18 ára Harry Potter-leikari myrtur í London

Var að horfa á umfjöllun á SKY um morðið á 18 ára Harry Potter-leikaranum Rob Knox í Kent í nótt, en hann var stunginn til bana í kráarátökum. Knox er þriðji maðurinn sem myrtur er í London á innan við hálfum mánuði, en t.d. hafa þrettán unglingar verið myrtir í London á þessu ári. Sorglegt er að heyra allar fréttirnar af þessum morðum og ekki er hægt annað en velta því fyrir sér hvað sé að gerast í bresku samfélagi. Fjöldi stungumorða er allavega sérlega áberandi.

Á síðasta ári voru fjöldi unglinga myrtir líka, mest var sennilega fjallað um skotárás þar sem þrír unglingar létust í febrúar 2007. Stóra spurningin í London er hvað hægt sé að gera í stöðunni. Þeir á Sky hafa fjallað jafnan um þessi mál af ábyrgð og talað um allar hliðar þessara sorglegu morða og reynt að varpa ljósi á þá þætti sem mestu skipta. Þetta hefur sett þungan svartan blæ yfir allt mannlíf í borginni. Virðist fátt vera til ráða, blasir við að um uppsafnaðan vanda í samfélaginu sé að ræða.

David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, hefur bent á að þessir atburðir endurspegli alvarlega bresti í bresku samfélagi. Telur hann hættulega framkomu, einmanaleika og þunglyndi ungmenna m.a. stafa af ábyrgðarleysi fullorðinna og mjög skorti á ást og umhyggju í samfélaginu. Vísa íhaldsmenn óspart á að upplausn í fjölskyldum og agaleysi sé alvarlegt vandamál og hafa vísað á skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, en bresk börn eru á botninum hvað snertir hamingju og ánægju í lífinu.

Þetta mál virðist erfitt fyrir Verkamannaflokkinn sem skiljanlega vill ekki staðfesta að alvarlegir brestir séu í bresku samfélagi. Eftir áratug við völd er varla við því að búast að bresk stjórnvöld taki undir það mat að breskt samfélag sé á botninum hvað þetta varðar. Það er ljóst að þarna er fyrst og fremst um að ræða samfélagsbresti og sumir vilja ekki greina þá.

Þetta eru dökkir dagar í London. Þetta var eitt þeirra mála sem Boris Johnson, borgarstjóri, nefndi mikið í kosningabaráttu sinni og hefur talað mikið um nú að undanförnu. Vonandi mun takast að stöðva þessa morðöldu í heimsborginni London.

mbl.is 18 ára leikari stunginn til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband