Verður Cristina hin nýja argentínska Evita Peron?

Cristina Fernández de Kirchner Cristina Fernandez de Kirchner, forsetafrú Argentínu, hefur verið kjörin forseti Argentínu, fyrst kvenna í lýðræðislegri kosningu. Hún er þó ekki fyrsti kvenforseti Argentínu, enda var Isabel Peron, forseti Argentínu á áttunda áratugnum. Hún varð fyrsti kvenforseti heimsins og sat við völd á Argentínu árin 1974-1976, en hún varð forseti við lát eiginmanns síns, hins umdeilda Juan Domingo Peron, sem tvívegis varð forseti Argentínu, í fyrra skiptið við hlið hinnar áhrifamiklu Evitu, eiginkonu sinnar, og síðar við hlið Isabel.

Er ekki undrunarefni að farið er að tala um Cristinu sem hina nýju Evitu og um leið Nestor Kirchner, fráfarandi forseta, sem hinn svokallaða Peron. Meira er það þó í gamni gert með hann, en það leikur enginn vafi á því að Cristina hefur heillað landsmenn í Argentínu upp úr skónum rétt eins og hin áhrifamikla Evita fyrir rúmri hálfri öld. Henni var gerð skil í kvikmyndum og söngleikjum. Hún varð ódauðleg í huga allra heimsbúa en fyrst og fremst íbúa Argentínu fyrir sitt framlag í sögu landsins við hlið Perons. Sama sjarma hefur hinn nýji forseti klárlega, eins og úrslitin sanna mjög vel.

Það er þó sannarlega margt ólíkt með Cristinu og fyrri kvenforseta, Isabel Peron. Isabel Martínez var næturklúbbadansmær í Panama er hún lenti í því athyglisverða hlutskipti að kynnast einum umdeildasta stjórnmálamanni S-Ameríku er hafði verið landflótta þá í áratugi. Í kjölfar þess varð hún fyrsta konan á forsetastóli í heiminum. Þetta er lygileg saga og mjög athyglisverð, hvernig sem á hana er litið. En þrátt fyrir það allt varð Isabel Martinez önnur kona, bæði í heimssögunni og í huga íbúa Argentínu fyrir það að kynnast Juan Peron. Hún sneri með honum úr útlegð árið 1973 og var við hlið hans til hinstu stundar.

Juan Peron hafði öðlast sess í sögunni sem forseti Argentínu fyrr á árum. Hann var orðinn gamall og slitinn maður er hann reyndi aftur að komast til Argentínu og á gamals aldri varð hann aftur forseti landsins árið 1973. Ekki aðeins var hún 35 árum yngri en hann, heldur með aðra fortíð en Evita. Juan Peron gerði næturklúbbadansmeyna, hina pólitískt algjörlega óreyndu, að varaforseta. Með því varð hún ein valdamesta konan í heiminum. Hann gerði hana ódauðlega í huga allra heimsbúa. En hún varð ekki ódauðleg með sama hætti og hin þokkafulla Evita. Þær voru sannarlega ekki úr sama efniviði.

Það kom enn betur í ljós í ágúst 1974 er Juan Peron dó, farinn að heilsu og kröftum. Eftir stóð hin óreynda næturklúbbadansmær sem fyrsti kvenforseti heimsins. Hún tók erfitt hlutskipti í arf eftir mann sinn er hann skildi við. Það varð henni um megn. Árið 1976 steypti herinn henni af stóli og hún flúði landið sem var eiginmanni hennar allt. Þrem áratugum síðar var hún handtekin í útlegð á Spáni, þar sem hún hefur dvalið frá árinu 1981. Saga hennar er mjög merkileg, en það eru litlar líkur á að þessar tvær konur verði samferða meira en svo að hafa náð þessu forsetaembætti, þó með ólíkum hætti.

Cristina fer nú úr hlutverki forsetafrúar og hefur hlutverkaskipti við eiginmanninn. Það verður áhugavert að fylgjast með verkum hennar á valdastóli eftir þetta öfluga kjör, strax í fyrstu umferð.

mbl.is Cristina Fernandez kjörin forseti Argentínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Olafur Alexander Lúkas Alvaro

Vigdís forsetti var fyrssti kvenforsettinn í heiminum

Olafur Alexander Lúkas Alvaro, 29.10.2007 kl. 03:00

2 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Vigdís var fyrsti lýðræðislega kjörni kvenforsetinn í heiminum. En Isabel Peron var fyrsta konan á forsetastóli. Hún var fyrst varaforseti Argentínu en varð forseti við lát eiginmanns síns. Hún var aldrei lýðræðislega kjörin sem forseti beint.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 29.10.2007 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband