Guðný verðlaunuð - Veðramót rassskellt

Guðný Halldórsdóttir Það er skemmtileg tilviljun að Guðný Halldórsdóttir fái bjartsýnisverðlaun Alcan innan við sólarhring eftir að frábær kvikmynd hennar, Veðramót, fékk algjöra rassskellingu hjá íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni á Edduverðlaununum. Sjálf talar Guðný um rassskellingu í fréttum í dag og er greinilega sár yfir því að myndin fékk ekki fleiri verðlaun en ein. Skil ég það mat mjög vel.

Fannst mér mjög undarlegt að myndin, sem var gríðarlega vel gerð, hafi ekki fengið fleiri verðlaun. Sérstaklega fannst mér áberandi þar að Hera Hilmarsdóttir fékk ekki leikkonuverðlaunin fyrir sannkallaðan leiksigur í hlutverki Dísu. Fyrirfram taldi ég felast í ellefu tilnefningum Veðramóta að myndin yrði sigursæl, enda með fimm tilnefningar umfram Foreldra. Annars voru tilnefningarnar undarlegar, enda fékk t.d. Astrópía aðeins tilnefningu fyrir leikstjórn. Ekkert samræmi í þessu vali.

Guðný Halldórsdóttir hefur gert ólíkar kvikmyndir á sínum ferli; Ungfrúin góða og húsið og Veðramót eru hennar bestu verk á meðan að flestir vilja gleyma t.d. Stellu í framboði. Stella í orlofi var hennar hugmyndaverk og það var vel heppnað, enda myndin ein hinna bestu í gríndeildinni síðustu áratugina og klikkar aldrei. Það var því mjög ánægjulegt að kaupa hana á DVD og upplifa aftur þar sem spólan með myndinni var orðin þrælslitin af ofnotkun. Hinsvegar fannst mér hún ekki verðskulda þá niðurlægingu sem fólst í Edduverðlaununum í gær þar sem hún var algjörlega sniðgengin.

Óska Guðnýju til hamingju með bjartsýnisverðlaunin - um leið finnst mér rétt að taka undir það mat hennar að almenningur var hrifnari af Veðramótum en bransinn.

mbl.is Guðný Halldórsdóttir fékk bjartsýnisverðlaunin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórfréttir úr hinum vestræna heimi

Stundum kemur það fyrir að ég efist um fréttamat mbl.is. Eitt þeirra skipta var áðan þegar að ég las þessa annars sorglegu frétt af dauða móður tónlistarmannsins Kanye West. Ekki það að hann sé lélegur músíkant eða söngvari heldur að ég tel að fréttir af fjölskyldulífi hans hafi litla þýðingu fyrir íslenskt samfélag. Það er alltaf sorglegt þegar að fólk deyr en í þessu tilfelli væri nær að láta það fylgja sem moli í annarri frétt eða eitthvað svoleiðis.

Mér finnst oft spes að lesa þessar erlendu samfélagsfréttir. Þær birtast okkur sem stórfréttir utan úr heimi, en eru í raun sá moli sem þeim er ætlaður að vera. Það væri nú skemmtilegt ef þessir molar fengju bara að dekka bandarískan veruleika en ekki endilega okkar. Af hverju getur mbl.is ekki bara fært okkur fréttir af líðan mæðra íslenskra tónlistarmanna? Þegar að stórt er spurt verður oft því færra um svör.


mbl.is Móðir Kanye West látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Körfuboltastarfsmaður missir þrjá fingur í Ísrael

Körfubolti Það er alveg rosalegt að lesa fréttina um körfuboltaslysið í Ísrael. Það er ekki á hverjum degi sem slys af þessu tagi gerist á íþróttaleik. Það er rosalegt að missa heila þrjá fingur með þessum hætti. Það er ekki nema von að yfirmenn körfuboltamála í landinu vilji komast að því hvort þetta var slys eða viljaverk. Það er vonandi að enginn sé svo illa innrættur að gera öðru fólki viljandi skráveifu af þessu tagi.

Annars finnst mér heilt yfir harkan í íþróttum vera að aukast. Íþróttamenn eru vissulega alltaf í þeirri stöðu að geta slasast í miðjum leiknum. Enda eru íþróttamenn jafnan vel tryggðir og passað upp á heilsu þeirra og allan aðbúnað. Hinsvegar er hitinn í stuðningsmönnum að aukast alltaf. Hef tekið eftir þessu hérna heima, nægir þar að rifja upp frægan leik ÍA og Keflavíkur í boltanum í sumar, þar sem lá við handalögmálum.

Íþróttir eiga að vera skemmtilegar og drengilegt yfir þeim í hvívetna. Það á að vera grunnur þeirra að tekist sé drengilega á og svo takist menn í hendur að því loknu, sætti sig við hver vann og hver tapaði.

En aumingja maðurinn þarna í Ísrael. Vonandi geta þeir komist að því hvað gerðist þarna.

mbl.is Missti þrjá fingur á körfuboltaleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjú ár frá andláti Yasser Arafat

Mahmoud Abbas í skugga Yasser Arafat Í gær voru þrjú ár liðin frá andláti Yasser Arafat. Á þessum þrem árum hefur Palestína færst mörg ár til baka, sumir segja allt aftur á upphafspunkt á baráttuárum Arafats. Palestínska heimastjórnin er í molum og á svæðinu ríkir algjör glundroði og stjórnleysi. Harðvítugir bardagar hafa verið á árinu á milli meginpólanna á svæðinu: Hamas og Fatah, sem barist hafa um völdin eftir óvæntan kosnignasigur Hamas fyrir tæpum tveim árum.

Þeim lauk með fullnaðarsigri Hamas á Gaza-ströndinni og þeir hertóku megnið af svæðinu. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, brá á það ráð að leysa upp palestínsku heimastjórnina og lýsa yfir neyðarástandi á Gaza-ströndinni. Vald forsetans var stórlega lamað með atburðarásinni á árinu en hann stjórnar í umboði sínu til fimm ára. Uppgjörið um framtíðina bíður betri tíma að því er virðist. Á meðan ræður hver valdablokkin sínum svæði og heldur um kjarnavöld sín þar.

Það er erfitt að sjá hvað er í raun eftir af palestínsku heimastjórninni nema sundurskotin eymdin ein. Palestína er á mestu krossgötum sínum allt frá upphafsárum baráttu Arafats. Það hefði fáum órað fyrir því fyrir ellefu árum er Arafat var kjörinn forseti heimastjórnarinnar að svo skömmu síðar yrði allt í bál og brand. Arafat hlaut á sínum tíma friðarverðlaun Nóbels með Peres og Rabin vegna sögulegs friðarsamnings. Hann kostaði Rabin lífið en Peres varð á gamals aldri forseti Ísraels. Ekki hafði þó langur tími liðið þar allt var í bál og brand.

Það er mikil hætta á því að Hamas komi á íslömsku ríki á þessu svæði. Fari svo er útséð með að nokkuð vestrænt ríki vilji ljá máls á að tala máli Palestínu. Þegar hafa fjöldi aðila afturkallað aðstoð við svæðið og Bandaríkjastjórn mun að sjálfsögðu styðja Mahmoud Abbas út í rauðan dauðann, meðan að hans nýtur við sem forseta. Hamas er fylking af því tagi sem ekki er hægt að styðja og viðbúið að þau ríki sem hafa ljáð máls á að styðja Palestínu hrökklist frá verði þarna íslamskt ríki og ofbeldið grasseri af því tagi sem verið hefur.

Það verður fróðlegt að sjá hvað tekur við. Það sem eftir er af palestínsku heimastjórninni er þó ekki beysið og vandséð hvernig þar verði komið á stjórntæku ástandi í þessum glundroða öllum. Helstu átakalínur verða um hvernig forsetaembættið verði mannað á komandi árum. Kjörtímabili Abbas sem forseta lýkur eftir um tvö ár. Hann tilkynnti þegar í forsetakosningunum 2005 að hann myndi ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Baráttan um forsetaembættið verður hörð.

Yasser Arafat var umdeildur stjórnmálamaður en hinsvegar einn af þeim eftirminnilegustu síðustu áratugina. Ég fjallaði um hann í ítarlegum pistli er hann dó, í nóvember 2004.
mbl.is Þúsundir minnast Arafat á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ragnar sigurvegari Eddunnar - trompar Veðramót

ForeldrarÞað kom skemmtilega á óvart að Foreldrar, kvikmynd Ragnars Bragasonar, skyldi hljóta Edduna í kvöld. Fyrirfram voru flestir á því að Veðramót, sem hlaut ellefu tilnefningar, yrði sigurvegari kvöldsins. Hún hlaut þó aðeins ein verðlaun, fyrir glæsilega túlkun Jörundar Ragnarssonar á hinum misþroska Samma. Foreldrar tóku hinsvegar helstu verðlaunin. Fyrir ári töpuðu aðstandendur Foreldra slagnum á Eddunni fyrir Mýrinni, kvikmynd Baltasar Kormáks, eins og frægt er, svo sigurinn er sennilega sætur.

Foreldrar var auðvitað stórgóð mynd, vel gerð í alla staði og er vel að verðlaununum komin. Ragnar Bragason hlaut leikstjóraverðlaunin, sem hann hefur sannarlega unnið fyrir. Verð að viðurkenna að ég átti ekki von á að Ingvar E. Sigurðsson myndi hljóta aðalleikaraverðlaunin fyrir leik sinn í Foreldrum, taldi að Pétur Jóhann tæki verðlaunin. Ingvar vann þessi verðlaun líka í fyrra, þá fyrir túlkun sína á Erlendi í Mýrinni. Hefur hann unnið Edduna fyrir leik í aðalhlutverki fimm sinnum á innan við áratug, hvorki meira né minna.

Ennfremur varð mjög óvænt að Hera Hilmarsdóttir skyldi ekki hljóta Edduna fyrir leik í aðalhlutverki kvenna. Hún vann sannkallaðan leiksigur í hlutverki sínu í Veðramótum. Eflaust hefur unnið gegn henni að Tinna Hrafnsdóttir var tilnefnd fyrir leik í sömu mynd. Nanna Kristín Magnúsdóttir hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í Foreldrum. Það er vissulega verðskuldaður sigur, en engu að síður fannst mér súrt að Hera skyldi ekki vinna. Hún átti að mínu mati frábæra túlkun í Veðramótum. Jörundur var auðvitað frábær í hlutverki Samma í Veðramótum og kom ekkert annað til greina en að hann tæki þetta.

Næturvaktin hefur unnið hug og hjörtu landsmanna síðustu vikurnar. Fantagóðir og vel gerðir þættir, sem allir eru auðvitað að tala um. Það kemur því ekki að óvörum að þeir hafi verið valdir besta leikna efni ársins og besti sjónvarpsþátturinn, í símakosningu. Næturvaktin sýnir og sannar að hægt er að gera íslenskt efni vel og vonandi mun framleiðsla leikins íslensks efnis blómstra á næstu árum. Þess sjást þegar merki með Mannaveiðum, nýjum framhaldsþætti hjá Sjónvarpinu, og Pressu, sem verður á dagskrá Stöðvar 2 bráðlega.

Egill Helgason var valinn sjónvarpsmaður ársins. Egill á það sannarlega skilið, enda unnið bæði vel og af krafti í sjónvarpi árum saman - mikils metinn vegna verka sinna. Umfjöllun hans á netinu og í sjónvarpi hefur vakið athygli og allir fylgjast með hans sjónarhorni á málin. Kiljan hlaut svo auðvitað verðlaunin í sínum flokki. Egill hefur kennt okkur að það er hægt að gera góða þætti um bókmenntir. Hans þáttur er sá besti af þeim nýju og eru algjörlega ómissandi, fyrir bókafíkla sem og aðra. Vandaðir þættir á réttri leið.

Syndir feðranna var valin heimildarmynd ársins. Virkilega vel gerð mynd um viðkvæmt efni - einfaldlega langbest í sínum flokki. Það hefur aldrei gerst áður að tveir tilnefndir hafi deilt verðlaunum saman. En það gerðist í flokki frétta- og viðtalsþátta þar sem Kompás og Út og suður unnu. Það var vandræðalegt að vissu marki að sjá fulltrúa þáttanna deila sviðinu líka en báðir verðskulduðu þessir þættir þó verðlaunin. Fulltrúar beggja þáttanna eru að gera það sem gera best í sjónvarpi.

Það kom skemmtilega á óvart að Gettu betur hlyti loks verðlaun. Þau á þátturinn skilið. Hann hefur verið í loftinu í yfir tvo áratugi en aldrei unnið neitt. Þau verðlaun á fyrst og fremst Andrés Indriðason, eins og Simmi sagði. Hann hefur fóstrað þáttinn alla tíð og hlúð vel að honum. Svo var ánægjulegt að sjá Árna Pál Jóhannesson vinna verðlaun fyrir gott verk í Kaldri slóð og hljóta um leið heiðursverðlaunin.

Fannst Eddan hinsvegar frekar slök í heildina þetta árið. Skipti oft milli stöðva í kvöld, aldrei þessu vant, fann mig ekki prógrammið í gegn í útsendingunni sem var í boði. Kynnirinn var gloppóttur og mér fannst hann ekkert fyndinn, hafi það átt að vera tilgangurinn. Fannst hinsvegar gaman af Lollu með einsmannsbandið sitt í settinu, sem gerði ágætis lukku.

Umgjörðin var semsagt slök. Það er ekki undrunarefni að farið sé að tala um Eddu Óskarsdóttur. Hinsvegar minnir hátíðin mig orðið æ meir á Golden Globe þó. Enn finnst mér við hæfi að kvarta yfir því að verðlaunað sé fyrir leik karla og kvenna saman í aukahlutverki. Vandræðalega mikið klúður. Annaðhvort á að gera þetta grande eða sleppa því.

Semsagt; Edda var gloppótt í kvöld heilt yfir, það væri við hæfi að stokka umgjörðina eitthvað upp. Ef á að hafa grín á að hafa það fyndið og alvöru, ekki viðvaningslegt blaður út í bláinn.


mbl.is Kvikmyndin Foreldrar fékk flest Edduverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband