Ingibjörg Sólrún með góðkynja æxli í höfði

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hefur nú greinst með góðkynja æxli í höfði í för sinni til New York á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Alltaf er áfall að heyra slíka sjúkdómsgreiningu eins af valdamestu ráðamönnum þjóðarinnar. Þegar Davíð Oddsson greindist með krabbamein árið 2004 hugsaði öll þjóðin til hans í veikindunum.

Ég vil færa Ingibjörgu Sólrúnu góðar kveðjur og vona að vel muni ganga að eiga við þetta mein og hún nái sér fljótt og vel.

mbl.is Utanríkisráðherra veiktist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ALLTAF áfall að heyra um sjúkdómsgreiningar af þessu toga. Hvort sem það er valdamikill einstaklingur eða ekki.

Ég óska Ingibjörgu og öðrum góðs bata.

Sveinn (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 12:23

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Kvitt og óska þess sama með Ingibjörgu Sólrúnu að hún fái fullan bata/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 24.9.2008 kl. 17:13

3 Smámynd: Jóhann Páll Símonarson

Heill og sæll Stefán.

Ég tek undir með þér mjög fallega orðað hjá þér. Megi guð og gæfa vera með henni og fjölskyldu hennar á erfiðum tímum.

Jóhann Páll Símonarson.

Jóhann Páll Símonarson, 24.9.2008 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband