Ánægjuleg tíðindi

Það er alltaf gott þegar að lottóvinningar fara þangað þar sem þörf er fyrir peningana. Það er ánægjulegt að einstæð móðir hafi unnið þennan vinning, 21 milljón. Vil óska vinningshafanum og fjölskyldu hennar til hamingju. Það hlýtur að hafa gríðarleg áhrif á lífsstandardinn að taka svona stóran pott og vonandi mun verða vel haldið utan um það.

Það er sætt að vinna svona stóran pott eftir að hafa átt miða í mörg ár og sérstaklega spilað upp á sömu tölurnar, happatölur fjölskyldunnar. Þarna sannast að oft er gott að vera einmitt með sömu tölurnar og láta lukkuna ráðast af happatölunum í fjölskyldunni.

Það hlýtur að þurfa sterk bein að lifa með svo stórum vinningi í sjálfu sér, enda sannarlega dæmi um að fólk hafi illa getað höndlað svo mikla gæfu.

mbl.is Einstæð móðir fékk lottóvinninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband