólf ára minnihlutasetu en mistókst það með vinnubrögðum sínum, sérstaklega í haust þar sem hann hafði samstarfsfólk sitt í borgarstjórn Reykjavíkur ekki með í ráðum og vann bakvið tjöldin með afleitum hætti. Gamaldags vinnubrögð úrelts leiðtoga. Ofan á allt annað voru fyrri mistök rifjuð upp í febrúar og Vilhjálmur Þ. náði ekki að ljúka málum með virðugleika og sóma fyrir flokkinn á örlagastundu.
Farsælast væri fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík að Vilhjálmur léti sem fyrst af leiðtogahlutverkinu og tryggði flokknum tækifæri til að stokka sig upp í skugga þessarar vondu stöðu sem eru eftirmæli leiðtogasetu hans. Áfellisdómur kjósenda yfir forystu Vilhjálms Þ. er greinilegur í þessari könnun og kallað eftir uppstokkun, sýnt verði myndugleika og flokknum tryggð sterk forysta til að taka á vandamálunum. Kjósendur flokksins yfirgefa hann vegna mistakanna á vakt Vilhjálms Þ. Heiðarlegast er að leiðtoginn axli ábyrgð á slíku klúðri.
Við blasir að það verður að taka af skarið fljótlega og tryggja styrka forystu fyrir flokkinn, nú þegar að leiðtoginn er rúinn trausti og trúverðugleiki hans gufaður upp. Svarið við stöðunni er ekki sú veruleikafirring sem felst í orðum hans, að umræðan ein hafi skaðað flokkinn. Enda langur vegur þar frá. Ekki þýðir að benda á aðra, heldur horfast í augu við stöðuna og reyna að snúa vörn í sókn.
![]() |
Umræðan Sjálfstæðisflokknum afar erfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Stefán Friðrik Stefánsson

Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang: stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Bjarni Benediktsson hættir í stjórnmálum
- Áhugavert uppgjör Geirs Haarde við pólitíkina og lífsins ásko...
- Pólitískar vendingar með hækkandi sól
- Að loknum alþingiskosningum
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
Maí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Virkilega góð grein hjá þér nafni og já, ég held að það fólk sem vann að framgangi Vilhjálms hljóti að hafa virkilega slæma samvisku í dag, enda er maðurinn svo gott sem með allt niður um sig í borgarpólitíkinni og hann ásamt Ólafi F borgarstjóra eru að draga alla borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins með sér niður í skítinn. Ég hlustaði á hina annars hörðu sjálfstæðiskonu Agnesi Bragadóttir segja á Bylgjunni í morgun , að niðurstaða þessarar skoðanakannanar væri mátuleg á fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Út með Ólaf F og Vilhjálm hið bráðasta !!!
Stefán (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 11:25
Stefán, hvenær hefur það tekist í pólitíkk, að skipta út á miðju kjörtímabili ÞEGAR FLOKKURINNER Í STJÓRNAR-AÐSTÖÐU??????
Við sem erldri erum vitum, að slíkt heffur komið út sem að menn séu looserar.
Hér duga ekkert ítrekuð köll á að Hanna Birna Eða Gísli verði látin taka við. Það verður að vera útkljáð í prófkjöri fyrir næstu kosningar.
Hitte r afnvíst, að hér eru kjósendur að refsa okkur hér í Höfuðborginni, vegna vingulsháttar í stjórnkerfisbreytingum og ekki-breytingum. Svo er annar faktor, sem ekki má taka út fyrir sviga en það er skelfileg óánægja með aðgerðir í peningamálum á borði ALþingis.
Mér er daglega sagt, í samtölum við flokksjálka, að nú séu þeir loks búnir að fá nóg af dillingum á peningaguttum og dúnsængurkerfi við banka og lögfræðinga. Nú herðir að og líkt og nótt fylgir degi, koma innheimtulöffar í kjölfar góðæris, sem nú er lokið í bili, með aðgerðum einmitt banka, þegar þeir tóku stortstöðu á Ískr, líkt og 2002 á haustmánuðunum þá.
Nú verða okkar menn, að endurskoða þau ,,ferli" sem unnið er eftir og taka til við að hlusta á grasrótina, grasmaðkurinn skríður ekki strax upp í hlustir þeirra.
Miðbæjaríhaldið
Bjarni Kjartansson, 14.5.2008 kl. 11:26
Heill og sæll Stefán.
Ekki er ég sammála þér mér finnst þú ættir að skoða þetta mál betur enn þú gerir. Það þýðir ekkert að vera með upphrópunarmerki þessa stundina. Ég tel að Sjálfstæðismenn muni segja sína skoðun án þess að vera að ræða það án þess að skoða þessi mál ofan í kjölinn. þetta er miklu dýpra. Þínir eineltistilburðir að kenna Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni um alla skapaða hluti er algjör fyrra.
Hinsvegar vil ég benda þér á, það eru skipulagðir áróðursmeistarar sem vinna gegn þeim sem stjórna þar með Vilhjálmi Þ Vilhjálmssyni, og formanni Sjálfstæðismanna þetta hefur lengi verið í gangi og stendur enn. Ég tel þessa aðför ekki vera góða fyrir íslenska stjórnsýslu þegar menn skrifa eða blogga um hluti sem ekki er stafur fyrir.
Það vil svo vel til það hafa fleiri skoðun á hlutunum þótt þeir séu ekki alltaf í loftinu. Mér finnst skrif þín ekki málefnaleg vitna í skoðunarkönnun sem er jafnvel pöntuð af andstæðinginum sem vil Sjálfstæðismenn burtu úr öllum stjórnum. Þessi rök duga mér ekki. Ég tel mig þekkja þessa hluti mjög vel án þess að segja þér það. Ég tel að Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson eigi að vera þangað til hann tíma bili er lokið. Síðan mun verða prófkjör og þá geta Sjálfstæðismenn tekið sína afstöðu.
Jóhann Páll Símonarson.
Jóhann Páll Símonarson, 14.5.2008 kl. 13:11
Þakka kommentin.
Ólafur: Heiðarlegt er að segja sína skoðun. Ég þori alveg að láta í mér heyra þegar að vandamál eru í mínum flokki, enda er þögnin ekki valkostur þegar að þarf að tala. Þögnin leysir engan vanda.
Jóhann Páll og Bjarni: Ég met ykkur báða mikils og skil ykkar sjónarmið vel. Þau hefðu kannski átt við fyrir nokkrum vikum en við erum að eiga við mjög erfiða stöðu og það er ekkert annað í stöðunni en taka til hendinni og reyna að taka á þessum vandræðum sem flokkurinn í Reykjavík er kominn í. Afneitun á vandanum er ekki valkostur, þótt kannski hljómi vel fyrir einhverja að horfast ekki í augu við vandann. Það sjá allir að leiðtogaskipti eru í kortunum. Það þarf að ákveða sem fyrst hver verði borgarstjóri og taki við forystu flokksins. Flokkurinn er höfuðlaus her með þetta í lausu lofti. Það er hin napri veruleiki. Ef þið takið ekki á honum er það svosem ykkar vandamál.
mbk.
Stefán Friðrik Stefánsson, 14.5.2008 kl. 13:50
tebbi minn, það er ekki svo, að ég beri nokkurn kala til sjónamiða þinna um, að þér finnist,a ð kominn sé tími til, að skipta um í brúnni EN það eru örfá atriði sem þarf að kíkja á, ÁÐUR en gripið er til óyndisúrræðna.
1. Hver er vilji folkksmanna, þá á ég við virkra flokksmanna?
2. Eru menn ÖRUGGIR á, að skiptin fari fram án þess, að líta kjánalega út. (það hefur verið plagsiður okkar, að klikka á jafnvel rútínu-blaðamannafundum í Valhöll)
3. Er eitthvað í kortunum, sem krefst skipta ÁN prófkjörs og þa´HVERNIG ber að standa að því?
4. Frekar er regla frekar en undantekning að kjörnir fulltrúar ráða sín á milli um næsta oddvita í beinum kosningum leynilegum á þar til gerðum fundi.
5. Öll tilmæli ,,að ofan" eða ,,að utan" er afar illa séð og hefur haft í för með sér leiðindamál langvinn mjög.
Hinnsvegar er mjög aðkallandi fyrir Flokkinn, að skoða alvarlega stöðu sína hjá almennum kjosendum og fara í grimma skoðun á hvernig helstu mál fortíðar, svo sem Kvótamál og Verðtryggingar dúnsængurkerfi fyrir örfáa hafa komið þjóðinni.
Við slíka skoðun ber líka að hyggja að grundvallarstefnu Flokksins, sem hann var myndaður um. Hér erum við Kristján þingmaður þinn afar sammála, hvað varðar alla auðlindanálgun, því nú sér hann algerlega nýjar hættur úti við sjóndeildarhringinn. Hagsmunir afkomenda minna eru svo brýnir, að hrifsa ÖLL auðlindamál úr höndum þessarar skelfilegu klíku, sem nú sitja um okkar kjörnu fulltrúa og arga og garga þar til þeir verða galnir, líkt og ungir nmenn að norðan urðu stundum þá þeri fóru fjallvegi Suður.
Annars er ég sammála þér, að verulega verður að taka til hendi til þess, að snúa við þróun fylgis við Flokkinn, ég er bara ekki sannfærður um, að boðvaldi og hræringum innan hóps Borgarfulltrúa sé rétta leiðin.
Íhaldið
Bjarni Kjartansson, 14.5.2008 kl. 14:17
Það þarf að fara yfir alla þessa stöðu. Vandinn er mjög mikill og þarf að reyna að leysa hann sem allra fyrst. Sjálfstæðisflokkurinn var tákn um stöðugleika í borgarmálunum í fjöldamörg ár og þrátt fyrir að tapa þrisvar í röð hefur hann haldið sess sínum sem stærsti flokkurinn í borginni og kjölfesta. Það er í hættu nú og blasir við öllum að eitthvað róttækt verður að gera í stöðunni.
mbk.
Stefán Friðrik Stefánsson, 14.5.2008 kl. 15:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.