23.3.2009 | 15:36
Davíð varaði við hruninu - hvað gerði stjórnin?
Nú er ljóst að Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, varaði við yfirvofandi hruni íslenska fjármálakerfisins í minnisblaði fyrir rúmu ári, í febrúar 2008. Þetta minnisblað varpar nýju ljósi á atburðarásina í aðdraganda hrunsins og vekur spurningar um hvað ríkisstjórnin gerði í kjölfarið. Mér finnst innihaldið beina sviðsljósinu að þeim sem voru í ríkisstjórn þegar þetta skuggalega mat lá fyrir og gerðu greinilega lítið sem ekkert í því að taka á alvarlegum aðsteðjandi vanda.
Þeir sem hafa viljað kenna Davíð Oddssyni og yfirstjórn Seðlabankans um hrunið verða að leita annað að sökudólgum. Í þessu minnisblaði er töluð íslenska um vandann. Þar er staðan greind án nokkurs hiks. Ríkisstjórnin og yfirstjórn Stjórnarráðsins virðist ekki hafa tekið á þeim vanda sem þarna kemur augljóslega fram frá Seðlabankanum. Greiningin er augljós.
Nú þurfa þeir að svara sem stýrðu þjóðinni á þessum tíma. Því var ekkert gert á þessu hálfa ári sem leið frá þessu minnisblaði þar til hrunið varð? Hvað gerðu þeir þegar minnisblaðið lá fyrir?
Þeir sem hafa viljað kenna Davíð Oddssyni og yfirstjórn Seðlabankans um hrunið verða að leita annað að sökudólgum. Í þessu minnisblaði er töluð íslenska um vandann. Þar er staðan greind án nokkurs hiks. Ríkisstjórnin og yfirstjórn Stjórnarráðsins virðist ekki hafa tekið á þeim vanda sem þarna kemur augljóslega fram frá Seðlabankanum. Greiningin er augljós.
Nú þurfa þeir að svara sem stýrðu þjóðinni á þessum tíma. Því var ekkert gert á þessu hálfa ári sem leið frá þessu minnisblaði þar til hrunið varð? Hvað gerðu þeir þegar minnisblaðið lá fyrir?
Stefndu fjármálalífinu í hættu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Síðuritari
Stefán Friðrik Stefánsson
Ég er í fáum orðum sagt: bjartsýnn, jákvæður, áhugamaður um pólitík, sjálfstæður, kaldhæðinn, skapheitur, kvikmyndafrík, bókaormur, Akureyringur, tónlistarspekúlant og Brekkusnigill. Netfang (MSN): stebbifr@simnet.is
Nýjustu færslur
- Gert upp við úrslit kosninga á Akureyri
- Afgerandi umboð Boris - pólitískar áskoranir nýs leiðtoga
- Boris Johnson og Jeremy Hunt berjast um Downingstræti 10
- Boris með fullnaðartök í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
- Boris hálfnaður í mark - ráðherraslagur um sæti í einvíginu
- Aukin spenna í einvíginu um Downingstræti 10
- Boris Johnson á sigurbraut
- Sögulegur sigur hjá Trump - áfall fyrir demókrata
- Boris í lykilráðuneyti - klókindi hjá Theresu May
- Kvennabylgja fylgir Theresu May í Downingstræti 10
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Adda bloggar
- Adda Laufey
- Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir
- Aðalheiður Ámundadóttir
- Agnar Freyr Helgason
- Agný
- Alfreð Símonarson
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Anna
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Anna Kristinsdóttir
- Anna Steinunn Þengilsdóttir
- Anton Þór Harðarson
- Arnljótur Bjarki Bergsson
- Atli Fannar Bjarkason
- Atli Fannar Ólafsson
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Auðun Gíslason
- Auður Björk Guðmundsdóttir
- Axel Jóhann Axelsson
- Ágúst Bogason
- Ágúst Dalkvist
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Ármann Kr. Ólafsson
- Árni Árnason
- Árni Helgason
- Árni Matthíasson
- Árni Torfason
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásdís Rán
- Ásgeir Guðmundsson
- Ásgerður Jóna Flosadóttir
- Ásta Möller
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldur Smári Einarsson
- Baldvin Jónsson
- Barði Bárðarson
- Bárður Ingi Helgason
- Bergur Thorberg
- Bergur Þorri Benjamínsson
- Bessí Jóhannsdóttir
- Birgir Ármannsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Birgir R.
- Birgir Örn Birgisson
- Birgir Örn Birgisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Birna Steingrímsdóttir
- Bjarni Benedikt Gunnarsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kjartansson
- Bjarni Kristjánsson
- Bjartmar Oddur Þ Alexandersson
- Björgvin Þóroddsson
- Björk Vilhelmsdóttir
- Björn Emilsson
- Björn Kr. Bragason
- Björn Magnús Stefánsson
- Bleika Eldingin
- Blog-andinn Eyvar
- Borgar Þór Einarsson
- Bókaútgáfan Hólar
- Braskarinn
- Breki Logason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bryndís Helgadóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Brynjar Davíðsson
- Brynja skordal
- Bumba
- Bwahahaha...
- Böðvar Sturluson
- Carl Jóhann Granz
- Daði Einarsson
- Dagný
- Daníel Sigurður Eðvaldsson
- Davíð
- Davíð Jóhannsson
- Davíð Þór Kristjánsson
- Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
- DÓNAS
- Dóra litla
- Dunni
- Dögg Pálsdóttir
- Egill Bjarnason
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Einar B Bragason
- Einar Bragi Bragason.
- Einar Helgi Aðalbjörnsson
- Einar Kristinn Guðfinnsson
- Einar Sigurjón Oddsson
- Einar Örn Gíslason
- Einhver Ágúst
- Eiríkur Sjóberg
- Elfur Logadóttir
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Elliði Vignisson
- Ellý Ármannsdóttir
- Elmar Geir Unnsteinsson
- Emma Agneta Björgvinsdóttir
- E.Ólafsson
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Erna Hákonardóttir Pomrenke
- ESB
- Ester Júlía
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Eygló Sara
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eyþór Árnason
- Eyþór Ingi Jónsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Fannar frá Rifi
- Fannar Gunnarsson
- Fararstjórinn
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Fishandchips
- FreedomFries
- Freyr Árnason
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Fræðingur
- Gaukur Úlfarsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gerald Häsler
- Gestur Guðjónsson
- Gils N. Eggerz
- Gísli Aðalsteinsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Gísli Birgir Ómarsson
- Gísli Blöndal
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Sigurðsson
- Gísli Steinar Jóhannesson
- Gísli Tryggvason
- Grazyna María Okuniewska
- Grímur Gíslason
- gudni.is
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Guðfinnur Sveinsson
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Helmut Kerchner
- Guðmundur Auðunsson
- Guðmundur Ásgeirsson
- Guðmundur Gunnlaugsson
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Helgi Helgason
- Guðmundur Jóhannsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Magnússon
- Guðmundur Pálsson
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðmundur St Ragnarsson
- Guðmundur Örn Jónsson
- Guðný Jóhannesdóttir
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðrún Una Jónsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Gunnar Freyr Steinsson
- Gunnar Gunnarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Gunnar R. Jónsson
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Gunnsteinn Þórisson
- Gylfi Björgvinsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Götusmiðjan
- HAKMO
- Halla Gunnarsdóttir
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldór Baldursson
- Halldór Borgþórsson
- Hallgrímur Óli Helgason
- Handtöskuserían
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Hannibal Garcia Lorca
- Haraldur Haraldsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Haraldur Pálsson
- Haukur Kristinsson
- Haukur Már Helgason
- Haukur Nikulásson
- Hákon Unnar Seljan Jóhannsson
- Heidi Strand
- Heiða
- Heiða Þórðar
- Heiðrún Lind
- Heimir Hannesson
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Heimskyr
- Heimssýn
- Helga Dóra
- Helga Lára Haarde
- Helga Nanna Guðmundsdóttir
- Helga skjol
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Már Barðason
- Helgi Seljan
- Helgi Vilberg
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hersir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Himmalingur
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlini Melsteð Jóngeirsson
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Kristjánsson
- Hlynur Sigurðsson
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Hommalega Kvennagullið
- Hrafn Jökulsson
- Hrannar Baldursson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreiðar Eiríksson
- Hugrún Jónsdóttir
- Hugsanir
- Hulda Haraldsdóttir
- Huld S. Ringsted
- Hægrimenn í Menntaskólanum á Akureyri
- Icelandic fire sale
- Inga Dagný Eydal
- Inga Lára Helgadóttir
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Ingi Þór Ágústsson
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingólfur Gíslason
- Ingólfur H Þorleifsson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Íslendingur
- Ívar Jón Arnarson
- Jakob Falur Kristinsson
- JEA
- Jens Guð
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Alfreð Kristinsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Jóhannes Þór Skúlason
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Kristjánsson
- Jóhann Waage
- Jóhann Þorsteinsson
- Jón Agnar Ólason
- Jónas Björgvin Antonsson
- Jónas Jónasson
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Jón Axel Ólafsson
- Jón Baldur Lorange
- Jón Gerald Sullenberger
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Jón Ingi Stefánsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Jón Lárusson
- Jón Magnússon
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Sigurðsson
- Jón Sigurgeirsson
- Jón Svavarsson
- Jón Valur Jensson
- Jón Þór Ólafsson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- jósep sigurðsson
- Júlíus Garðar Júlíusson
- Júlíus Sigurþórsson
- Júlíus Valsson
- Kafteinninn
- Karl Gauti Hjaltason
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Kári Finnsson
- Kári Sölmundarson
- Kári Tryggvason
- Ketilás
- Killer Joe
- Kjartan Magnússon
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Vídó
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Gígja Gunnarsdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Kristín Einarsdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Kristín Hrefna
- Kristján Freyr Halldórsson
- Kristján Hreinsson
- Kristján L. Möller
- Kristján Pétursson
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Krummi
- Lára Stefánsdóttir
- Leikhópurinn Lotta
- Lilja G. Bolladóttir
- Lilja Ingimundardóttir
- Listasumar á Akureyri
- Lísa Björk Ingólfsdóttir
- Logi Már Einarsson
- Maður dagsins
- Magnús Paul Korntop
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Margrét Sverrisdóttir
- Marinó Már Marinósson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Guðjóns
- María Magnúsdóttir
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Marta Guðjónsdóttir
- Matthias Freyr Matthiasson
- Mál 214
- Methúsalem Þórisson
- MIS
- Morgunblaðið
- Móðir, kona, sporðdreki:)
- Myndlistarfélagið
- Nanna Katrín Kristjánsdóttir
- Námsmaður bloggar
- Oddur Helgi Halldórsson
- Óðinn
- Óðinn Þórisson
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur fannberg
- Ólafur N. Sigurðsson
- Ólafur Th Skúlason
- Ólafur Valgeirsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Nielsen
- Óli Sveinbjörnss
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Ólöf Jóhanna Pálsdóttir
- Ólöf Kristín og Ólöf Rut
- Ólöf Nordal
- Ómar Pétursson
- Ómar Ragnarsson
- Ómar Örn Hauksson
- Óskar Sigurðsson
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Óskar Örn Guðbrandsson
- Óttar Felix Hauksson
- Óttarr Makuch
- Óþekki embættismaðurinn
- Panama.is - veftímarit
- Paul Nikolov
- Pálína Erna Ásgeirsdóttir
- Páll Heimisson
- Páll Ingi Kvaran
- Páll Kristbjörnsson
- Páll Rúnar Elíson
- Páll Sævar Guðjónsson
- Páll Vilhjálmsson
- Pálmi Freyr Óskarsson
- Pálmi Gunnarsson
- peyverjar
- Pétur Björgvin
- Pétur Sig
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Pjetur Stefánsson
- Pollurinn
- Púkinn
- Rafn Gíslason
- Ragnar Arnalds
- Ragnar Bjarnason
- Ragnar Ólason
- Ragnar Páll Ólafsson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Reynir Antonsson
- Reynir Jóhannesson
- Róbert Þórhallsson
- Ruth
- Rúnar Birgir Gíslason
- Rúnar Haukur Ingimarsson
- Rúnar Óli Bjarnason
- Rúnar Þórarinsson
- Rýnir
- Samtök Fullveldissinna
- Saumakonan
- Señorita
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigfús Sigurþórsson.
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigríður Gísladóttir
- Sigríður Hrönn Elíasdóttir
- Sigurbjörn Svavarsson
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- Sigurður Ingi Jónsson
- Sigurður Jónsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurjón Sveinsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Sigvaldi Kaldalóns
- Sindri Kristjánsson
- Sjálfstæðissinnar
- Sjensinn Bensinn
- Skafti Elíasson
- Snorri Bergz
- Snorri Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Stefanía
- Stefanía Sigurðardóttir
- Stefán Jón Hafstein
- Stefán Þór Helgason
- Stefán Þórsson
- Stefán Örn Viðarsson
- Steingrímur Helgason
- Steini Bjarna
- Steinn E. Sigurðarson
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
- Stjórn Eyverja
- Sunna Dóra Möller
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Kári Daníelsson
- Svanur Sigurbjörnsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Sveinn Arnarsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sveinn Tryggvason
- Sverrir Einarsson
- Sverrir Stormsker
- Sverrir Þorleifsson
- Sverrir Þór Garðarsson
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Sæþór Helgi Jensson
- TARA
- Thelma Ásdísardóttir
- Theodór Bender
- ThoR-E
- Tiger
- Tíðarandinn.is
- TómasHa
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Trúnó
- Tryggvi F. Elínarson
- Tryggvi Gíslason
- Tryggvi H.
- Unnur Brá Konráðsdóttir
- Úlfur
- Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
- valdi
- Valdimar H Jóhannesson
- Valgeir Ómar Jónsson
- Valsarinn
- Varðhundar frelsisins
- Varmársamtökin
- Vefritid
- Vestfirðir
- viddi
- Viðar Freyr Guðmundsson
- Viktor Borgar Kjartansson
- Viktoría Rán Ólafsdóttir
- Vilborg G. Hansen
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
- Vinir Ítalíu,VITA
- Vinir Ketils bónda, áhugamannafélag
- VÞV
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Þjóðleikhúsið
- Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
- Þorleifur Ágústsson
- Þorleifur Leó Ananíasson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Gunnarsson
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þorsteinn Magnússon
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þóra Kristín Hauksdóttir
- Þórarinn Eldjárn
- Þórður Björn Sigurðsson
- Þórður Steinn Guðmunds
- Þórður Vilberg Guðmundsson
- Þórir Aðalsteinsson
- Þórólfur Ingvarsson
- Þórólfur S. Finnsson
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Öll lífsins gæði?
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Örvar Már Marteinsson
Athugasemdir
Árið 2001 voru stjórntæki færð frá ríkinu til Seðlabanka Íslands. Þessi stjórntæki voru því ekki hjá ríkisstjórninni - heldur SÍ. Af hverju gerði SÍ ekki neitt? Af hverju sögðu þeir eitt á minnisblöðum en annað í opinberum ritum frá SÍ?
Egill M. Friðriksson, 23.3.2009 kl. 15:49
Hvað gerði Davíð???? hann er (var) stjórntækið til að stemma stigu við of stóru bankakerfi. Stýrivextir seðlabanka leiddu til styrkingar krónu og hárra innlendra vaxta þannig að allir fóru erlendis = hrun íslands hann hafði ýmiss fleiri stýritæki, til dæmis bindiskyldu, gjaldeyrisvaraforða, hey hann leyfði Icesave. stjórnin er pólitísk, Davíð átti að verða óháði sérfræðingurinn...hugsa áður en skrifa...
hmmm (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 16:04
Það kemur hvergi fram að ríkisstjórninni hafi verið sýndur þessi minnismiði
Börkur Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 16:11
Davíð Davíð Davíð, er ekki best að fá aðgang að þeim fundargerðum þar sem þetta minnisblað var lagt fram.
Jafnframt þá er þetta minnisblað eftir ferð einhvers starfsmanns, ekki formlegt bréf, eða stöðumat frá Seðlabanka sem eðlilegra hefði verið að leggja fram.
Annars þá finnst mér þessi umræða um þetta minnisblað vera fáránleg, minnisblað er minnisblað og ekkert annað.
Stefán Jóhann Arngrímsson, 23.3.2009 kl. 16:13
Ef þetta minnisblað er marktækt, sem verður að gera ráð fyrir að það sé, þá er þetta gríðarlegur áfellisdómur yfir háskólamenntuðum hagfræðingi sem sat við stjórnvölin og aðhafðist ekki nokkurn skapaðan hlut. Davíð hefur ítrekað sagst hafa varað ríkisstjórnina við, og í þessu rúmlega ársgamla minnisblaði kemur skýrt fram sama afstaða og endurspeglast í ummælum um að "núll prósent líkur séu á að bankarnir lifi af".
En hvers vegna þurfti erlenda sérfræðinga til að vekja athygli Seðlabankans á vandanum, hvar var t.d. FME? Það virðist hálfur heimurinn hafa verið betur með á nótunum en þeir sem hér áttu að bera ábyrgð og hafa eftirlit. Landráð af gáleysi eru líka glæpsamleg, og hegðun bankanna á þessum tíma virðist geta flokkast undir það, en sérstakur saksóknari í málinu situr bara og bíður eftir að einhver annar komi með málið inn á borð til sín. Er þetta sjúklegur valkvíði eða hvað?
Einn banani, tveir bananar, þrír...
Guðmundur Ásgeirsson, 23.3.2009 kl. 16:15
Væri ekki líka hægt að spyrja: Hvað gerði Seðlabankinn?
Marinó G. Njálsson, 23.3.2009 kl. 16:24
Það er aðeins eitt að gera í stöðunni; Það þarf að fá mann sem kann, veit og getur, til að taka við stjórnvölinum á þjóðarskútunni og koma henni aftur á réttan kjöl. Mann sem hefur gert þetta áður og kann til verka.
Hann þarf að vera strangheiðarlegur, duglegur og fylginn sér. Maður sem getur staðið af sér áföll, rógburð, lygi og bakstungur frá félögum sínum.
Maðurinn heitir Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra. Það þarf að skora á hann að bjóða sig fram í kjöri í næstu kosningum.
Kveðja, Björn bóndi
Sigurbjörn Friðriksson, 23.3.2009 kl. 16:26
Hlutur Geirs versnar:(
Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.3.2009 kl. 17:10
Ég held að þú sért aaaðeins að misskilja. Þetta minnisblað virkar þveröfugt á mig: þetta sýnir að Davíð Oddsson hafi vitað af vandamálunum þegar það var hægt að gera ýmislegt í hans stöðu til að mýkja eða koma í veg fyrir þau.
Eins og helstu hagfræðingar landsins (t.d. Jón Daníels) hafa bent okkur á: Davíð Oddson þurfti ekki að vara neinn við nema sjálfan sig. Flott samt hvernig þú nærð að snúa þessu við þannig að þetta henti þínum skoðunum og tengslum.
Atli Stefán Yngvason (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 17:36
Já góðar ábendingar hjá þér....hvernig væri nú að þessi dótakassi þjóðarinnar...Samfylkinginn svaraði ...og segði umbúðar laust hvar í veröldinni þessi flokkur var ....var hann í ríkistjórn eða ..hvað var hann að gera...sver af sér allt og alla...eins á að fá svör Framsóknar vegna einkavæðingar Búnaðarbankans (Kaupþings) ýmislegt ógeðslegt að koma upp úr þeim músarholum....samkvæmt minnisblöðum... en þessir tveir flokkar eru gengnir í endurnýjun lífdaga og þykjast hvergi hafa komið nærri!
Geiri (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 18:21
Þetta er rétt hjá þér að því marki að Davíð varaði sinn ráðherra og bankamálaráðherra við strax að loknum fundi. Ráðherra ber mesta ábyrgð en Seðlabankastjóri getur ekki staðið hjá og ekkert gert. Ef húsið brennur og slökkviliðið kemur ekki, getur Davíð ekki bara sagt ég hringdi í Geir það var hans að hringja í slökkviliðið.
Því miður kemur hvorki Davíð, Geir, Ingibjörg eða Björgvin lyktandi af rósum frá þessu máli, ef svo má að orði komast.
Að lokum. Svona minnisblöð eiga alltaf að hafa kafla síðast sem nefnist "næstu skref" þ.e. hvaða aðgerðir Seðlabankinn ber að taka þegar svona vitneskja berst. Þetta vantar og sýnir skort á faglegum vinnubrögðum.
Andri Geir Arinbjarnarson, 23.3.2009 kl. 18:31
Við eigum heimtingu á að vita hver viðbrögðin voru. Hvaða ráðstafanir voru gerðar til að reyna að koma í veg fyrir hrunið. Einnig hvað var gert til að lágmarka skaðann og setja af stað neyðaráætlun sem fæli í sér viðbrögð við því versta. Það kom reyndar á daginn að það versta gerðist og bankarnir hrundu. Það hefði án efa verið heppilegt að hafa þá í handraðinum neyðaráætlun um það hvernig brugðist væri við svona áfalli. Til dæmis má nefna að Landlæknisembætið hefur unnið ítarlega áætlun um hvernig brugðist verði við fuglaflensunni ef hún bærist hingað til lands.
Bryndís Haraldsdóttir, 23.3.2009 kl. 20:03
Ef þú birtir þetta: Títtnefnda "minnisblað" telst til perónulegra plagga DO og upplýsingaskyldan gildir ekki um slík plögg.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 20:14
Og fyrst að DO vissi nú af þessu öllu saman, af hverju beytti hann ekki þeim tækjum sem Seðlabankinn hefur til að hafa hemil á þessum EINKAFYRIRTÆKJUM sem bankarnir voru? Af hverju gerði FME sem var stýrt af íhaldsmanni ekkert (og reyndar skv. ummælum Sigurðar Einarssonar var svo einstaklega lipurt við bankana, hann taldi sko gott að tala við íslenska og luxemburska FME, þeir tóku sko tali Jónas Fr og có!) Íhaldið og framsókn komast ekkert undan því að þeirra fólk varð kaka við rass með að hafa hemil á bönkunum, hafi þeir yfir höfuð reynt það.
Eygló Aradóttir (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 20:43
Stefán!
Seðlabankinn átti að kalla til neyðarfundar með ALLRI ríkisstjórninni, stjórn fjármálaeftirlits og leggja til áætlun þar sem allir þessir aðilar hefðu sitt hlutverk.
Þess í stað var haldinn einhver óljós fundur fárra aðila og útkoman var sú að ekkert var gert, hvorki af hálfu þess sem hafði mest tólin til verkanna sem er seðlabankinn, né annarra.
Er hægt að kalla þetta viðvörun í alvöru?
Kveðja Viðar á Kaldbak.
Viðar Steinarsson (IP-tala skráð) 23.3.2009 kl. 21:13
Stebbi, hvað gerði Davíð sem yfirmaður þeirra stofnunar sem á að tryggja fjármálastöðuleika og fjármálaöryggi á Íslandi? Til þess hefur hann öflug vopn til að hafa áhrif á bankana - vopn sem ríkisstjórnin ræður ekki yfir heldur Seðlabankinn. - Var opnun Icesave í Hollandi í kjölfarði kannski að áeggjan Davíðs sem viðbrögð við áhyggjum um kvikuleika innlánanna sem Davíð lýsir í minnisblaðinu? - Gerði Davíð sér ekki grein fyrir alvarleika ICESAVE reikninganna fyrir Ísland fyrr en eftir hrun, þrátt fyrir þann fókus sem var á þá frá hendi erlendra banka og breskra yfirvalda? - Hvað gerðu þeir ráðherrar sem fengu að vita er stór og mikilvæg spurning en ekki síður hvað gerði Davíð? - Beið hann bara eftir hruninu til að taka „óvinabankana“ sína yfir? - Hélt hann að það væri jafn einfalt og hann lýsti í Kastljósþættinum fræga? - Að afá skuldir þjóðarbúsins?
Helgi Jóhann Hauksson, 23.3.2009 kl. 22:37
Æææ Stefán, byrjiði enn í Davíðsvörninni. Þaðer marg búið að fara yfir málið og upplýsa að Davíð og félagar í Seðlabankanum áttu ekki bara að vara við og segja frá vandanum! Þeir áttu að bregðast við honum sjálfir eiga frumkvæðið enda höfðu þeir völd og tæki til eins og t.d. Yngvi Örn Kristinsson og fleiri fróðir hafa bent á.
Hitt er auðvitað annað mál að Geir Haarde sem efnhagsmálaráðherra átti auðvitað að hlusta á Davíð og skipa honum þá til þeirra verka sem hann var ráðinn til fyrst Davíð þekkti ekki sitt hlutverk sjálfur!
Að Seðlabankamenn séu einhverjir saklausir kórdrengir í þessum efnum er að verða heldur leiðigjarnt bull. Það er því aðeins ef heimska og fávísi um eigin verkefni og ábyrgð í starfi telst lögmæt afsökun fyrir að aðhafast ekki, en þá er ábyrgðin auðvitað þeirra sem skipuðu viðkomandi í stöðurnar.
Kristján H Theódórsson, 23.3.2009 kl. 23:09
Eðlilega er því velt fyrir sér hvað ráðherrar þjóðarinnar gerðu þegar þeir fengu þessa skýrslu í hendurnar. Mér sýnist ekkert hafa verið gert. Menn flutu sofandi að feigðarósi. Ætla svosem ekkert að taka einn út fyrir sviga með þetta. Allir sváfu á verðinum. Þeir sem voru í stjórn á þessum tíma eiga að sjá sóma sinn í að fara af hinu pólitíska sviði. Þegar hafa margir gert það. Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins sem eftir eru urðu fyrir áfalli í prófkjörum, náðu ekki sínum markmiðum og eru vængstýfðir á eftir. Í Samfylkingunni eru allir klappaðir upp nema Þórunn Sveinbjarnar.
Stefán Friðrik Stefánsson, 23.3.2009 kl. 23:13
Að Björgvin G. skuli hafa náð glæsilegri kosning í nýlegu prófkjöri er mikið áhyggjuefni.
"Something is terribly rotten in the state of Iceland!
Andri Geir Arinbjarnarson, 23.3.2009 kl. 23:26
Það er nokkuð ljóst að Murphy (http://en.wikipedia.org/wiki/Murphy's_law) kom í heimsókn til okkar. Ég held að tilraunir til hvítþvottar með birtingu á jafn "skemmtilegu" minnisbréfi séu ekki til framdráttar.
Mér er nokk sama hvað manneskjurnar heita sem voru hér við völd, þær brugðust allar og við borgum brúsann.
Stefán Jóhann Arngrímsson, 23.3.2009 kl. 23:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.