4.3.2008 | 14:16
Hið sannkallaða uppáhald kvikmyndanna
Hef oft verið spurður um hver uppáhaldsmyndin mín sé, hvort hún sé bandarísk eða bresk. Mörgum til undrunar segi ég jafnan að hún sé ítölsk. Cinema Paradiso hefur verið uppáhaldsmyndin mín síðan að ég sá hana fyrst fyrir tæpum tveim áratugum. Hún er einn ljúfasti og sannasti óður sem nokkru sinni hefur verið gerður til kvikmyndanna. Þar smellur allt einhvern veginn saman og úr verður kvikmynd sem rís upp úr öllu öðru. Fellini er auðvitað besti kvikmyndaleikstjóri Ítala og átti margar traustar myndir en Paradísarbíóið er einfaldlega einstök.
Vissulega hafa margar bandarískar og breskar kvikmyndir heillað mig en á öðrum nótum en Paradísarbíóið. Annars er evrópsk kvikmyndamenning mjög traust og sem betur fer erum við aðeins farin að líta út fyrir glampa Hollywood þegar að við metum myndir. Spænskar, franskar og ítalskar myndir eru enda mjög traustar, svo hefur mér alltaf þótt gaman af þýskum myndum.
Hitch, Allen, Capra, Lean, Spielberg og Wilder hafa verið þeir leikstjórar sem ég met mest frá Bandaríkjunum og Bretlandi, en snilld þeirra er annars eðlis en hin evrópska. Þetta er ágætt saman í bland vissulega. Það er vonandi að evrópsk kvikmyndamenning fari að blómstra meira hérna heima en hefur lengi verið og mér finnst viss vakning vera orðin í kvikmyndamenningu með að horfa ekki bara til Bandaríkjanna.
En ég hvet alla sem ekki hafa séð Paradísarbíóið til að sjá hana. Ein traustasta stoð myndarinnar er tónlist meistarans Ennio Morricone, sem er að mínu mati besta kvikmyndatónskáld sögunnar. Ástaróðurinn hans í myndinni, sem hljómar í efri klippunni, er að mínu mati fallegasta kvikmyndatónverk sögunnar, en aðalstef myndarinnar, á neðri klippunni, er þó ekki mikið síðra.
Morricone hefur alltaf kunnað þá list að semja tónlist sem hittir í hjartastað. Eitt fallegasta kvikmyndatónverk hans, Heaven úr Days of Heaven er í tónlistarspilaranum auk hins frábæra lags Cavallina a Cavallo sem hann samdi sérstaklega fyrir Ciccolinu, og hún söng svo eftirminnilega.
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.3.2008 | 11:08
Stjarna fædd í Idol - yndisleg útgáfa á Imagine
Lagið Imagine eftir John Lennon er eitt fallegasta lag 20. aldarinnar, tímalaus klassík sem aldrei klikkar. Í gær tókst hinum sautján ára David Archuleta að gera lagið að sínu í American Idol svo að aðdáunarvert telst. Sá þennan tónlistarflutning og hugsaði með mér að ekki þyrftu þau að leita meira að amerísku stjörnunni. Hún væri komin til sögunnar. Held að Archuleta muni fara létt með að vinna keppnina. Þvílíkur söngvari og það aðeins sautján ára.
Hlustið á Imagine með honum í þessari nýju útsetningu. Þvílíkur draumur segi ég bara. Orginalinn með Lennon er í tónlistarspilaranum hér á síðunni.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.3.2008 | 23:30
Zeta orðin of gömul fyrir ástaratlot kvikmyndanna

Velska þokkadísin Zeta varð fyrst virkileg stjarna með túlkun sinni í hinum ógleymanlegu framhaldsþáttum Maíblómunum, The Darling Buds of May, í byrjun tíunda áratugarins og eftir að leika á heimavelli um nokkuð skeið náði hún frægð og frama í Bandaríkjunum. Þokki hennar heillaði leikarann Michael Douglas undir lok tíunda áratugarins og þau tóku saman. Bæði voru þau reyndar fædd sama daginn, 25. september, en á milli voru þó heil 25 ár - Zeta fædd árið 1969 en Douglas árið 1944. Eftir að Zeta tók saman við Douglas og átti börn með honum hefur hún þó skref fyrir skref tekið upp aðrar áherslur í leik.
Það er merkilegt að Zeta skuli með þessari yfirlýsingu gefa þau skilaboð að kynæsandi hlutverk og ástaratlotin henti ekki fertugri leikkonu. Eiginmaður hennar, Michael Douglas, tók kvikmyndahlutverk með mjög miklum ástarsenum allt fram að sextugsaldrinum eiginlega. Hann var orðinn 48 ára gamall er hann lék á móti Sharon Stone í Basic Instinct, en þeirrar myndar verður einna helst minnst fyrir kynlífssenurnar umtöluðu sem þau léku saman í og hann var í heitum senum á móti Demi Moore í Disclosure árið 1994, þegar að hann varð fimmtugur. Reyndar hefur auðvitað fylgt sögunni að Douglas hafi verið hreinn kynlífsfíkill.
Michael Douglas var líka þekktur fyrir það að leika á móti sér mun yngri leikkonum er hann varð eldri og t.d. ekki mörg ár síðan að hann var að leika ástarförunaut Gwyneth Paltrow í A Perfect Murder árið 1998, er hann varð 54 ára gamall, en hún er fædd árið 1972, og því 26 ára gömul. Þá reyndar ofbauð mörgum og hann hefur verið að tóna sig niður hin seinni árin. En svo virðist sem að konan hans, þokkadísin velska, ætli sér ekki að feta í þau fótspor og leika svæsnar senur fram að sextugu eins og makinn og ætla að tóna sig þess í stað niður.
En kannski er þetta bara ein yfirlýsingin til að ná í athygli, en það hefur löngum verið þekkt að Douglas-hjónin hafa viljað mikla athygli og umtal, þó á þeim augnablikum er þau sjálf vilja. En kannski er þetta ekta og Douglas-frúin Zeta bara að fara að tóna sig niður og leika miðaldra húsmæður án tilfinninga til að markaðssetja sig sem ráðsetta húsmóður, þó ekki aðþrengd eiginkona eins og sumar leikkonur vilja túlka. Hver veit.
![]() |
Of gömul í kynlífssenur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.3.2008 | 19:43
Merkilegur sigur Smáís - áfall fyrir niðurhalarana
Niðurstaðan í DC plús málinu er stórmerkileg - fullnaðarsigur fyrir Smáís og rétthafa myndefnis og tónlistar. Eftir umdeilda lokun torrent.is var eðlilegast að dómstólar myndu skera úr um lögmæti þess sem síður á borð við það hafi verið að gera og tekið væri á þessum málum með þeim eina hætti sem fær er. Lagalegar hliðar málsins skipta einar máli og það eru þeir þættir sem þarf að koma almennilega á hreint. Það er ljóst að verði þessi dómur staðfestur í Hæstarétti er komið sterkt fordæmi í fleiri slíkum málum.
Þá fyrst verður hægt að vita almennilega hver áhrif niðurstöðunnar mun hafa. Bæði niðurhaldarar og Smáís hafa verið í vígahug. Í dag sigraði Smáís en enn er óljóst hvor trompar hinn endanlega. Eðlilega er eigendum efnis umhugað um að verk þeirra séu ekki fjölfölduð með ólöglegum hætti. Það gera allir sem selja afurðir sínar, þeir vilja ekki að þeirra sé notið án þess að greitt sé fyrir. Þannig að það þarf enginn að undrast um að þeir vilji taka á málinu og fá fram hvar valdið liggi með efni af þessu tagi.
Vandinn er hinsvegar sá að í því nútímasamfélagi sem við lifum í er nær ómögulegt að koma í veg fyrir að sjóræningjaútgáfur leki út á netið af kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og tónlist. Þegar að einn er lagður að velli spretta tveir upp í staðinn. Það er þessi barátta sem er framundan fyrir Smáís eðlilega. Þegar að torrent.is var lagður að velli kom krafa um að annar tæki verkið á sig og fólk vildi halda sömu verkum áfram. Þegar að fólk var orðið vant því að geta hlaðið niður efni vildi það jú meira.
Þetta er því erfið barátta. Niðurstaða dagsins í dag markar hvorki upphaf og endi neins ferlis í þessu máli. Það er þó aðeins spurt um lagalegar hliðar. Niðurstaðan er 1-0 sigur rétthafanna, merkilegur sigur. En enn sér ekki fyrir endann á bardaganum sem slíkum. Hann er jú bara rétt að byrja.
![]() |
Fagna niðurstöðu dóms í DC++ máli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.3.2008 | 18:57
Tæpt var það í Hamborg - merkileg upptaka

Oft höfum við séð flugslys og atvik af þessu tagi sviðsett í kvikmyndum og það virkað ansi raunverulegt og þetta myndbrot er ansi líkt og væri í kvikmynd en það verður varla raunverulegra en þetta. Flugmaðurinn er auðvitað mikil hetja, hann bjargaði því að ekki fór á versta veg.
En já, lítið á þessa klippu, þessi mun fara ansi nærri með það að verða valin sú besta á árinu.
![]() |
Lá við flugslysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.3.2008 | 14:48
Hvernig gátu fjársvikin í TR staðið í fjögur ár?
Það er eiginlega sláandi að það hafi getað gengið í fjögur ár að þjónustufulltrúi Tryggingastofnunar hafi svikið út 75 milljónir frá TR og lagt inn á reikninga tuttugu einstaklinga. Komið hefur verið upp um svikamylluna í málinu og greinilegt að innra eftirlit TR var algjörlega í molum og þetta gat gengið mjög lengi, án þess að nokkur velti fyrir sér hvernig hægt var að útbúa 781 tilhæfulausar kvittanir fyrir útborgunum.
Það er ekki langt síðan að starfsmaður Símans sveik miklar fjárhæðir út úr fyrirtækinu, á meðan að það var í ríkiseigu og endaði með því að Síminn eignaðist Skjá einn, enda hafði verið dælt peningum úr Símanum í fyrirtækið. Nú er greinilegt að innra kerfi TR var í molum og hægt að notfæra sér brotalamir í því. Það er því ekki nema von að velt sé fyrir sér hvort svona svikamylla hafi verið í öðrum ríkisfyrirtækjum.
Það er eitt að þetta gerist í skamman tíma og komist upp, en eftir fjögurra ára blekkingarleik er um víðtækan þjófnað að ræða. Það má alltaf eiga von á að glufur séu til staðar hjá fyrirtækjum sem óprúttinn aðili getur misnotað, en það hlýtur að vera ansi sofandi stofnun sem getur orðið svo langvinnrar og víðtækrar svikamyllu og raun ber vitni í þessu máli.
![]() |
Fjársvikamál þingfest 14. mars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.3.2008 | 12:16
Ánægjuleg tíðindi
Það er sætt að vinna svona stóran pott eftir að hafa átt miða í mörg ár og sérstaklega spilað upp á sömu tölurnar, happatölur fjölskyldunnar. Þarna sannast að oft er gott að vera einmitt með sömu tölurnar og láta lukkuna ráðast af happatölunum í fjölskyldunni.
Það hlýtur að þurfa sterk bein að lifa með svo stórum vinningi í sjálfu sér, enda sannarlega dæmi um að fólk hafi illa getað höndlað svo mikla gæfu.
![]() |
Einstæð móðir fékk lottóvinninginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.3.2008 | 01:51
Það er kominn tími til að bankarnir rói sig niður

Eftir digra starfslokasamninga, kaupréttarákvæði og allskonar samninga milli aðila er greinilegt að sá tími er runninn upp að bankarnir verða að hugsa sig um og taka á sig þá vondu stöðu sem uppi er og fara að tóna niður seðlaflóðið sem hefur streymt í allar áttir. Það er ánægjulegt að sjá hversu öflugur Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, kemur til leiks sem stjórnarformaður Glitnis. Þar á greinilega að taka til og læra af öllu bruðlinu sem hefur einkennt íslenska bankageirann síðustu árin. Það eru góð skilaboð að Mái ætli að fara af braut digurra starfslokasamninga og óráðsíu.
Ég held að bruðlið vegna samningsins við Lárus Welding hafi skaðað orðspor Glitnis að undanförnu. Það er bara þannig að fólki, hvort sem það er í viðskiptum við Glitni eður ei, blöskrar það að borga þurfi Lárusi 300 milljónir sem grunngreiðslu fyrir það eitt að hefja störf. Þetta er díll sem fólk skilur ekki og virkar mjög undarlega séð frá þeirri stöðu sem blasir við á þessum tímapunkti þar sem viðskiptaheimurinn nötrar og allt virðist á hverfanda hveli. Það þarf greinilega að fara út í það að taka til við þær aðstæður. Það þurfa aðrir bankar að gera.
Það var góð byrjun hjá Máa að lækka laun stjórnarmanna í Glitni og næstu skilaboð hans sem stjórnarformanns sýna vel að það á að stokka hlutina upp og nú hefur forstjórinn tekið á sig lækkun ennfremur. Þetta verður leiðarstefið hjá bönkunum á næstunni. Þegar að hart er í ári þarf að stokka upp.
![]() |
Bankarnir hægi á í útþenslunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2008 | 23:17
Kuldatíð fyrir sunnan - ekki farið eftir tilmælum

Það hlýtur að vera mikið hugsunarleysi í slíkum ákvörðunum og ekki gott að skilja hvers vegna fólk tekur slíkar áhættur. Það má vera að sumir telji að þetta hljóti að reddast og það sé alveg öruggt að það takist að komast heill á áfangastað. Í veðri af þessu tagi og ófærð sem því fylgir er þó teflt á tæpustu vöð algjörlega að óþörfu og óskiljanlegt að nokkur einstaklingur vilji virða tilmæli lögreglunnar að vettugi og halda sína leið vitandi um áhætturnar með því í snjóbyl og ófærð.
Annars er þetta einn kuldalegasti vetur fyrir sunnan í mörg herrans ár. Hef heyrt á þeim sem ég þekki fyrir sunnan að þeir séu orðnir langþreyttir á kuldatíðinni og bíði vorsins með óþreyju. Enda ekki furða að sólarlandaferðirnar um páskana séu uppseldar og vel það. Fólkið er farið að þrá sólina. Hér fyrir norðan þekkjum við snjóinn og þau vandamál sem fylgja honum mjög vel og efast um að hér myndi fólk fara út í óvissuna eins og fjallað er um í þessari frétt.
Við verðum að vita að það er ekki hægt að fara um í kuldatíð eins og gert er í góðu veðri. Það er því furðulegt að sjá fólk taka slíkar áhættur að óþörfu, fullorðið fólk sem ætti að vera vel meðvitað um hvernig aðstæður eru.
![]() |
Suðurlandsvegur ófær |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.3.2008 | 20:31
Rússnesk kosning Medvedevs - Pútín ríkir áfram

Þeir eru fáir sem hafa unnið betur við að efla vald sitt, rækta liðshjörð sína betur og stýrt heilu ríki eins og taflborðinu heima hjá sér; allt undir yfirskini þess að það sé lýðræðislegt, en Vladimir Pútín. Að mínu mati hefur Rússland Pútíns verið að þróast út í hreint einræðisríki; Pútín líkist Bréznev gamla æ meir með degi hverjum. Hann er dómínerandi leiðtogi og tök hans á fjölmiðlum og pólitískum ákvörðunum jaðra við ríki eins manns. Það er því eftir öðru að hann handvelji eftirmanninn og haldi því opnu að snúa aftur í forsetakosningunum 2012.
Með því að velja eftirmann sinn prívat og persónulega og útnefnt sjálfan sig í leiðinni, með góðvild handvalda forsetaefnisins að sjálfsögðu, sem forsætisráðherra frá og með vorinu hefur Pútín sýnt vel vald sitt og yfirburði. Það var áhugavert að kynnast sögunni á bakvið veldið enn betur í tveim sjónvarpsþáttum fyrir nokkrum vikum og sjá í hvaða átt stefnir. Þessi kapall nú sýnir umfram allt pólitísk klókindi bragðarefsins Pútíns og hversu öflugur risi hann er.
Það verður ekki sagt annað en að Medvedev verði eins og strengjabrúða undir stjórn Pútíns og viðhaldi veldi hans, enda er Pútín ekki á förum. Í sögulegu ljósi er sérstaða Medvedevs einkum tvíþætt. Hann verður yngsti þjóðhöfðingi Rússlands frá því að síðasti keisari Rússlands, Nikulás 2., tók við völdum 26 ára gamall árið 1894 og Medvedev verður fyrsti leiðtogi Rússlands með bakgrunn í einkageiranum, enda er hann stjórnarformaður í hinum ríkisrekna orkurisa Gazprom og hefur víðtækar tengingar víða ennfremur.
Medvedev háði ekki mjög litríka kosningabaráttu. Hann var alla tíð talinn öruggur um kjör í forsetaembættið. Hann tók ekki þátt í kappræðum við aðra forsetaframbjóðendur, háði litla sem enga virka kosningabaráttu en fór með Pútín um Rússland til að heimsækja fyrirtæki og stofnanir og sýndi með því nærveru sína í daufustu kosningabaráttu um eitt valdamesta embætti heims, á sama tíma og forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum eru að eyða fúlgu fjár, tíma og fyrirhöfn í baráttu um Hvíta húsið.
Pútín hefur á átta árum markað sig sem hinn afgerandi drottnara veldis síns. Staðan í Rússlandi er mikið áhyggjuefni. Mér finnst þar horfa ansi margt til fortíðar og vert að hugsa um framtíðina sem blasir við. Pútín ætlar sér ekki að hverfa út í sólarlagið eins og George W. Bush, sem brátt lætur ennfremur af embætti, eftir jafnlangan tíma á valdastóli.
Pútín ætlar sér að stjórna atburðarásinni eins og kvikmyndaleikstjóri úr fjarska, halda um alla spotta og ráða örlögum landsins, jafnt sem stuðningsmannahjörðar sinnar. Hann ætlar sér að vera meginspilari áfram á sviðinu. Það verður áhugavert að sjá hversu mikil strengjabrúða í höndum skapara síns nýr forseti muni vera.
![]() |
Medvedev kjörinn forseti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2008 | 18:43
Venlige hilsen í Crawford - blaðamanni hótað
Það er ekki hægt að segja annað en Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, og eiginkona hans fái vinalegar móttökur hjá Bush-hjónunum í Crawford í Texas. Þetta hljóta að teljast höfðinglegustu móttökur sem norrænn þjóðarleiðtogi hefur fengið í Bandaríkjunum svo lengi sem elstu menn muna. Með þessu er greinilega Bush forseti að launa danska forsætisráðherranum stuðninginn í Íraksstríðinu og eftirmála þess.
Á sömu stund er dönskum blaðamanni hótað af konu á svæðinu, horfir í byssuhlaupið hjá henni. Það vantar ekki andstæðurnar. Eflaust verður rætt í kjölfarið um byssueign Bandaríkjamanna en það verður ekki annað sagt en að suddalegur fjöldi skotvopna sé þar og hefur mikið verið fjallað um það. En það er ábyggilega frekar nöturlegt að vera blaðamaður af rólegu svæði og lenda í svona menningu sem blómstrar í suðurríkjum Bandaríkjanna.
En það er merkilegt að sjá notalegar móttökur. Það er greinilegt að sá danski er mikils metinn hjá bandaríska forsetanum.
![]() |
Dönskum blaðamanni ógnað í Texas |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2008 | 15:28
Vetrarríkið í Eyjum
Mér finnst Vestmannaeyjar einn fallegasti staður landsins og þangað er alltaf gaman að koma. Finnst fáir staðir fallegri á notalegu sumarkvöldi en Vestmannaeyjar og stemmningin á þjóðhátíð er engu lík. Hef aldrei komið þangað í vetrarveðri og óska mér svo sannarlega ekki að vera staddur þar í þessu aftakaveðri, þó það sé önnur upplifun en notalegt sumarkvöld.
En vonandi fer að birta yfir í Eyjum og veðrið að batna, allavega hið minnsta að hægt sé að koma á annarri vakt á sjúkrahúsinu.
![]() |
Innisnjóaðir Vestmannaeyingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.3.2008 | 01:37
Þreytt Spaugstofa - erlent efni í metpláss RÚV
Heldur fannst mér eitthvað dapurt yfir Spaugstofunni í kvöld. Það verður að segjast alveg eins og er að þetta prógramm er orðið ansi þreytt og eitthvað slitið. Það er ekki nema von að spurt sé hvort að þetta sé síðasti vetur þeirra félaga saman. Sá á áhorfsmælingum að áhorfið á þá hefur eitthvað dregist saman og það kemur mér ekki að óvörum. Þetta er orðið frekar slitinn húmor.
Vakti athygli mína í kvöld að Sjónvarpið ætlar ekki að fylla metplássið sitt, þar sem Laugardagslögin voru í um tuttugu vikur, með íslensku efni. Ekki sakna ég svosem Eurovision-glamursins, sem lauk um síðustu helgi með glæsilegum sigri Eurobandsins, enda fannst mér það vera einum of langdregið og teygt prógramm, sem hefði hæglega mátt ljúka tveim mánuðum, hið minnsta, fyrr að ósekju. Það voru margir orðnir þreyttir á þessum margteygða lopa og fögnuðu þegar að það komst loksins í mark með sigurlagi eftir lengstu undankeppni Eurovision fyrr og síðar.
Það horfðu 60-80% landsmanna á lokasprett Laugardagslaganna og greinilegt að þetta er sjónvarpspláss sem hægt er að gera góða hluti með. Það er því stórundarlegt að Sjónvarpið fylli ekki upp í það með nýjum sjónvarpsþætti eða íslensku efni af einhverju tagi en setji þess í stað einhverja tískutónleika og svo erlenda kvikmynd að því loknu. Það væri vonandi að Þórhallur myndi finna eitthvað gott prógramm í staðinn. Ekki sýnist mér á frammistöðu kvöldsins að Spaugstofan muni fylla vel í skarðið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
1.3.2008 | 20:52
Björgum þotunni - Gullfaxa til Akureyrar

Best færi á því að það myndi takast að flytja Gullfaxa hingað til Akureyrar og þotan yrði hluti af Flugsafninu hér. Sögulega séð væru það viðeigandi endalok í þessum efnum. Það er allavega mikilvægast af öllu að bjarga Gullfaxa frá því að verða brytjaður niður og koma flugvélinni aftur til Íslands. Það verður menningarlegt slys ef það tekst ekki og tilraunir þeirra sem eru að reyna að eignast Gullfaxa renna út í sandinn.
Það er svo merkilegt að ég var að horfa á gamlar spólur í gærkvöldi og rakst þá á gamlan þátt úr Sjónvarpinu þar sem var klippt saman gömlu efni. Þar á meðal var umfjöllun um komu Gullfaxa árið 1967 og merkilegar klippur frá athöfn á Reykjavíkurflugvelli þar sem Ásgeir Ásgeirsson, þáverandi forseti Íslands, kom fram ásamt fleiri merkisfólki. Koma Gullfaxa voru stórtíðindi, enda með því mörkuð þáttaskil í flugsögu landsins. Var þessum atburði líka lýst vel í þætti um flugsöguna, sem voru gerðir árið 2002, sem ég ennfremur á bandi og horfði nýlega á.
Sagan er mikilvæg - það má vel vera að Gullfaxi sé kominn til ára sinna og þjóni ekki lengur lykilhlutverki í samgöngusögu landsins. En hann lék þar sögulega rullu og það er mikilvægt að bjarga þotunni frá því að verða brytjuð niður. Myndi slíkur merkisgripur íslensku flugsögunnar hvergi passa betur en á safni hér nyrðra, en sárt yrði að sjá hann enda í varahlutum og járnarusli í Nýju-Mexíkó.
![]() |
Fyrsta þota Íslendinga í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.3.2008 | 18:58
19 ára afmæli bjórsins

Loks tókst að ná þingmeirihluta um málið í kjölfar þingkosninganna 1987 og frumvarpið varð að lögum eins og fyrr segir vorið 1988. Ólíkt því sem nú er, voru deildir þingsins þá tvær, efri og neðri deild, og tafði það afgreiðslu málsins að ekki var víst um stuðning í annarri deildinni. Atkvæðagreiðsla um bjórinn varð þó ekki eins tvísýn og búist hafði verið við í upphafi. Andstæðingar frumvarpsins reyndu er ljóst var að frumvarpið færi í gegn að koma fram með tillögu um þjóðaratkvæði um tillöguna.
Þeir féllu frá því er ljóst var að hún nyti ekki heldur stuðnings meirihluta þingmanna. Bjórfrumvarpið í heild var samþykkt í efri deild þingsins með 13 atkvæðum gegn átta. Þeir sem samþykktu bjórinn voru: Eyjólfur Konráð Jónsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Eiður Guðnason, Jón Magnússon, Guðmundur Ágústsson, Guðmundur H. Garðarsson, Halldór Ásgrímsson, Halldór Blöndal, Jóhann Einvarðsson, Júlíus Sólnes, Karvel Pálmason, Salome Þorkelsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir.
Á móti voru: Karl Steinar Guðnason, Egill Jónsson, Guðrún Agnarsdóttir, Jón Helgason, Margrét Frímannsdóttir, Skúli Alexandersson, Svavar Gestsson og Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Áður en að þessari lokaafgreiðslu kom og sigri stuðningsmanna bjórsins, hafði mikið verið rætt um málið í báðum deildum og farið yfir alla fleti málsins. Andstæðingar þess að bjór skyldi leyfður héldu uppi langvinnu og útúrteygðu málþófi í umræðunum og reyndu að tefja framgang þess með hverju sem hægt var. Málþófið verður nokkuð hlægilegt þegar að hugsað er til baka.
Meðal þeirra sem mælti hvað harðast gegn bjórnum var Sverrir Hermannsson, þáverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrum ráðherra. Í umræðum á þingi í febrúar 1988 lét hann svo um mælt að frumvarpið væri málatilbúnaður sem væri sá einstæðasti í sögu þingsins. Orðrétt sagði hann: "Rakaleysurnar í þessu frumvarpi eru með þeim hætti að fágætt er og áreiðanlega einsdæmi í þessi 1058 ár sem liðin eru frá stofnun Alþingis. Hefði því viðkomandi þingnefnd séð þann kost vænstan að kasta frumvarpinu og meirihluti hennar samið nýtt".
Ekki lét Sverrir við þetta sitja heldur hélt áfram: "Með þessu vinnulagi voru flutningsmennirnir (Jón Magnússon, Geir H. Haarde, Guðrún Helgadóttir og Ingi Björn Albertsson) kaghýddir og hin þorstláta valkyrja, 13. þingmaður Reykvíkinga (Guðrún Helgadóttir) kom hér upp og kyssti á vöndinn og heyrðist smellurinn langt út á tún." Að auki gagnrýndi Sverrir greinargerð þá sem fylgdi frumvarpinu, og sagði allan málatilbúnaðinn til skammar fyrir þingið.
Hann lét að því liggja að flutningsmenn frumvarpsins hefðu lagt það fram í þeim einum tilgangi að styrkja sig áður á vettvangi prófkjöra "... af því að þeir telja sér trú um að ölberserkir séu í meirihluta í okkar flokki". Að auki lét Sverrir í þessari stormasömu ræðu að því liggja að gróðasjónarmið réðu ferðinni hjá flutnings- og stuðningsmönnum frumvarpsins. Sagði hann að ekki væri hugsað um þann áfengisvanda sem kæmi vegna frumvarpsins.
Margrét Frímannsdóttir studdi ekki frumvarpið á þeirri forsendu að hún væri móðir tveggja unglinga og gæti samvisku sinnar vegna ekki sagt já við frumvarpinu. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, studdi frumvarpið ekki heldur og var með hávær mótmæli við því. Það vakti því athygli tveim áratugum síðar þegar að hann nefndi bjórverksmiðju Kalda á Árskógsströnd sem einn helsta vaxtarbroddinn í atvinnulífi á svæðinu til að forðast að tala um álver.
Steingrímur J. sagði orðrétt um bjórinn í þingumræðum árið 1988: "Ég hef til viðbótar pólitískar ástæður fyrir því að ég vil ekki standa að breytingum hvorki í áfengismálum né annarsstaðar sem gera fólkið óvirkara og sljórra gagnvart umhverfi sínu. Það tel ég að stóraukin neysla bjórs, jafnvel þó að eitthvað dragi úr neyslu annarra áfengistegunda, muni gera." Stuðningur sama manns við bjórframleiðslu varð til þess að ummæli fyrri tíma voru rifjuð upp.
Enn skrautlegri málatilbúnað viðhafði Ólafur Þ. Þórðarson í sömu umræðu. Hann las upp orðréttan laugardagspistil eftir Flosa Ólafsson leikara, frá 9. janúar 1988, í dagblaði, en í honum fjallaði pistlahöfundur um jólahald í "bjórlandinu Danmörku". Las hann ennfremur upp ályktun 133 lækna, sem lýstu sig andvíga frumvarpinu og að lokum nöfn allra þeirra og jafnframt heimilisföng, enda taldi hann að ósköp eðlilegt væri að nöfn þeirra varðveittust í Alþingistíðindum.
Þegar farið er yfir gamlar umræður á þingi og kynnt sér vel umræður koma fram mörg spaugileg dæmi um tilraunir sumra þingmanna til að beita öllum brögðum til að halda uppi málþófi og tilraunum til að tefja umræðuna eftir öllum leiðum. Svavar Gestsson hélt t.d. langar ræður gegn bjórnum og talaði um að æska landsins væri í húfi í þessum efnum. Þetta eru aðeins nokkur dæmi sem ættu að teljast hlægileg, nú tæpum tveim áratugum síðar - sem hægt er að brosa yfir.
Hrakspár þeirra sem helst börðust gegn því að bjórinn skyldi leyfður á ný, hafa ekki ræst. Það hefur ekkert á þessum tíma breyst til hins verra. Það eina sem breyttist var að fólk hafði frelsi til að velja fyrir sjálft sig. Það sem í gangi var fram til 1. mars 1989 í málefnum bjórsins var forræðishyggja í sinni þekktustu mynd. Enda sást vel að fólk kunni vel að meta frelsið sem því var veitt. Það á að vera almennings að ákveða hvað það borðar og ekki síður drekkur.
Það hefur aldrei lukkast vel að ríkið taki ákvarðanir fyrir aðra. Reyndar er það með ólíkindum að aðeins nítján ár skuli liðin frá því að bjórbannið leið loks undir lok. Það er varla vafi á því í hugum almennings að rétt skref var stigið við samþykkt frumvarps um afnám bannsins árið 1988.
Enginn vill stíga skrefið til baka. Nú sem fyrr á það að vera fólksins að hafa frelsi til að velja.
1.3.2008 | 16:17
Hvað er þetta eiginlega með Svía og reiðhjól?
Er ekki nema von að menn spyrji sig að því hvað þetta sé með Svía og reiðhjól.
![]() |
Hafði mök við dömureiðhjól |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2008 | 12:18
Íslendingar kjósa sitt fólk sama á hverju gengur
Það er gott að standa með sínu fólki. Við gleymum seint eða aldrei sumrinu 2006 þegar að Magni keppti í Rockstar Supernova á bandarískum tíma að íslenskri nóttu í miðri viku og við vöktum og kusum hann áfram og sumir fóru meira að segja á Hawaii-tímann til að styðja sinn mann, enda átti hann það líka skilið. Þá líka varð Magni stórstjarna hér heima, stærri en nokkru sinni áður og vakti eiginlega mest athygli í okkar augum þá.
Það er vonandi að Ásdísi Rán gangi vel í þessari keppni og fái góðan stuðning, ekki bara vegna þess að hún er íslensk heldur líka það að hún á skilið að vinna.
![]() |
Ásdís Rán komst á toppinn í gær |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.3.2008 | 02:15
Annað dópmál í Borgarfirði á innan við sólarhring

Það er gott að lögreglan vinnur sitt verk vel og tryggir að það sé komið upp um svona útgerð, þar sem ræktað er kannabis. Fróðlegt verður um að heyra hvort að þessi ræktun í sveitinni var bara ætluð til prívatnota eða hefur verið selt þaðan efni. Löggan stendur sig vel og á hrós skilið að hafa náð að koma upp um þetta.
![]() |
Eiturlyf í Borgarfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)