30.11.2007 | 23:37
Skelfilegt mál

Ég trúi því ekki að þetta atvik hafi farið framhjá þeim sem keyrði á strákinn. Finnst það mjög óraunverulegt að þetta hafi farið framhjá ökumanninum. Það getur varla annað verið en að þetta hafi verið nokkuð sem viðkomandi tók vel eftir. Bíllinn hlýtur að hafa dældast við höggið, það fer ekki framhjá neinum.
Finnst það mjög dapurlegt að fólk stingi af eftir að keyra á smábarn og skilja það eftir í sárum sínum. Það er dómgreindarbrestur af verstu sort. Það er eðlilegt að reiði séu fyrstu viðbrögðin, enda myndi allt eðlilegt fólk taka afleiðingum gjörða sinna.
![]() |
Allar vísbendingar kannaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.11.2007 | 18:56
Hverslags manneskja keyrir á barn og stingur af?
Það er dapurlegt að heyra að einhver hafi svo ógeðslegt hjartalag að stinga af eftir að keyra á fjögurra ára barn, en það gerðist þó síðdegis í dag í Reykjanesbæ. Finnst þetta mjög alvarlegt, enda á fólk að bera ábyrgð á gjörðum sínum og standa frammi fyrir því sem það gerir, en ekki sýna þann heigulshátt að láta sig hverfa og barnið liggja eftir stórslasað.
Slysin geta vissulega alltaf gerst, en mér finnst það svo innilega sorglegt að fyrsta hugsun fólks eftir slíkt slys sé að láta sig hverfa af vettvangi. Vonandi mun viðkomandi einstaklingur sjá að sér og taka ábyrgð á sínum verkum og gefa sig fram.
Ef marka má fréttir slasaðist strákurinn í Reykjanesbæ mjög alvarlega. Við færum honum og fjölskyldu öll innilegar batakveðjur.
![]() |
Ók á barn og stakk af |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 1.12.2007 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.11.2007 | 18:36
Eru herskáir nýnasistar að koma til Íslands?
Mér finnst persónuhatrið og ógeðið sem þrífst þarna undir nafnleynd fyrir neðan allar hellur. Það er ekki hægt annað en að undrast hversvegna fólk getur fyllst hatri af þessu tagi. Það á að vera lykilmál í því samfélagi sem við lifum í að fólk beri virðingu fyrir hvoru öðru og geti lifað í sátt og samlyndi. Hatur á fólki vegna kynþáttar er það alvarlegt mál að taka verður á því með öllum þeim brögðum sem til eru.
Aðdáun á nasisma af því tagi sem þarna sést vekur líka fjöldamargar spurningar. Það segir allt sem segja þarf að enginn vill taka ábyrgð á þessu efni. Það er annars engin furða að nafnleysi sé yfir skrifunum, enda vilja þeir sem að þessum boðskap standa væntanlega ekki fara í fangelsi eða svara til saka fyrir það.
Heilt yfir finnst mér nafnlaust ógeð vera að aukast á netinu. Það er alltof mikið af fólki sem skrifar ógeðslega um aðra, allt í skjóli nafnleyndar. Skoðanir sem myndu aldrei koma fram ef nafn fylgdi með. Það gildir sannarlega um það ógeð sem grasserar á þessari fyrrnefndu vefsíðu.
30.11.2007 | 17:33
Kárahnjúkavirkjun gangsett formlega

Það er ekki hægt annað en að nefna virkjunina eitt mesta pólitíska hitamál áratugarins, það stærsta ef fjölmiðlamálið er undanskilið, það varð umdeilt bæði á vettvangi stjórnmála sem og í samfélaginu. Tekist var á innan þings og í samfélaginu um málið á öllum stigum, meira að segja var deilt um Hálslón er örlög þess voru ráðin, en Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, staðfesti framkvæmdina þótt heitið væri á hann um annað.
Það leikur enginn vafi á því að þessi framkvæmd skiptir Austfirðinga miklu máli og finna má hversu mjög framkvæmdir á öllum stigum hafa styrkt Austurland allt, ekki síður Egilsstaði og nágrenni en Fjarðabyggð, en það er ekki hægt að líkja Reyðarfirði á þessum tíma saman við það sem var fyrir nokkrum árum, svo miklar hafa breytingarnar orðið á samfélaginu þar, til hins góða.
Vil óska Austfirðingum til hamingju á þessum degi. Það þurfti mikla baráttu til að tryggja framkvæmdirnar fyrir austan, baráttu sem var sannarlega vel þess virði.
![]() |
Ræs! sagði Össur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.11.2007 | 15:36
Dapurleg örlög klámstjörnu

Skrifaði ég aðeins um þetta í gærkvöldi, það er gott að þær tilgátur sem ég hugleiddi voru ekki ástæður morðsins. En það var ekki óeðlilegt að varpa þeim upp. Í Bandaríkjunum hafa verið framin morð sem tengjast klámi og t.d. hafa raðmorð verið framin á vændiskonum og klámstjörnum, svo að ekki var óvarlegt að íhuga þann möguleika. Virðist þetta fyrst og fremst vera harmleikur án tenginga í klámheiminn á netinu sem stelpan var í.
Lykilatriði í að leysa þetta mál var að finna líkið. Þrátt fyrir að sagt hafi verið að hið tvöfalda líf sé ekki lykilþáttur málsins eru margar spurningar enn til staðar. Vonandi fæst þeim svarað.
![]() |
Lík bandarískrar háskólastúdínu talið fundið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.11.2007 | 08:08
Ólafur F. snýr aftur með læknisvottorð á vasann
Hingað til hafa kjörnir fulltrúar haft umboð kjósenda í farteskinu í verkum sínum, sótt umboð í gegnum framboðslista sína sem kjósendur hafa kosið og til þess bær yfirvöld staðfesta að kosningum loknum með formlegum hætti. Annað þarf ekki að framvísa. Það hefur oft gerst að fólk taki sér leyfi frá störfum og svo snýr það bara aftur að eigin vilja, hvort sem leyfistímanum er lokið eður ei. Ólafur F. er kjörinn aðalfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur og ætti ekki að þurfa að sækja umboð til lækna um endurkomu sína. Umræðan um eðli veikinda Ólafs F. Magnússonar minnkar ekki við þetta læknisvottorð, þó það sé læknir sem framvísar vottorðinu.
Mér finnst þetta eiginlega frekar niðurlægjandi fyrir Ólaf hvernig sem á er litið og varla verður hægt að líta á veikindi hans sem eðlileg. Það hefur reyndar merkilega lítið verið rætt um þessi veikindi, miðað við að Ólafur er einn oddamanna þessa veikburða vinstrimeirihluta og hefur mikil örlög í sinni hendi sem þessi oddamaður. Það skiptir þó máli hvort hann geri það sjálfviljugur að afhenda vottorðið eða krafinn um það.
Fréttaflutningurinn finnst mér þó frekar gefa til kynna að sú krafa komi innan úr Ráðhúsinu, sé það rétt verður það óhjákvæmilega að spurningu um traust milli aðila. Hvar er þá Ólafur F. staddur? Er hann það illa á sig kominn að læknisvottorð sé ofar sett en umboð hans frá borgarbúum úr síðustu kosningum? Af hverju nægir það umboð ekki fyrir hann til að snúa aftur til verkanna sem honum voru falin í kosningum?
![]() |
Ólafur F. látinn skila vottorði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.11.2007 | 00:38
Móðir án titils - karaktersigrar Nicole
Það hefur jafnan verið svo að móðirin í lífi hvers einstaklings sé það sérstök að hún verðskuldi aðeins þann titil að vera móðir. Finnst jafnan mjög sérstakt og undarlegt þegar að fólk nefnir foreldra sína skírnarnafninu og lætur staðlaða titla mömmu og pabba lönd og leið. Þekki vissulega fólk sem hefur gert þetta og finnst það reyndar mjög spes. Mér myndi t.d. aldrei detta í hug að kalla mömmu öðru nafni en því.
Þetta er eðlilegra og sennilega mun algengara í þeim tilfellum að börn séu ættleidd. Þó hef ég marga þekkt sem kalla kjörforeldra sína mömmu og pabba, eiga enga aðra foreldra í huganum og myndu aldrei nefna þau öðrum nöfnum. Fannst hún skemmtilega sérstök þessi frétt um Nicole Kidman og börnin hennar tvö, sem hún ættleiddi með Tom Cruise. Hún hefur tvisvar misst fóstur, við upphaf og endi frægs sambands við Cruise, og er fertug ekki enn búin að eignast barn sjálf.
Þó að Nicole Kidman hafi ekki enn verið kölluð mamma í prívatlífinu og ekki eignast börn hefur hún leikið mömmu á hvíta tjaldinu, t.d. í The Others. Það er ekki hægt að segja annað en að Nicole sé ein af bestu leikkonum sinnar kynslóðar. Hún hefur verið þekkt fyrir að setja sig vel inn í karakter þeirra sem hún leikur og undirbúa sig mjög vel. Það eru að verða tveir áratugir síðan að Nicole Kidman komst á kortið sem leikkona. Það var í kvikmyndinni Dead Calm árið 1989. Hún er án nokkurs vafa ein sterkasta kvikmyndin frá Eyjaálfu í seinni tíma kvikmyndasögu, ef Piano, er undanskilin.
Hún var byggð á frægri sögu Charles Williams, sem segir frá hjónum sem verða vör við mannlausa skútu á leið sinni. Ævintýri þeirra verða mikil og að því kemur að þau verða að berjast fyrir lífi sínu í grimmri baráttu. Það voru aðeins þrír leikarar að heita má í myndinni; Kidman, Sam Neill og Billy Zane, og hún var í senn bæði spennandi og dulúðug, flott blanda. Eftir það náði hún á toppinn og fékk þau tækifæri sem allar leikkonur dreymir um að eignast. Hún lék á móti Tom Cruise árið eftir í Days of Thunder og eitt umtalaðasta ástarsamband seinni tíma kvikmyndasögu hófst.
Þau léku saman í tveim öðrum myndum næsta áratuginn; vesturfaramyndinni Far and Away og hinni erótísku Eyes Wide Shut, sem varð síðasta kvikmynd snillingsins Stanley Kubrick. Flestir töldu fjölmiðlavænt samband Tom Cruise og Nicole Kidman skothelt í gegn, enda á yfirborðinu sterkt. Það sprakk þó í loft upp með hvössum fjölmiðlayfirlýsingum árið 2001, ári eftir að þau brostu í gegnum tárin saman þegar að Tom Cruise tapaði óskarnum enn eina ferðina, þá fyrir Sir Michael Caine. Skömmu síðar missti hún barn en vann sig frá því með því að leika í kvikmyndum og lék í einum átta til tíu á mjög skömmum tíma á því tímabili.
Á þeim árum varð Nicole Kidman mun sterkari í bransanum en Tom Cruise, sem hefur sigið nokkuð, en Kidman tókst fyrir nokkrum árum að vinna óskarinn, fyrir leik sinn á Virginiu Woolf í The Hours (sjá klippu hér ofar), sem var markmið Cruise alla tíð. Hún var þó ekki þokkadísin mikla í myndinni sem færði henni eftirsóttustu kvikmyndaverðlaun heims. Kidman setti á sig stórt gervinef og var nær óþekkjanleg og með hárið litað svart, að hætti Virginiu. Rauða hárið hefur verið eitt helsta vörumerki Nicole Kidman. Það varð sennilega eftirminnilegast í kvikmyndinni Moulin Rouge, þar sem hún brilleraði í hlutverki þokkadísarinnar Satine.
Hún hefur náð að túlka sterka kvenkaraktera með bravúr og nægir þar að nefna Suzanne í To Die For, Isabel í Portrait of a Lady, Grace í The Others (sem er reyndar með allra bestu draugamyndum og fléttu í kvikmyndum seinni ára), Silviu í The Interpreter, Ada í Cold Mountain, Anna í Birth, Grace í Dogville að ógleymdri Nadiu í Birthday Girl. Nýlega fitaði hún sig talsvert fyrir túlkun sína á Hönnu í The Reader.
En þrátt fyrir alla leiksigrana hefur hún ekki enn orðið mamman með stóru M-i í einkalífinu þrátt fyrir að hafa verið mamma t.d. í The Others. Móðir án titils verður kannski það eina sem hún kynnist því hlutskipti.
![]() |
Neita að kalla Kidman mömmu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 00:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)