Brostinn jólaandi skemmdarvarga fyrir austan

Skemmt jólatré Jólin eiga að vera stund kærleika og gleði. Vonandi hafa allir sem vefinn lesa notið yndislegrar hátíðarstundar þessa helgu daga. Það er frekar ömurlegt að heyra fréttir af því að skemmdarvargar hafi sagað niður jólatré austur á Reyðarfirði og það á þessum heilögu dögum. Þar virðist skemmdarfýsnin ein hafa ráðið ríkjum.

Það er fátt orðið heilagt þegar að farið er að skemma jólaskraut með þessum hætti; skemma það sem lýsir upp skammdegið og er tákn heilagrar jólastundar. Það er ekki viðeigandi að hugsa illt til eins né neins svosem á þessum dögum. Á þeim dögum þegar að ekki á að hugsa illt til neins einstaklings og fólk á að virða helgi hátíðarstundar er samt ekki hægt annað en verða reiður yfir svona fréttum.

Það er vonandi að lögreglan finni skemmdarvargana sem söguðu tréð niður. Það er ekki eðlilegt að eyðileggja jólatré með þessum hætti og vonandi að brostinn jólaandi skemmdarvarganna fyrir austan sé frekar einstakt dæmi, þó vissulega hafi verið fréttir um að maður einn hafi skorið í dekk lögreglunnar á Suðurnesjum.

Annars óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og vona að þið njótið hátíðarstundarinnar. Á þessum dögum nenni ég ekki að spá í pólitík svo að það er jólafríi í þeim pælingum. Á þessum dögum á helgi hátíðarinnar og kærleiksstundir með vinum og ættingjum, auk bókalesturs, að skipta eitt máli, auk góðs matar að sjálfsögðu.




mbl.is Skemmdarvargar á Reyðarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hátíðleg jólastund

JólatréJólin hafa verið stund hátíðleika og helgi í huga mér, eins og eflaust allra þeirra sem vefinn lesa. Veðrið hér hefur verið heilt yfir mjög gott, en það bætti allhressilega í jólasnjóinn seinnipartinn í dag og verður því ekki hægt að kvarta yfir snjóleysi þessi jólin. Sem betur fer. Það er mikilvægt að slappa vel af á jólunum og njóta lífsins, eins og frekast er unnt. Hefur það sannarlega verið í heiðri haft á þessum jólum, en ég reyni að forðast tölvuna á þessum dögum.

Heilt yfir hafa þetta verið mjög hefðbundin jól hjá mér. Aðfangadagskvöldið mitt var mjög líkt þeim hinum fyrri. Eftir góðan mat, jólakorta- og pakkastund, var farið í miðnæturmessu, sem var notalegur endir á heilögum degi venju samkvæmt. Í dag hefur bókalestur og jólaboð verið í aðalhlutverki. Er að lesa ævisögu Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi. Hef alltaf verið heillaður af ljóðum Davíðs og það er sannarlega áhugavert að lesa bók um ævi skáldsins. Sogaðist gjörsamlega að þessari bók eftir miðnættið í gærkvöldi og kláraði þá þegar nokkra kafla og hélt svo áfram með hana í dag og er að fara að lesa aftur á eftir smá.

Davíð Stefánsson var litríkur karakter og honum er heiðarlega og vel lýst í þessari bók, allavega það sem af er lestrinum hið minnsta. Þetta var svona sú bók um jólin sem heillaði mig mest og hún veldur ekki vonbrigðum. Enda er varla hægt að gera leiðinlega ævisögu um mann af kalíberi Davíðs Stefánssonar. Næst stendur til að lesa bókina um Halldór Laxness eftir Ólaf Ragnarsson; þar sem Ólafur gerir skil síðustu samtölum sínum við skáldið og síðustu æviárum hans. Ólafur á mikið hrós fyrir að hafa klárað bókina, en hann er mikið veikur og berst við illvígan sjúkdóm. Það verður sérstaklega áhugavert að lesa þessa bók og að ég tali ekki um viðtalsbók Péturs Blöndals við skáld.

Ekki er hægt að kvarta yfir matarleysi á degi sem þessum. Í jólaboðunum sem ég var í, í dag svignuðu borð undan góðum krásum, hangikjöti og meðlæti, auk veisluborðs með brauði. Þar var notalegt spjall og hátíðarstund. Allt eins og best verður á kosið. Heilt yfir eru þetta notalegir dagar. Lífið verður eiginlega aldrei skemmtilegra en á hátíð ljóss og friðar, þar sem skammdegið er lýst upp af sælu og gleði.

En semsagt, yndisleg og góð jól - hátíð í bæ. Vona að þið hafið það öll sem best á þessum hátíðlega tíma.

Gleðileg jól!




Jólakveðja

Jólakveðja

Ég færi lesendum vefsins, og vinum nær og fjær, innilegar óskir mínar um gleðilega og kærleiksríka jólahátíð. Hafið það öll sem best yfir hátíðirnar.

jólakveðjur frá Akureyri
Stefán Friðrik Stefánsson










Yndislegur aðfangadagur

Jólakúlur Þetta hefur verið yndislegur aðfangadagur, rólegt og notalegt andrúmsloft eins og á að vera. Tók daginn snemma í morgun og notaði morguninn til þess að fara um bæinn með jólagjafir til nánustu ættingja og eiga þar yndislegar stundir. Hér hefur verið gott veður í dag, það kom snjór seint og um síðir, sem var svo innilega kærkomið.

Nú eftir hádegið fór ég upp í kirkjugarð. Þar hvíla vinir og ættingjar sem ég met mikils. Það er við hæfi að minnast þeirra á þessum degi. Það var notalegt og gott veður þegar að ég fór þangað með friðarljós og átti þar notalega stund í góðri ró og sannkallaðri kyrrð, hinni einu sönnu kyrrð sem á við á þessum heilagasta degi ársins.

Það hefur alla tíð verið rík hefð hjá mér og mínum fyrir því að fara upp í garð og að leiðum þeirra sem maður metur mikils. Þetta tel ég grunnatriði á þessum degi að sinna. Ég get ekki haldið gleðileg jól, nema að hafa sinnt þessu. Einfalt mál í sjálfu sér. Eftir þessa notalegu stund var gott að fá sér heitt kakó og smákökur. Nú tekur svo heilagasta stund ársins við.

Gleði í sálinni fæst með svo mörgu, mest að ég tel með að gefa af sér, bæði kærleika og góðan hug til annarra. Kærleikur er ekki mældur í peningum, hann er ómetanlegur. Fólk nær aldrei árangri í lífi sínu nema með því að hugsa um aðra á mikilvægum stundum, gefa af sér einhvern hluta af góðu hjartalagi í það minnsta.

Ég hef oft farið eftir þessu og það á best við á jólunum, á heilögustu stund ársins.

Hvít jól á Akureyri

Jólabjalla Það verða hvít jól hér á Akureyri. Það var mjög notalegt þegar að snjóaði örlítið hérna í gærkvöldi og það bætti örlítið í, í nótt. Í fyrra voru rauð jól, þau verða alltaf svipminni, enda birtir snjórinn upp og verður svona eins og rúsínan í pylsuendanum til að færa manni sanna jólastemmningu. Þetta er toppurinn á öllu sem til er, svona sérstaklega á aðfangadegi.

Uppáhaldsjólalagið mitt er lagið um hvítu jólin eftir Irving Berlin. Þetta er fallegasta jólalagið, utan hátíðalaganna; Ó helga nótt, Heims um ból og Nóttin var svo ágæt ein. Það syngur enginn Hvít jól eins fallega og söngvarinn Bing Crosby, sem söng það fyrst í kvikmyndinni Holiday Inn árið 1942 og gerði það heimsfrægt. Enn í dag er það vinsælasta lag sögunnar, mest selda lagið. Eina lagið sem hefur komist nærri því er Candle in the Wind - 1997-útgáfan til minningar um Díönu prinsessu.

Hlustum á Bing syngja eitt sitt frægasta og goðsagnakenndasta lag, þarna með snillingnum Frank Sinatra; tveir af eftirminnilegustu söngvurum 20. aldarinnar.




Notalegir dagar í aðdraganda jólanna

JólabjöllurÞað líður að jólum - aðeins sólarhringur í hátíð ljóss og friðar. Þetta hafa verið notalegir dagar um helgina. Passa mig á því að vera sem allra minnst við tölvu, enda eiga þetta að vera dagar þar sem farið er um, hitt fólk og notið jólastemmningar í verslunum, þó án stressins alræmda sem æði oft verður fylgifiskur þorláksmessu rétt eins og hin illa lyktandi skata. Seint í gærkvöldi, eftir afmælisveisluna, fór ég að klára það fáa sem eftir var. Fyrst og fremst vildi ég bara fara um og spjalla við vini í verslunarhugleiðingum.

Hitti fjölda fólks á Glerártorgi. Þar er straumurinn þessi jól, sem þau hin fyrri. Rakst á marga pólitíska félaga. Þó að jólahátíðin sé handan við hornið er ekki hægt annað en að tala örlítið um pólitíkina, enda margt um að vera. Skemmtilegt spjall við fjölda fólks, flestir hægra megin við miðju en sumir allverulega til vinstri. Ekkert nema gaman af því bara. Þó að pólitíkin ætti að vera komin í notalegt jólafrí slæðist hún með sem umræðuefni þegar að talað er um þjóðmálin, sem eðlilegt er. En fókusinn á auðvitað að vera á annað.

Eftir röltið á Glerártorgi fékk ég mér góðan labbitúr um miðbæinn, hitti góða vini og naut þess í rólegheitum að fara um og spjalla við ýmsa sem maður þekkir þar, sérstaklega í Pennanum. Það koma ekki jól í huga mér fyrr en eftir skemmtilegt miðbæjarrölt síðustu kvöldin fyrir jólin, hitta fólk, fara á kaffihús, fá sér heitt kakó og kynna sér miðbæjarbraginn. Mér finnst hafa lifnað aðeins yfir miðbænum. Verslun Pennans er stórglæsileg eftir breytingarnar og það er engu líkt að fara þar inn og þefa af nýjum bókum og skoða þær.

Í hádeginu fékk ég mér skötu á veitingahúsi í bænum. Verð seint talinn mikill áhugamaður um skötu og illa lyktandi mat, en þetta er ágætt sport einu sinni á ári svosem. Ágætt rétt fyrir allar stórsteikurnar sem eru í aðsigi og svo maður tali nú ekki um gamla góða hangikjötið með uppstúf og laufabrauði. Nammi namm!

Í dag hefur það verið hið hefðbundna; utan skötunnar í hádeginu var kaffihúsaspjall með góðum vinum núna eftir hádegið yfir beyglu og rjúkandi heitu kakó, auk malts og konfekts. Notalegt og gott. Svo hefur það verið auðvitað að fara aðeins um bæinn, finna stemmninguna og hlusta á jólakveðjurnar hjá RÚV. Ekta þorláksmessa!

Er ekki fjarri því að jóladiskurinn hans Ragga Bjarna hafi endanlega komið mér í jólaskapið í morgun. Mikið innilega er það notalegur og góður diskur; hugljúfur og traustur. Raggi er auðvitað þjóðargersemi og hann er í essinu sínu með glæný jólalög frá meistara Gunna Þórðar. Yndislegt efni. Nokkur lög eru í spilaranum.


Kærar þakkir!

Ég vil þakka kærlega öllum þeim sem færðu mér hlýjar kveðjur, góðar gjafir og hugheilar heillaóskir á þrítugsafmæli mínu í gær, laugardaginn 22. desember!

Afmælisdagurinn var í senn mjög notalegur og rólegur. Það er orðið mjög langt síðan að ég sætti mig við að eiga afmæli örfáum klukkstundum fyrir jólahátíðina, í miðri lokahrinu jólastressins, en það hefur vanist vel með árunum.

Það var notalegt að finna fyrir hlýjum kveðjum og því að svo margir skyldu muna eftir deginum. Kærar þakkir!

Yndislegar jólamyndir

Um jólin er svo sannarlega viðeigandi að horfa á góðar úrvalsmyndir og sérstaklega við hæfi að horfa á góðar myndir sem fjalla um boðskap jólanna og eða bara létta og kæta hugarþelið. Nokkrar þeirra standa upp úr í mínum huga og hafa alla tíð gert. Fjalla ég um þær nú.



It´s a Wonderful LifeKvikmynd Frank Capra, It's a Wonderful Life er ein þekktasta fjölskyldumynd 20. aldarinnar, gleðigjafi fyrir alla heimsbyggðina allt frá frumsýningardegi. Sextug eðalmynd sem kemur manni ávallt í sannkallað jólaskap. Hér segir frá George Bailey sem eyðir ævi sinni í að fórna lífsdraumum sínum til að vinna í haginn fyrir bæinn sinn, Bedford Falls, og að lokum sér tækifæri sín renna í súginn. Myndin gerist á aðfangadag og horfir hann yfir ævi sína, komið er að tímamótum, hann er niðurbrotinn maður og til alls líklegur þegar jólahátíðin gengur í garð.

Hann er orðinn þreyttur á því hvaða stefnu líf hans hefur tekið og gæti gripið til örþrifaráða. Til bjargar kemur verndarengill hans, Clarence, til að reyna að sýna honum fram að án hans hefði bærinn aldrei verið samur og að hann á marga að, fjölskyldu og fjölda vina. Hann sýnir honum lífið eins og það hefði verið ef hann hefði aldrei komið til og vonast til að með því verði hægt að snúa hlutunum við. James Stewart á stórleik í hlutverki George, að mínu mati er þetta ein af allra bestu leikframmistöðum hans á glæsilegum ferli. Ennfremur fara Donna Reed, Lionel Barrymore, Thomas Mitchell, Beulah Bondi, Henry Travers og Ward Bond á kostum.

Myndin var tilnefnd til fimm óskarsverðlauna, þ.á m. sem mynd ársins, fyrir leikstjórn og leik Stewart. Ómótstæðilegt meistaraverk, sem á jafnt við árið 2007 og 1946; fyrir sex áratugum, er hún var frumsýnd. Sígildur boðskapurinn á alltaf við. Fastur partur á jólunum - ómissandi þáttur heilagra jóla að mínu mati.



Miracle on 34th StreetEin besta jólamynd allra tíma er hin sígilda kvikmynd George Seaton, Miracle on 34th Street. Segir frá því er gamall maður að nafni Kris Kringle, fer að vinna sem jólasveinn í stórmarkaði. Segist hann vera hinn eini sanni jólasveinn. Er hann þarmeð talinn galinn og hann verður að sanna hver hann er fyrir dómstólum. Einstaklega hugljúf mynd sem skartar Edmund Gwenn, Natalie Wood (rullan sem gerði hana að yndi heillar kynslóðar), Maureen O'Hara og Thelmu Ritter (í hlutverki mömmunnar sem gerði hana að stórstjörnu kómíkersins) í aðalhlutverkum.

Gwenn hlaut óskarinn 1947 fyrir magnaðan leik sinn í hlutverki hins hugljúfa manns - þetta var hlutverk ferils hans, eftirminnilegasta stund hans á hvíta tjaldinu. Og hann er yndislegur í rullunni. Þessi kemur alltaf í gott jólaskap, skylduáhorf að mínu mati á jólum. Myndin var endurgerð árið 1994. Þar voru Sir Richard Attenborough, Mara Wilson, Dylan McDermott og Elizabeth Perkins í aðalhlutverkum. Tókst vel upp, en stenst hinni eldri ekki snúning. Hún er alveg einstök.



Love ActuallyEin af bestu jólamyndum seinni tíma er hin óviðjafnanlega breska gamanmynd Love Actually. Hún hefur verið mér mjög kær allt frá því að ég sá hana fyrst í bíói fyrir fjórum árum, rétt fyrir jól. Þetta er í senn bæði ljúf og sykursæt mynd. Í aðalhlutverki eru Hugh Grant, Liam Neeson, Emma Thompson, Alan Rickman, Keira Knightley og Rowan Atkinson. Semsagt topplið breskra leikara. Þessi góða ástarsaga fjallar um átta mjög ólík pör í London rétt fyrir jól, sem glíma við ýmis vandamál í ástarlífinu.

Ástin er þemað í myndinni. Saga þessa ólíka fólks spinnst mjög skemmtilega saman í lok hennar. Mögnuð mynd sem ég mæli eindregið með. Er algjörlega fullkomin. Punkurinn yfir i-ið er flottur flutningur Billy Mack (í glæsilegri túlkun Bill Nighy) á laginu Christmas is all around (áður Love is all around með Wet, Wet, Wet). Þessi er alveg ómissandi yfir jólin seinni árin - verður svo væntanlega um ókomin ár!





Home AloneJólin verða ekki fullkomnuð fyrr en horft hefur verið á hinar ómótstæðilegu Home Alone I og II. Frábærar jólamyndir. Kevin McAllister er fyrir hin mestu mistök skilinn eftir einn heima á meðan að fjölskyldan er á leið í jólaleyfi til Parísar. Á meðan reyna tveir misheppnaðir þjófar sig að gera sig heimakomna heima hjá Kevin og stela þar öllu steini léttara. Kevin grípur til varna og reynir allt sem hann getur til að bjarga heimili sínu frá þjófunum. Sprenghlægileg og flott. Myndin sem gerði Macaulay Culkin að stjörnu. Joe Pesci og Daniel Stern eiga stórleik sem þjófarnir.



Í Home Alone 2 gerist hið sama að fjölskyldan gleymir Kevin, en í þetta skiptið verður hún viðskila við hann í flugstöðinni þar sem þau eru á leið til Flórída í jólaleyfi. Kevin tekur vitlausa vél og endar í New York, borg háhýsanna. Hann tékkar sig þar inn á Plaza, með öllum þeim mögnuðu tækifærum sem því fylgir. Á leið um borgina hittir hann þjófana sem reyndu allt sem þeir gátu til að ræna heimilið hans, en þeir eru þá sloppnir úr fangelsi. Þeir eiga harma að hefna gegn Kevin, sem ver sig með kjafti og klóm. Frábær kvikmynd. Culkin, Pesci og Stern í toppformi en senuþjófurinn er óskarsverðlaunaleikkonan Brenda Fricker í hlutverki hinnar kærleiksríku dúfnakonu. Báðar ómissandi um jólin.



National Lampoon´s Christmas VacationFastur hluti jólanna er svo auðvitað að sjá National Lampoon´s Christmas Vacation. Chevy Chase leikur fullkomnunarsinnann Clark Griswold enn eina ferðina. Að þessu sinni ætlar hann að gera fullkomnustu jól fjölskyldunnar fyrr og síðar að veruleika. Hann telur sig eiga von á hnausþykkum jólabónus sem kengur er í og leggur allt sitt í að skreyta húsið og gera allt sem best er nokkur möguleiki er að tryggja. Allt fer hinsvegar úrskeiðis sem getur mögulega gert það. Hápunkti nær það þegar að bróðir Clarks mætir með fjölskylduna og þá fyrst fer sælan að fara í vaskinn.

Þessi mynd er pottþétt. Gott dæmi um að plana ekki of mikið jólin að hætti fullkomnunar, heldur njóta þess sem maður á og gera gott úr lífinu. En þessi verður aldrei léleg. Sérstaklega fannst mér hún frábær þegar að ég dró hana fram nú skömmu eftir helgina. Fór endanlega í ekta gott jólaskap. Það ættu allir að geta hlegið frá sér allt vit og forpokaða skammdegisfýlu yfir þessari mögnuðu mynd.



Fleiri myndir mætti nefna t.d. Meet me in St. Louis (þar sem Judy Garland söng allra fyrst hið ódauðlega Have Yourself a Merry Little Christmas), Elf, Die Hard I og II (sem báðar gerast á jólahátíð), Bad Santa, Scrooge, A Christmas Story, How the Grinch Stole Christmas (1966-útgáfan), A Charlie Brown Christmas, A Christmas Carol, The Santa Clause, Frosty the Snowman, Surviving Christmas, The Shop Around the Corner (jamm vissulega ekki jólamynd en jólaandinn í lok myndarinnar er óviðjafnanlegur), The Ref, White Christmas, The Nightmare Before Christmas og Family Man.

Ef þið eigið uppáhaldsjólamynd, endilega kommenta þá hér með þær. Annars eigið þið öll vonandi góð bíójól og horfið á góðar myndir um jólin heima og í kvikmyndahúsum. Það er nóg af góðum myndum um jólin í bíó og í sjónvarpi. Sá t.d. að Stöð 2 ætlar að sýna Miracle on 34th Street og The Sound of Music um jólin.


Rán á þjóðvegasjoppu númer eitt

Litla kaffistofanÞað er svolítið kuldalegt að heyra af ráni í þjóðvegasjoppu númer eitt, Litlu kaffistofunni, um tveim sólarhringum fyrir jól. Það er mest um vert að þjófarnir náðust og ránsfengurinn ennfremur. Það sem mér fannst áhugaverðast við þetta rán var að ránspar, ekki ósvipað Bonnie og Clyde hinum goðsagnakenndu, voru þar á ferð.

Þetta er óskemmtileg lífsreynsla auðvitað. Grimmdin er mikil. Skil ekki eðlið í því fólki sem ræðst með hnífum og hafnaboltakylfu að öðrum svo skömmu fyrir jól. Það hlýtur að vera mikil eymd og vonleysi fólgið í lífi þess fólks allavega.

mbl.is Rán á Litlu kaffistofunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólafrímerki Hugrúnar frænku

Jólafrímerki Hugrúnar Ívarsdóttur Fyrir þessi jól prýðir laufabrauðshönnun Hugrúnar Ívarsdóttur, frænku minnar, jólafrímerki Íslandspósts. Það er stórskemmtilegt hvernig að Hugrún hefur notað laufabrauðshefð okkar Norðlendinga, og flestra Íslendinga reyndar í seinni tíð, í handverk og komið að stað línu skemmtilegra hluta með laufabrauðsívafi. Það að Pósturinn fái hana til að móta frímerkið segir margt um hversu vel heppnað þetta er.

Hugrún hefur varla haft undan síðustu vikur við að vinna ýmsa hluti tengda laufabrauðunum og þetta hefur sannarlega slegið í gegn. Laufabrauðshefðin er skemmtileg og hér um slóðir keppast heilu fjölskyldurnar við að koma saman og allir eru með sitt munstur og gera vissa keppni úr því að vera með fallegustu laufabrauðin. Það er alltaf gaman að skera í brauðin og víst er að jólin væru sviplausari án þessarar hefðar.

Einn helsti kostur frímerkisins er að það er sjálflímandi að þessu sinni og því þarf ekki að líma sjálfur frímerkin á eins og áður. Það er mikill lúxus með það.

Ómaklegar árásir að Þorsteini Davíðssyni

Þorsteinn Davíðsson Um fátt hefur verið rætt meira í dag en skipan Þorsteins Davíðssonar sem héraðsdómara hér á Akureyri. Mér hefur fundist verst í þeirri umræðu að sjá ómaklegar árásir að Þorsteini sjálfum. Hann sótti einfaldlega um lausa stöðu og fékk. Það hefur eflaust verið þungur kross að bera að vera sonur Davíðs Oddssonar og þurfa að klífa framastiga í lífinu. Enda sýnist mér margir dæma Þorstein einfaldlega eftir því að hann sé sonur Davíðs.

Meðal þess sem gripið var til að vega að Þorsteini í umfjöllun fjölmiðla var að Pétur Kr. Hafstein, fyrrum forseti Hæstaréttar, hefði leitt matsnefnd um hæfi umsækjenda, en eins og flestir vita var Þorsteinn starfsmaður hjá Pétri í forsetakosningunum sumarið 1996. Sá punktur hefði kannski verið skiljanlegur hefði Pétur beitt sér fyrir Þorsteini í nefndinni eða hún komist að þeirri niðurstöðu að Þorsteinn væri hæfasti umsækjandinn. Varð ég ekki var við annað en að undir kvöld væri Pétur Hafstein aðspurður að lýsa yfir undrun á niðurstöðunni með þeim orðum að ekkert fordæmi fyrir því að gengið væri á svig við niðurstöðu nefndarinnar.

Það er ráðherra sem skipar dómara við héraðsdóma um allt land og Hæstarétt. Hann er í engu bundinn af niðurstöðu matsnefndar eða sitjandi dómara við Hæstarétt, sem fella dóm um hæfi umsækjenda. Persónulega hefur mér alltaf fundist óeðlilegt að sitjandi dómarar við Hæstarétt felli úrskurð þar um og hef talið matsnefndina hæfari til þess. Þætti mér eðlilegast að hún úrskurðaði einfaldlega um tvennt; hvort umsækjandinn sé hæfur eða óhæfur til verksins. Það á í raun ekkert annað að skipta máli. Í þessum efnum getur hæfnisröð myndast og það hefur valdið ólgu áður, oftast nær í Hæstarétti.

Ég hef fulla trú á því að Þorsteinn Davíðsson verði góður dómari hér við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Hann verður dæmdur af verkum sínum eins og aðrir er yfir lýkur. Verst er að hann skuli dæmdur af því einu að vera sonur umdeilds stjórnmálamanns; Davíðs Oddssonar, fyrrum forsætisráðherra og borgarstjóra.

mbl.is Gagnrýna skipun í dómaraembætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandræðalegur málflutningur femínista

Það er full þörf á því að tala gegn þeim boðskap femínista að blanda saman jólum og nauðgunum. Breytir þar engu þó að karlkyns femínistar standi að eða það sé ekki jólakort sem um ræðir. Boðskapurinn er sá sami þrátt fyrir það. Vekur reyndar mikla athygli að Gísli Hrafn Atlason, formaður karlahóps femínista, getur ekki réttlætt þennan jólaboðskap sinn og hvernig standi á því að Askasleikir, af öllum aðilum, sé með þennan boðskap uppi, sem tengir jólin og nauðganir saman með óyggjandi hætti.

Allt er þetta þó varið með að þetta hafi ekki verið jólakort heldur bara jólaósk. Sei sei, segi ég bara. Hver er eiginlega munurinn? Er ekki boðskapur femínista sá sami hvert sem formið á þessu er? Hefði nú haldið það. Svo að þessi svokallaða vörn er frekar vandræðaleg. Ekki virðist Gísli Hrafn koma fram með neitt útspil til að tala fyrir þessari svokölluðu jólaósk og hvernig standi á að þetta sé yfir höfuð sett fram.

Flestir sem hér hafa kommentað hafa verið sammála skoðun minni. Sumir virðast tala gegn því á þeim forsendum að þetta hafi nú ekki verið jólakort og það séu ekki kvenkyns femínistar sem standi að. Það breytir ekki því að þetta var sett fram fyrir hönd femínista. Femínistar eru ekki bara konur, eins og allir vita. Þessi boðskapur er fyrir neðan allt hjá femínistum og eðlilegt að tala gegn því.

Reyndar vakti athygli mína síðdegis að Sóley Tómasdóttir sagðist í kommenti hér á vefnum bara hafa birt myndina og gert hið sama og ég. Þetta er hlægilegur útúrsnúningur. Hún hefur birt alla seríuna á vef sínum. Með því og að segja ekkert meira en það sem myndin segir er hún auðvitað að taka undir boðskapinn. Það sér allt heilvita fólk.

Annars er þessi flótti hennar skiljanlegur, enda er þessi myndasería vægast sagt umdeild og gerir ekkert nema grafa undan femínistum og málstað þeirra.


mbl.is Ekki um jólakort að ræða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umdeildur boðskapur - lágkúra femínista

Jólakort femínistaÞað er eðlilegt að ólga sé vegna jólaboðskaps femínista, þar sem jólum og nauðgunum er blandað saman í vondan kokteil. Viðbrögð flestra hafa verið á einn veg; að undrast þessa framsetningu og boðskapinn sem í honum felst. Skrifaði um þetta mál hér í gær og fann þá vel hver skoðun fólks er; flestir fordæma það sem í þessum boðskap felst. Sem eðlilegt er.

Það er gott hjá félagi ábyrgra feðra hér á Akureyri að senda Jafnréttisstofu kvörtun vegna jólaboðskapar femínista. Það er eðlilegt að fara þá leið, enda held ég að flestum blöskri það sem kynnt er þar og líka með hvaða hætti; enda virðist boðskapurinn settur fram sem verk smábarns og því eðlilegt að líta svo á að því sé beint að þeim hópi.

Femínistar hafa oft stuðað í opinberri umræðu en ég held að þessi lágkúrulegi boðskapur sé alveg nýr botn af þeirra hálfu.


mbl.is Ósáttir við jólakort femínista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhugnaður í Danmörku

Það er skelfilegt að lesa fréttir af því að aldraðri konu hafi verið nauðgað í Danmörku. Held að grimmdin verði varla meiri. Er virðingarleysið orðið algjört? Því miður er ekki hægt annað en hugsa á þeim forsendum. Hvers vegna ætti yngra fólk að ráðast að tilefnislausu að ráðast á gamalt fólk nema vegna þess að eitthvað sé stórlega að. Þetta er grimmd og mannvonska af verstu sort. Það þarf svosem ekkert að rökstyðja það frekar. Svona fréttir eru napur vitnisburður um nútímasamfélagið.

mbl.is Aldraðri konu nauðgað í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegur dómur

Magnús Ragnarsson Magnús Ragnarsson vann nokkuð merkilegan sigur í máli sínu gegn 365-miðlum í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þar er dæmt gegn óstaðfestri umfjöllun um einkalíf landsþekktra persóna og friðhelgi einkalífsins greinilega varin. Það hlýtur að teljast líklegt að málið fari fyrir Hæstarétt, enda varla við því að búast að 365 sætti sig við þessi málalok.

Samt sem áður er óhætt að segja að þetta sé mikill ósigur þeirra fjölmiðla sem fella dóma um einkalíf fólks og slá upp í forsíðufregnir. Fullyrðingar um að Magnús sé geðsjúklingur og að einkalíf hans sé í uppnámi voru enda dæmd dauð og ómerk. DV hefur tapað fleiri svona málum síðustu misserin og fræg var niðurstaðan í máli Bubba Morthens gegn DV og Hér og nú á sínum tíma, þar sem hann vann fullnaðarsigur.

Í máli Bubba kom reyndar fram sá tímamótaúrskurður að myndataka af manni í bifreið sinni væri með öllu óheimil á sama hátt og um væri að ræða myndatöku að heimili hans. Ráðist væri að friðhelgi einkalífs hans með slíku. Þetta er ekki síður áhugaverður dómur sem rammar umfjöllun þessara blaða vissulega öðruvísi inn en áður hefur verið talið eðlilegt.

Það er gott að það liggi fyrir dómar sem taka vonandi á "blaðamennsku" af þessu tagi sem hlýtur að teljast lágkúruleg í sjálfu sér.

mbl.is Fær 1,5 milljónir í bætur fyrir meiðyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorsteinn Davíðsson til Akureyrar

Það eru gleðifregnir að Þorsteinn Davíðsson, sonur Davíðs Oddssonar, seðlabankastjóra og fyrrum forsætisráðherra, hafi verið skipaður héraðsdómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra hér á Akureyri. Það verður mikill fengur fyrir okkur að fá Þorstein norður yfir heiðar. Þorstein hef ég þekkt í fjölda ára, kynntumst fyrst sumarið 1996 þegar að hann var að vinna við forsetaframboð Péturs Kr. Hafstein, en ég lagði því lið hér á Akureyri, og við vorum auðvitað báðir mjög virkir í ungliðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins um nokkurt skeið.

Hefði ekki trúað því fyrir nokkrum árum að Þorsteinn ætti eftir að flytjast norður en hann er sannarlega boðinn velkominn í fjörðinn fagra. Óska Þorsteini til hamingju með embættið.

mbl.is Þorsteinn Davíðsson skipaður héraðsdómari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Róttækir femínistar fara yfir strikið

Kort femínista

Mér finnst jólakort róttækra femínista þar sem þær blanda saman jólunum og nauðgunum í lágkúrulegan kokteil fara algjörlega yfir strikið. Ég get ekki séð hvernig að nokkur heilvita einstaklingur geti sett þetta tvennt í samhengi og boðið fólki upp á sem boðskap. Hvernig er hægt að tengja þetta tvennt saman? Þar sem þetta er sett fram með skrift og teikningu sem gæti verið eftir smábarn er eðlilegt að spyrja um hvort þessum boðskap sé sérstaklega beint að börnum? Er þetta virkilega ætlað börnum á aðventunni?

Mér finnst þetta einstaklega ósmekklegt - ég sé ekki samhengið með þessu og skil ekki boðskapinn. Halda femínistar kannski að þetta sé boðskapur sem skipti máli fyrir jólin? Eru jólin ekki gleðihátíð fólks, hvar koma nauðganir inn í þá mynd? Ég bara spyr. Svo finnst mér mjög ósmekklegt að talað er um karla almennt er varða nauðganir. Þetta er boðskapur sem hlýtur að vekja spurningar. Það að forystukona í stjórnmálaflokki bendi á þessa mynd sérstaklega vekur líka spurningar.

Ég vil beina því til Sóleyjar Tómasdóttur að vinsamlega bera virðingu fyrir jólunum og ekki draga hátíð ljóss og friðar á þetta lága plan.


Smekkleysi í Efstaleitinu

Útvarpshúsið Mér finnst það algjört smekkleysi að troða auglýsingu inn í mitt áramótaskaupið. Var að vona að það yrði ekkert af þessu en eftir að það varð ljóst má heita svo að ég hafi blótað Ríkisútvarpinu í öðru hverju orði og það þó aðeins séu um hundrað klukkutímar til jóla. Á hverju eigum við eiginlega næst von? Að aftansöngur jóla á aðfangadagskvöld verði í boði Glitnis og biskupinn lofsyngi auðvaldið?

Þessi auglýsingafílingur hjá RÚV er farinn út í algjört rugl. Hef svosem getað sætt mig við að Útsvar og fleiri þættir séu klipptir í tvennt eða þrennt með auglýsingahléum en mér finnst það að klippa áramótaskaupið, helgustu stund flestra sjónvarpsáhorfenda, jaðra eiginlega við helgispjöll. Held að þetta verði ekki vinsælt hjá sjónvarpsáhorfendum og Remax sé ekki heldur að skora nein mörk með þessu.

Það er kominn tími til að einkavæða Ríkisútvarpið. Með svona markaðsheila innanborðs ættu þeir að geta spjarað sig án forgjafar frá ríkinu.

Inn og út af fundi á fullum launum

Borgarstjórn Það virðist vera dýrt spaug að fylgjast með borgarstjórn Reykjavíkur ef marka má fréttina um innáskiptingar á fundum þar. Held að innáskiptingar á fundi þar séu Íslandsmet í sjálfu sér. Svona er þetta almennt ekki í minni sveitarfélögum þar sem kjörnir fulltrúar annaðhvort sitja fundinn eða boða forföll á hann allan.

Finnst það einmitt fyndnast að kjörnir fulltrúar eru í Reykjavík að kalla varamenn inn þó að þeir séu í húsinu og því er viðkomandi aðalfulltrúi viðstaddur. Það er kannski eðlilegt að fyrsti varamaður hvers lista sé alltaf viðstaddur en þetta er miklu víðtækara en svo að bara fyrsti varamaður sé að detta inn. Það má því í raun segja að fyrstu varamenn, jafnvel þrír til fjórir, eigi von á að fara á borgarstjórnarfundi þó að þeir komist ekki inn í kosningum.

Það væri við hæfi að birta fjarvistaskrá síðasta borgarstjórnarfundar og hvernig menn fóru þar inn og út. Þetta er hálfskondin dagbók.


14.00 Fundurinn hefst.
14.06 Gísli Marteinn Baldursson inn.
14.20 Þorleifur Gunnlaugsson inn, Sóley Tómasdóttir út.
16.10 Björk Vilhelmsdóttir út, Dofri Hermannsson inn.
16.45 Ólafur F. Magnússon út, Margrét K. Sverrisdóttir inn.
17.17 Ólafur F. Magnússon inn, Margrét K. Sverrisdóttir út. Svandís Svavarsdóttir út, Sóley Tómasdóttir inn.
18.10 Marta Guðjónsdóttir út, Kristján Guðmundsson inn.
18.25 Svandís Svavarsdóttir inn, Sóley Tómasdóttir út.
18.45 Hlé á fundi.
19.20 Fundi fram haldið. Marta Guðjónsdóttir inn, Kristján Guðmundsson út. Þorleifur Gunnlaugsson út, Hermann Valsson inn.
19.55 Gísli Marteinn Baldursson út, Björn Gíslason inn.
20.50 Þorleifur Gunnlaugsson inn, Hermann Valsson út.
21.00 Júlíus Vífill Ingvarsson út, Áslaug Friðriksdóttir inn. Björk Vilhelmsdóttir inn, Oddný Sturludóttir út.
21.20 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson út, Elínbjörg Magnúsdóttir inn. Sigrún Elsa Smáradóttir út, Stefán Benediktsson inn.
21.55 Svandís Svavarsdóttir út, Sóley Tómasdóttir inn.
22.10 Björn Ingi Hrafnsson út, Óskar Bergsson inn.
22.30 Svandís Svavarsdóttir inn, Þorleifur Gunnlaugsson út.
22.40 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson inn, Elínbjörg Magnúsdóttir út. Björk Vilhelmsdóttir út og Oddný Sturludóttir inn.
22.55 Björk Vilhelmsdóttir inn og Dofri Hermannsson út. Björn Ingi Hrafnsson inn, Óskar Bergsson út.
23.05 Gísli Marteinn Baldursson inn, Björn Gíslason út. Marta Guðjónsdóttir út, Elínbjörg Magnúsdóttir inn. Svandís Svavarsdóttir út, Þorleifur Gunnlaugsson inn.
23.20 Marta Guðjónsdóttir inn, Elínbjörg Magnúsdóttir út.
23.55 Oddný Sturludóttir út, Guðrún Erla Geirsdóttir inn.
00.17 Hlé á fundi
00.50 Fundi fram haldið. Oddný Sturludóttir inn, Guðrún Erla Geirsdóttir út. Björn Ingi Hrafnsson út, Óskar Bergsson inn. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson út, Elínbjörg Magnúsdóttir inn.
01.12 Fundi slitið.


mbl.is Inn og út af borgarstjórnarfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ránsferðir æsku landsins

Það er frekar sláandi að heyra af enn einu ráninu í Reykjavík, á frekar skömmum tíma, þar sem unglingar eru vopnaðir bareflum og reyna að næla sér í einhverja peninga. Sumir reyndu að stela Dominos-pizzum um daginn. Það er mikið á sig lagt greinilega til að komast yfir smá skotsilfur. Það er frekar nöpur staðreynd að táningar séu farnir að stunda vopnuð rán, með bandarískri fyrirmynd kvikmynda og hinna ótalmörgu ribbaldasjónvarpsþátta, til þess eins að fá pening og jafnvel eitthvað drasl úr búðum.

Veit ekki alveg á hvaða leið við erum, í sannleika sagt. Vandamálin í samfélaginu okkar eru mörg og skuggahliðarnar verða sífellt sýnilegri. Þegar að fylgst er með fréttum af ránstilraunum æsku landsins er eðlilega spurt á hvaða leið við séum. Veit ekki - erum við kannski á góðri leið með að verða eins og þrjú hundruð þúsund manna samfélag í úthverfi bandarískrar stórborgar?


mbl.is Táningsstrákar rændu verslun í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband