Vinstrisigur í Ástralíu - Howard tapar þingsætinu

John Howard Verkamannaflokkurinn hefur sigrað, mjög afgerandi, í áströlsku þingkosningunum. John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, hefur meira að segja tapað þingsæti sínu í Bennelong í Sydney til sjónvarpskonunnar Maxine McKew. Endi hefur því verið bundinn á ellefu ára valdaferil Howards og frjálslyndra í Ástralíu. Kevin Rudd, hinn fimmtugi leiðtogi ástralskra jafnaðarmanna, verður nú forsætisráðherra.

Þessi úrslit eru vægast sagt háðugleg endalok á litríkum stjórnmálaferli Howards, sem hafði unnið fjórar þingkosningar og var orðinn einn þaulsetnasti forsætisráðherra Ástralíu. Hann hafði setið við völd allt frá sögulegum kosningasigri í ársbyrjun 1996 er hann felldi Paul Keating frá völdum. Hann hafði verið eins og teflon-maður alla tíð síðan og kötturinn með níu lífin á sínum forsætisráðherraferli. Howard verður annar forsætisráðherrann í ástralskri sögu sem missir þingsætið.

Flestir töldu hann búinn að vera í aðdraganda kosninganna 2004 en hann vann að lokum góðan sigur á Mark Latham, sem spáð var forsætisráðherraembættinu um langt skeið. Þá tókst honum að snúa vörn í sókn. Hann sá hinsvegar aldrei til sólar í þessari kosningabaráttu. Mjög umdeilt þótti hjá honum að halda í fimmtu kosningarnar, enda þótti flestum tími hans vera liðinn sem framlínustjórnmálamanns. Hann storkaði þar örlögunum með sama hætti og hinn þýski Helmut Kohl.

Margir vildu að hann rýmdi til fyrir Peter Costello, augljósum arftaka hans allan valdaferilinn, frekar en að sækjast eftir fimmta kjörtímabilinu. Það hefði verið virðulegri endalok fyrir Howard en þessi slátrun sem ástralskir hægrimenn verða fyrir nú. Þessi ólga varð það mikil að Howard tilkynnti að myndi hann sigra í kosningunum yrði rýmt til fyrir arftakanum Costello fljótlega á næsta kjörtímabili. Landsmenn voru orðnir hundleiðir á Howard og honum hefur nú verið refsað harkalega. Litlar líkur eru annars á að Peter Costello taki við frjálslynda flokknum og fari frekar í viðskiptaheiminn.

Nú er Kevin Rudd, verðandi forsætisráðherra Ástralíu, með öll spil á hendi - hann verður nú örlagavaldur ástralskra stjórnmála, hefur fellt Howard af stalli sínum. Flestir muna eftir athyglisverðu eyrnamergsáti Rudds, en í kosningabaráttunni var myndband af þeirri lítt geðslegu iðju hans opinberað. Það hafði engin áhrif, eins og sést á úrslitunum, þó farið væri með þá fregn eins og stórtíðindi.

mbl.is Ástralskir jafnaðarmenn lýsa yfir sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vopnuð ránstilraun á Dominos-stað í Spönginni

Vopnuð ránstilraun var gerð á pizzastað Dominos í Spönginni í kvöld, en hún fór út um þúfur. Talið er að unglingspiltar hafi verið að verki. Innan við vika er liðin frá því að sextán ára piltar rændu söluturn í Reykjavík til þess eins að eiga fyrir ljósakortum og ýmsu öðru. Um var að ræða íbúa í hverfinu, viðskiptavini söluturnsins. Komust piltarnir í Spönginni undan og er þeirra leitað núna. Þeir voru vopnaðir loftbyssu, ef marka má fréttir.

Þessi ránsalda vekur vissulega margar spurningar. Það er nokkuð sláandi staðreynd ef það er að verða trendið að unglingspiltar séu farnir að ræna t.d. söluturna og veitingastaði til að eiga fyrir nauðsynjum, að þeirra mati. Það er sérstaklega vont ef þeir eru vopnaðir að verki og reyna að stæla ræningja í kvikmyndum og þáttum, telja framtíð í slíkum afbrotum.

Það er kannski það besta við þetta að strákarnir sem ætluðu að ræna Dominos höfðu ekkert upp úr krafsinu.


Opinskátt uppgjör Guðna við Halldór og Davíð

Guðni Ágústsson Guðna Ágústssyni, formanni Framsóknarflokksins, er að ganga vel að kynna ævisögu sína - enda að opinbera merkilega þætti fjölmiðlafrumvarpsins, mesta hitamáls íslenskra stjórnmála síðustu árin. Þar er vitnað t.d. í merkileg einkasamtöl við Ólaf Ragnar og í ákafa Davíðs Oddssonar við að koma fjölmiðlamálinu áfram. Guðni var svo í viðtölum á báðum stöðvum í kvöld og í settlegu viðtali hjá Loga Bergmanni þar sem mikið var talað um ævisöguna.

Það sem er áhugaverðast að mörgu leyti er þó að heyra lýsingar á því hvernig Halldórsarmurinn ætlaði gjörsamlega að svína á Guðna er Halldór Ásgrímsson ákvað að hætta í stjórnmálum, lotinn að kröftum og með Framsóknarflokkinn í algjöru rusli, þó hann hefði forsæti ríkisstjórnarinnar í höndum sér. Halldór naut sín aldrei sem forsætisráðherra og minna 21 mánaða ferill hans í embættinu, sem hann þráði svo lengi, einna helst á píslargöngu frekar en sigurstund litríks stjórnmálaferils. Guðni var ekki metinn verðugur eftirmaður og taka átti hann með sér í fallinu, er kom að því að Halldór brast þrek og þróttur.

Það varð flestum ljóst þegar að Framsóknarflokkurinn tapaði stórt í sveitarstjórnarkosningunum í fyrra að Halldór var á útleið. Þreytan og vonbrigðin láku af honum sem svitaperlur. Einna best skynjaði ég það er ég sá viðtal Helga Seljan, frænda míns, við Halldór á hinni sálugu NFS síðla kosninganætur í hófi flokksmanna í Þjóðleikhúskjallaranum. Þar fór bugaður maður sem talaði um að hann þyrfti að axla ábyrgð á vondum kosningaúrslitum. Flokkurinn tapaði stórt í þessum kosningum; missti t.d. tvo menn í gamla höfuðvígi sínu hér á Akureyri og ennfremur í Kópavogi, þar sem Sigurður Geirdal hafði drottnað árum saman - náði hinsvegar naumlega að tryggja Björn Inga Hrafnsson, örlagamann borgarmálanna, inn í borgarstjórn.

Það var greinilega gengið mjög harkalega fram í því að reyna að draga Guðna út af sviði stjórnmálanna með Halldóri. Það er alveg með ólíkindum að heyra lýsingarnar af því hvernig Guðni var beðinn um að afsala sér réttinum til formennsku í flokknum, sem sitjandi varaformaður, vegna þess að Halldór hafði misst stöðu sína, var búinn að vera en gat ekki hugsað sér að varaformaðurinn tæki við. Enda muna flestir mómentið á Þingvöllum kvöldið sem Halldór sagði af sér, gjörsamlega bugaður og flokkurinn í eymd, að þar talaði hann mikið um Finn og framlag hans til flokksins og allt að því flutti pólitíska líkræðu yfir Guðna með orðavali sínu.

Guðni er djarfur í frásögnum greinilega, fer alla leið í uppgjöri. Hann vitnar bæði í einkasamtöl sem eru mjög nálæg í tíma og fellir þunga dóma yfir þeim sem hann vann mest með í stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks; þeim Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni. Uppgjörið verður öflugra en ella vegna þess að báðir menn eru enn sprelllifandi og atburðirnir mjög nálægir í tíma - heitustu lýsingarnar eru enda á málum sem lítið hefur verið skrifað um, enda aðeins eins til þriggja ára. Uppgjör Guðna á pólitíska hitasumrinu 2004 virkar altént mjög tæpitungulaus.

Það verður eflaust mjög freistandi fyrir fjölmiðlamenn að leita viðbragða þeirra sem Guðni gerir hvað mest upp við; framsóknarforingjans fallna og norræna diplómatsins í Köben og yfirmannsins í Svörtuloftum. Enda er mjög merkilegt að heyra lýsingar á ofríki Davíðs og linkind Halldórs, sem einna helst er lýst sem hugleysingja undir lok samstarfsins við Davíð. Guðni er tæpitungulaus og er mikið í mun að gera upp við báða þessa menn. Það uppgjör eru stærstu tíðindi þessarar bókar.

Það verður gaman að fá sér eintak á morgun og byrja að lesa!

mbl.is Hörðum átökum Guðna og Halldórs lýst í nýrri bók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður dagskráin betri á Skjá einum?

Sigríður Margrét Oddsdóttir Það er athyglisverð nálgun hjá Skjá einum að reka starfsmenn sem starfa við innlenda dagskrárgerð og ætla að kaupa hana frekar að utan úr bæ. Vonandi verður dagskráin þar betri við það. Mér hefur fundist dagskráin á Skjá einum dalað allverulega síðustu misserin og hef æ oftar stillt á hana. Fyrstu árin var mikið af fínum þáttum; t.d. er Sirrý var með þáttinn sinn, Fólk, og Egill Helgason með Silfrið þar, svo fátt eitt sé nú nefnt.

Fyrir nokkrum árum var Skjár einn mjög vinsæll valkostur hjá mér, enda þar bæði góðir innlendir þættir sem og ágætis erlendis framhaldsþættir. Oft ansi góð blanda af fínu efni. Innlend dagskrárgerð Skjás eins hefur ekki verið neitt spes síðustu misserin. Sumir þættir eru svosem ágætir, en engin stórmerkileg snilld svosem. Það vantar meiri dýnamík hjá stöðinni eigi hún einfaldlega að halda þeirri stöðu sem hún hefur haft árum saman, verða áfram áberandi í bransanum.

Annars hefði ég svosem ekki trúað því fyrir nokkrum árum er Sigríður Margrét Oddsdóttir vann hér fyrir norðan hjá Gallup og Ráðgarði að hún ætti eftir að enda sem yfirmaður á einni af lykilstöðvunum í íslensku sjónvarpi, verða eftirmaður hins litríka Magnúsar Ragnarssonar. En sú varð nú raunin. Hún virðist þó mun frekar sjá um reksturinn en látið öðrum dagskrárpakkann eftir, enda er hún varla mikill sérfræðingur í þeim efnum.

Skjár einn á sér vonandi gott líf framundan. Hún hefur öðlast sess sem ein af bestu einkareknu sjónvarpsstöðvunum, hefur sess í samfélaginu sem slík. Vonandi mun dagskráin þar batna með þessum hrókeringum og áherslubreytingum, en ekki verða einsleitari og lélegri en nú er.

mbl.is 13 starfsmönnum sagt upp á Skjánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhugaverðar pólitískar lýsingar hjá Guðna

Guðni Ágústsson Það er mjög áhugavert að lesa þær pólitísku lýsingar á hitamálum síðustu tveggja áratuga í íslenskri pólitík sem er að finna í ævisögu Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins. Er að hugsa um að kaupa mér bókina strax á morgun og hefja lesturinn fljótlega. Hafði hugsað mér að bíða fram í desember með að lesa bókina - sé þó að þarna er talað það tæpitungulaust um helstu mál að ráðlegast er að byrja strax um helgina.

Guðni hefur verið í pólitísku starfi mjög lengi, svo hann hefur vissulega frá mörgu að segja. Hann hefur setið á þingi fyrir Suðurland í tvo áratugi, var landbúnaðarráðherra í tvö kjörtímabil, varaformaður Framsóknarflokksins í sex ár og tók við flokksformennsku á krossgötum flokksins í vor, eftir að honum var hafnað af landsmönnum og horfðist í augu við stjórnarandstöðu í þriðja skiptið á fjórum áratugum. Þetta er því eflaust saga manns á krossgötum eftir að hafa verið í eldlínu stjórnmálanna í áraraðir.

Guðni er reyndar að gera upp margt í þessari bók - greinilega fyrst og fremst að gera upp við Halldór Ásgrímsson. Það er ekkert hernaðarleyndarmál að þeir áttu ekki skap saman og tókust oft harkalega á. Framsóknarflokkurinn stendur illa núna, hefur ekki náð að lyfta sér af sínum botni og margir telja Guðna biðleik innan flokksins, sé aðeins millibilsformaður. Það eru giska vond örlög fyrir mann sem hefur beðið lengi eftir tækifærinu að leiða flokkinn, en tók við honum í rúst. Talað er um hvort Framsóknarflokkurinn sé einfaldlega að líða undir lok, sérstaklega þegar að traust flokksfólk eins og Anna Kristinsdóttir er farin úr honum.

Það er að ég tel einsdæmi að starfandi flokksformaður í hita og þunga íslenskra stjórnmála skrifi sögu sína og það var mjög vel ráðið hjá Guðna að fá Sigmund Erni til að leggja sér lið við bókina. Þar fer enginn flokkshestur Framsóknarflokksins og því alveg ljóst að farið er gagnrýnið yfir pólitíska sögu Guðna, sem um leið verður pólitísk saga Framsóknarflokksins á umbrotatímum - það er saga sem hefur ekki verið rituð af hreinskilni fyrr og því áhugavert að fá sér eintak og lesa.

mbl.is Forsetinn ætlaði einnig að hafna breyttum fjölmiðlalögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðlensk fegurð klikkar ekki

Herrar Íslands Það er alltaf ánægjulegt þegar að norðlensk fegurð er verðlaunuð. Hún varð sannarlega sigursæl í keppninni Herra Ísland að þessu sinni. Ekki aðeins vann Ágúst Örn Guðmundsson, herra Norðurland, keppnina, heldur varð Dalvíkingurinn Matthías Örn Friðriksson í þriðja sætinu, en hann varð annar í keppninni hér fyrir norðan. Þetta er glæsilegur árangur hjá þeim félögum.

Það hefur lengi verið deilt um hvort keppa eigi í fegurð. Femínistar hafa verið mjög andvígir þessa keppnisforms og sagt það niðurlægjandi. Sérstaklega snýr sú gagnrýni að keppni í fegurð kvenna, en minna hefur farið fyrir gagnrýni á karlakeppnina. Finnst þetta bara allt í góðu lagi, enda er það ákvörðun hvers og eins er fer í þessar keppnir að gera það. Út úr þessu hafa komið mörg góð tækifæri fyrir viðkomandi, sem er ánægjulegt í alla staði.

Persónulega hef ég aldrei haft neitt á móti fegurðarsamkeppnum. Mér finnst að þetta sé val einstaklinganna sem taka þátt hvort þeir gera það eður ei. Þeir sem vilja keppa gegn öðrum með fegurð sinni eiga að hafa frelsi til þess. Í mínum huga er þetta einfalt mál.

Óska Ágústi og Matta til hamingju með góðan árangur í keppninni. Já, norðlenska fegurðin hún klikkar sko ekki.

mbl.is Herra Ísland stefnir á háloftin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhugnaður í brasilísku fangelsi

Bakvið lás og slá Það er ekki hægt annað en fyllast óhug við að heyra af fimmtán ára stúlkunni sem komið var fyrir í fangaklefa í Brasilíu með tveim tugum karlmanna og það í rúman mánuð. Maður hefði haldið að óhugnanlegt mannréttindabrot af þessu tagi þekktist ekki í upphafi 21. aldarinnar og það í landi sem maður hefði getað talið eðlilegt samfélag, en ekki kúgað af einræði eða mannréttindabrotum. Þetta hlýtur að teljast mjög dökkur blettur á réttarkerfinu í Brasilíu.

Það eitt að stelpa sé lokuð inni í klefa með fjölda manns í einn dag er stóralvarlegt mál, en að það standi í yfir mánuð er svo lygilegt að óhugnanlegt telst. Það var varla við öðru að búast en að harðsvíraðir glæpamenn sem eru lokaðir af með fimmtán ára stelpu misnoti hana í bak og fyrir. Lýsingarnar á þessu máli eru allavega óhugnanlegar og getur varla farið öðruvísi en einhver verði dreginn til ábyrgðar í þessu dapurlega máli. Það á ekki að vera eðlilegt að fara svona með börn.

Það gildir einu hvort stelpan hafi brotið af sér en það þarf algjöran dómgreindarbrest til að dæma hana til vistar með karlmönnum í lokuðu rými allan þennan tíma. En þetta er óhugnaður af því tagi að öllu siðmenntuðu fólki gjörsamlega ofbýður. Það er til skammar að svona gerist á okkar dögum.

mbl.is 15 ára stúlka sett í fangaklefa með 20 mönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni farinn í fýlu og stingur af frá REI

Bjarni Ármannsson Það kemur ekki að óvörum að Bjarni Ármannsson sé að yfirgefa REI og losa um hlut sinn í félaginu. Öll teikn þess hafa verið á lofti síðustu vikurnar vegna pólitísks óróa í Reykjavík vegna Orkuveitunnar. Það hefur þó blasað við öllum alla tíð að Bjarni hefur mun frekar hugsað um sjálfan sig í þessum hasar en almenning. Honum voru tryggð vænleg kjör strax í upphafi og eflaust er það hentugast fyrir hann persónulega að losa um þann hlut á þessari stundu. Eins og flestir vita fékk hann toppdíl við að taka á sig þetta verkefni og fékk sannkallaðan draumasamning.

Mér finnst ímynd Bjarna hafa skaðast mikið í þessu REI-máli. Meðan að hann leiddi Kaupþing, Fjárfestingabankann, Íslandsbanka og að lokum Glitni þótti hann heiðarlegur og grandvar viðskiptamaður sem virkaði eins og táknmynd hins heiðarlega. Í hinu pólitíska feni REI-málsins hefur ímynd hans markast með öðrum hætti en áður og fólk sér hann sem táknmynd auðvalds sem hugsar ekki um hag almennings en þess þá frekar um eigin hag númer eitt, tvö og þrjú. Það eru vissulega dapurleg örlög fyrir Bjarna að hafa flækst í þessu erfiða máli en ímynd hans hefur skaðast á því.

Kannski er þar með eðlilegt að hann flýi af velli. En það verður umdeilt að hann græðist svo mjög á málinu, tel ég. Hann græðir enda mjög talsvert á þeim viðskiptum sem fylgja sölunni. Ég hef aldrei farið leynt með þá skoðun mína að samningar við Bjarna um kauphlut og fleiri þætti voru til algjörrar skammar fyrir þáverandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og ákvarðanir á öllum stigum málsins mjög vondar. Þar inn í hljóta að teljast kaupréttarsamningarnir og allar sponsurnar á hverju strái sem voru sem dimm mara yfir embættisverkum Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og Björns Inga Hrafnssonar.

Enn bíður almenningur eftir að tekin verði ákvörðun um hvað gerist í þessu langvinna máli. En brotthvarf Bjarna vekur sannarlega athygli á þessum tímapunkti. Hann hefur kannski fengið nóg af því að vera pólitískur örlagavaldur og ætlar að reyna að laga ímynd sína, sem er sködduð eftir.

mbl.is Bjarni Ármannsson selur OR hlut sinn í REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

JFK óttaðist tilræði í Chicago - ráðgátan mikla

JFK rétt fyrir morðið Í gær voru 44 ár liðin frá morðinu á John F. Kennedy, 35. forseta Bandaríkjanna, í Dallas í Texas. JFK hafði aðeins ríkt í rúma 1000 daga er hann var lagður að velli. Myndræn endalok þessa nútímalega bandaríska þjóðhöfðingja eru sama ráðgátan nú og var þá. Þótt liðinn sé langur tími frá þessum atburðum eru þeir mörgum Bandaríkjamönnum enn í fersku minni og blandast þar saman sorg, söknuður og tilfinningin um að þjóðin hafi verið svipt ungum og kraftmiklum leiðtoga.

Spurningunni um morðingja Kennedys er enn ekki svarað að fullu. Opinber rannsóknarnefnd, Warren-nefndin, komst að þeirri niðurstöðu að Lee Harvey Oswald hefði framið morðið og verið einn að verki en margir aðhyllast þá kenningu að árásarmennirnir hafi verið tveir og sumir segja allt að fjórir, eins og vel kom fram í umdeildri kvikmynd Oliver Stone, JFK, árið 1991. Einnig hafa komið fram kenningar um að mafían, bandaríska leyniþjónustan, útsendarar erlendra ríkja eða jafnvel Lyndon B. Johnson, eftirmaður Kennedys á forsetastóli, hafi skipulagt ódæðið. Allt frá fyrsta degi hafa tilgáturnar verið margar og þeim mun fjölga á næstu árum er opinber skjöl málsins verða loks opinberuð.

Ætla að horfa á JFK aftur um helgina. Horfi alltaf á þessa mynd einu sinni á ári, enda finnst mér hún lifandi vísbending þess sem ég tel að hafi orðið, að Kennedy hafi fallið vegna innri átaka með verk hans. Það er djörf samsæriskenning en engu að síður mjög líkleg að mínu mati. Kvikmyndin kemur með aðra útgáfu en þá opinberu og þær samsæriskenningar sem þar komu fram hafa alltaf verið umdeildar. Ólíklegt er að niðurstaða, sem allir sætta sig við, fáist nokkurn tíma en ekkert lát er á umfjöllun um morðið, bæði í bókum og fjölmiðlum þótt rúmir fjórir áratugir séu liðnir frá morðinu á forsetanum.

Það er áhugavert að heyra nú hulunni svipt endanlega af áhyggjum Kennedys forseta á tilræði í Chicago í Illinois í nóvemberbyrjun 1963. Lengi hefur verið lífseig sagan að Kennedy hafi hætt við þá ferð vegna morðtilræðis sem komið hafi verið upp um og hann hafi óttast svæðið, enda mjög umdeildur þar. Engu að síður mun ég samt aldrei skilja ákvörðun forsetans að halda í gegnum Dallas í óvörðum bíl, algjört skotmark andstæðinga sinna. Enda hefur bandarískur forseti ekki ekið með þessum hætti í stórborg í opnum bíl.

En örlög Kennedys voru sorgleg, en hann lifir með heimsbyggðinni. Svipmynd hans gleymist ekki. Í ferð minni til Washington í október 2004 fór ég í Arlington-þjóðargrafreitinn að grafreit Kennedys forseta. Á gröf hans og Jacqueline, konu hans, sem lést árið 1994, lifir hinn eilífi logi, táknmynd þess að vonarneistinn slokknar aldrei, hvað sem á bjátar.

mbl.is Áform um að myrða Kennedy í Chicago
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sálfræðilegar flækjur lífsins

Þær eru margar athyglisverðar smáu fréttirnar í litrófi mannlífsins um allan heim. Ein þeirra er af þessari bandarísku stelpu sem hafði um fimm kíló af hári í maganum. Það er alveg skelfilegt þegar að sálfræðilegar flækjur fólks koma fram með þeim hætti að það valdi sér skaða og eða geri eitthvað til að pína sig. Fyrir okkur sem lifum hinn venjulega hversdagslega dag er alltaf sláandi að lesa svona fréttir og heyra af erfiðleikum fólks koma fram með ólíkum hætti.

Þessi stelpa er eflaust ekkert einstakt tilfelli, en hún verður það þó fyrir okkur sem lesum þessa frétt. Það er það versta að margir sem þjást af sálfræðilegum erfiðleikum hafa ekki styrk og kraft til að leita aðstoðar við vanda sínum, þó fullorðið sé orðið. Það er gott að tekist hafi að hjálpa þessari stelpu.

mbl.is Með 4,5 kílóa hárvöndul í maganum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemst Whitney af botninum og aftur á toppinn?

Whitney HoustonÞað verður ekki um það deilt að Whitney Houston er ein af bestu söngkonum bandarískrar tónlistarsögu síðustu áratugina, sennilega mesta efni sinnar kynslóðar; sönn stjarna sem hitti í mark. Whitney varð enda gríðarlega vinsæl, átti smelli sem hafa lifað og komst á tindinn. Frægðarstjarna hennar skein eflaust skærast á níunda áratugnum og framan af þeim tíunda. Hún náði að skáka heimsþekktum söngkonum af vinsældalistum og er heitasta tónlistarstjarna sinnar kynslóðar í Bandaríkjunum.

En öllu gamni fylgir nokkur alvara er yfir lýkur. Glampinn slokknaði allsnarlega er Whitney lenti í viðjum dópdjöfulsins sjálfs í kjölfar eiginmannsins Bobby Brown og barðist við fíknina auk þess sem sviðsljósið varð á samband hennar við eiginmanninn, sem margir hafa talið þann sem eyðilagði tónlistarferil hennar á sínum tíma. Persónulegir erfiðleikar Whitney hafa verið alþjóðlegt fjölmiðlaefni nú árum saman og eiginlega sorglegt að sjá hvernig fór fyrir henni. Sjálf tók hún líka rangar ákvarðanir og hafði ekki það sem þurfti til að byggja sig upp aftur. 

Það vakti t.d. mikla athygli þegar að Whitney slaufaði sig út úr kvikmyndasöngatriði Burt Bacharach á óskarsverðlaunahátíðinni á aldamótaárinu, þar sem margar vinsælustu söngstjörnur seinni ára komu saman og tóku lagið. Whitney átti upphaflega að verða eitt af stærstu númerum atriðsins og Burt hafði valið henni nokkur lög til að syngja, þar á meðal óskarsverðlaunalagið úr A Star is Born. Hún mætti illa og stundum alls ekki á æfingar. Burt rak hana úr atriðinu með eftirminnilegum hætti og skarð hennar var fyllt af Queen Latifah og frænku hennar, Dionne Warwick, sem kom fram eftir áralanga fjarveru og söng lagið úr Alfie.

Whitney hefur ekki bara verið söngkonan fræga. Hún reyndi líka fyrir sér í kvikmyndum með frekar tilþrifalitlum hætti. Flestir muna eftir kvikmyndinni Bodyguard, sem átti að vera stórt móment hennar sem leikkonu, þar sem Whitney lék á móti Kevin Costner, söngstjörnu í viðjum morðhótana frá aðdáenda sínum. Whitney söng þar, eftirminnilega, eitt þekktasta lag tónlistarferils country-stjörnunnar barmabústnu Dolly Parton, I Will Always Love You, í nýrri útsetningu og gaf því nýtt líf fyrir yngri kynslóðir. Auk þess lék hún í kvennamyndinni Waiting to Exhale og The Preacher´s Wife (við hlið Denzel Washington).

Það verður áhugavert að sjá hvort að Whitney geti aftur náð á toppinn. Það er ekki öllum gefið að snúa aftur eftir áralanga sambúð með Bakkusi og vandræðum dópfíkninnar. En á móti kemur að Whitney er goðsögn í bandarískri tónlistarsögu, ein vinsælasta söngkona tónlistarsögu Bandaríkjanna. Ef henni tekst ekki að snúa aftur þarf Britney Spears ekki einu sinni að reyna fyrir sér framar.


mbl.is Whitney Houston snýr aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Musharraf einangrast - kosningar án baráttu

Pervez Musharraf Það er til marks um hversu einangraður Pervez Musharraf, forseti Pakistans, er orðinn á alþjóðavettvangi að utanríkisráðherrar breska samveldisins hafi allir sem einn samþykkt að vísa Pakistan úr sambandi þeirra. Musharraf stjórnar með alræðisvaldi og hefur full tök á öllu sem er að gerast í landinu og stjórnar með valdboði sem öllu fólki er metur lýðræði mikils mislíkar eðlilega mjög.

Svo virðist þó vera að Musharraf ætli sér að sleppa tökum á hernum þegar að nýtt kjörtímabil tekur gildi á næstu dögum, en hann hefur stjórnað bæði her og þjóð í um áratug, haft algjör yfirráð í landinu. Hann hefur þó sagt það svo oft áður að hann ætli sér að hætta sem yfirmaður hersins að því verður ekki trúað fyrr en það gerist. Reyndar hefur hæstiréttur staðfest loks kjörgengi Musharrafs sem forseta, en það kemur varla að óvörum enda hefur hann sett leppa sína í réttinn og sparkað öllum dómurum þar með neyðarlögunum.

Nýjasta sjónarspilið hjá Musharraf er svo að boða kosningar í janúar. Einhver telur það eflaust gott skref, en það versnar yfir því þegar að ljóst er að herlögin eiga að gilda fram að kosningum. Með því er tryggt að engin verður kosningabaráttan, sem flestum þykir jú eðlileg þegar að tekist er á milli flokka í aðdraganda kjördags. Það er greinilegt að þessar kosningar verða marklausar með öllu, þar sem ekki verður tryggð kosningabarátta og alvöru átök við menn valdsins, menn Musharrafs.

Það verður áhugavert að sjá hversu lengi Bandaríkjastjórn mun halda hlífðarskildi yfir einræðisstjórn Musharrafs og hvort hún ætlar sér að blessa þann skrípaleik sem kosningarnar í janúar eru dæmdar til að verða.

mbl.is Pakistan vikið úr Samveldinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru átök í meirihlutanum um Orkuveituna?

Leiðtogar nýs meirihluta Það virðist vera að enn hafi ekki náðst samstaða í vinstrimeirihlutanum í Reykjavík um málefni Orkuveitu Reykjavíkur. Seinkun á stjórnarfundi OR sýnir vel hversu erfiðlega gengur fyrir framboðin fjögur sem mynda meirihlutann að ná saman. Reyndar er öllum ljóst að meirihlutinn er án málefnagrunns að öllu leyti - enda ekki lagt í málefnasamning þrátt fyrir að sitja við völd í rúman mánuð.

Það eina sem var gert er meirihlutinn var myndaður var einfaldlega að koma sér saman um það hvaða toppembætti hver ætti að fá. Held þó að fyrst og fremst verði áhugavert að sjá hvaða samstöðu nýr meirihluti nær um Orkuveitu Reykjavíkur og verklag mála á þeim bæ. Um þau mál hefur verið deilt mjög. Eftir að nýr meirihluti var myndaður hefur hann tekið við sama leyndarhjúp um málefni OR og einkenndi störf fyrri meirihluta. Það eru ekki trúverðug vinnubrögð. Ég sé altént ekki mikinn mun á þögninni yfir OR og leyndarhjúpnum og sem er til staðar undir stjórn þessa meirihluta og hins fyrri.

Háværar kjaftasögur hafa verið um að gera eigi REI að fjárfestingararmi Orkuveitunnar, selja eigi einfaldlega eignir félagsins til Geysis Green Energy og um leið að kaupa hlut í félaginu, sem er eins og flestir vita undir forystu Hannesar Smárasonar og FL Group. Það er varla ofmælt að kjósendur verða hafðir af fíflum af nýja meirihlutanum ef þetta verður niðurstaða mála. Það er eðlilegt svosem að deilt sé um sjónarmið varðandi Orkuveituna. Fyrir meirihlutamyndun í október voru Björn Ingi Hrafnsson og borgarfulltrúar þáverandi minnihluta að tala fyrir ólíkum áherslum, en eru nú að reyna að finna úr úr því.

Fróðlegt verður að sjá hvort að vinstri grænir ætli sér að fara í samstarf með Geysi Green Energy eftir öll stóru orðin um að orku
auðlindir landsmanna eigi að vera að fullu í opinberri eigu. Á prinsipp vinstri grænna nú að verða með þeim hætti að standa að því að einkaaðilum sé hjálpað við landvinninga sína í orkumálum? Ef það verður niðurstaðan í Reykjavík er ljóst að vinstri grænir hafa skipt um skoðun á landsvísu í þessum efnum. Þannig að það verður áhugavert að sjá hversu langt prinsipp vinstri grænna ná í raun og veru.

Frá fyrsta degi hefur verið áhugavert að fylgjast með því hvort muni standa uppi sem sigurvegari rimmunnar um REI og OR innan nýja vinstrimeirihlutans, REI-listans, sem sumir nefna X-listann, með kómískum hætti; Björn Ingi eða Svandís. Annað þeirra mun þurfa að gleypa mjög stór orð. Vissulega varð Björn Ingi að hopa mjög með riftun samruna REI og GGE, en víst er að margir munu líta þann sigur Svandísar öðrum augum fari svo að REI verði að fjárfestingararmi Orkuveitunnar í beinu samstarfi við GGE.

Það verður áhugavert að sjá hver niðurstaða meirihlutans í Reykjavík verði. Tafir á ákvörðunum eru til marks um að eitthvað höktir innan meirihlutans og áhugavert að sjá hvaða sambræðingur kemur út úr þessu, er yfir lýkur. 


mbl.is Stjórnarfundi í OR frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógeðslegt

Það er jafnan ógeðslegt að heyra fréttir af misnotkun fólks á dýrum. Held þó að þessi frétt af hundinum sem var nauðgað í Arizona í Bandaríkjunum slái öll met ógeðsins. Það er ótrúlegt að nokkur einstaklingur sé svo innilega ruglaður að misnota dýr til kynferðislegra athafna, en það virðist vera að sífellt reyni á óeðlið í manneskjunni. Sem betur fer heyrum við ekki af svona ógeði hérna heima, en þess þá frekar heyrist af því að dýr séu vannærð og illa um þau hugsað, sem er sérlega dapurlegt í sjálfu sér.

Hef satt best að segja ekki hugmynd um hvort að kynferðisleg misnotkun fólks á dýrum sé algeng. Ætla þó rétt að vona að svo sé ekki. Þessi frétt sýnir þó hvað er mikið sjúku fólki til, enda þarf verulega sjúkan huga til að koma svo ógeðslega fram við dýr.

mbl.is Grunaður um að hafa nauðgað hundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stangarstökkskona vill verða karlmaður

Yvonne Buschbaum Ég held að það komi engum að óvörum að Yvonne Buschbaum skipti um kyn. Hún hefur alla tíð verið mjög karlmannleg og vakið mikla athygli á stórmótum fyrir framkomu sína. En það hlýtur að vera mjög stór ákvörðun að hætta keppni á vettvangi íþróttanna og halda þaðan beint í kynskiptiaðgerð sem breytir lífinu að eilífu. En það er ákvörðun hvers og eins að taka slíkt skref og getur enginn annar sett sig í dómarasæti með það.

Hef samt aldrei skilið hvernig fólk getur tekið þá ákvörðun að fara í aðgerð af þessu tagi. Þetta er mikið skref og þaðan verður ekki aftur snúið. Það er samt eflaust uppgötvun að átta sig á því að manneskja finni sig ekki í kynhlutverki sínu. Það hefur vakið mikla athygli hér heima þegar að fólk tekur slíka ákvörðun en sumir þeirra hafa ekki lagt í að fara alla leið og halda í aðgerðina sem breytir lífinu að eilífu.

Það er vonandi að Yvonne verði fyrst og fremst sátt við sjálfa sig og taki ákvörðun sem hún telur rétta. Það verður hver og einn að taka ákvörðun um líkama sinn og hvernig hann eigi að vera.

mbl.is Keppinautur Þóreyjar Eddu skiptir um kyn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valtýr Sigurðsson skipaður ríkissaksóknari

Valtýr Sigurðsson Kjaftasagan segir að Valtýr Sigurðsson, fangelsismálastjóri, verði skipaður ríkissaksóknari í dag af Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra. Það hlýtur að teljast gott val, enda Valtýr augljóslega hæfastur þeirra sem sóttu um.

Miklar umræður voru um hvort Jón HB Snorrason hlyti embættið, en frægar deilur vegna þess urðu m.a. til þess að hætt var við að veita embættið í vor þegar að Bogi Nilsson ætlaði sér upphaflega á eftirlaun.

Tel að þetta sé farsæl niðurstaða mála eftir átök í vor og held ég að flestir geti verið sáttir við valið á Valtýr í þessa stöðu.

Gillzenegger mun hlaupa nakinn í Kringlunni

Gillzenegger Jæja, þá mun Gillzenegger hafa ákveðið að standa við stóru orðin og hlaupa nakinn í Kringlunni. Hann ætlar að gera það á sjálfri Þorláksmessu, hvorki meira né minna. Eins og flestir vita veðjaði hann á það fyrr á árinu að ef Garðar Örn Hinriksson knattspyrnudómari, dæmdi knattspyrnuliði Breiðabliks víti myndi hann hlaupa nakinn í gegnum Kringluna. Skömmu síðar dæmdi hann einmitt liðinu víti og Gillz varð að láta reyna á veðmálið.

Gillzenegger hefur verið þekktur fyrir stór orð og ekki beint hikað mikið við að tjá skoðanir sínar í gegnum tíðina. En nú þarf hann heldur betur að gleypa stoltið. Það þarf heldur betur kjark til að gera þetta og það á sjálfri Þorláksmessu, mesta verslunardegi ársins. Hafði áður giskað á að hann myndi sprellast þar í skjóli nætur eða seinnipart dags um helgi, myndi hvorki velja seinnipart föstudags eða hádegisbil á laugardegi.

Reyndar valdi hann sunnudag, en á móti kemur að þorláksmessa er enginn venjulegur sunnudagur hjá verslunarmönnum. Djarft þetta og gott hjá Gillz!

Klúður aldarinnar hjá Englendingum

Beckham Það var fátt sem minnti á forna frægð Englendinga í knattspyrnu í kvöld þegar að Króatar gerðu sér lítið fyrir og rassskelltu þá á heimavelli og gerðu þar með að engu vonir Tjallanna um sæti á EM á næsta ári. Sú var tíðin að Englendingar áttu að heita mátti öruggt sæti á alla lykilkeppnir knattspyrnunnar og áttu möguleika á titlum. Það er þó óralangt síðan að þeir urðu heimsmeistarar og þeir hafa átt í miklu brasi síðustu árin.

Var vissulega svolítið merkilegt að sjá þessa merkilegu stund er Englendingar lutu í gras og urðu að játa sig sigraða. Það verður athyglisvert að horfa á EM á næsta ári og það án Bretanna. Fyrir okkur sem fylgjumst með enska boltanum og höfum átt okkar uppáhaldslið þar árum saman verður það nýtt móment. En þeir einfaldlega áttu ekki betra skilið, hafa verið mjög slappir að undanförnu og virðast ekki vera í formi af því tagi sem þarf í stórkeppni af þessu tagi núna.

En vonandi verður þessi rassskellur sem nýtt upphaf fyrir landslið Englands. Þeir hinir stóru þurfa oft að fá vænan skell til að vakna til veruleikans og upplifa að þeir þurfi að berjast fyrir upphefðinni.

mbl.is England tapaði og Rússar náðu síðasta EM-sætinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raunalegar afsakanir á tapi fyrir Dönum

Ólafur JóhannessonMér fannst nú hálf raunalegt að sjá tilraunir Ólafs Jóhannessonar, landsliðsþjálfara, til að fegra ósigurinn gegn Dönum í kvöld. Það er alltaf erfitt að byrja með tapi en ég vona að það megi segja um Ólaf eins og flesta sem byrja á botninum að eftir það geti leiðin aðeins legið upp á við. Það sem skiptir máli í leikjum er að skora mörk og ná að tryggja sigur. Það tókst ekki í dag og við virðumst eiga við erfið vandamál í liðinu sem fylgja eftir, vandamál sem vonandi verður tekið á.

Veit svosem ekki hvað við gátum átt von á í þessum leik, öðru en tapi. Held þó að enginn hafi átt von á 3-0 tapi. Ef það er markmiðið að sætta sig við tap í leikjum á að pakka saman frekar en halda þessu úti. Í þessu dugar ekkert annað en metnaður og að spila til sigurs, sama hvaða lið er um að ræða. Við höfum sýnt karakter gegn Spáni og fleiri liðum og eigum ekkert að þurfa að hræðast einn né neinn. En fari menn á völlinn vissir um að þeir tapi leik kemur ekkert út úr honum nema einmitt tap.

Það mun enginn dæma Ólaf vegna úrslitanna í þessum leik. Það eru aðeins þrjár vikur frá því að hann tók við þessu vanþakkláta starfi. Það hefur enginn orðið vinsæll á að vera í þessum stól síðan að Guðjón Þórðarson var og hét fyrir áratug, þá gátum við líka verið stoltir af okkar liði og átt von á þar væri samansafn af karakterum sem börðust til enda, sama hvað. Síðustu árin hefur þetta verið raunalegt og náði það hámarki í leiknum við Liechtenstein þar sem við vorum hundlélegir bara.

Ólafur þarf að fá sinn tíma til að taka almennilega við starfinu og setja sitt mark á liðið. En það verður aldrei svo að við sættum okkur við þriggja marka tap í neinum leik, en kannski erum við bara það lélegir að við verðskuldum ekki betra. Það þarf að taka á því og ég vona að þrefaldur íslandsmeistaraþjálfari sé maðurinn í það verkefni að byggja upp lið sem við getum verið stolt af.


PS: Mikið hafði Guðjón Þórðarson annars rétt fyrir sér á Sýn í kvöld.


mbl.is Ólafur: „Ánægður með hugarfarið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðmýkjandi ósigur - mikið verkefni framundan

Ólafur JóhannessonÞað var frekar dapurlegt að fylgjast með íslenska landsliðinu tapa með auðmýkjandi hætti í Danmörku í kvöld. Ekki er hægt að segja að liðið byrji glæsilega í fyrsta leiknum undir forystu Ólafs Jóhannessonar, landsliðsþjálfara, og við rennum illilega á rassinn í þessum riðli. Það var fyrirsjáanlegt eins og komið var málum.

Það er sannarlega mikið verkefni framundan við að byggja þetta lið upp og við verðum að trúa því að það sé ekki vonlaust verkefni. Lykilvandamál fjölmargra leikja í þjálfaratíð Eyjólfs Sverrissonar voru heldur betur til staðar í kvöld og það er greinilegt að ef Ólafur á að verða sigursæll þjálfari þarf hann að setja sitt mark á liðið og reyna að snúa gengi þess við heldur betur. Verk hans verða þó ekki dæmd í dag en nú gefst honum tækifæri til að reyna að bæta úr fyrir hin sönnu átök síðar meir.

Landsliðið sá aldrei til sólar í þessum leik. Það er vissulega eldskírn fyrir nýjan þjálfara að byrja á Parken, en engu að síður verðum við að trúa því að þetta tap verði sá rassskellur sem við þurfum til að rífa liðið upp úr drullunni. Það er það sem Ólafi Jóhannessyni er ætlað að gera fyrst og fremst, það var veganesti hans til verka frá Knattspyrnusambandi Íslands í upphafi. Það veltur á því hvort hann hafi traust áfram til verka.

En þetta er enginn dómsdagur fyrir Ólaf Jóhannesson og liðið. Þar þarf að leggjast í mikla heimavinnu við að endurheimta styrk og kraft til að sækja fram. Við verðum að trúa því á þessum botni íslenska landsliðsins geti leiðin aðeins legið upp á við.


mbl.is Íslendingar sáu aldrei til sólar í 3:0-tapleik gegn Dönum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband