Hættulegt fikt

Þeir mega teljast heppnir strákarnir í Grindavík að ekki fór verr. Samt er það alltaf ömurlegt að heyra fréttir af því í flugeldasölutíðinni að ungmenni fikta með flugelda og setja sig í mikla hættu, gera sér oft ekki grein fyrir henni og velta ekki fyrir sér áhættuhliðum þess að fikta. Þrátt fyrir allt kynningarstarfið við að tala um þessa hættu gerast slysin og oft eru þau mjög alvarleg og geta sett mark á þann sem verður fyrir alla tíð.

Ég veit af nokkrum dæmum þess þar sem slíkt fikt hefur leitt til sjónmissis og álíka alvarlegra áverka. Alveg ömurlegt að sjá ungt fólk leika sér að slíku og taka áhættuna og þurfa að sjá eftir því alla tíð.

mbl.is Voru að útbúa heimatilbúna sprengju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þegar ég sá titilinn hjá þér hélt ég að þú værir að fjalla um það sem var samþykkt á fundi framsóknarflokksins, þe að Ísland gangi til viðræðna við evrópusambandið um hugsanlega aðild. Já þeir voru mikið heppnir bræðurnir að sleppa svona með skrekkinn.

eyjaskeggi (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 07:45

2 identicon

Almenningur hefur ekkert með skotelda að gera. Fyrr en síðar verður ekki heimilt að selja þetta dót, Hér verður ekkert lát á sölunni fyrr en það verður eldsvoði á nokkrum stöðum á sama tíma,þá fyrst verður rætt um bann við sölu.

Margret S (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 12:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband