13.11.2007 | 20:50
Danska stjórnin heldur velli - áfall kratanna

Helle var kjörin leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins í apríl 2005. Tók hún við forystu flokksins af Mogens Lykketoft, eftir að flokknum mistókst aðrar kosningarnar í röð að verða stærsti flokkur Danmerkur og hlaut vonda útreið í kosningunum 2005. Thorning-Schmidt er tengdadóttir Neil Kinnock, sem var leiðtogi breska Verkamannaflokksins í áratug, 1983-1992. Þessi úrslit eru sögulegt áfall fyrir danska krata, nú verða þeir næststærsti flokkur landsins þriðju kosningarnar í röð og virðast vera heillum horfnir.
Um leið er það mikil pólitískt afrek fyrir Anders Fogh Rasmussen að halda völdum og tryggja að Venstre sé stærsti flokkurinn á danska þinginu þriðju kosningarnar í röð, sérstaklega verður sigurinn sætur ef stjórnin heldur völdum eins og stefnir í. Það þótti sögulega merkilegt að Fogh og Venstre tryggðu stöðu sína í kosningunum 2005 en úrslitin nú hljóta að verða enn merkilegri og þess þá meiri áfall fyrir kratana. Eftir sex ára stjórnarandstöðuvist kratanna og þriðja tapið í röð hlýtur naflaskoðun að taka við hjá þeim.
Sigurvegarar kosninganna, fyrir utan stjórnarblokkina, eru auðvitað vinstrimennirnir í Socialisk Folkeparti (SF) sem virðist vera að ríflega tvöfalda þingmannatöluna sína. Radikale Venstre er að tapa stórt, tapar átta þingmönnum frá eftirminnilegum kosningasigri fyrir tæpum þrem árum. Dansk Folkeparti er að bæta sig um eitt þingsæti og Konservative stendur í stað með sína átján menn. Heilt yfir er áhugavert að sjá stöðuna. Enn er þó spurt að leikslokum, enda eftir að telja nokkuð enn. En staðan nú sýnir nokkuð vel að Fogh verður áfram við völd.
Úrslitin eru fyrst og fremst áfall Jafnaðarmannaflokksins. Eftir áralanga stjórnarandstöðu hljóta danskir kratar að vera áttavilltir yfir stöðu mála, varla er hægt að tala um annað en ósigur þeirra.
![]() |
Danska ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt kosningaspá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2007 | 17:54
Anders Fogh áfram forsætisráðherra

Það var áhætta hjá Fogh að boða til kosninga. Hann hefur áður þorað að taka áhættur á stjórnmálaferli sínum, boða til kosninga fyrir lok kjörtímabilsins. Sama gerði hann árið 2005. Þá hreinsaði hann loftið, kratar töpuðu styrk og Mogens Lykketoft datt upp fyrir í dönskum stjórnmálum.
Það sem mér finnst merkilegast við útgönguspárnar er hversu lítið kratar eru að bæta við sig í Danmörku. Þeir eru annaðhvort að tapa broti úr prósenti eða standa í staði. Það eru stórtíðindi, en kratar voru vanir að toppa og vera langstærsti flokkur landsins hér á árum áður. Það eru stórtíðindi fari svo sem spáð er að Venstre verði stærstur þriðju kosningarnar í röð.
Þetta verður spennandi kosningakvöld í Danmörku. Þó er Fogh að því er virðist með pálmann í höndunum. Helle Thorning Schmidt sem gat orðið fyrsti kvenforsætisráðherra Danmerkur þarf sennilega að bíta í það súra að missa af tækifærinu til að ná völdum en sennilega fær hún að leiða kratana aftur í gegnum kosningar.
![]() |
Útgönguspár benda til sigurs dönsku stjórnarflokkanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.11.2007 | 16:24
Hugsað til jóla - innkaupastríðið að hefjast

Það er svo margt sem er spennandi ein jólin en svo gleymd þau næstu. Muna ekki allir eftir fótanuddtækjunum? Eru ekki margir með þannig inni í geymslunni sinni. Markaðssetning jólanna er að verða ansi mikil. Þetta er allt komið á fullt löngu fyrir aðventu, kynningar verslana á því flottasta að þeirra mati og svona mætti lengi telja. Hef alltaf verið mikill áhugamaður um jólin og ég byrja að plana þau snemma ávallt á hverju ári. Til dæmis er það ævinlega þannig hjá mér að ég skrifa öll jólakort í nóvember, þá kaupi ég þær jólagjafir sem ég gef, ef nokkrar eru undanskildar og ég skipulegg allt.
Desember er mánuður rólegheita hjá mér. Það hefur nær alltaf verið þannig. Ég vil nota aðventuna til að slappa af og hafa það rólegt, njóta góðra laga og stemmningarinnar sem fylgir þessari miklu hátíð. Ég nenni ekki að eyða mánuðinum í því geðveikislega stressi sem fylgir búðunum í desember, því miður. Ég nenni ekki að taka þátt í því og nota því nóvember til að klára það sem mikilvægast er. Það er langbest, trúið mér bara. Annars er ég varla einn um þetta. Ég mun skrifa á öll jólakort sem ég sendi, sem er allnokkur slatti, sennilega í næstu viku og ætla að kaupa gjafirnar fljótlega.
Ég á afmæli í desember, tveim dögum fyrir jól, svo ég kannast við stressið sem fylgir því að eiga afmæli svo til í aðdraganda jólanna. Það vandist skemmtilega vel, en ég hef alltaf vanið mig á það að geta slappað af á þessum afmælisdegi og liggja ekki í búðarrandi. Á ekki við mig. Því er svo gott að geta klárað allt í nóvember og notað desember til hugleiðingar um gildi jólanna, en ekki standandi ergelsis í verslunum Baugsfeðga.
Þessi tími er mun meira virði en það, að mínu mati. Vonandi eigum við öll notalegan og ergelsislausan fyrripart desember framundan. Ég ætla allavega ekki að ergja mig í búðum á aðventunni og sérstaklega ekki eyða þorláksmessu hlaupandi í örvæntingu milli verslana eða morgni aðfangadags. Það á að nota nóvember í að klára svona hluti, að mestu.
![]() |
Jólagjöfin í ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.11.2007 | 14:20
Þorgerður Katrín friðar Hafnarstræti 98

Kaffihúsið Bláa kannan hefur verið rekin í París síðasta áratuginn og það er vinsæll áfangastaður fjöldamargra hér til að fá sér kaffibolla; hittast og taka spjall. Húsið öðlaðist með því nýtt líf eftir að hafa verið leikfangaverslun árum saman. Hamborg var miðstöð okkar sjálfstæðismanna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 2006 en varð síðar gert upp sem verslun 10-11 og hefur með því öðlast nýtt líf, en þar var sportverslun í áraraðir. Það er mikil sál í þessum húsum og jákvætt skref að tekin hafi verið ákvörðun um að vernda þessa götumynd sem tákn um byggingastíl síns tíma.
Ég held að örlög Hafnarstrætis 98 hafi verið endanlega ráðin þegar að teikningar urðu opinberar af því húsi sem byggja átti þar í staðinn. Það var með eindæmum ljótt, passaði engan veginn í götumyndina. Reyndar finnst mér kassalaga byggingar af því tagi sem boðað var að ætti að reisa á þessum reit lítt spennandi og hefði ekki viljað sjá þannig hús á þessum stað. Varð endanlega friðunarsinni við að sjá þá skelfingu. Þannig að ég fagna þessari niðurstöðu og vona að hún leiði til þess að fólk byggi húsið upp og hefji það aftur til vegs og virðingar.
Það hefur verið deilt um þetta hús svo lengi sem ég man eftir. Það hefur verið ljótt meginpart minnar ævi, man ekki eftir því nema sem lýti á miðbænum. Talað hefur verið um að rífa það árum saman. Samt hefur það aldrei verið gert. Nú er tækifæri til að endurbyggja það og ég vona að það gangi fljótt og vel að taka á þeim málum. Skipulagsyfirvöld hafa sofið lengi á verðinum hvað varðar þessi mál og eru áralangar hugmyndir að baki um að rífa húsið. Þó það hafi verið þyrnir í augum hefur það ekki verið gert.
Bæjarstjórn Akureyrar átti á fundi sínum í dag að taka fyrir samþykkt skipulagsnefndar að staðfesta niðurrif hússins. Menntamálaráðherra stoppar þetta mál af nú. Mér fannst orðið ljóst með ákvörðun Húsafriðunarnefndar fyrir nokkrum vikum að húsið yrði friðað, það yrði niðurstaða mála. Nú hefur verið kippt fótunum undan þeirri umræðu í bæjarstjórn og haldið verður með málið í aðrar áttir. Ég tel að þetta sé jákvætt skref og fagna því að kassalaga skrímsli var ekki byggt á þessum reit.
![]() |
Þrjú hús friðuð á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.11.2007 | 10:22
Ógeðslegt kynþáttahatur og árásir á forsetahjónin

Oft hefur verið skrifað gegn vissum einstaklingum í samfélaginu en aldrei af sömu óvirðingu og lágkúru og þarna er gert. Er erfitt að finna almennilega út hvað mörg lög eru brotin með þessari vefsíðu og boðskap hennar. Þetta er grófasta dæmið um kynþáttahatur hérna heima sem sést hefur lengi.
Það er vonandi að þeir sem standa að þessum ófögnuði verði að svara fyrir hann.
13.11.2007 | 00:39
Reykingar eru og verða umdeildar
Það eru ekki nýjar fréttir að reykingar séu umdeildar. Þó hefur mórallinn í þessu snúist við eftir að reykingabannið tók gildi í sumar. Nú eru reykingamenn fúlir yfir að fá ekki að reykja inni á skemmtistöðum á meðan að þeir reyklausu geta hrósað sigri, eftir að ergjan hafði verið á hinn veginn. Persónulega fannst mér það mjög gott að geta farið út að skemmta mér án þess að finna fyrir reyknum. En eflaust eru reykingamenn ósáttir með sína stöðu.
Það hefur verið hasar víða vegna þessara nýju reykingalaga hefur maður heyrt. Komið hefur til handalögmála og eflaust er fréttin sem Mogginn vísar á ekkert einsdæmi í þessum efnum. Eðlilegast er að þeir sem vilja reykja fari þó út til að stunda þá iðju. Það er þeirra val að reykja. Þoldi lengi vel ekki reykingastybbuna á skemmtistöðum, á þeim sumum var þetta gjörsamlega óþolandi. Á sumum þolanlegt en varla meira. Það eru mannréttindi fyrir reykingamenn að fá að reykja vilji þeir gera það, en það á ekki að vera á kostnað þeirra sem reykja ekki.
Reykingalögin hafa verið umdeild. Sumir hafa misst spón úr aski sínum vegna þess að reyknum var úthýst en aðrir gleðjast. Held að kaffihúsið Bláa kannan hér á Akureyri hafi verið eitt það fyrsta sem úthýsti reyk, þar hefur verið reyklaust frá fyrsta degi. Það var lúxus að koma þar og losna við reykinn hér fyrir nokkrum árum meðan að reykingastybban var órjúfanlegur hluti hinna. Hef þó heyrt ótrúlega lítið talað um afleiðingar þessa reykingabanns. Þetta fór yfir ótrúlega ljúflega og ég held að flestir séu sáttir.
En auðvitað harma reykingamenn sinn hlut og gráta í hljóði örlög sín. Skiljanlega.
![]() |
Sleginn í rot fyrir að reykja í dyragætt á krá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)