30.10.2008 | 18:45
Turnarnir þrír - örlagatímar Sjálfstæðisflokksins
Könnun Gallups markar nýtt pólitískt landslag með þrem álíka stórum turnum sem gnæfa yfir. Framsókn bætir engu við sig og Frjálslyndir hverfa. VG nær traustri stöðu við hlið Samfylkingarinnar, sem er nú byrjuð að dala líka. Ég er ekki hissa á því að fylgið hrynji nú af Sjálfstæðisflokknum. Rétt eins og hann var leiðandi afl í góðærinu og treyst fyrir forystu þegar allt lék í lyndi er honum kennt um þegar allt fer á versta veg. Ef honum tekst ekki að byggja upp traustar undirstöður fljótlega og færa þjóðinni trausta forystu fær hann þungan skell.
Geir Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tryggðu Sjálfstæðisflokknum góðan kosningasigur fyrir einu og hálfu ári og voru sterkt forystupar, nutu þess að stöðugleiki var í landinu og fólk treysti þeim best fyrir því að færa okkur trausta forystu. Aðstæður hafa breyst og pólitísk staða þeirra beggja veikst til mikilla muna. Þau eiga mikið undir því að þessi ríkisstjórn haldi velli og hún geti fært þjóðinni forystu sem skiptir máli. Mikið hefur vantað á það að undanförnu - tilraunir til að fegra stöðuna um of hafa mistekist hrapallega.
Sjálfstæðisflokkurinn gengur í gegnum erfiða tíma í kreppunni. Á þeim bæ þarf að líta í kringum sig, tala við baklandið og horfast í augu við framtíðina. Þessi könnun eru skilaboð sem forysta Sjálfstæðisflokksins verður að horfast í augu við. Flokkurinn þarf að flýta landsfundi sínum, gera upp mistökin á síðustu mánuðum, sem blasa við öllum, og horfa til framtíðar. Auk þess þarf að kjósa sterka forystu til framtíðar.
Geir og Þorgerður Katrín fengu traust umboð á síðasta landsfundi og þurfa nú að tala við baklandið í flokknum - marka stefnu í gegnum þessa örlagaríku tíma og leitast við að fá endurnýjað umboð flokksmanna. Mikilvægt er að þau horfist í augu við baklandið og bæði leiti þar ráða og fá styrk til verka áfram. Mjög margt hefur breyst. Í Sjálfstæðisflokknum þarf að horfast í augu við að pólitíska landslagið breytist nú.
Þetta eru örlagatímar, ekki aðeins í efnahagsmálum heldur og mun frekar í stjórnmálasögu landsins. Mikilvægt er að allir flokkar færi þjóðinni trausta forystu og tali við baklandið sitt nú. Þeir sem ekki gera það eiga ekki von á góðu.
Fylgi VG meira en Sjálfstæðisflokks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang: stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Bjarni Benediktsson hættir í stjórnmálum
- Áhugavert uppgjör Geirs Haarde við pólitíkina og lífsins ásko...
- Pólitískar vendingar með hækkandi sól
- Að loknum alþingiskosningum
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Sæll Stefán
Ég er sjálfstæðismaður til yfir 30 ára og verð að segja að ég hef aldrei séð það svona svart. Við getum ekki stungið höfðinu lengur í sandinn! Þessi könnun var gerð áður en bankarnir fóru á hausinn. Á skrifstofunni, sem ég stýri eru 14 manns og þar af eru 10 sjálfstæðismenn. Það ætlar enginn nema ég að kjósa flokkinn núna!
Ég held að Geir þurfi að leita ráða, því Þorgerður Katrín veit um hvað þetta snýst. Ef við höldum ekki landsfund í janúar og styðjum ekki ESB aðildarviðræður fyrir næstu kosningar, sem eru ekki langt undan, ef marka má ræðu utanríkisráðherra í morgun, þá erum við búnir að vera og flokkurinn fer niður í 10-15%.
Breytist afstaða okkar ekki mun innan nokkurra vikna eða mánuða verður stofnaður nýr flokkur: Nýi Sjálfstæðisflokkurinn. Hann verður stofnaður til höfuðs þess gamla og hann fær þá sennilega 10-15%. Síðan fer sá nýi með Samfylkingunni inn í ESB.
Þessu er hægt að bjarga ef menn vakna strax til lífsins. Minn ótti er að flokkurinn þurfi að fara í gegnum eitthvað auðmýkingartímabil áður en menn átta sig á hvað er að gerast. Það hefur sýnt sig á ummælum Árna Johnsen um færeyska krónu, Birgi Ármanns um að frysta ekki eigur auðmanna, Sigurðar Kára um opinbera starfsmenn og vín í kjörbúðir að það vantar algjörlega jarðtenginguna í ráherrana og þingflokkinn!
Góð samlíking þetta með turnana og þar er einmitt okkar fólk núna!
Guðbjörn Guðbjörnsson, 30.10.2008 kl. 20:34
Geir verður að fara, ásamt fleirum auðvitað, en samt aðallega Geir. Einnig þarf að gera meiriháttar uppstokkun á skipan mála í Seðlabankanum, svo nokkuð er ljóst. Þeir sem sjá ekki þessar augljósu staðreyndir eru frekar hjákátlegir að vera með sólgleraugu núna í skammdeginu.
Guðmundur Ásgeirsson, 30.10.2008 kl. 21:36
Bakland Sjálfstæðisfl.er margklofið t.d.vill merihluti kjósenda flokksins ganga í ESB,en ráðhr.flokksins og þingmenn vilja það ekki.Meirihluti kjósenda flokksins vill ekki lengur halda í handónýta krónumynt,en ráðhr.og þingmenn vilja tryggja framgang hennar.
Það er rétt hjá þér Stefán að hið pólutíska landslag flokksins hefur breyst og baklandið þarf að styrkja.Það verður þó ekki gert með Geir sem forsætisráðhr.og samvinnu hans við Seðlabankastj.sem nýtur nú aðeins 5 % fylgi.
Kristján Pétursson, 30.10.2008 kl. 21:37
Samkvæmt Gallup var Samfylking á hraðri uppleið síðustu vikuna af könnunartímabilinu.... var með 33% síðustu vikuna...meðan Sjallar duttu niður í 21%. Það er talið í 3 vikur og síðasta vikan býr til þessa sveiflu. VG fór í 29.5% í síðustu vikunni..... en það eru ekki nema 66% sem svara.
Jón Ingi Cæsarsson, 30.10.2008 kl. 22:12
Hef trú á því að fylgi Samfylkingar eigi eftir að dala, þrátt fyrir ýmsa skelegga og baráttuglaða þingmenn, (þá eru kannski of margir þar sem vilja halda í stólana sína) og aukið fylgi við VG stafi af megnri óánægju fólks með ástandið og m.a. afar slælega upplýsingamiðlun af hálfu forsætisráðherra og yfirþyrmandi tryggð við hrokafull ummæli Seðlabankastjóra til kjósenda. Almenningur þarfnast stuðnings og skilnings, upplýsinga og að talað sé til hans af einhverju viti, fái að fylgjast með framvindu mála o.s.frv. VG gera út á grasrótina og þá fátækt sem ríkir hér í algerri afneitun stjórnarflokkanna. Þetta með turnana þrjá verður fljótt að breytast, hins vegar er líklegt að VG verði einn risaturn ef framkoma stjórnarflokkanna breytist ekki gagnvart almenningi. Ég er ekki flokksbundin neinum stjórnmálaflokki, hef aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn utan einu sinni að ég gaf atkvæði mitt til flokksins í viðleitni til að koma konu í baráttusæti að á Alþingi, því ég taldi hana eiga þangað fullt erindi vegna mannkosta hennar og skilnings á þörfum fólks. Hitt er annað mál að mér finnst upplagt fyrir Geir að fara á smánámskeið hjá Þorgerði Katrínu, sem sýnir óhrædd sveigjanleika miðað við aðstæður, en hangir ekki í einhverjum fornum skotgröfum flokksins svipað og japanski hermaðurinn sem fannst 25 árum eftir stríð í einhverjum frumskógi enn að berjast gegn óvininum. Hvað heldur Geir t.d. að myndi gerast þó hann segði að svar Davíðs við spurningu fréttakonu væri utan við velsæmi Seðlabankastjóra? Skyldi hann halda að himinn og jörð myndu farast? Mér er til efs að Sjálfstæðisflokkurinn myndi klofna þó nútímalegri og sveigjanlegri umræður færu fram á landsfundi því sjálfstæðismenn eru jú , ekki satt, bara þverskurður af þjóðfélaginu, fólk af öllum stéttum og margir hverjir í uppstokkun viðhorfa sinna og skoðana til sín og annarra. Það er þroskamerki að breytast og aðlagast. Og oft hafa einhver brot úr sjálfstæðisflokknum klofnað í gegnum tíðina. Og hvað með það? Svo - við hvað ætti Sjálfstæðisflokkurinn að vera hræddur? Spyr sú sem ekki veit.
Nína S Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 19:39
Bofs: Kannski er þetta bara rétt hjá þér?
Kristján: Sjálfstæðisflokkurinn er alls ekki margklofinn, heldur aðeins klofinn í afstöðu sinni til ESB. Nái flokkurinn saman þar mun hann áfram verða sterkasti flokkur landsins - hafðu engar áhyggjur af okkur!
Jón Ingi: Nákvæmlega - svarhlutfall er 66% eða 57% líkt og í skoðanakönnum Fréttablaðsins fyrir skömmu. Það er Flokkur óákveðinna - eins og svo oft áður - sem ræður ferðinni!
Nína:Þetta er einhver besta "analísa", sem ég hef séð lengi af einhverjum, sem maður hefur ekki séð á blogginu til þessa!
Endilega að halda áfram að blogga!
Guðbjörn Guðbjörnsson, 31.10.2008 kl. 20:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.