Guðmundur fetar í fótspor feðranna

Ég er ekki hissa á því að Guðmundur Steingrímsson ætli sér að feta í fótspor feðranna Hermanns og Steingríms og sækjast eftir leiðtogastól Framsóknar í Norðvestri, þar sem afinn vann sögulega sigra í Strandasýslu og faðirinn náði metorðum út á forna frægð hans. Stóra spurningin er þó hvort samstaða náist meðal framsóknarmanna á svæðinu um að skipta út Magnúsi Stefánssyni sem vann fullnaðarsigur á Sleggjunni fyrir síðustu kosningar og velja Guðmund sem lítið hefur afrekað pólitískt nema að vera afkomandi föður síns og afa.

Guðmundur kemur væntanlega sterkur inn sem fulltrúi nýju tímanna í flokknum og gæti passað vel við hlið Sigmundar Davíðs og þeirra Birkis Jóns og Höskuldar hér í Norðaustrinu. Þar sem Valgerður mun sennilega hætta er stóra spurningin hvor þeirra taki við hér.

En kannski fara ættartengslin langt með það að redda honum pólitískum metorðum. Greinilegt er að sumarbústaðatengingin skiptir eðlilega lykilmáli.


mbl.is Guðmundur: Stefnir á fyrsta sætið í NV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Agalega þykir mér lágt lagst að gefa það í skyn að hann komist ekki áfram á eigin verðleikum en verði að leita aðstoðar pabba og afa gamla.  Nei ég er nú á því að hann væri vel að því kominn þe fyrsta sætinu þarna í NV kjördæmi og þó, sérstaklega, hann sé sonur föður síns.  En ég skil að aðrir flokkar vildu hafa mann með hans kosti í sínum flokkum.  mbk 

Viðar (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband