23.3.2008 | 15:13
Páskakveðjur

Þetta hefur verið alveg virkilega góður dagur hjá mér - hér er sól og blíða. Það fylgir dögum á borð við þennan að fara í messu, borða góðan mat og njóta þess besta með fínni afslöppun.
Það var notalegt að líta í páskaeggið sitt í morgun. Það kemur misjafnlega góð speki úr þeim, en að þessu sinni sást þar málshátturinn; Augun eru spegill sálarinnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.3.2008 | 20:41
Fjölmenningarleg slagsmál í Breiðholtinu
Það er frekar dapurlegt að heyra fregnir af líkamsárásunum og ofbeldinu í Breiðholti í dag. Allir hlutaðeigandi eru innflytjendur og er þetta væntanlega til marks um fjölmenningarleg átök, átök sem ganga langt og eru meðal innflytjenda. Það væri fróðlegt að vita hvað búi þarna að baki. Eru þetta átök milli fólks af mismunandi uppruna, hefnd vegna einhvers eða hreinlega bara persónulegar væringar sem ljúka svo brútalt?
Það vantar ekki tíðindin úr Breiðholtinu síðustu dagana. Sprautunálaránin voru kuldalegt dæmi um það hversu mjög við erum að færast því ofbeldi sem fjallað er um í fréttum frá öðrum löndum. Það er því miður að verða nær daglega sagt frá því í fréttum að verslanir séu rændar, fólk berji hvort annað í klessu og ráðist sé að fólki sem hefur ekkert sér til sakar unnið.
Það sem vekur mesta athygli er hversu mörg þessara mála má rekja til innflytjenda. Enda er greinilegt að þau dæmi eru notuð til að kynda undir hatur á innflytjendum almennt og greinilegt að þessi þróun er vatn á myllu þeirra. Það er leitt ef lítill hluti innflytjenda kemur almennu óorði á alla sem hingað koma.
Þetta er vond þróun en um leið mikið umhugsunarefni. Það er leitt ef borgarhverfin breytast í Harlem vegna innbyrðis átaka innflytjenda og færir okkur inn í annan menningarheim en við þekkjum og viljum örugglega ekki horfa þegjandi á í nærmynd.
![]() |
Sex leitað vegna árásar í Breiðholti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2008 | 03:37
Innilegar samúðarkveðjur

Það hafa alltof margir látið lífið í umferðinni á síðustu árum. Þjóðarvakning varð í þessum efnum hið sorglega ár 2006 í umferðinni hérlendis. Vonandi mun áfram verða rætt um þau mál og leitað leiða til að reyna að koma í veg fyrir dapurleg slys.
21.3.2008 | 22:41
Hasar í Breiðholtinu á föstudeginum langa
Það er gott að lögreglan komst á sporið í þjófnaðarmálunum í Breiðholtinu. Það er sérstaklega við hæfi að hrósa manninum sem veitti sprautunálaræningjunum eftirför eftir ránið í dag og stóð sig vel - á stóran þátt í hversu vel tókst að ná þessum mönnum. Talaði áðan við einn vin minn sem býr í Breiðholtinu og heyrði ágætis lýsingar af þessu öllu.
Það hefur ekki vantað hasarinn þar. Íbúum þar hefur eflaust liðið eins og hverfið væri að breytast í Harlem síðustu dagana og gott að óvissan er að baki. Enda er það ekki þægileg tilhugsun að ræningjar gangi lausir sem beiti sprautunálum að vopni sem eiga að vera lifrarbólgusmitaðar.
Hugsa aðallega til þeirra sem vinna í þessum sjoppum og söluturnum, hafa varla vitað hvað gerðist næst. Og á sjálfum föstudeginum langa hafa mennirnir þrír verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Það gerist sem betur fer ekki á hverjum föstudeginum langa að svo mikill hasar sé eins og var í dag.
En maður dagsins er klárlega maðurinn sem elti ræningjana og stóð sig svo vel. Hann á stærsta þáttinn í hversu vel gekk að leysa þennan hluta málsins.
![]() |
Þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2008 | 18:55
Ábyrgðarleysi foreldra
Það heyrast reglulega sögur um að foreldrar reddi ólögráða börnum sínum áfengi og sígarettur áður en þau ná löglegum aldri til að kaupa það og ráða sér sjálf en mér finnst það hálfu verra þegar að foreldrar bregðast skyldu sinni í að ala upp börnin sín og láta svona nokkuð gerast eins og segir frá í þessari frétt um það sem gerðist í Bolungarvík.
Það læra börnin sem fyrir þeim er haft og það er ekki til að auka trúverðugleika foreldra þegar að svona nokkuð klúður gerist og allt undir eftirliti foreldranna.
![]() |
15 ára ökumaður ók útaf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2008 | 18:15
Sorgarsaga í Kaupmannahöfn

Það hefur verið áhugavert að lesa dönsku fréttavefina eftir að þessi árás átti sér stað og einkum í dag, nú þegar að drengurinn er látinn. Það eru miklar tilfinningar í svona máli og ekki hægt annað en að hafa samúð með fjölskyldunni sem er í sárum í kjölfar svo skelfilegs verknaðar.
Það er nauðsynlegt að tala gegn svona mannvonsku. Þar sem að þetta gerist í Danmörku er ekki hægt annað en að hugsa sérstaklega um málið, því að þetta er svo nærri okkur en er samt svo óraunverulegt.
Það er full ástæða til að hugleiða mál af þessu tagi og vona í leiðinni að aldrei neitt þessu líkt gerist hér á Íslandi.
![]() |
Blaðburðardrengur myrtur í Kaupmannahöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 22.3.2008 kl. 03:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.3.2008 | 15:30
Dökku hliðarnar á samfélaginu
Sprautunálaránin í Breiðholti eru alvarlegt mál. Þar koma fram dökku hliðarnar á samfélaginu. Þegar að framin eru rán hérlendis með því að hóta að smita fólk af lifrarbólgu C er ekki hægt annað en verða hugsi. Það er eitt að verslanir séu rændar í borginni svo til í hverri viku en þarna er fetað nýja og óvægna slóð til að reyna að komast yfir peninga, sígarettur og allskonar smotterí.
Neyðin virðist svo mikil að öllum brögðum er beitt meðal annars að beita sprautunálum sem vopnum. Það er vonandi að lögreglan upplýsi þessi mál og farið sé yfir hvað sé að hjá þeim sem grípa til slíkra úrræða til að komast yfir nokkra þúsundkalla og smotterí í sjoppum. Eitt mál af þessu tagi er alvarlegt en þrjú eru augljóst merki um að eitthvað er stórlega að í samfélaginu.
Svona fréttir eru auðvitað alltaf napur vitnisburður þess hvernig samfélagið er orðið og er boðberi um dapurlega þróun mála.
![]() |
Þrír yfirheyrðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2008 | 11:40
Á föstudaginn langa

Eitt fallegasta kvæði Davíðs Stefánssonar er án vafa Á föstudaginn langa, sem margir kalla Ég kveiki á kertum mínum. Um er að ræða táknrænt og fallegt ljóð sem telst með því besta sem hann orti á löngum skáldferli sínum. Þetta ljóð snertir alltaf streng í hjartanu mínu. Það er við hæfi að líta á það á þessum helga degi.
Ég kveiki á kertum mínum
við krossins helga tré.
Í öllum sálmum sínum
hinn seki beygir kné.
Ég villtist oft af vegi.
Ég vakti oft og bað.
Nú hallar helgum degi
á Hausaskeljastað.
Í gegnum móðu og mistur
ég mikil undur sé.
Ég sé þig koma, Kristur,
með krossins þunga tré.
Af enni daggir drjúpa,
og dýrð úr augum skín.
Á klettinn vil ég krjúpa
og kyssa sporin þín.
Þín braut er þyrnum þakin,
hver þyrnir falskur koss.
Ég sé þig negldan nakinn
sem níðing upp á kross.
Ég sé þig hæddan hanga
á Hausaskeljastað.
Þann lausnardaginn langa
var líf þitt fullkomnað.
Ég bíð, uns birtir yfir
og bjarminn roðar tind.
Hvert barn, hvert ljóð, sem lifir,
skal lúta krossins mynd.
Hann var og verður kysstur.
Hann vermir kalda sál.
Þitt líf og kvalir, Kristur,
er krossins þögla mál.
Þú ert hinn góði gestur
og guð á meðal vor,
og sá er bróðir bestur,
sem blessar öll þín spor
og hvorki silfri safnar
né sverð í höndum ber,
en öllu illu hafnar
og aðeins fylgir þér.
Þú einn vilt alla styðja
og öllum sýna tryggð.
Þú einn vilt alla biðja
og öllum kenna dyggð.
Þú einn vilt alla hvíla
og öllum veita lið.
Þú einn vilt öllum skýla
og öllum gefa grið.
Að kofa og konungshöllum
þú kemur einn á ferð.
Þú grætur yfir öllum
og allra syndir berð.
Þú veist er veikir kalla
á vin að leiða sig.
Þú sérð og elskar alla,
þó allir svíki þig.
Ég fell að fótum þínum
og faðma lífsins tré.
Með innri augum mínum
ég undur mikil sé.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
21.3.2008 | 00:48
Bergmál frá hellisbúanum Osama Bin Laden

Það eru ekki lengur tíðindi í sjálfu sér að ógeðið velli frá þessum hatursmanni sem elur á því að hræða fólk og valda ókyrrð. Hann lifir á því að kynda undir bálið og hræðsluáróðurinn er hans málflutningur. Það er greinilegt að við öll í Evrópu erum skotmark ekkert síður en risaveldin sem stóðu að Íraksstríðinu. Hann notar skopmyndamálið nú auðvitað sem tylliástæðu til að kynda undir gegn Evrópu allri og reyna að hræða okkur í skotgrafirnar.
Bin Laden fer víða í boðskap sínum. Hann gefur margt í skyn og kyndir undir með hatri sínu og skítkasti, einkum að því er virðist gegn Evrópu þessa dagana. Það er alveg ljóst að við lifum ekki lengur á hlutlausu svæði, svæði sem er utan við átakalínur nútímans, hryðjuverkaógnin vofir yfir okkur öllum. Það er ekki bara alið á hatrinu gegn stórveldum, heldur hinum smærri líka. Og við getum ekki annað en fordæmt það sem frá þessum manni kemur.
Þessi átök eru orðin miklu flóknari en svo að þar spili stórveldi gegn kolklikkuðum öfgamanni og samtökum hans. Þetta er barátta nútímans. Þar er öll heimsbyggðin undir - alið er á hatrinu gegn öllum sem voga sér að hafa aðrar skoðanir en þessi kolklikkaði hellisbúi einhversstaðar úti í buskanum. Hann þekkir ekki aðrar skoðanir en sínar eigin og fordæmir allar aðrar. Þessi hellisbúi er mesta meinsemd nútímans.
![]() |
Ný upptaka með bin Laden |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.3.2008 | 21:40
Merkileg heimild um ógnarstjórn Kínverja í Tíbet

Við eigum að taka afstöðu með Tíbet í þeim óeirðum sem hafa staðið og munu standa áfram í þeirri stöðu sem uppi er. Víða hefur fólk fengið nóg af því sem gerst hefur og það er gullið tækifæri að vekja athygli á þessu í aðdraganda Ólympíuleikanna sem haldnir verða í Kína eftir nokkra mánuði. Það var skandall þegar að ákveðið var að halda Ólympíuleikana þar og jafnfjarstæðukennt og þegar að kvennaráðstefnan var haldin þar fyrir þrettán árum, sem auðvitað varð umdeild fyrir staðarvalið.
Mér fannst það flott hjá Björk að tileinka fólkinu í Tíbet lagið Declare Independence. Þar sást vel að hún er töffari, eitilhörð og ekki hrædd við að tjá sig hreint út. Það er mikilvægt að við hér á Íslandi tölum máli þessa fólks og styðjum það í baráttunni gegn kínverskum stjórnvöldum. Við eigum ekki að nudda okkur utan í þessi blóði drifnu stjórnvöld, sem drápu stúdenta á torgi hins himneska friðar fyrir tveim áratugum og hafa sýnt og sannað að mannréttindi eru einskis metin þar.
Lagið hennar Bjarkar er í spilaranum.
![]() |
Myndband ferðamanns í Tíbet |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.3.2008 | 19:53
Hillary skammt frá ástarfundum í Hvíta húsinu
Það er merkileg staðreynd að Hillary Rodham Clinton var í Hvíta húsinu á sömu stund og Clinton forseti og lærlingurinn Monica Lewinsky áttu frægasta ástarfund sinn á forsetaskrifstofunni í hinu margumtalaða hneykslismáli sem næstum því kostaði forsetann embættið. Hillary hefur nú loksins birt dagbækur og gögn um verk sín þegar að hún var forsetafrú Bandaríkjanna. Það er löng romsa af allskonar upplýsingum sem varpa litlu ljósi á sögulegt hlutverk hennar.
Eðlilega voru fréttamenn helst áhugasamir um að vita hvar Hillary var þegar að Clinton og Lewinsky stunduðu ástarleiki sína og uppljóstrunin um að þau voru öll í forsetabústaðnum hefur hleypt nýju lífi í gamlar glæður þessa hneykslismáls. Áratug eftir að Bill Clinton barðist fyrir því að halda forsetaembættinu og hjónabandinu vegna framhjáhaldsins með lærlingnum fylgir skuggi Monicu enn eftir Clinton-hjónunum á kosningaferðalagi um Bandaríkin. Minna máli skiptir í gögnunum hvort að Hillary hafi verið klappstýra eiginmannsins eða sú sem stýrði veldinu á bakvið hann.
Monica var sem skuggi á eftir Clinton síðustu þrjú ár forsetaferilsins og á árinu 1998 og 1999 er hann barðist í ákæruferlinu fyrir þinginu komst hann varla í opinberar heimsóknir án þess að frekar væri spurt um dökkhærða lærlinginn sem hann svaf hjá en heimsmálin. Það fer ekki á milli mála að ástarsamband forsetans við Monicu Lewinsky var eitt helsta máls seinna kjörtímabils hans og var á eftir honum allt þar til að hann lét af embætti í janúar 2001. Sambandið hófst rétt fyrir forsetakosningarnar 1996 og stóð hápunktur þess á þeim tíma sem hann sór embættiseið seinna skipti í þinghúsinu fyrir ellefu árum.
Nú berst Clinton forseti aftur fyrir því að komast í Hvíta húsið, nú við hlið eiginkonunnar sem fyrirgaf honum seint og um síðir ótryggðina og að hafa logið að sér á viðkvæmustu augnablikum forsetaferilsins. Og í fyrsta skiptið frá því að Clinton viðurkenndi ótryggðina varð Hillary að brjóta odd af oflæti sínu og svara viðkvæmum spurningum á sömu stund og spurt er um efnahaginn, utanríkismálin og trúmálin í suðurríkjum Bandaríkjanna í kosningaslagnum fyrr á árinu.
Þetta mál var sögufrægt og það deyr ekki þó árin líði. Enn er skuggi lærlingsins sem mara yfir Clinton-fjölskyldunni. Spurningin er hvort sögulegar minningar skaði hana, nú þegar að hún hefur náð forskotinu aftur á Obama og hefur blásið lífi að nýju í framboð sitt.
Skuggi Monicu fylgir Clinton-hjónunum eftir
ítarlegri umfjöllun mín um málið frá því í janúar 2008
![]() |
Lewinskymálið skýtur á ný upp kollinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.3.2008 | 15:47
Á nektin að selja tónlistina hjá Mercedes Club?
Lagið Ho Ho Ho We Say Hey Hey Hey var grípandi en mjög umdeilt og greinilega átti að yfirkeyra umræðuna með allskonar krassandi lýsingum og ná stuðningsbylgju til að taka dæmið alla leið til Serbíu.
Það mistókst og nú á greinilega að taka ballmarkaðinn með trompi og auglýsa sig rækilega í botn. Þar á nektin greinilega að vera hluti af prógramminu, enda sýnist mér boðað að nektin verði hluti af nýja laginu.
Það verður seint sagt að Mercedes Club séu taktfastir snillingar sem muni græða mikið á tónlistinni einni og sér og því má eiga von á að reynt verði öll markaðsbrögðin í bókinni til að selja pakkann.
![]() |
Vilja vera nakin í myndbandinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.3.2008 | 11:52
Paul Scofield látinn

Scofield hóf leikferil sinn á sviði í London árið 1940 og stundaði nám í konunglega listaháskólanum þar. Síðar hélt hann til Hollywood og lék þar í fjölda kvikmynda, mörgum þeirra mjög eftirminnilegum, bæði lék hann þar breska aðalsmenn og bandarískar intellectual-týpur og sögulegar persónur. Hann hafði mikinn klassa og segja má að hann hafi verið frambærilegasti fulltrúi sinnar kynslóðar í leik á eftir þeirri fyrri sem skartaði lykilmönnum á borð við Sir Laurence Olivier, Sir John Gielgud, Sir Ralph Richardson og Sir John Mills.
Scofield hafði helgað sig sviðsleik og þar var hans heimavöllur í leikrænni tjáningu. Hann lék þó í rétt rúmlega þrjátíu kvikmyndum og sjónvarpsverkum. Þegar að hann hlaut óskarinn fyrir ógleymanlega tjáningu á Sir Thomas More í A Man For All Seasons, sem er ein sú besta á sjöunda áratugnum ef undan er skilin eftirminnileg tjáning Rex Harrison á Henry Higgins í My Fair Lady og Peter O´Toole á Lawrence í Lawrence of Arabia, hafði hann aðeins leikið þrisvar áður í kvikmynd en hann lék í sinni fyrstu kvikmynd árið 1955, That Lady. Scofield lék fyrst hlutverk More á West End og svo aftur á Broadway.
Scofield þótti ekki Hollywood-maður í kvikmyndatúlkun og afþakkaði með öllu hefðarsess þar og þann sess að vera í raun kvikmyndaleikari. Hann var leikhúsmaður í bestu merkingu þess orðs. Hann mætti ekki á Óskarsverðlaunin 1967 og tók því ekki við óskarsverðlaunum sínum fyrir leik í A Man For All Seasons. Í stað þess tók Dame Wendy Hiller, vinkona Scofields úr breska leikbransanum, við verðlaununum en hún lék eiginkonu hans, Alice, í myndinni, en hún var ennfremur tilnefnd til verðlaunanna en tapaði fyrir Sandy Dennis sem átti stjörnuleik í Who´s Afraid of Virginia Woolf?
Frægt var þegar að Richard Burton, samferðarmaður Scofield í bransanum, sem margir töldu standa fremstan breskra leikara af þeirra kynslóð, sagði að sá titill tilheyrði Scofield. Enda ætti hann átta af tíu bestu sviðstúlkunum breskrar leikhússögu. Þeir voru tilnefndir saman til óskarsverðlaunanna árið 1967; Scofield fyrir A Man Of All Seasons en Burton fyrir að túlka eiginmanninn í Who´s Afraid of Virginia Woolf? Þar áttu bæði hann og eiginkona hans, Elizabeth Taylor, bestu stund sína á hvíta tjaldinu. Burton tók tapið nærri sér, enda hafði lagt allt í rulluna, en sagði sjálfur síðar að Scofield hefði toppað sig.
Scofield afþakkaði tvívegis að vera aðlaður af Elísabetu II Englandsdrottningu, síðast í upphafi nýrrar aldar, og þótti honum það sterk yfirlýsing um að hann þyrfti ekki veigameiri titil en herra til að sinna list sinni, þyrfti ekki á meiru að halda. Scofield var einfari alla tíð. Þótti fara sínar leiðir, kom og fór eftir eigin boðum og skeytti engu um hvað öðrum þótti um sig. Eftirminnilegasta kvikmyndatúlkun hans, fyrir utan A Man of All Seasons, er auðvitað stjörnutúlkun hans á Mark Van Doren, hinum heilsteypta og grandvara gáfumanni, sem í heiðarleika sínum sér fall sonar síns í frægum spurningaþætti.
Í raun var það grátlegt að hann fékk ekki óskarinn fyrir Quiz Show, enda er túlkunin heilsteypt og svo innilega traust. En á móti kemur að Martin Landau átti svo trausta túlkun á leikaranum Bela Lugosi í Ed Wood og hafði svo oft verið sniðgenginn áður, t.d. er hann lék lækninn í sálarkreppunni í Woody Allen-myndinni frábæru Crimes and Misdemeanors árið 1989. Scofield lét sér svosem fátt um finnast og sendi sömu skilaboð og áður um að þarna vildi hann ekki hefðarsessinn mikla og mætti ekki. Hann átti svo brilljant túlkun sem Lér konungur árið 1971, fáir léku Lér betur en Scofield.
Auk þess má auðvitað nefna túlkun hans á franska kónginum í Henry V. Þar lék hann á móti einum fremsta Shakespeare-leikara næstu kynslóða, Kenneth Branagh. Henry V er traust og góð mynd sem vert er að mæla með fyrir þá sem vilja alvöru kvikmyndauppfærslu á gömlu og traustu leikverki. Þeir sem vilja kynna sér list leikarans Paul Scofield er ráðlagt að líta á A Man For All Seasons, Quiz Show, kvikmyndaútfærsluna af Lér konung og Henry V sem brot um snilld trausts og vandaðs leikara.
En stóru sigrana sína upplifði Scofield á leiksviðinu. Það var hans vettvangur. Hann vildi sennilega ekki að sín yrði minnst sem kvikmyndaleikara en ferill hans verður hvorki heilsteyptur né heiðarlega skrifaður nema með þeim hætti. Þessi breski leiksnillingur var enda jafnvígur á sviðsleik og kvikmyndatúlkun, enda einn hinna bestu í bransanum.
![]() |
Paul Scofield látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2008 | 00:14
Bin Laden beinir hryðjuverkaógninni að Evrópu

Enn eina ferðina sprettur þessi maður fram eins og grýla sem kemur ófrýnileg út úr hellinum sínum til að láta aðra finna fyrir sér og reyna að sýna að enn sé töggur í skepnunni. Skuggabaldur virðist þó óvenjuherskár í þetta skiptið og hótar okkur í Evrópu greinilega öllum vegna skopmyndateikninganna. Skuggabaldur minnir á sig og virðist undirbúa okkur undir hryðjuverkaöldu. Þetta ávarp eru sterk skilaboð í þá átt.
Hatur bin Laden á vesturveldunum hefur verið til staðar árum saman - það var komið til löngu áður en George W. Bush varð forseti Bandaríkjanna, hvað þá ríkisstjóri í Texas og kjör nýs forseta þar á næstu mánuðum breytir varla miklu í þessum efnum. Ógnin sem hann boðar er alþjóðleg og snýr ekkert síður að okkur á Norðurlöndum en öðrum, eins og þetta hatursávarp til Evrópu boðar.
![]() |
Bin Laden hótar Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2008 | 21:17
Táknrænn sigur - breska pressan gekk of langt

Mér fannst allt frá upphafi það vera of ótrúlegt til að vera satt að McCann-hjónin gætu banað dóttur sinni - til þess að fullyrðingarnar gætu gengið upp hefðu þau þurft að bíða í margar vikur með að fela lík dóttur sinnar, í miðju þess fjölmiðlakapphlaups sem þau voru í eftir hvarf Madeleine. Það var of líkt atriði úr fjarstæðukenndri hasarmynd en því sem á sér stað í raunveruleikanum.
Það er það versta við þetta mál að fjölmiðlar gangi of langt og reyni að búa til fréttir áður en alvöru staðfesting kemur á því sem sett er fram. Það virðist hafa verið hugsað um uppslátt í fyrstu frétt mun frekar en það sem sannara reynist í þessu tilfelli.
Fjölmiðlakapphlaupið í þessu máli hefur verið mikið frá fyrsta degi. En það réttlætir ekkert rangar fullyrðingar og þær árásir sem beint var að foreldrunum í bresku pressunni. Því er þessi afsökunarbeiðni mikilvæg og sterk skilaboð felast í því.
![]() |
Foreldrar Madeleine beðnir afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.3.2008 | 19:30
Siðariddarinn og háklassahóran

Það hefur eiginlega verið með ólíkindum hvað bandaríska pressan hefur gengið langt í að draga upp hinar ýmsu persónulegu staðreyndir um Ashley Alexöndru Dupre og síðan hennar á myspace varð eflaust sú vinsælasta í síðustu viku. Þetta var stelpa sem leiddist út í vændi vegna þess að henni vantaði peninga, hafði ekki peninga fyrir íbúð og nauðsynjavörum og ákvað að gera út á sig - hafði líka ansi gott út úr því.
Vildi verða fræg tónlistarkona og þráði athyglina. Hún fékk hana líka í massavís og sér ekki fyrir endann á því. Ætli að hún sjái samt ekki eftir kúnna númer níu þegar að hólminn kom, bæði að hafa tekið hann að sér og þjónustað með þeim afleiðingum að hún fékk frægðina sem hún þráði í vænum ofskammti.
![]() |
Vændiskonan missti af milljón dollurum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2008 | 16:05
Rússibanastemmning í Kauphöllinni

Þessi staða er auðvitað svakaleg. Við höfum enga stjórn yfir málum og sviptingarnar eru mjög miklar. Það er eins gott að páskafríið er að hefjast og fólk geti tónað sig niður yfir þessum áhyggjum.
En spurt er að leikslokum í þessari rússibanastemmningu, sem getur orðið hálfgerð rússnesk rúlletta ef fram heldur sem horfir.
![]() |
Miklar sveiflur í kauphöllinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2008 | 14:50
Umferðarslys og myndbirtingar
Það er gott að ekki sé birt mynd af vettvangi með þessari frétt. Ætla að vona að Netmogginn fari að hætta þessum viðkvæmu myndbirtingum sem oftar en ekki eru sem þungt högg fyrir aðstandendur, en þess eru dæmi að fólk hafi séð í gegnum slíkar myndbirtingar að ættingjar þeirra hafi lent í slysinu sem fjallað er um.
Hef skrifað nokkuð um þetta og fundist það mikilvægt. Mér finnst eitt að birta mynd af slysstaðnum ef til eru fyrir slysið eða þá að gera eins og sést með þessari frétt, þar sem mynd er birt sem getur sýnt lögregluljós og verið almenns eðlis en sýnir ekki aðstæður í nærmynd.
![]() |
Alvarlegt umferðarslys í Hafnarfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.3.2008 | 14:27
Obama að missa forskotið - slagurinn jafnast út

Obama skaðar sig enn meira með því að afneita ekki þessum klerki og reyna að veikum mætti að halda í böndin við hann, þegar að ljóst er að hvíta fólkið er mjög hugsi yfir málinu. Tapi Barack Obama útnefningarslagnum eða forsetakosningunum síðar meir verður þetta fíaskó með Wright talið örlagamálið sem gekk frá framboðinu. Þessar trúaráherslur sem boðaðar eru í fjölskyldusöfnuði Obama eru einfaldlega þess eðlis að efast er um grunn hans sem frambjóðanda.
Með því að afneita ekki klerkinum er hann í raun að skrifa upp á hann og rýrir trúverðugleika sinn í leiðinni. Það er líka merkilegt hversu lengi hann beið með að fordæma óverjandi ummæli Wright og sú bið stóð of lengi. Það sést á könnunum að Obama er að tapa stuðningi hvítra og margir hópar sem flykktust til hans eru í vafa. Þetta mál hefði orðið annað hefði fjölskylduklerkurinn ekki staðið jafn nærri rótum Obama og eiginkonu hans Michelle eins og raunin er. Þetta er skaðlegt mál sem grefur undan fylginu á viðkvæmustu stöðunum.
Það er eiginlega ómögulegt að segja til um hvernig að þetta fer að lokum. Eins og staðan er núna stefnir allt í að flokksþingið í Denver verði blóðugur bardagi um hvern einn og einasta þingfulltrúa. Það verður lítið stífelsisyfirbragð yfir þeirri samkundu og gæti orðið harkalegt pólitískt einvígi. Tel að Hillary muni vinna nokkuð góðan sigur í Pennsylvaníu og það gefur henni farmiða til að taka þennan slag alla leið. Obama getur þakkað fjölskylduklerkinum það ef að hann veikist meira í könnunum en orðið er.
Það er alveg ljóst að tíðindin um að ekki verði kosið aftur í Flórída boða það að hvorugur frambjóðandinn nái lágmarki þingfulltrúa til að hljóta útnefninguna í forkosningaferlinu. Það var reyndar í vafa með það fyrir, enda er þetta svo jafn slagur að fá dæmi eru um áratugum saman á þessum tímapunkti, síðla marsmánaðar.
John McCain er að græða stórlega á þessum hjaðningavígum. Á meðan að hann byggir baklandið fyrir átökin í nóvember logar Demókrataflokkurinn í hörðum átökum og ekki fyrirséð hvernig endar. En það er þó ljóst að staða Obama hefur veikst og spurt að leikslokum hvort að fjölskylduklerkurinn hafi grafið undan honum.
Hér má sjá hin frægu ummæli Jeremiah Wright - maðurinn er auðvitað snargalinn og mikil áhætta sem Obama tekur með því að afneita ekki þessum skaðvaldi.
![]() |
Forskot Obama að hverfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.3.2008 | 13:13
Það á að fella ríkisábyrgðina til ÍE úr gildi

Man mjög vel eftir deilunum vegna þessa máls fyrir sex árum. Það hljómaði sem óraunveruleikasaga að fjármálaráðherra og forystumenn Sjálfstæðisflokksins væru að taka slaginn um þessa vitleysu þá og það hefur ekki breyst síðan, er sennilega enn vitlausari hugmynd þá en nú. Það er því lag nú að fella ríkisábyrgðina úr gildi.
Mér fannst merkilegt að samhljómur yrði innan Sjálfstæðisflokksins um þessa vitleysu á sínum tíma en ég minni reyndar á að eini þingmaðurinn sem sýndi einhverja andstöðu við það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sem sat hjá. Það gagnrýndu sumir afstöðu hennar en hún var ábyrg og rétt enda yfirlýsing út af fyrir sig. Það voru vonbrigði að fleiri skyldu ekki hætta við að styðja ríkisábyrgðina.
Það verður áhugavert að sjá hvort að þeir sem leiddu þetta mál verði menn til þess að viðurkenna að þetta var rugl frá upphafi til enda.
![]() |
Ríkisábyrgð ÍE enn í gildi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |