29.10.2007 | 20:33
Skýr markmið hjá nýjum þjálfara
Það varð að stokka upp stöðuna og það skiptir máli að byggja á þeim tækifærum eru í stöðunni. Heilt yfir var orðið ljóst, og það fyrir nokkru, að agavandamál þjökuðu liðið, leikmenn voru ósáttir við stefnu liðsins, og engin stjórn var á málum. Það er óviðunandi hjá landsliðinu og varð að bæta úr. Sumir tala um sökin hafi verið hjá fleirum en Eyjólfi. Vel má vera kannski. En þjálfarinn stýrir fleyinu. Hann verður í frontinum að bera ábyrgð á að allt gangi.
Ólafur hefur verið sigursæll þjálfari. Eins og ég sagði um helgina var mikilvægast að horfa til þess að fá nýjan þjálfara með mikla reynslu. Ólafur hefur staðið sig í sínum verkum og öll berum við miklar væntingar til hans með framtíðina í huga. Hann talaði af ábyrgð og festu um verkefnin framundan í viðtali á Stöð 2 í kvöld. Leist vel á þann boðskap. Held að hann sé rétti maðurinn í stöðunni og vona að við getum byggt liðið upp til þeirrar stöðu sem við getum sætt okkur við.
![]() |
Ólafur Jóhannesson: Ég ræð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.10.2007 | 18:51
Vel gert hjá Nicolas Sarkozy
Það hefur aldrei farið framhjá nokkrum manni að Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, er skapmikill maður, hefur mikla pólitíska nærveru og talar af krafti um mál. Hann hefur sterka pólitíska stöðu fyrst og fremst útfrá þessum lykilþáttum sínum og er sem risi í frönskum stjórnmálum eftir forsetakjör sitt í vor og sigur samherja sinna í þingkosningum skömmu síðar. Hann er óhræddur við að láta finna fyrir sér og sýna skap sitt opinberlega.
Það sást vel er hann stóð upp í miðju viðtali við Lesley Stahl, fréttamann í einum virtasta fréttaskýringarþætti Bandaríkjanna, 60 mínútum á CBS, í Elysée-höll og gekk á dyr með orðin Au Revoir og Merci á vörunum er spurt var um einkalíf hans og hjónabandið við Cesiliu Sarkozy. Viðtalið var tekið nokkrum dögum áður en því lauk opinberlega, en þá höfðu kjaftasögur gengið vikum saman að þau væru að skilja, enda ekki sést saman opinberlega um langt skeið. Hefur hann ekki tjáð sig einu orði um skilnaðinn og vill ekki ræða einkalíf sitt.
Hann var því samkvæmur sjálfum sér í þessu viðtali og var ekki að hjala framan í pressuna sem vildi frekar tala um einkalífið en störf hans á forsetastóli. Þetta hlýtur að vera mjög mikil nýlunda fyrir CBS og um leið mikið áfall, enda lítur stöðin jafnan mjög stórt á sig og telur þáttinn sinn þann besta og einn stærsti aðall hennar að þar tali menn opinskátt um sig - og þar gangi menn ekki á dyr í viðtali. Enda var svipurinn á Stahl lýsandi um áhrifin sem þetta hafði á hana. Hún gapti.
Vel gert hjá Sarkozy, segi ég bara.
Tengd grein um Sarkozy
Skammlífri hjónabandssælu í Elysée-höll lokið
![]() |
Frakklandsforseti stóð upp og fór í miðju sjónvarpsviðtali |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2007 | 16:59
Aldarafmæli Gísla á Uppsölum

Gísli var alþýðumaður er lifði sem á 19. öld væri en í raun uppi á tækniáratugum seinni hluta 20. aldarinnar, tæknialdarinnar miklu. Gísli hafði misst af öllum þeim tækniþægindum sem okkur þótti þá sjálfsögð og þekkti ekki það sem nútíminn hafði innleitt. Ómar færði okkur þennan mann heim í stofu og kynnti okkur fyrir honum, þó með nærgætni og tilfinningu. Þar kom heim í gegnum sjónvarpið til okkar allra maður sem hafði ekki rafmagn, átti ekki nein nýtískuleg tæki og lifði fastur á fornum tímum.
Þessi Stikluþáttur er eftirminnilegur enn í dag og það liggur við að þeir sem sjá hann verði enn kjaftstopp. Gísli þekkti ekki Ómar er hann kom í heimsókn, las enn gömlu blöðin frá fjórða áratugnum, hafði aðeins einu sinni eða tvisvar farið úr Selárdal og lifði í eigin heimi. Samt var hann sáttur við sitt. Merkileg upplifun að sjá þennan þátt. Blessuð sé minning þessa heiðursmanns, sem sannarlega er og verður alla tíð einstakur í huga okkar allra.
![]() |
Öld liðin frá fæðingu Gísla á Uppsölum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.10.2007 | 13:26
Ólafur næsti landsliðsþjálfari - gott val hjá KSÍ

Staða íslenska landsliðsins í knattspyrnu er ekki beysin við þjálfaraskiptin. Að mörgu leyti er þar sviðin jörð eftir þjálfaraferil Eyjólfs. Liðið vann aðeins tvo leiki undir forystu hans og við stöndum vægast sagt mjög illa í riðlinum fyrir lokaleikinn gegn Dönum eftir nokkrar vikur. Hvernig svo sem sá leikur fer er öllum ljóst að þarna tekur nú við sannkallað uppbyggingarstarf. Það sást best í leikjunum við Letta og Liechtenstein. Mikið verkefni er framundan.
Nýr þjálfari þarf að byggja sterkan hóp til verkanna og umfram allt byggja upp móralinn í liðinu, sem virðist ekki hafa verið góður undir lokin á þjálfaraferli Eyjólfs Sverrissonar. Ólafur hefur nú rúm tvö ár til að gera það sem gera þarf og honum fylgja sannarlega góðar óskir.
Held að flestir hafi trú á Ólafi og hafi það sem til þarf til að snúa liðinu til betri vegar, byggja það upp til vegs og virðingar. Það er lykilatriði nú í þeirri vondu stöðu sem blasir við.
![]() |
Ólafur ráðinn landsliðsþjálfari í knattspyrnu til ársloka 2009 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2007 | 01:40
Ölvíman kemur í veg fyrir utanlandsferðina
Var reyndar einu sinni í flugstöð á Bretlandi fyrir nokkrum árum og þar tók ég einmitt eftir einum manni sem lá greinilega mjög vel áfengismareneraður á bekkjarunu í bið eftir flugvél. Hann var þó ekki dauður eins og við segjum en það varð að benda honum nokkuð vel á að vélin væri að fara, þegar að kallið kom. Og hann staulaðist um borð, náði að redda því en svaf hinsvegar hinu værasta á leið til Íslands. Hann missti sig ekkert í vélinni eða neitt svoleiðis og bar drykkjuna vel. Var ágætlega hress er Keflavík var í sjónmáli.
Held af lýsingum að dæma að þessi maður sem svaf af sér flugferðina frá Keflavík hafi ekki verið líklegur til að brosa framan í flugfreyjurnar í vélinni og sennilega best geymdur á fjarlægum stað að sofa úr sér gleðivímuna. En það er ekki á hverjum degi sem svona fréttir koma, sem betur fer segir maður bara.
![]() |
Svaf af sér utanlandsferðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.10.2007 | 00:44
Ljóstrað upp um litríka fortíð Leonardo DiCaprio

Leonardo er okkur vel þekktur. Hann varð Íslandsvinur á árinu meira að segja, þegar að hann fetaði í fótspor James Bond, í túlkun Roger Moore í A View To a Kill árið 1985 og Pierce Brosnan í Die Another Day árið 2002, í því að fara á Jökulsárlón. Ekki þó til að leika í kvikmynd, heldur í myndatöku fyrir glansritið Vanity Fair. DiCaprio er sannarlega mjög þekktur leikari. Hann hefur þó ungur sé verið tilnefndur þrisvar til óskarsverðlauna fyrir leik, síðast fyrir Blood Diamond á óskarsverðlaunahátíðinni fyrr á þessu ári. Hann var áður tilnefndur fyrir The Aviator og What´s Eating Gilbert Grape?
Þekktasta mynd DiCaprio er þó án nokkurs vafa Titanic, mynd um ástir og örlög á skipinu sögufræga sem sökk til botns fyrir tæpri öld. Mikil og stór mynd um sögu skipsins sem átti ekki að geta sokkið en sökk þó í jómfrúrferðinni sinni. Sú mynd sló í gegn á sínum tíma og er ein vinsælasta kvikmynd sögunnar. Hún verður tíu ára á þessu ári. Hún hlaut 14 óskarsverðaunatilnefningar og 11 verðlaun, sem er hið mesta í sögu verðlaunanna, jafnmikið og Ben-Hur hlaut áður, árið 1959, og The Lord of the Rings: The Return of the King, hlaut síðar, árið 2003. DiCaprio hlaut ekki einu sinni leiktilnefningu fyrir túlkun sína á Jack Dawson í myndinni, sem olli áralangri fýlu hans við akademíuna.
Vinsælasta mynd DiCaprio í seinni tíð hlýtur að teljast The Departed, kvikmynd leikstjórans Martin Scorsese, sem færði leikstjóranum langþráðan leikstjóraóskar og hlaut ennfremur óskarinn sem besta kvikmynd ársins 2006. DiCaprio sýndi góða takta en hlaut þó frekar leiktilnefningu fyrir Blood Diamond en hana, þó ég geti reyndar fullyrt að Blood Diamond sé úrvalsmynd. Flestir töldu að DiCaprio fengi leikaraóskarinn fyrir tveim árum fyrir túlkun sína á auðjöfrinum Howard Hughes í The Aviator en þá tapaði hann fyrir Jamie Foxx sem túlkaði Ray Charles með bravúr. Enn á hann því eftir að vinna þessi eftirsóttu verðlaun. Hann hefur nú gert þrjár myndir með Scorsese.
Hvort að hann þurfi að bíða jafnlengi eftir verðlaununum og uppáhaldsleikstjórinn hans, sem hefur gefið honum bestu leiktækifærin undanfarin ár, skal ósagt látið. En nú fer hann í sviðsljósið fyrir sveindóminn margfræga. Einhver mun eflaust spyrja hann hinnar sígildu og margtuggnu spurningar um hvenær hann hafi misst sveindóminn eftir þessa uppljóstrun.
![]() |
Var hreinn sveinn 17 ára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.10.2007 | 00:23
Verður Cristina hin nýja argentínska Evita Peron?

Er ekki undrunarefni að farið er að tala um Cristinu sem hina nýju Evitu og um leið Nestor Kirchner, fráfarandi forseta, sem hinn svokallaða Peron. Meira er það þó í gamni gert með hann, en það leikur enginn vafi á því að Cristina hefur heillað landsmenn í Argentínu upp úr skónum rétt eins og hin áhrifamikla Evita fyrir rúmri hálfri öld. Henni var gerð skil í kvikmyndum og söngleikjum. Hún varð ódauðleg í huga allra heimsbúa en fyrst og fremst íbúa Argentínu fyrir sitt framlag í sögu landsins við hlið Perons. Sama sjarma hefur hinn nýji forseti klárlega, eins og úrslitin sanna mjög vel.
Það er þó sannarlega margt ólíkt með Cristinu og fyrri kvenforseta, Isabel Peron. Isabel Martínez var næturklúbbadansmær í Panama er hún lenti í því athyglisverða hlutskipti að kynnast einum umdeildasta stjórnmálamanni S-Ameríku er hafði verið landflótta þá í áratugi. Í kjölfar þess varð hún fyrsta konan á forsetastóli í heiminum. Þetta er lygileg saga og mjög athyglisverð, hvernig sem á hana er litið. En þrátt fyrir það allt varð Isabel Martinez önnur kona, bæði í heimssögunni og í huga íbúa Argentínu fyrir það að kynnast Juan Peron. Hún sneri með honum úr útlegð árið 1973 og var við hlið hans til hinstu stundar.
Juan Peron hafði öðlast sess í sögunni sem forseti Argentínu fyrr á árum. Hann var orðinn gamall og slitinn maður er hann reyndi aftur að komast til Argentínu og á gamals aldri varð hann aftur forseti landsins árið 1973. Ekki aðeins var hún 35 árum yngri en hann, heldur með aðra fortíð en Evita. Juan Peron gerði næturklúbbadansmeyna, hina pólitískt algjörlega óreyndu, að varaforseta. Með því varð hún ein valdamesta konan í heiminum. Hann gerði hana ódauðlega í huga allra heimsbúa. En hún varð ekki ódauðleg með sama hætti og hin þokkafulla Evita. Þær voru sannarlega ekki úr sama efniviði.
Það kom enn betur í ljós í ágúst 1974 er Juan Peron dó, farinn að heilsu og kröftum. Eftir stóð hin óreynda næturklúbbadansmær sem fyrsti kvenforseti heimsins. Hún tók erfitt hlutskipti í arf eftir mann sinn er hann skildi við. Það varð henni um megn. Árið 1976 steypti herinn henni af stóli og hún flúði landið sem var eiginmanni hennar allt. Þrem áratugum síðar var hún handtekin í útlegð á Spáni, þar sem hún hefur dvalið frá árinu 1981. Saga hennar er mjög merkileg, en það eru litlar líkur á að þessar tvær konur verði samferða meira en svo að hafa náð þessu forsetaembætti, þó með ólíkum hætti.
Cristina fer nú úr hlutverki forsetafrúar og hefur hlutverkaskipti við eiginmanninn. Það verður áhugavert að fylgjast með verkum hennar á valdastóli eftir þetta öfluga kjör, strax í fyrstu umferð.
![]() |
Cristina Fernandez kjörin forseti Argentínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |