20.12.2008 | 01:19
Jóhannes hótar verðhækkunum í Bónus
Ég get ómögulega skilið Jóhannes í Bónus öðruvísi en sem svo að hann hóti viðskiptavinum Bónus verðhækkunum nú eftir að þeir fengu skellinn mikla - voru sektaðir fyrir alvarleg brot á samkeppnislögum. Reyna á að kaupa fólk til fylgilags með hótunum og í leiðinni fá viðskiptavinina til að vorkenna feðgunum þar sem ráðist sé á þá. Ég held að þessi fórnarlambaleikur hafi staðið einum of lengi hjá Bónus til að fólk láti blekkjast aftur. Betra væri að Jóhannes í Bónus viðurkenndi brot sín og talaði um þau af auðmýkt og stillingu. En það getur hann ekki gert.
Ég held að flestir átti sig orðið á því að Bónus hefur gengið fram með mjög óeðlilegum hætti í samkeppni á undanförnum árum og reynt að keyra hana niður með lúalegum brögðum, líkt og kemur fram í niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. Lýsingarnar á verklaginu og úrskurðurinn eru afgerandi dómur yfir því hvernig var unnið.
Og nú á að reyna að hóta fólki með kúgunum og skipunum til að halda blekkingarleiknum áfram og halda áfram að láta alla trúa að Bónus eitt geti mögulega haldið uppi lágu vöruverði. Hér á Akureyri birtist verðkönnun um daginn sem sýndi að Nettó sækir mjög að Bónus. Fjarri því er að Bónus sé lengur langódýrasta verslunin.
Bolabrögð eru þetta vissulega sem felst í yfirlýsingum Jóhannesar í Bónus. Er fólk ekki að verða ansi þreytt á þessum stórmennskustælum? Hver væri staða þessara manna ef þeir hefðu ekki getað keypt upp nær alla frjálsu fjölmiðlana á sínum tíma? Við höfum séð dæmi þess hvernig hefur verið spilað með fjölmiðlana.
Ég held að fólk sé farið að átta sig á heildarmyndinni, mun betur en hitasumarið 2004 þegar forseti Íslands tryggði þessum auðmönnum skjól með því að hafna fjölmiðlalögunum.
Dapurleg jólagjöf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang (MSN): stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
- Boris Johnson á sigurbraut
- Sögulegur sigur hjá Trump - áfall fyrir demókrata
- Boris í lykilráðuneyti - klókindi hjá Theresu May
- Kvennabylgja fylgir Theresu May í Downingstræti 10
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Er þetta nú ekki nett oftúlkun ?
hilmar jónsson, 20.12.2008 kl. 01:36
Ókey, þá förum við bara annað. Þegar það gerist þá lækka þær verslanir verðið.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 20.12.2008 kl. 01:37
Stefán, ég er sammála þér í flestu þarna, en skil ekki hvað þetta kemur fjölmiðlalögunum við. Það hafa verið næg tækifæri til að setja ný fjölmiðlalög án þess að þau hafi verið nýtt. Þetta er hallærisleg umræða. Fjölmiðlalögunum var fyrst og fremst hafnað vegna vinnubragðanna sem viðhöfð voru. Það deildi enginn á um að takmarka ætti eignarhald og auka ritstjórnarlegt frelsi. Af hverju hafa ný fjölmiðlalög ekki verið samþykkt heilum fjórum árum eftir að hin voru felld úr gildi? Og þó svo að 365-miðlarnir hafi hugsanlega fjallað minna um einhverjar fréttir, en efni stóð til, þá hefði það ekki átt að stoppa Morgunblaðið og ríkisfjölmiðlana.
Eru það kannski að fjölmiðlalögin voru felld að verið er að þagga niður alla umræðu um stöðu bankanna, stöðu efnahagsmála, þátt AGS, Icesave samninginn, o.s.frv.? Nei, það eru stjórnvöld sem eru að þagga niður þessa umræðu með öllum tiltækum ráðum.
En svo ég snúi mér aftur að nágranna þínum í Eyjafirði, þá finnst mér að Hagar eigi að taka kinnhestinum og sætta sig við sekt Samkeppniseftirlitsins. Fyrirtækinu sé nær að læra af mistökum sínum og varast að endurtaka þau.
Marinó G. Njálsson, 20.12.2008 kl. 01:43
19.12.2008 | 23:34
Sem neytanda er mér slétt sama. Aðrir koma í staðinn.
Þegar BÓNUS kom inn á markaðinn sá fólk hvað verkalýðsforystan var grútmáttlaus. Með tilkomu Bónus snarlækkaði verð nauðsynja til almennings - besta kjarabótin. Einhverjir hafa líkt þessu saman við tilkomu Hagkaups á höfuðborgarsvæðinu á öldinni sem leið. Gleymum ekki því góða sem Bónus hefur gert. Þeir dúndra öllu niður til að vera alltaf með lægsta verðið, segja þeir sjálfir. Það má ekki segir Samkeppniseftirlitið og vitnar til markaðsráðandi stöðu fyrirtækisins.
Verðstríð kaupmanna léttir álagið á buddu launþega. Er það ekki allt í lagi? Tæplega gilda auðhringareglur um Baug á Íslandi, til þess er samkeppnin of mikil, ( Nettó, Gettó, Kaskó, Krónan ............)!!
Neytendur storma alltaf í búðirnar sem bjóða þeim besta verðið og gefa fullkomlega skít í samkeppnisreglur. Verðstríð eru einu stríðin þar sem almenningur sigrar, en keppinautarnir tapa fúlgum fjár - fara jafnvel á hausinn. Sem neytanda er mér slétt sama. Aðrir koma í staðinn.
Þetta var góða hliðin á Baugi. Hin hliðin er svo svört að ég nenni ekki að fjalla um hana. Hún tengist gjaldþroti sömu þjóðar og þeir vilja bjóða alltaf lægsta verðið - ég vona að meintir glæpir þeirra í aðdraganda kreppunnar verði afhjúpaðir og komi fyrir dómstóla.
Þangað til mega þeir gefa mjólkina mín vegna.
Björn Birgisson, 20.12.2008 kl. 02:01
Sammála. Orðinn þreyttur á sjálfsvorkunn auðmanna.
Ívar Gunnarsson, 20.12.2008 kl. 02:05
HOW TRUE !
Það vill bara svo vel til að það eru enn nokkrar verslanir sem við getum leitað til, sem ekki eru í eigu veldisins....allavega ekki þessa veldis.
Fjarðarkaup. Nettó, Krónan....mæli með Fjarðarkaupum, styðja einstaklingsframtakið ;)
Stefanía, 20.12.2008 kl. 02:15
'' Dapurleg jólagjöf '' '' Já Sæll '' Velkomin í hópinn Jóhannes,,
Bimbó (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 09:22
Við hverju er að búast? Hvað´myndir þú gera ef þú fengir á þig ja....... segjum 3 millj. sem þú ættir að borga af því að þú ynnir of vel þitt starf. myndir þú ekki fara fram á kauphækkun til að reyna að borga skuldina, eða myndir þú fara að vinna verr?
J.Þ.A (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 10:34
Alveg sammála þér. Ég hef alltaf sagt þetta og get talið skiptin sem ég hef verslað í Bónus á fingrum annarrar handar . Þeir eru kannski ódýrastir og ég hef fullan skilning á að fólk með stór heimili versli þar sem vara er ódýrust. Það er hinsvegar spurning hvernig þeir vinna gagnvart sínum samkeppnisaðilum og viðhalda því verði sem þeir ákveða. Hvar er samkeppnin þá. Ég var líka alltaf fylgjandi fjölmiðlalögunum og tel að það hafi verið síðasti hlekkurinn, sem hélt þessum auðmönnum þó í einhverju aðhaldi, sem þar var rofinn fyrir atbeina forsetans eins og menn muna. kveðja Kolla
Kolbrún Stefánsdóttir, 20.12.2008 kl. 10:36
ef fólk er búið að fá nóg þá á það að fara annað að versla, svo einfalt er það, krónan og nettó eru með svipað verð og miklu meira vöruúrval og betra hráefni, sérstaklega krónan, sérstaklega gott kjötborðið hjá þeim...
Atli Jóhann Guðbjörnsson (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 13:24
Björn Birgisson. Það er enginn að setja út á lágt vöruverð. En það er verið að setja út á starfsaðferðir sem voru notaðar til að bola út og koma í veg fyrir stækkun samkeppnisaðila.
Það var gert með óeðlilega lágum verðum á nokkrum hlutum, jafnvel svo lágum verðum að tap hlaust af, 700milljónir að sögn Jóhannesar.
Hvert heldurðu að þeir sæki þetta tap? Nú eru þessar 300m bara hluti af þessari upphæð og hvert segist Jóhannes ætla að sækja það tap??? Heldurðu að það hafi verið eitthvað öðruvísi með hina peningara.
Eins asnalegt og það hljómar þá hafa neytendur TAPAÐ á þessu verðstríði, bæði í formi hækkaðs verðlags sem og sérlega óeðlilegs rekstrarumhverfis sem getur jarðar smærri fyrirtæki áður en þau verða ógnun.
Góðar stundir.Ellert Júlíusson, 20.12.2008 kl. 14:46
Væri ekki nær að snúa sér að öllum hinum glæpamönnunum, hver var sektaður fyrir olíusamráð??? Hver er bankastjóri sem á að vera gjaldþrota eftir hlutabréfakaup upp á 180 milj ??? Ég veit ekki um neinn sem notar ekki styrk sinn í viðskiftum. Ekki voru það bónus feðgar sem einkavæddu bankana. Ekki voru það þeir sem sváfu á verðinum. Ég gef ekki mikið fyrir þá sem hafa stjórnað landi okkar og skuldsett börn okkar. Er ekki kominn tími á að hætta þessu bónuseinelti. Áfram Bónus en ég verslaði fyrst við bónus á gleráreyrum þegag fyrst var oppnað á Akureyri. Ég fer ekkert annað að versla og hana nú. KV: Sig Þengils
Sigurður Þengilsson (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 16:18
Stebbi.... Þessi forstetakomplex þinn er á alvarlegu stigi... forsetanum og fjölmiðlalögunum að kenna.... þetta er ekki í lagi
Jón Ingi Cæsarsson, 21.12.2008 kl. 10:26
Sigurður Þengilsson. Með því að kalla þessa umræðu einelti ert þú að letja fólk til að bregðast við með eðlilegum hætti, jafnvel að segja sína skoðun. Enginn vill vera sakaður um slíkt athæfi. Eftir samráð olíufélaganna snautuðu þeir frá störfum sem þar voru ráðandi og ég t.d. versla aldrei annað en bensín hjá þeim en áður var ég að versla ýmsar heimilisvörur oþh þar sem ég er ein í heimili og fannst þægilegt að sleppa við eina búðarferð. Það var ekkert að einkavæðingu bankanna í sjálfu sér en það ferli fór úr böndunum þegar öðrum feðgum var leyft að kaupa ráðandi hlut í Landsbankanum og þar með var skiptaregla stjórnarflokkanna komin í gang. Einn aðili sagði sig úr Einkavæðingarnefnd til að mótmæla þessu og ekki hef ég orðið vör við að honum væri hampað mikið. Heldur þú að Bónusfeðgar hafi ekki komið við sögu í bankarekstri á Íslandi hin síðari ár. Heldur þú að þeir hafi ekki skuldsett okkur og börnin okkar. Eins og ég segi þá á verslun að vera val hvers og eins. Ég segi bara verði þér að góðu en ef ég man rétt voru Akureyringar ekki ginkeyptir fyrir Bónus í fyrstu atrennu þeirra til verslunar þar. og hana nú jólakveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 21.12.2008 kl. 10:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.