Uppgjör Geirs - álagið á forsætisráðherrastóli

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fór á mannlegu nótunum yfir íslenska efnahagshrunið og alvarleg veikindi sín í viðtali í frægum spjallþætti Fredrik Skavlan. Augljóst er að ríkisstjórn Geirs gerði mörg afdrifarík mistök mánuðina fyrir hrunið og tók rangar ákvarðanir á örlagaríkum tímapunkti. Þegar hrunið skall á var við fátt ráðið og hún stóð ekki í lappirnar þegar kom að því að tryggja trausta pólitíska forystu í landinu.

Augljóst er að Geir hélt sjó ótrúlega lengi í þessum átökum. Hann veiktist þegar mestu átökin riðu yfir - augljóst er að álagið hefur verið ómannúðlegt. Ég fæ aldrei skilið hvernig Geir gat haldið sjó átakadaginn mikla þegar ráðist var að bíl hans fyrir utan Stjórnarráðið og reynt að hefta för hans, sama daginn og hann greindist með illkynja mein í vélinda. Það þarf sterk bein til að þola þann ólgusjó. Slíkt álag er gríðarlegt.

Ég neita því ekki að ég var persónulega mjög ósáttur við margt sem gert var árið fyrir hrun og ekki síður þegar stjórnin með trausta þingmeirihlutann sligaðist. Hún þorði engar ákvarðanir að taka, hikaði og beið of lengi. Eftirmæli hennar eru að hafa sofið á verðinum. En stjórnmálamenn eru ekki vélmenni og álagið hefur verið bugandi og erfitt. Sá þáttur hlýtur að verða ofarlega í huga síðar meir.

Mér finnst það merkilegt að Geir velji frekar að veita sænskum spjallþætti svona viðtal. Hann hefur ekki veitt íslenskum fjölmiðlum viðtal svo mánuðum skiptir. Eflaust hefur hann tekið þar tilmælum margra sem töldu rétt að hann viki af sviðinu. Eftir margra mánaða álag vildi Geir eflaust veita öðrum sviðið, þeim sem tóku við völdum í landinu.

Geir mátti þó eiga það að hann talaði við þjóðina, mætti í viðtöl og talaði við erlendu pressuna þegar hann gegndi embætti. Eftirmaður Geirs hefur lokað sig af og virðist vera í fílabeinsturni. Er hún kannski að bugast vegna álagsins sem fylgir starfinu? Kannski má segja með sanni að það þurfi sterk bein til að þola álagið - slíkt er ekki öllum gefið.

Þeir sem gagnrýndu Geir fyrir að standa sig illa í álaginu síðasta vetur þegar hrunið skall á hljóta að velta fyrir sér hvar núverandi forsætisráðherra sé. Hún neitar að veita viðtöl og er fjarlæg íslensku þjóðinni - hún fjarar út frekar hratt þessa dagana.

Hvað er sá forsætisráðherra að spá þegar hún neitar frönskum fréttamanni sem talar reiprennandi íslensku um viðtal? Og neitar að mæta í Silfur Egils, spjallþátt númer eitt á Íslandi? Er hún kannski hrædd við þjóðina? Eða hefur álagið heltakið hana?

mbl.is Hefðu átt að minnka umsvifin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Geir hefur ekki séð ástæðu til að koma í svona viðtal hérlendis en nóg um það.

Hann telur sig að mestu saklausan, en kýs að kenna EES og bankamönnum (sem hann handvaldi reyndar sjálfur pólitískt ásamt flokksfélögum og Framsókn) um þetta að mestu.

Mig grunar að hann sé talsmaður stjórnmála- og embættismannastéttarinnar sem var á launum við að gæta hagsmuna okkar þegar hann telur sig nánast saklausan. Þetta lið var að sjálfsögðu alsaklaust.

Jón Þorvarðarson (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 17:18

2 identicon

Ég horfði á þáttinn hans Skavlan.  Ég og konan mín voru sammála þeim fjölmörgu sem talað var við og beðnir um að meta þáttinn, framkoma Skavlans gagnvart Geir var til skammar.  Geir hélt eðlilega að hann væri að mæta í ósköp venjulegan spjallþátt, og svo fer Skavlan að yfirheyra hann og reynir að slá sig til riddara með heimskulegum fullyrðingum. Svo hættir hann allt í einu í miðju kafi að tala við Geir og lætur sem að hann sé ekki til restina af þættinum.  Nánast allir sem voru beðnir um að dæma þáttinn, nefndu ókurteisi Skavlans gagnvart Geir.

Varðandi stjórnmálin og álagið á pólitikusana, þá verð ég að segja, að þetta fólk vill vera í þessu.  Þá verður það að hafa styrk til að þola þegar blæs á móti. Geir á alla mína samúð skilið, hann var bara ekki maður til að ráða við vandann, frekar en aðrir íslenskir stjórnmálamenn, sérstaklega ekki í miðjum alvarlegum veikindum.  Það gladdi mig að heyra að læknar hefðu getað fjarlægt meinið og að batahorfur væru góðar. Hann er efalaust hinn vænsti maður, kallgreyið, þó að hann sé sjálfstæðismaður....

Þórarinn Jóhann Jónsson (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 18:22

3 identicon

Ég er þér sammála um að það sé athyglisvert að Geir Haarde skuli hafa  mætt til  viðtals í þessum sænska spjallþætti.Kannski þjáist aumingja maðurinn einfaldlega af athyglissýkifráhvarfseinkennum! Styrkti hann orðstír Íslands á einhvern hátt með "heimsókninni" í spjallið? 

Þú virðist gefa Geir hærri einkunn  en Jóhönnu fyrir upplýsingamiðlun til kjósenda (?) í gegnum fjölmiðla. Jóhanna fær hjá mér Núll komma núll. Segjum að Geir hafi verið þrisvar sinnum betri en hún.. Þrisvar núll eru jú núll ekki satt?

Agla (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband