Líður að lokum hjá Fidel Castro

Fidel Castro Áttræðisafmælis Fidel Castro var minnst í dag með miklum herlegheitum í Havana á Kúbu. Helstu tíðindin var áberandi fjarvera Castros sjálfs. Það er að verða afskaplega erfitt fyrir stjórnvöld á Kúbu að neita fréttum af slæmri heilsu hans og segja má að það að Castro vanti á svona stóran viðburð boði bara eitt. Það hefur verið raunalegt að fylgjast með fréttamyndum frá Kúbu síðan í júlí sem eiga að telja fólki trú um að kallgreyið sé í "lagi" og sé rólfær enn.

Það eru gamalkunn tíðindi að það að vera ráðandi í stjórnmálum snúist að mörgu leyti um það að koma vel fram og vera áberandi leiðtogi sem minnir á nærveru sína. Betur en margir aðrir þjóðarleiðtogar veit Fidel Castro þetta afskaplega vel. Hann hefur stjórnað með sýnilegu valdi á Kúbu í tæpa hálfa öld, þar sem stormandi boðskapur hans hefur skipt sköpum fyrir hann að hafa haldið völdum og getað ríkt þar þetta lengi. Þar hefur enda allt snúist um persónu hans.

Að því kemur á ævi hans sem og allra annarra að halla tekur undan fæti. Það er óhjákvæmilegt, sama hver um er að ræða. Framkoma í stjórnmálum á okkar fjölmiðlatímum snýst oftast nær um það hvernig fólk kemur fram. Komi það ekki fram eða er fjarverandi hlýtur kastljósið að beinast að fjarverunni. Í landi eins og Kúbu snýst allt um að sýna fram á vald sitt. Það hefur Castro gert og gerði margoft meðan að hann var veikur fyrir nokkrum árum er hann féll illa á opinberri samkomu og lærbrotnaði.

Það vekur því auðvitað talsverða athygli að það sem sjáist til Castro nú séu aðeins myndir af honum alvarlegum á svip í adidas jogging-galla (talandi um sannkallaða kaldhæðni) og greinilega fölan á brá að reyna að staulast nokkur skref með dagblaði í hendi sem sýnir tímasetninguna. Þetta er eins og í gíslatöku þegar að gíslinn er sýndur með nýjasta dagblaðið í hendinni, til að sýna að hann sé örugglega enn þessa heims. Þetta er í senn bæði skondið og skemmtilega óraunverulegt í sinni fyndnustu merkingu. Reyndar hafa slíkar myndir ekki birst síðan í endaðan október.

Það þarf ekki þaulreyndan sérfræðing í alþjóðastjórnmálum til að sjá hvert stefnir. Þegar að Castro deyr mun væntanlega Raul, bróðir hans, taka við. Hann er maður sömu kynslóðar og bróðir hans. Það mun lítið breytast stefnulega við valdatöku hans, en því fylgir auðvitað að völd einræðisstjórnarinnar veikjast og einræðisstjórn kommúnista þarna missir með áþreifanlegum hætti krumluna af stöðunni. Það var alltaf óhjákvæmilegt að allt breyttist þegar að Castro myndi deyja og það fer svo, enda er allt byggt á persónu hans og krafti hans sem leiðtoga.

Það gerist nær alltaf þegar að svona sterkur leiðtogi deyr að þá veikist einræðisstjórnin sem á bakvið hann var. Það er enda mjög erfitt að vera yfirgnæfandi í lokuðu samfélagi eins og Kúbu, með einræði og engum alvöru kosningum, þar sem leiðtoginn er heilsuveill og sá sem með völdin á að fara á meðan sést varla heldur. Það er því varla undrunarefni að það gerist fyrr en síðar að reynt sé að loka á orðróminn. Þetta var vandræðalegt í tilfelli Leonid Brezhnev og ekki síður Boris Yeltsin, þegar að reynt var að telja fólki trú um að hann væri heilsuhraustur.

Að því kemur væntanlega fyrr en síðar að þessi staða mála, með leiðtogann greinilega fárveikan, veki kúbverja til meðvitundar í samfélagi sem hefur vanist einræði og einum leiðtoga, án kosninga, til áratuga og þá sem fylgjast með einræðinu fjarri eymd kommúnismans, sem enn ómar í ríki einræðisherrans.

mbl.is Kastró mætti ekki í afmælisveisluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg Sólrún greinir vanda Samfylkingarinnar

ISG Ingibjörg Sólrún virðist komin að leiðarlokum í vörn sinni á fylgistapi Samfylkingarinnar og hefur viðurkennt helsta vanda flokksins fyrir flokksmönnum og þjóðinni allri. Í fróðlegri ræðu á flokksstjórnarfundi í dag sagði hún að kjósendur þyrðu ekki að treysta þingflokki Samfylkingarinnar. Það er svosem ekkert hernaðarleyndarmál að Samfylkingin virðist eiga í erfiðleikum.

Þrátt fyrir minnkandi fylgi Sjálfstæðisflokksins vegna Árnamálsins hækkar Samfylkingin ekki milli mánaða og hefur ekki gert lengi. Um þessar mundir eru fjögur ár síðan að borgarstjóraferli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur lauk snögglega eftir að hún tók fimmta sætið á lista flokksins í Reykjavík. Henni tókst ekki að komast á þing í kosningunum 2003 en varð varaformaður flokksins sama árið, eftir að Margrét Frímannsdóttir steig til hliðar fyrir Ingibjörgu. Hún varð þingmaður við afsögn Bryndísar Hlöðversdóttur og formaður flokksins sama ár.

Það hefur því ekki gengið neitt né rekið pólitískt hjá Ingibjörgu Sólrúnu eftir að hún felldi svila sinn Össur í hörðu formannskjöri fyrir einu og hálfu ári. Nú er staða mála þannig að Samfylkingin mælist með 16 þingsæti. Samfylkingin mælist með 7 þingmenn í Reykjavík, 4 í Kraganum, 1 í Norðvesturkjördæmi og 2 í Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi. Það er ekki beint sú uppskera sem Ingibjörg Sólrún hefur stefnt að. Það virðist óravegur frá þeirri Ingibjörgu Sólrúnu sem var borgarstjóri og svo þeirri sem leiðir Samfylkinguna. Hún hefur aldrei fundið sig í landsmálunum.

Það hefur blasað við um langt skeið að Samfylkingin hefur ekki tiltrú landsmanna og þar hefur hringlandagangur staðið flokknum verulega fyrir þrifum og veikt stöðu hans. Það eru mikil pólitísk tíðindi að Ingibjörg Sólrún gangi hreint til verks og viðurkenni nú loksins þessa stöðu mála fyrir kjósendum.

mbl.is Ingibjörg Sólrún: Ætla að sjá til þess að Samfylkingin vinni ötullega í nýrri ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framboð Árna mun skaða Sjálfstæðisflokkinn

Könnun (nóv 2006) Það er athyglisvert að fara nánar yfir könnun Gallups, sem birt var í vikunni. Þar sést mikið fylgistap Sjálfstæðisflokksins á höfuðborgarsvæðinu og hér í Norðausturkjördæmi missum við rúm 6 prósentustig. Mér finnst þetta of mikið einhliða fylgistap hjá okkur til að kenna bara innflytjendatali Frjálslynda flokksins um, eins og ég hef áður sagt hér á vefnum. Það hefur ekkert mál verið meira rætt í flokknum undanfarið en framboð Árna Johnsen.

Ég spáði því þegar að ólgan hófst vegna þessa máls að við myndum tapa fylgi um allt nema einmitt í Suðurkjördæmi. Það er að koma all illilega á daginn og með áþreifanlegum hætti. Tap Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og í Suðvesturkjördæmi er sérstaklega sláandi, þykir mér. Í Reykjavík norður missir flokkurinn tíu prósentustig og í Reykjavík suður rétt innan við það. Í Kraganum minnkar fylgið um 10 prósentustig. Þetta hefur aðallega áhrif á konurnar í baráttusætunum. Færi þetta svona myndu hvorki Sigríður Andersen né Ragnheiður Ríkharðsdóttir ná kjöri á þing að vori og Birgir Ármannsson myndi falla af þingi.

Hér í Norðausturkjördæmi mældumst við í síðustu könnun hér með fjóra þingmenn og 37%. Þeir eru þrír núna og fylgistapið er rétt um sjö prósentustig, þó að prófkjör hefði farið fram í mánuðinum. Flokkurinn er aðeins jafnstór og síðast í Norðvesturkjördæmi en mikið fylgistap blasir annars við. Í Suðurkjördæmi hækkar flokkurinn um tvö prósentustig. Athygli vakti að fréttastofa Útvarpsins auglýsti þetta sem svo að Árni Johnsen væri að sópa til sín fylgi. Mér finnst það verulega brenglað fréttamat, enda er hækkunin ekki mikil milli mánaða en hún verður meiri í mönnum talið vegna fylgistaps Samfylkingarinnar þar. En þetta er mikið umhugsunarefni vissulega.

Allir flokkar verða fyrir áfalli í þessari skoðanakönnun nema Frjálslyndir og VG mögulega, þó þeir séu greinilega að byrja að dala á viðkvæmum tímapunkti. Athygli vekur að Frjálslyndi flokkurinn mælist nú með sjö þingmenn. Það er ekki gleðiefni miðað við helstu áherslur þeirra, t.d. í innflytjendamálum. Þær áherslur virðast reyndar á góðri leið með að kljúfa flokkinn, sbr. uppsögn Margrétar Sverrisdóttur og innri væringar því tengt. Það er annars greinilegt að Samfylkingin á í verulegri krísu. Hún mælist nú aðeins með 16 þingsæti og draumar um stjórnarforystu virðast fjarlægir.

En þessi könnun er fyrst og fremst verulegt áfall Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn er þarna í áþekkri stöðu og í kringum síðustu kosningar. Á þessum vanda verður að taka og það fljótlega. Fylgistap Sjálfstæðisflokksins á sér eðlilegar ástæður að mínu mati. Það verður að horfa til Suðurkjördæmis í þeim efnum og á þessu verður að taka, sem fyrst. Það er mjög einfalt mál í mínum huga.

mbl.is Skora á Árna Johnsen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harðvítug valdabarátta innan Frjálslynda flokksins

Margrét Sverrisdóttir Harðvítug valdabarátta virðist í uppsiglingu innan Frjálslynda flokksins eftir að forysta flokksins ákvað að reka Margréti Sverrisdóttur sem framkvæmdastjóra þingflokksins með kuldalegum hætti í gærkvöldi. Í fimmfréttum útvarpsins var viðtal við föður Margrétar, Sverri Hermannsson, fyrrum ráðherra og bankastjóra, sem stofnaði flokkinn árið 1998. Þar sagði hann að Guðjón Arnar Kristjánsson, eftirmaður hans á formannsstóli, væri í úlfakreppu eftir innrás Jón Magnússonar, lögmanns, í flokkinn.

Sagði Sverrir að sannleikurinn um uppsögn Margrétar væri sá að forysta flokksins væri að reyna að ryðja henni úr vegi og snúa flokknum til annarrar áttar, t.d. í innflytjendamálum, þar sem Margrét hefur verið málsvari mildari og mannlegri áherslna en t.d. Jón Magnússon og varaformaðurinn Magnús Þór Hafsteinsson, sem hljóma eins og sálufélagar í þessum málum. Ergja stofnendahóps flokksins, herráðs Sverris, með stjórn flokksins er greinileg og er að ná hámarki.

Er greinilegt að feðginin eru að leggja til atlögu við forystu flokksins eftir þessa augljósu aðför að Margréti og hún svarar þessum vinnubrögðum í viðtali við RÚV með þeim orðum að hún láti ekki hrekja sig úr Frjálslynda flokknum með bolabrögðum. Sverrir er eins og fyrri daginn mun beinskeyttari og sparar ekki stóru orðin nú síðdegis, ekki frekar en í Silfri Egils um síðustu helgi. Tal Guðjóns Arnars í viðtali við Rósu Björk og Heimi í Íslandi í bítið í morgun um uppsögn Margrétar var mjög ósannfærandi og þeirri spurningu fékkst í raun aldrei svarað hversvegna Margréti væri sagt upp með svo kuldalegum hætti ef samstaða væri um störf hennar og virðing borin fyrir þeim.

Sverrir HermannssonSverrir gekk reyndar svo langt í viðtalinu nú klukkan fimm að segja að greinilegt væri að Guðjón Arnar hefði gert Jón Magnússon að ráðningarstjóra sínum og þeir kumpánar vildu skipta um áhöfn á skútunni. Framundan er landsþing Frjálslynda flokksins í næsta mánuði. Þar verður forysta flokksins í kosningabaráttunni kjörin. Heldur verður nú að teljast líklegt að það landsþing verði þing átaka og uppgjörs milli hinna augljósu fylkinga í flokknum. Ekki kæmi það á óvart færi Margrét Sverrisdóttir þar í formanns- eða varaformannsframboð og reyndi að steypa forystumönnum þar. Öllum er allavega ljóst að flokkurinn logar í óeiningu.

Fróðlegt er að sjá skrif Valdimars Jóhannessonar í Fréttablaðinu í dag. Þessi kostulegi maður, sem leiddi framboð Nýs afls hér í Norðausturkjördæmi með litlum árangri, virðist vera kominn þangað inn aftur, en hann leiddi Frjálslynda í Reykjaneskjördæmi hinu forna í kosningunum 1999. Hann yfirgaf flokkinn með Gunnari Inga Gunnarssyni árið 2001 vegna eftirminnilegra átaka við Sverri og Margréti. Hann virðist kominn aftur til að hefna gamalla misklíða ef marka má pistilinn sem ber allt yfirbragð hefndaþorsta í garð tiltekinna aðila.

Það er öllum ljóst að Frjálslyndi flokkurinn logar stafnanna á milli. Uppsögn Margrétar og hörð orð stofnandans í garð formannsins og félaga hans sýnir það svo ekki verði um villst.


mbl.is Guðjón segir Margréti þurfa tíma í aðdraganda kosninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvö andlit Jóns Sigurðssonar

Jón SigurðssonMáltækið segir að Jón og sr. Jón sé ekki það sama. Vel má vera, en svo mikið veit ég að það voru margir hissa þegar að Jón Sigurðsson fór í pontu á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins og sneri sér frá skoðunum Halldórs Ásgrímssonar í Íraksmálinu. Þar var horft til nýrrar áttar hjá formanni flokks sem stefnir að óbreyttu í mikinn lífróður eftir jólin. Jón sagði eitt þá og annað merkilegt í þættinum Pressunni á NFS hinni sálugu í júlí í eftirminnilegu viðtali hjá Helga frænda mínum Seljan. Rifjum það upp svona til gamans:


"Það er mjög auðvelt fyrir okkur að gagnrýna. Það var kosningabarátta í gangi, þingið var farið heim í kosningabaráttu og svo framvegis. Þeir tóku sína ákvörðun á grundvelli þeirra upplýsinga sem þá lágu fyrir. Og mér finnst það mjög ódýrt að sitja hér í þægindum nokkrum árum síðar og fara að gagnrýna það hvernig að sú ákvörðun var tekin, og ég tek ekki þátt í því."
Jón Sigurðsson, verðandi formaður Framsóknarflokksins (júlí 2006)

"Forsendurnar voru rangar og ákvörðunarferlinu var ábótavant. Þessar ákvarðanir voru því rangar, eða mistök. Svonefndur listi um staðfastar þjóðir var einhliða framsetning Bandaríkjastjórnar og hluti af þessari hörmulegu atburðarás."
Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins (nóvember 2006)

mbl.is Mannfall úr röðum óbreyttra borgara í Írak jókst um 43% í nóvember
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beitt svarskrif Þorsteins til Jóns Baldvins

Þorsteinn Pálsson Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins og fyrrum forsætisráðherra, ritar oft kjarnmikla leiðara. Í dag er hann sérlega öflugur og beittur. Þar er orðunum beint til Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrum utanríkisráðherra og formanns Alþýðuflokksins. Leiðarinn ber yfirskriftina: Raup eða alvara? Þorsteinn víkur þar sögunni auðvitað að hlerunarmálunum. Tveir mánuðir eru liðnir frá því að Jón Baldvin sagði uppúr þurru í útvarpsviðtali frá grunsemdum um hleranir í skrifborðssíma í ráðuneytinu á tíunda áratugnum.

Rannsókn hófst á málinu og stefnir í lok hennar þessa dagana. Viðtal við Jón Baldvin í Fréttablaðinu á miðvikudag um málið vakti verulega athygli lesenda, en þar komu fram dylgjur um að ekki hefði verið hægt að treysta dómsmálaráðuneytinu fyrir rannsókn á málinu þá. Á árunum sem meintar hleranir áttu að hafa farið fram voru þeir ráðherrar í fyrstu ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Þorsteinn dómsmálaráðherra. Hann tekur því ummæli Jóns Baldvins til sín og spyr hreint út hvort þau séu raup eða alvara af hans hálfu.

Það verður seint sagt að miklir kærleikar séu milli þeirra Þorsteins og Jóns Baldvins. Þeir unnu saman í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks 1987-1988 undir forsæti Þorsteins. Það var stormasöm og hvöss sambúð. Lokahrina stjórnarsamstarfsins var erfið fyrir alla leiðtoga samstarfsins og kergjan milli þessara tveggja manna náði nýjum hæðum. Lauk samstarfinu með því að Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur slitu samstarfinu og allt að því hentu Þorsteini og sjálfstæðismönnum frá völdum. Þeir unnu saman í stjórn Davíðs 1991-1995 en ekki var það kærleiksrík sambúð. Um fall stjórnar Þorsteins Pálssonar ritaði ég þennan pistil í haust.

Það hefur verið hiti yfir Þorsteini í Skaftahlíðinni þegar að þessi öflugi leiðari var ritaður. Þetta er skyldulesning, segi ég og skrifa. Fróðlegt verður að heyra svar Jóns Baldvins við þessum öflugu skrifum ritstjóra Fréttablaðsins, fyrrum samtarfsmanns hans í ríkisstjórn Íslands, sem sat sem forsætisráðherra með stuðningi hans og Alþýðuflokkins í fjórtán stormasama mánuði fyrir tveim áratugum.

Margréti Sverris sagt upp - ólga hjá Frjálslyndum

Margrét Sverrisdóttir Margréti Sverrisdóttur, framkvæmdastjóra þingflokks Frjálslynda flokksins og varaborgarfulltrúa flokksins, var sagt upp störfum seint í gærkvöldi. Margrét er dóttir stofnanda Frjálslynda flokksins, Sverris Hermannssonar, fyrrum ráðherra og bankastjóra, og hefur verið framkvæmdastjóri flokksins frá stofnun og leiddi framboðslista flokksins í Reykjavík suður í þingkosningunum 2003. Henni er aðeins sagt upp störfum fyrir þingflokkinn beint.

Greinileg ólga virðist innan Frjálslynda flokksins um stefnur og áherslur. Fylkingar hafa myndast þar t.d. vegna innflytjendamála og deilur verið milli Margrétar og formanns og varaformanns flokksins um stöðu mála. Hefur henni og föður hennar verið mjög uppsigað við Jón Magnússon, formann Nýs afls, sem nýlega gekk til liðs við flokkinn, en Sverrir kallaði hann utanveltubesefa í Fréttablaðsviðtali nýlega og sagði honum og Magnúsi Þór Hafsteinssyni til syndanna í viðtali í Silfri Egils um síðustu helgi.

Greinileg skil eru að verða innan flokksins vegna innflytjendamálanna. Í viðtali við Morgunblaðið segist hún ekki í vafa um að uppsögn sín stafi af því að hún hafi mótmælt rasískum hugmyndum Jóns Magnússonar og ætlar hún að leggja málið fyrir miðstjórn flokksins. Þess má reyndar geta að Margrét er ritari flokksins og framkvæmdastjóri flokksheildarinnar allrar. Það vekur því athygli að þingflokkurinn treysti ekki flokksframkvæmdastjóranum fyrir stjórn mála hjá Frjálslyndum.

Er Frjálslyndi flokkurinn að klofna? Stórt er spurt, klofningsmyndunum þar verður vart neitað úr þessu altént.


mbl.is Margréti Sverrisdóttur sagt upp hjá Frjálslyndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaðar Árni Johnsen Sjálfstæðisflokkinn?

Könnun (nóv 2006) Ég dreg enda dul á það að útkoma nýrrar skoðanakönnunar Gallups er slæm fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sem mælist rétt yfir kjörfylginu 2003. Mál Árna Johnsen hefur verið eitt aðalmálið síðustu vikur. Ekkert mál hefur verið erfiðara fyrir flokkinn á þessu tímabili. Árangur Árna Johnsen í prófkjörinu í Suðurkjördæmi þann 11. nóvember sl. var eitt en ummæli hans um tæknileg mistök nokkrum dögum síðar er annað og mun verra. Ég hef margoft sagt skoðanir mínar á því máli hér á vefnum.

Það leikur enginn vafi á því að ergja er meðal flokksmanna um þessi ummæli Árna Johnsen og þau komu af stað reiðiöldu innan Sjálfstæðisflokksins. Ég get sagt það bara hreint út sagt fyrir sjálfan mig að ég get ekki hugsað mér að leggja mikið að mörkum fyrir Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningabaráttu verði Árni þar í framboði, úr því sem komið er. Allt tal um að veita Árna annað tækifæri er fjarstæðukennt að mínu mati. Síðbúin afsökunarbeiðni hans kom það seint að hún var varla metin trúverðug. Það hafði aldrei áður komið nein alvöru iðrun frá Árna á lögbrotum hans.

Ég finn það alveg á fólki sem ég þekki og flokksmönnum sem ég hef samskipti við að fólk telur Sjálfstæðisflokkinn varla á vetur setjandi með Árna Johnsen sem alvöru þingframbjóðanda. Úrsagnir úr flokknum hafa sagt sína sögu og ályktanir SUS og LS voru mjög afgerandi. Þetta fall Sjálfstæðisflokksins túlka ég varla nema sem fall vegna þessa máls. Ég veit ekki um neitt mál sem hefur orðið erfiðara fyrir flokkinn og umræðan um allt land vegna Árna er öllum ljós sem með fylgjast. Það treystir sér enginn sjálfstæðismaður, nema kannski frá Eyjum, orðið til að verja Árna. Ég sé mér allavega ekki fært að gera það eftir þetta dæmalausa klúður hans í orðavali. Það er mjög einfalt mál.

Það er ekki hægt að meta þessa skoðanakönnun nema líta á mikla umræðu um mál Árna. Fall Sjálfstæðisflokksins milli mánaða er það augljóst að menn verða að vega og meta stöðuna út frá fylgismissinum sem þarna blasir við. Samhengið finnst mér vera augljóst. Ég tel ekki að þetta fylgi sé hrein tilfærsla til Frjálslynda flokksins bara vegna innflytjendaumræðunnar. Ég hef rætt við fjölda fólks um málefni Árna Johnsen og ég heyri alltaf það sama, hvort sem er í hópi flokksmanna eða í hópi fjölskyldu og vina að staðan er metin nær allsstaðar eins. Sjálfstæðisflokkurinn veikist með því að hafa Árna í alvöru sæti. Það er ekki furða að menn innan flokksins séu hugsi yfir stöðunni.

Ég sagði hér fyrir viku að ég gæti ekki séð mér fært að verja að Árni tæki sæti á lista Sjálfstæðisflokksins og færi á þing í nafni hans eftir það sem gerðist eftir sjálft prófkjörið. Ég var svosem aldrei yfir mig sæll með endurkomu Árna, en hann fékk þó annað tækifæri til að byggja sig upp. Árni mélaði það sjálfur. Talað er um mögulegar breytingar á framboðslista flokksins í Suðrinu á kjördæmisþingi. Ekki kemur það mér á óvart í ljósi alls sem gerst hefur.

Ég ítreka þá skoðun mína að forysta Sjálfstæðisflokksins verður að grípa til sinna ráða verði ekki brugðist við á kjördæmisþingi við þessum málum eða Árni finni það hjá sjálfum sér að framboð hans veiki Sjálfstæðisflokkinn á landsvísu. Við verðum að hugsa um hag flokksins í þessum efnum. Það blasir við öllum að það mun aðeins veikja Sjálfstæðisflokkinn fari Árni ofarlega á lista úr þessu.

mbl.is Fylgi Frjálslynda flokksins eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband