Chicago fellur út þrátt fyrir stuðning Obama

Mér finnst það stórmerkileg tíðindi að Chicago hafi droppað út í fyrstu umferð í kosningu um Ólympíuleikana 2016 þrátt fyrir að Michelle og Barack Obama hafi gert sér sérstaka ferð til Kaupmannahafnar til að tala máli borgarinnar. Þetta er vandræðaleg niðurstaða fyrir Obama forseta.

Michelle hefur verið þar í nokkra daga gagngert til að auka stuðning við Chicago og Obama gerði sér ferð þangað til að bakka upp heimaborg sína, auka möguleika hennar. Þetta átti að vera mikil stjörnustund.... hann ætlaði að tryggja Chicago öruggan sigur.

Háðuglegur ósigur var það... ætli menn hafi fengið nóg af yfirdramatíseruðum vinnubrögðum Obama við að tala fyrir Chicago? Hann hafi frekar skemmt fyrir frekar en bætt stöðu borgarinnar? Eðlilegt að velta því fyrir sér.

Drudge Report gerir reyndar gott grín að Obama eftir niðurstöðuna með fyrirsögninni "The Ego has Landed" :)


mbl.is Chicago fallin út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sennilega "VEGNA" stuðnings Obama! Eins og að nota fílabyssu til að drepa húsflugu!

Soffía (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 15:52

2 identicon

hahaha já þetta er frábært og svo gott á Obama.

The Ego has Landed indeed. 

Þórleifur Haraldsson (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband