Myndbirtingar frá vettvangi bílslysa

Það er dapurlegt að heyra af enn einu banaslysinu í umferðinni á árinu. Það sem mér finnst jafnan einna sorglegast við fréttir af svo dapurlegum slysum er að sjá sjálfan vettvang slyssins í fjölmiðlum; myndir af bílflökum og aðrar þær sorglegu aðstæður sem þar jafnan birtast. Myndbirtingar af vettvangi umferðarslyss þjónar mjög litlum tilgangi, hef aldrei talið það skipta miklu máli að sýna bílflökin. Kannski er það ábending til annarra að svona geti farið í umferðinni, en fyrir þá sem tengjast hinum látnu er þetta særandi myndræn umgjörð um mikinn harmleik.

Veit ekki hvort það er einhver algild regla hjá fjölmiðlum í þessum efnum. Sumir fjölmiðlar eru þó meira áberandi í þessu en aðrir eflaust. Hef séð hjá þeim sumum að þeir birta aðeins staðsetningu slyssins á korti. Það er ágætis nálgun á það finnst mér. Þar sem ég hef sjálfur lent í bílslysi finnst mér alltaf mjög stingandi að sjá aðstæður annarra slysa, enda getur aðkoma að svona slysum verið virkilega sjokkerandi og vandséð hvaða erindi þær fréttamyndir eigi í fjölmiðla.

mbl.is Erlend kona á sextugsaldri lést í bílslysinu í gærkvöldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsti vetrardagur - boðið upp á kjötsúpu

Íslensk kjötsúpa Þá er kominn vetur. Haustið liðið og sannarlega sumarið líka, en það er þó óralangt síðan að því lauk í huga okkar flestra - skammdegið brátt skollið á, en styttist óðum í að við hugsum til jólanna og ljósanna fögru sem varpa birtu yfir myrkrið. Haustið hefur verið rysjótt en samt ekki fallið neinn snjór að ráði hér fyrir norðan. Vonandi verður þetta mildur og góður vetur.

Líst vel á þessa skemmtilegu nýju hefð þeirra í miðbæ Reykjavíkur; að bjóða vegfarendum upp á kjötsúpu. Það er fátt íslenskara en gamla góða kjötsúpan, hún yljar vel og sniðugt að hún sé á boðstólum á fyrsta vetrardegi. Held að þetta sé bara gert í Reykjavík, en mætti sannarlega hugsa um að gera það víðar um landið úti á götu, bjóða fólki upp á heita og góða súpu.

Það klikkar aldrei. Annars er þetta að aukast mjög að valdir séu dagar til að bjóða fólki upp á súpu eða veitingar. Dalvíkingar byrjuðu með þetta á fiskideginum, að bjóða upp á fisk og veitingar, síðan hafa Reykvíkingar boðið upp á vöfflur á menningardeginum og á Akureyrarvöku hafa verið veitingar í miðbænum hér. Þetta er sniðugt og myndar skemmtilega stemmningu.

mbl.is Kjötsúpan yljar á fyrsta vetrardegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er byggingahraðinn orðinn of mikill á Íslandi?

Nýbyggingar

Mér finnst alltaf verða meira áberandi í umræðunni hversu mikið gallar í húsbyggingum hefur aukist til muna. Oftast nær virðist um að kenna miklum hraða í byggingariðnaði og ónákvæmum vinnubrögðum, sérstaklega við meðferð steypunnar. Hef heyrt sögur af þessu víða að byggingarhraðinn sé kominn út úr öllu korti og eðlilegt að hugsa málin aðeins, staldra við og fara yfir stöðuna.

Það er gott að umræða hefst um þennan þátt mála og er orðinn áberandi í fjölmiðlum. Það er ekki langt síðan að talað var um Búsetahúsið hér á Akureyri í Naustahverfi sem byrjaði að síga og úr varð mikið og áberandi fjölmiðlamál. Þetta er fjarri því eina málið sem hefur vakið athygli og er svo komið að mál af þessu tagi eru ótalmörg og sum hafa ratað í fjölmiðlaumræðuna. Það er auðvitað mjög vont fyrir fólk að lenda í því að húsið sé illa gert vegna of mikils hraða og standa eftir með lélega fasteign sem erfitt er að losna við.

Það er vonandi að eitthvað verði hugsað um þessa þætti. Líklega er það eina sem fólk getur í svona málum að leita sér lögfræðiaðstoðar og sótt sinn rétt. Það er hörð og erfið barátta en taka verður á svona málum af hörku frá upphafi.


mbl.is „Þýðir ekkert að segja: ég er bara fúskari!"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband