Skelfilegt slys

Slysið við Vík Það er sorglegt að heyra af slysinu við Vík í Mýrdal, en það er mildi hversu vel gekk að bjarga manninum sem var í bílnum miðað við allar aðstæður. Þarna sannast hvað við eigum góðar björgunarsveitir, vel æft fólk sem leggur á sig mikla vinnu við að bjarga fólki í háska. Aðstæður voru erfiðar í þessu tilfelli og sláandi alveg að sjá aðstæður á myndum í fréttum í kvöld.

Fyrir það fyrsta er erfitt að koma að svona slysi, enda geta mínútur ráðið úrslitum um hvort vel eða illa fari. Það er líka ekki hægt að leggja í svona björgun illa búinn og langbest að bíða eftir fagfólki. Vonandi mun manninum heilsast vel og ná góðri heilsu sem fyrst.

mbl.is Haldið sofandi í öndunarvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á ekki af aumingja Paul að ganga....

Paul McCartneyHeld að einn óheppnasti maður ársins hljóti að teljast Sir Paul McCartney, hinn fyrrum lánssami eðalBítill. Ekki aðeins er hann fastur í feni hjónabands með sannkölluðum kvendjöfli sem heimtar morðfjár af honum til að fá skilnaðinn í gegn heldur er hann í harðri forræðisdeilu við konuna. Nú eru skoðanir hans á refaveiðum heldur betur að elta hann uppi á viðkvæmum tíma.

Það eru eitthvað um 40 ár síðan að bítillinn Paul samdi og söng lagið When I´m 64. Lagið var um lífið er aldrinum væri náð og hugleiðingar um tilveruna. Fyrir skömmu náði hann sjálfur þessum merka áfanga að verða 64 ára. Það verður seint sagt að afmælisárið og misserin eftir það hafi verið markað af gleði og ánægju. Hans er helst minnst núna af harðvítugum skilnaðarátökum, forræðisdeilu, yfirráðum yfir peningum sínum og mannorðinu, sem konan ætlar að leggja í rúst.

Sérstaklega var sláandi að heyra að Heather kvendjöfull hefði tekið upp samtöl sín og bítilsins. Hún hefur hinsvegar verið að gera út af við sig með fáránlega absúrd fjölmiðlaframkomum. Hún kann varla að skammast sín einu sinni og líkir sér við dýrlinga og kvenhetjur og talar gegn þeim sem lifa fyrir peninga - á meðan berst hún fyrir allt að sex milljörðum úr búi bítilsins.

Jamm, aumingja Palli.


mbl.is Paul McCartney fékk ekki að lenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleymd hljómsveit og skjannahvít hörmung

Ég hélt satt best að segja að Take That væri búin að geispa golunni, hún er ein þeirra hljómsveita sem ég hef lítinn áhuga á. Þessir strákasöngflokkar eru orðnir ansi þreyttir, hverjir muna annars ekki eftir böndum á borð við Westlife (horror!) eða Boyzone og hvað þetta heitir annars allt. Skelfileg tónlist, segi ég og skrifa.

Er annars ekki sammála Howard Donald um kannabis-efni. Þau á ekki að lögleiða. Það eru fyndnustu rök Donalds annars að með því væri heimurinn betri, allir í vímu og hátt uppi. Rökin verða allavega ekki háfleygari.

mbl.is Take That í eiturlyfjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viljum við að löggan hér taki upp taser-byssur?

Taser-byssa
Þrír hafa látist á undanförnum vikum í Kanada eftir að þeir voru stuðaðir með taser-byssu. Þetta er sama vopn og íslenska lögreglan vill taka upp hérlendis. Mér finnst þessar fréttir af láti fólks sem hefur verið stuðað mjög sláandi, enda er þetta einum of mikið af dauðsföllum í einu vegna sömu aðstæðna til að útilokað verði að rafstuðbyssan leiki ekki lykilþátt í dauða þeirra.

Taser er að mínu mati mjög kuldalegt vopn, sem mér finnst æ oftar vera talað um að sé notað á fólk. Það er vopn sem mér finnst mjög ómannúðlegt. Tilhugsunin um að íslenska lögreglan fari að beita því á fólk sama hversu stór tilefnið sé á vettvangi finnst mér ekki góð og fær mig til að hugsa um á hvaða leið við erum eiginlega. Mér finnst það mannleg grimmd að beita þessu vopni og við hljótum að hugsa okkar við að sjá fréttir erlendis frá af dauða fólks sem hefur verið stuðað.

Það þarf að hugleiða mjög alvarlega hvort að íslenska lögreglan eigi að fá þetta vopn í hendur. Finnst það ekki gleðileg tilhugsun, fjarri því. Hvað segið þið - viljið þið að íslenska löggan sé vopnuð taser?


Íslendingar heppnir í riðladrættinum

Ólafur Jóhannesson Það er ekki hægt að segja annað en að Íslendingar hafi dottið í lukkupottinn í riðladrættinum vegna heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í Suður-Afríku eftir tæp þrjú ár. Getum verið vel sátt með okkar tel ég. Við erum í riðli með Noregi, Skotlandi, Makedóníu og Hollandi. Misjafnlega sterk lið en sannarlega áhugaverð keppni framundan.

Mikið hefur verið rætt um landsliðið síðustu dagana, eftir fyrsta landsleik Ólafs Jóhannessonar sem landsliðsþjálfara. Sitt sýndist hverjum með niðurstöðu mála eftir þann leik. Deilt er harkalega á KSÍ, með réttu, enda virðist forysta KSÍ vera úti á túni að mörgu leyti. Finnst gagnrýni formanns KSÍ t.d. gegn fjölmiðlum fáránleg - auðvitað taka fjölmiðlar slaginn með lélega stjórnun á liðinu, bæði hjá fyrrum þjálfara og knattspyrnusambandinu. Annað væri óeðlilegt. Þeir horfa í aðrar áttir en þeir þurfa. Framtíðarþróun fótboltans, lykilmarkmið þess sem gera þarf, er mjög á reiki. Það er vandamálið.

Allir eru sammála um að Ólafur Jóhannesson verður að fá sinn séns við að byggja liðið upp. Enginn bjóst við því að kraftaverk yrði unnið í liðinu á þrem fyrstu vikum Ólafs sem þjálfara. En nú hefst vinnuferli og vonandi mætir landsliðið sterkara til leiks að því loknu. Það verður áhugavert að fylgjast með HM-riðlinum sem dregið hefur verið í. Við getum verið vel sátt við riðilinn og fylgjumst með af áhuga. Lykilmál verkanna framundan er auðvitað að byggja landsliðið upp sem sigurvænlega sveit, ekki hóp manna sem virkar fyrirfram glataður, sem hefur æ oftar verið síðustu ár.

Það eru spennandi tímar framundan í boltanum og áhugavert að fylgjast með þeim leikjum sem framundan eru. Vonandi nær Óli Jó að byggja upp landslið sem við getum verið stolt af, lið sem getur gert vel - getur spilað til sigurs að mati landsmanna.

mbl.is Ísland með Hollandi og Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nauðaómerkilegur spuni Össurar

Össur SkarphéðinssonÞað er langt síðan að ómerkilegri pistill og ódýrari spunamennska um stjórnmál frá málsmetandi manni með áhrif hefur verið saminn en sá sem Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, ritaði í skjóli nætur fyrir tæpum sólarhring, laust fyrir klukkan tvö aðfararnótt laugardags. Það er mjög mikið undrunarefni að iðnaðarráðherra Samfylkingarinnar beini kastljósinu að Sjálfstæðisflokknum í REI-málinu nú. Flokkurinn fer ekki með völd í borgarmálum nú og heldur ekki á stjórnartaumunum í þeirri atburðarás sem nú fer fram.

Það eru öll teikn á lofti um það að félagshyggjumeirihlutinn í Reykjavík nái sér ekki saman um niðurstöðu mála. Hefur það annars komið fram að VG ætli sér að staðfesta orkuútrásina í óbreyttri mynd og færa stærstu mál REI til einkaaðila í GGE? Hefur ekki verið ágreiningur um áherslur málsins milli meirihlutaframboðanna fjögurra? Ég held það nú. Það er nauðaómerkileg pólitík hjá Össuri að ætla að beina svartapétri þessa máls til borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Það eina sem þau gerðu var að kalla eftir upplýsingum um málið, fá að vita meira en á kvöldfundi daginn fyrir milljarðasamruna, sem enginn stuðningur var á bakvið.

Ég fæ ekki betur séð en að skrif Össurar séu dapurleg tilraun til að beina kastljósinu annað. Þetta minnir á leikritið þar sem glæpur er framinn á sviðinu - til að enginn sé að horfa á glæpinn framinn á sviðinu hefur önnur leiktjáning verið sett fram á hinum enda sviðsins, svo að athyglin sé ekki á glæpnum. Þetta er allavega mitt álit á skrifum Össurar. Þau bera öll merki þess að reyna eigi að kenna öðrum um glötuð tækifæri og lélega stjórnun REI-málsins í nýjum meirihluta, en þeim sem hafa völd til að stjórna málinu.

Iðnaðarráðherrann er varla með réttu ráði ef hann ætlar að reyna að selja okkur þann spuna að valdalaust fólk ráði því hvernig málið endar að lokum. Þetta varð örlagamál, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins sleit meirihlutanum á því. Væntanlega var það gert til að geta fært málið í sinn farveg. Samt er sami borgarfulltrúi enn bloggandi og vælandi með þeim hætti að allt sé enn á vonarvöl og ekkert hafi farið eftir hans handriti. Hvað er að gerast í þessum meirihluta fyrst báðir valdsins menn flokkanna á bakvið hann skrifa með þessum hætti?

Það fer að koma að því að maður hugleiði hvort iðnaðarráðherrann sé að flippa út, bæði á blogginu og ekki síður á sviði stjórnmálanna. Þeir sem stýra för í Reykjavík ættu hinsvegar að hafa full völd á atburðarásinni og þurfa ekkert að beina svartapétri annað nema þá vegna þess að málið er þeim ofviða.


mbl.is Össur: Valdarán sexmenninganna skaðaði OR gríðarlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband