Heimkoma Benazir Bhutto breytist í martröð

Benazir Bhutto Aðeins örfáum klukkustundum eftir að Benazir Bhutto sneri heim til Pakistans með tárin í augunum eftir áratug í útlegð hefur henni verið sýnt banatilræði. Heimkoma þessa eins öflugasta stjórnmálamanns í sögu Pakistans, fyrstu konunnar sem leiddi íslamskt ríki, hefur í einu vetfangi breyst í hreina martröð, enda liggja yfir hundrað manns í valnum á þessum blóðuga degi sem markar endurkomu Bhutto í pakistönsk stjórnmál.

Það mátti auðvitað búast við því að heimkoma Benazir kveikti ófriðarbál víða - hún er vinsæl meðal landsmanna en gríðarlega umdeild. Yfirvofandi þátttaka hennar í þingkosningunum stuðar marga. Strax heyrist orðrómur um að stjórnvöld standi að baki morðtilræðinu og varla er það undrunarefni að það sé álitið enda stóðu þeir sem nú ráða för í Pakistan að hinni grimmdarlegu aftöku á föður hennar, Zulfikar Ali Bhutto, fyrrum forseta og forsætisráðherra Pakistans, fyrir um þrem áratugum. Öll teikn eru því á lofti um að ógn vofi yfir.

Heimkoma Benazir hefur verið skipulögð á þessum degi í yfir mánuð og því hefur andstæðingum hennar gefist færi á að undirbúa tilræðið. Það voru þó eflaust flestir að vona að ekki kæmi til þessa. Þó að talað sé um samninga milli hennar og Musharraf er það meira í orði en á borði. Atburðir dagsins sýna að framundan eru erfiðar vikur í Pakistan og sér ekki enn fyrir endann á þeirri ólgu sem kallast fram með því að Benazir verður aftur sýnileg í pakistönskum stjórnmálum. Það er greinilegt að lykilöfl ætla sér ekki að deila völdum með henni og greinilega hitatímar framundan.

Fjarvera Benazir frá pakistönskum stjórnmálum hefur verið áberandi. Staða mála í dag sýnir hversu mjög fólk er hrætt við stöðu hennar og vill ekki að hún lifi í gegnum kosningabaráttuna sem framundan er. Öll spjót beinast að því að morðtilræðið sé ættað frá stjórnvöldum sem vilja ekki deila sviðsljósinu með Benazir.

Staðan er brothætt - fyrsti dagur hennar í heimalandinu eftir langa fjarveru endar í skugga morðtilræðis og væntanlega lifir hún í skugga þess að það endurtaki sig næstu vikurnar.

mbl.is 125 látnir í sprengjutilræðinu í Karachi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samstaða í Valhöll - Geir mætir á fund stjórnanna

Geir H. Haarde Full samstaða virðist vera meðal sjálfstæðismanna í Reykjavík eftir fund stjórna flokksfélaga í Valhöll í kvöld. Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, mætti sjálfur á fundinn til að tala máli Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, leiðtoga borgarstjórnarflokksins og fyrrum borgarstjóra í Reykjavík, en mikið hefur verið talað um hversu veik staða hans er vegna atburðarásar þess að flokkurinn missti völdin eftir 16 mánaða forystu í Reykjavík.

Það er auðvitað fyrir öllu að flokksfélögin í borginni séu samstíga í verkum og litið verði fram á við í borgarmálunum en ekki aftur. Þetta er umfram allt mál sem verður að kryfja og fara yfir í innsta kjarna Sjálfstæðisflokksins til enda, þar má ekki láta neina lausa enda flækjast fyrir til lengri tíma litið. Þetta er sögulegt áfall fyrir flokkinn í borginni og í raun á landsvísu. Sjálfur hef ég talið þetta mesta áfall Sjálfstæðisflokksins frá endalokum þriggja flokka stjórnar Þorsteins Pálssonar fyrir tveim áratugum, mun verra áfall en sigur R-listans fyrir þrettán árum. Tel ég að flestir geti verið sammála um það mat innst inni.

Það er alveg ljóst að þetta mál er fyrst og fremst innsta kjarnans í höfuðborginni að vinna úr. Sá hópur verður að vega og meta hversu sterkur forystumaður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er eftir atburðarás síðustu 30 daga og taka að því loknu af skarið. Það er greinilegt að Geir hefur farið inn á fundinn með þann boðskap að standa beri vörð um Vilhjálm Þ. á þessum erfiðu tímum og virðist það vera niðurstaða fundarins. Það verður að ráðast svosem hverjir eftirmálar þess verði og hvort það verði niðurstaða sem teljist heilsteypt til lengri tíma litið.

Að mínu mati þarf fólk að vinna sig frá þessu erfiða máli og horfa fram á veginn með einum eða öðrum hætti. Það er mikilvægast að staða leiðtogans sé afdráttarlaus meðal flokksmanna, enginn vafi sé þar á málum. Það er alveg kristaltært að Vilhjálmur Þ. hefur veikst og hans bíður nú að vinna sér traust og kraft að nýju vilji hann halda áfram og telji formaður Sjálfstæðisflokksins það réttast í stöðunni eins og við blasir af innkomu hans á þennan fund lykiltrúnaðarmanna flokksins í borginni.

Það er langt í næstu borgarstjórnarkosningar - rúmir 30 mánuðir eru vissulega langur tími en þó ekki það langur að horfa verður fram til næstu kosninga. Í þeim efnum verður að hugleiða hvað sé best með heill og hag flokksins í huga. Leiðtoginn getur ekki verið laskaður á þeirri vegferð sem framundan er og mikilvægt að flokksmenn taki af skarið með hver sá leiðtogi eigi að vera.

Það dugar ekkert að klastra bara upp í sprungur með hagsmuni fárra einstaklinga í huga. Þar verður að hugsa um flokkinn og hvað getur styrkt hann mest og best.

mbl.is Geir H. Haarde mætti á fund Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skammlífri hjónabandssælu í Elysée-höll lokið

Cecilia og Nicolas Sarkozy Það kemur engum að óvörum að Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, og Cecilia Sarkozy séu að skilja. Það hefur verið ljóst allt frá kjöri forsetans í vor að hjónabandi þeirra væri í raun lokið og þátttökuleysi Ceciliu í forsetakosningunum fyrr á þessu ári voru sterk ábending í þá veru að ekki yrði hjónabandssælan í Elysée-höll langlíf - hún sást ekki þar og kjaftasagan sú að hún hafi ekki einu sinni kosið eiginmanninn, hafi ekki farið á kjörstað.

Þau skildu tímabundið meðan að Sarkozy var innanríkisráðherra og það hafði verið stirt þeirra á milli árum saman - kuldaleg samskiptin í sumar og haust í sviðsljósi forsetaembættisins verið mjög áberandi og augljóst að draga myndi til tíðinda. Enda hafa þau ekki sést saman síðan í júlí. Mesta athygli vakti þetta þegar að Cecilia þáði ekki heimboð Bush-hjónanna til Maine er Sarkozy forseti átti leið um Bandaríkin í heimsókn sem markaði upphaf þíðu milli Bandaríkjanna og Frakklands eftir að Jacques Chirac flutti úr Elysée-höll. Fjarvera Ceciliu Sarkozy var æpandi áberandi.

Þó að hjónabandssæla forsetans hafi verið skammlíf í Elysée-höll verður seint sagt að hann hafi átt í erfiðleikum í þessu valdamikla embætti frá því að hann tók við völdum í maíbyrjun eftir afgerandi kosningasigur. Nicolas Sarkozy hefur notið mikils stuðnings, hins mesta sem nýkjörinn franskur forseti frá valdadögum Charles De Gaulle fyrir hálfri öld og ennfremur nýtur stjórn hans, undir forsæti Francois Fillon, náins pólitísks samstarfsmanns hans í áraraðir, umtalsverðs stuðnings landsmanna. Í júní náði hann sigri ennfremur í þingkosningum og fékk afgerandi umboð til verka frá frönsku þjóðinni.

Eftir innan við hálft ár á forsetastóli í Frakklandi er Nicolas Sarkozy orðinn einn á forsetavakt. Cecilia Sarkozy hefur sagt skilið við embættið sem hún vildi aldrei tilheyra. Hún sagðist alla tíð aldrei munu geta fetað í fótspor Bernadette Chirac - gæti aldrei orðið hin eina sanna forsetafrú Frakka og vildi það hreinlega ekki. Nú er Sarkozy einn eftir í Elysée-höll. Væntanlega munu slúðurblöðin bollaleggja vel á næstunni hversu lengi Sarkozy verði einsetumaður í höllu sinni.

mbl.is Skilnaður Sarkozy-hjónanna staðfestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Notalegt morgunspjall hjá Gesti og Hrafnhildi

Hrafnhildur og Gestur Einar Það var mjög notalegt að fara til Gests Einars og Hrafnhildar klukkan hálf átta í morgun á Rás 2 og rabba þar við þau um bloggheimana. Gaman að fá sér kaffi þar og fara í rólegheitunum yfir þessi mál með þeim. Þetta var gaman, enda fórum við yfir svo breitt svið, allt mögulegt og það var hlegið dátt og talað um allar áttir bloggheimanna; það sem er að gerast í umræðunni, pólitíkina og margt fleira. Þátturinn þeirra Gests Einars og Hrafnhildar er léttur og hress - það er því ekki hægt annað en njóta þess að mæta til þeirra og tala á mannlegu nótunum.

Það er vonandi að einhverjir hafi haft gaman af þessu. Naut þessa allavega mjög. Við Gestur Einar ræddum vel fyrir og eftir viðtalið og það var ánægjulegt að fá sér kaffibolla og tala vítt og breitt um þetta. Sérstaklega var rætt um landsleikinn í gær (skelfileg úrslit það) og pólitíkina í borginni, sem er sannarlega mál málanna. Var sérstaklega spurt mig að því hvort að það sé auðvelt að vera með mjög opinská skrif, beittur í greiningu. Finnst mér það ekki mikið vandamál, hér er talað hreint út og þar er litið bæði inn í minn flokk eins og alla aðra.

Hefði annars aldrei órað fyrir því þegar að ég byrjaði að blogga í september 2002 að ég ætti eftir að enda í viðtali sem einhvers konar hugsuður og sérfræðingur í bloggmálum! Þetta er í annað skiptið á þessu ári sem ég mæti til Gests Einars og Hrafnhildar, gagngert til að ræða bloggið. Ég fer ekkert leynt með það að ég er mjög ástfanginn af blogginu og því sem gerist þar. Hreifst af þessum vettvangi allt frá fyrsta degi og hef verið háður honum síðan.

Vona að aðrir hafi haft gaman af viðtalinu. Þetta var allavega notaleg og góð morgunstund.

Bloggviðtal við SFS - 181007

Besti vinur aðal fylgir Degi í Ráðhúsið

Guðmundur Steingrímsson Það kemur engum að óvörum að Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, hafi ráðið Guðmund Steingrímsson, varaþingmann, sem aðstoðarmann sinn. Hann er fornvinur hans úr pólitísku starfi og trúnaðarmaður til fjölda ára á ýmsum vettvangi, þeir voru í forystusveit Röskvu saman á háskólaárunum og vinna saman innan Samfylkingarinnar. Auk þess er Dagur auðvitað ævisagnaritari föður hans, Steingríms Hermannssonar, fyrrum forsætisráðherra. Val Steingríms á ævisagnaritara vakti athygli fyrir áratug, þrátt fyrir vinskap hans við soninn.

Ég vil annars óska Degi til hamingju með borgarstjórastöðuna. Þó að við séum ekki sammála um öll pólitísk mál finnst mér það vissulega mjög ánægjulegur áfangi að stjórnmálamaður á hans aldri sé orðinn borgarstjóri í Reykjavík. Dagur er yngsti borgarstjórinn frá tímum Davíðs Oddssonar, en hann var að mig minnir 34 ára er hann tók við borgarstjóraembættinu vorið 1982, en Dagur er 35 ára gamall.

Næstu mánuðir verða sannarlega eldskírn fyrir hinn unga borgarstjóra, enda fjögur ólík framboð í meirihluta og það verður erfiðara verkefni fyrir Dag að halda utan um hópinn en fyrir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að halda utan um R-listann í tæpan áratug, þar til að hún reyndar gat ekki lengur ráðið við það verkefni. Í svo erfiðum verkefnum skiptir eflaust máli að hafa traustan vin á kontórnum, besta vin aðal.

mbl.is Nýr aðstoðarmaður borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband