Rúnar Júlíusson látinn

Mér varð illa brugðið snemma í morgun þegar ég heyrði þær fregnir að eilífðartöffarinn frá Keflavík, Rúnar Júlíusson, væri látinn - hefði lokið keppni á sviðinu við að kynna safnplötuna sína og jólaútgáfu Geimsteins. Rúnar hafði stóran sess í íslenskri tónlistarsögu og var eiginlega táknmynd sjöunda áratugarins í íslenskri tónlistarmenningu í huga okkar allra. Hann var foringinn í íslensku bítlahljómsveitinni og fylgdi okkur allt á leiðarenda með einlægri tónlistarsköpun sinni og fékk heiðursverðlaunin á tónlistarverðlaununum fyrir tæpu ári fyrir það merka ævistarf.

Rúnar Júlíusson var eiginlega hr. Rokk í huga flestra landsmanna. Hann hefur verið samofinn íslenskri tónlistarsögu í yfir fjóra áratugi, eða frá því að Hljómar byrjuðu sinn glæsilega feril. Lög eins og Heyrðu mig góða, Fyrsti kossinn, Hamingjulagið, Tasko Tostada, Betri bílar - yngri konur, Sveitapiltsins draumur, Mýrdalssandur og ótalmörg fleiri hafa mótað feril hans. Ég keypti í fyrradag safnplötuna hans og var að hlusta á hana í gær. Þetta er sannarlega merkt ævistarf.

Rúnar hefur ekki aðeins verið tónlistarmaður, hann hefur verið útgefandi tónlistar og pródúsent og á farsælan feril að baki. Ég vil votta fjölskyldu hans innilega samúð mína. Blessuð sé minning eilífðartöffarans frá Keflavík.

mbl.is Rúnar Júlíusson látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rúnar Júlísson var  í miklu uppáhaldi hjá mér,það er sárt til þess að vita að hann sé farinn . Það eru mörg löginn sem hafa snert mann  , minningin lifir og tónarnir heirast um ókomna tíð. Ég tek undir það með þér, ég votta öllu hann fólki samúð mína. Hann var töffari

Hildur Jóhannesd (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband