Áratugur frá andláti Díönu, prinsessu af Wales

Díana prinsessa af Wales Áratugur er liðinn frá því að Díana, prinsessa af Wales, fórst í hörmulegu bílslysi í París. Mikið hefur verið rætt og ritað um ævi og örlög Díönu prinsessu, bæði fyrir og eftir sviplegt andlát hennar. Óhætt er að fullyrða að hún hafi verið ein mest áberandi og myndaða kona 20. aldarinnar og sett svip sinn á samtíð sína með mjög miklum hætti. Hún var sannkölluð fjölmiðlastjarna sem skreytti bresku konungsfjölskylduna og var áberandi bæði fyrir og eftir að hún varð hluti hennar.

Díana heillaði allan almenning um leið og hún var kynnt fyrst fyrir fjölmiðlum fyrir 26 árum og var athyglisvert mótvægi við Karl, Bretaprins, sem hún giftist hinn 29. júlí 1981. Sögulega séð verður hennar sennilega helst minnst fyrir að hafa gifst ríkiserfingjanum og að vera móðir væntanlegs konungs Bretlands, Vilhjálms, Bretaprins. Brúðkaup Díönu og Karls í St. Paul's dómkirkjunni í London í júlí 1981 var á þeim tíma kallað brúðkaup aldarinnar. Hjónaband þeirra virtist í upphafi ætla að styrkja konungdæmið í Bretlandi og verða hamingjusamt. Eignuðust þau synina William og Harry á fyrri hluta níunda áratugarins. Brestir komu þó fljótt í hjónabandið og þau skildu að borði og sæng í desember 1992, 11 árum eftir giftinguna.

Lögskilnaður þeirra varð svo að veruleika í ágúst 1996 og hélt Díana titli sínum sem prinsessan af Wales, en ekki sem hátign. Díana, prinsessa, gerði grein fyrir sinni hlið fallandi hjónabands síns í frægri bók árið 1992. Á þeim tíma var ekki gefið upp að hún væri heimildarmaður bókarinnar en Andrew Morton ljóstraði loks formlega upp um það eftir lát hennar. Þó varð öllum ljóst að Díana sjálf hefði veitt viðtöl vegna bókarinnar og hún hafði leyft nánustu vinum sínum að tjá sig um hjónaband hennar og árin ellefu í hjónabandinu við Karl. Í bókinni kom fyrst fram opinberlega að Díana hefði verið haldin átröskunarsjúkdómnum búlimíu og jafnvel reynt að svipta sig lífi vegna þunglyndis.

Fyrir nokkrum árum voru fyrst birtar opinberlega hljóðupptökur af samtölum Díönu við Andrew Morton, ævisöguhöfund hennar, en samtölin voru hljóðrituð árið 1991, ári fyrir útgáfu bókarinnar. Árið 1995 tjáði hún sig svo opinberlega í fyrsta skipti um hjónabandið í viðtali í þættinum Panorama og lét ekkert eftir liggja í frásögnum. Bæði bókin og sjónvarpsviðtalið sýndi ævintýraprinsessuna í nýju ljósi. Á bakvið brosin og gleðina sem á yfirborðinu voru sýnileg í fjölmiðlum var eymd og sársauki. Þetta kom vel fram seinustu æviár hennar. Í raun má segja að uppljóstrun þessara þátta hafi sýnt Díönu í öðru ljósi og haft áhrif á það hvernig sagan metur hana.

Allir sem upplifðu sunnudaginn 31. ágúst 1997 muna eftir því hversu mjög andlát hennar kom á óvart. Segja má að flesta hafi sett hljóða við fregnina um dauða hennar. Það gerði ég allavega. Þó að ég hafi farið að sofa þessa nótt vitandi um slysið taldi ég að hún myndi hafa það af. Hún var lifandi táknmynd ferskleikans, talin mest verndaða kona heims þrátt fyrir breytta stöðu sína. Ekkert átti að geta hent hana. En það er ekkert öruggt í þessari tilveru. Fráfall hennar snerti marga. Það er sennilega best að segja sem svo að andlát hennar hafi sett mark sitt á almenning allan.

Um London var blómahafið ótrúlegt þennan dag og þá sem á eftir fylgdu, fólk kom með blóm í miðborg London við heimili hennar í Kensington-höll og við Buckingham-höll til minningar um hana, og sorgin var ólýsanleg. Vikan sem leið frá sviplegu fráfalli hennar til jarðarfararinnar var ólýsanlegur tími sorgar og hluttekningar almennra borgara í garð konu sem fallið hafði frá - konu sem flest þeirra höfðu aldrei talað við en töldu sig þekkja af kynnum sínum af henni í fjölmiðlum og í fjarlægð meðan hún var eiginkona ríkisarfa Bretlands og móðir væntanlegs konungs Bretlands. Og hún skók heilt konungsveldi eftir dauða sinn. Staða hennar varð staðfest heldur betur.

Í kvöld sýndi Ríkissjónvarpið ítarlega leikna heimildarmynd um síðustu vikurnar á ævi prinsessunnar. Virkilega vel gerð mynd og áhugaverð. Lýsir því sem tók við þá tvo mánuði sem hún lifði eftir síðasta afmælisdag sinn. Þar kom enn eitthvað nýtt fram sem varpar ljósi á hin sorglegu endalok. Hélt ég að það væri varla hægt lengur. Hef ég sennilega lesið yfir tíu bækur um þennan atburð, séð heimildarmyndir og lesið á netinu margt um dauða prinsessunnar og þáttaskilin sem fylgdu því, þegar að konungsfjölskyldan var sökuð um að sýna ekki sorg með áberandi hætti og drottningin var beygð er yfir lauk - þurfti m.a. að minnast prinsessunnar í sögulegu ávarpi.

Þetta voru svo sannarlega sögulegir tímar. Í myndinni fór Genevieve O'Reilly vel með hlutverk prinsessunnar og var sérstaklega áhugavert að heyra viðtölin inn á milli leiknu hlutanna. Heilt yfir var þetta ágætis sjónarhorn á þessa atburði, sem enn er skrifað svo mikið um og spáð í frá öllum sjónarhornum. Prinsessunnar var minnst í dag með látlausum en virðulegum hætti. Sess hennar er enn afgerandi, þó tímarnir hafi vissulega breyst. Ég sá myndklippur frá minningarathöfn um hana á Sky í kvöld. Þar flutti Harry prins þá einlægustu og fallegustu ræðu sem ég hef heyrt um prinsessuna - sönn og hjartnæm ræða.

Það er enn velt fyrir sér því hvað gerðist í París laust eftir miðnætti sunnudagsins 31. ágúst 1997 þegar að prinsessan og Dodi voru hundelt um göturnar og þar til að áreksturinn átti sér stað. Enn eru samsæriskenningar og vangaveltur að koma til sögunnar, enn fleiri sjónarhorn. Það heiðarlegasta sem fjölmiðlar myndu nú gera væri að láta málinu lokið. Fjölmiðlaprinsessan er öll, það er langt síðan. Þessu tímabili er lokið. Hún á það skilið að fá að hvíla í friði, þó hennar verði ávallt minnst þegar að nafn hennar ber á góma eða mynd hennar sést. Hún var einfaldlega það einstök.

mbl.is Lát Díönu ólýsanlegt áfall segir Harry prins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umdeild uppsögn Þóru Kristínar á Stöð 2

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Ég verð að viðurkenna að ég varð mjög hissa á uppsögn Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur af Stöð 2, sem opinberuð var fyrr í dag. Hún hlýtur að teljast mjög umdeild, enda um að ræða fréttamann sem verið hefur mjög áberandi í pólitískri umfjöllun stöðvarinnar. Það hefur mikið verið talað um að stöðin hafi veikst undanfarna mánuði með brotthvarfi öflugs fólks. Stutt er síðan að Brynhildur Ólafsdóttir ákvað t.d. að hætta og fór til Saga Capital og listinn er orðinn mjög langur.

Það virðist vera sem að persónulegar deilur hafi valdið þessari uppsögn, ekki það að fréttamaðurinn hafi brugðist. Ef marka má fréttina hefur Þóra Kristín ekki verið hlynnt því að upplýsingafulltrúi síðasta forsætisráðherra Framsóknarflokksins yrði fréttastjóri og er hún varla ein um þá skoðun. Heilt yfir tel ég Þóru Kristínu hafa verið öfluga í sínum störfum, þó vissulega sé hún dóttir fyrrum þingmanns Samfylkingarinnar og Alþýðubandalagsins. Það hefur aldrei litað hana í mínum augum og ég hef frekar metið reynslu hennar mikils en hitt.

Ég held að þessi uppsögn veiki enn frekar fréttastofu Stöðvar 2. Eins og Pétur Gunnarsson og fleiri menn með tengsl við nýja fréttastjórann hafa bent á hefur verið flótti af Stöð 2 og margir reyndir lykilfréttamenn þar horfið á braut. Nú er enn einn þeirra að hætta, hafandi verið vísað á dyr. Það vekur mikla athygli að vildarvinir fréttastjórans á Eyjunni hafa ekkert fjallað um uppsögn Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur. Fréttastjórinn sem rak Þóru Kristínu var lengi vel einn öflugasti bloggari landsins en virðist hættur því. Þar er ekkert skúbb í dag.

Það hefur mikið verið talað um framtíð fréttastofu Stöðvar 2. Margir töldu hana feiga í sumar. Svo fór þó ekki. Sigmundi Erni var þó hnikað til í óljós verkefni og Steingrímur Sævarr settur í staðinn. Það hlýtur að verða umdeilt yfir ferli hans og margir spyrja sig að því hvert fréttastofan stefni á komandi árum í kjölfar t.d. þessarar uppsagnar sem virðist vera persónulegs eðlis frekar en faglegs.

mbl.is Þóru Kristínu sagt upp á Stöð 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ellý læsir bloggsíðu sinni

Ég tók eftir því í gærkvöldi að Ellý Ármanns hefur lokað vefsíðu sinni - sett lás á hana og þarf nú að sækjast eftir lykilorði til að lesa vef Ellýjar. Þetta vekur athygli, enda hefur þetta verið ein vinsælasta vefsíðan á netinu undanfarna mánuði og hún náði metlesningu með vefinn hér í vor en síðan hefur þetta rokkað upp og niður. Rósrauðar sögur Ellýjar um ástina, klám, kynlíf og allt þar á milli hafa vakið athygli og sitt sýnist hverjum um þær. Sumum finnst gengið allt of langt á meðan að aðrir njóta þessara skrifa eflaust í botn.

Þessi vefsíða hefur aldrei stuðað mig eitthvað sérstaklega. Hef stundum litið þar inn. Sögurnar hennar Ellýjar hafa vissulega verið mjög misjafnar og vakið athygli fyrir að ganga ansi langt. Það var drjúgur lesendahópur sem sótti í þessi skrif og fannst gaman af þeim, meðan að öðrum fannst notalegt að pirra sig yfir þeim en gat þó ekki hætt að fylgjast með þeim, sem segir eflaust meira um aðdráttaraflið á síðuna frekar en margt annað í raun. Heilt yfir var þessi vefsíða nýtt og líflegt sjónarhorn á netið hérna heima.

Það er val fólks hvort að það les vefsíðu eður ei. Persónulega hef ég alltaf hætt að lesa síður sem mér finnst ekki varið í eða vil ekki lesa. Nógu langur er vefrúnturinn svosem fyrir og ekki vantar vefsíður sem vekja athygli á hverjum degi. Endalaust bætast við fleiri bloggarar. Þetta er misjafn hópur, hver skrifar með sínum hætti og hver kemur með nýja nálgun á umfjöllunarefnið sem skrifað er um. Sumir skrifa um lífið sitt, aðrir eru fræðilegir, sumir skrifa um fréttir og aðrir taka fyrir heitari mál; t.d. Ellý.

Það verður áhugavert að sjá hvort að Ellý ætlar að hafa lás á síðunni og hvort þetta sé hin nýja stefna. Þeir sem raunverulega vilji verði að sækja sér passa í rauðu veröldina. Má vera. Það sést þá sennilega best hverjir virkilega vilja lesa rósrauðar sögur með erótísku ívafi á borð við þær sem Ellý hefur orðið svo fræg fyrir.

FH styrkir stöðu sína - mun KR falla í haust?

Úr leik FH og KR Það er ekki hægt að segja annað en að leikur KR og FH í Hafnarfirði hafi markað meginlínur mun betur í úrvalsdeildinni en áður. FH burstaði KR og lék við hvern sinn fingur og Ásgeir var með þrennu - fyrra liðið komið með aðra höndina á bikarinn og hið seinna að síga aftur niður og horfist jafnvel í augu við fall úr úrvalsdeildinni. Það hlýtur að vera dimmt yfir vesturbænum á þessu kvöldi og vonir KR á að halda deildarsætinu minnka enn.

KR er í þeirri stöðu nú að spilað er upp á hvert stig. Þar eru eftir leikir við HK, Fram og Fylki. Kannski verður leikur KR og Fram síðla septembermánaðar leikur upp á hvort Reykjavíkurstórveldanna muni jafnvel falla. Hver veit. Mér finnst mjög merkilegt að svona skuli komið fyrir KR. Efniviðurinn var í lið sem myndi spila upp á titla en þrautaganga hefur það orðið í sumar. Nokkuð síðan að Teitur var rekinn frá klúbbnum og nú er það Loga að reyna að bjarga hlutunum.

Það mun kannski bjarga KR er á hólminn kemur að aðeins eitt lið falli, hver veit. En leikur kvöldsins sýndi vel andstæðurnar á liðunum, lánleysi KR og sigurþorsta FH. Enda sýnist mér að bikarinn fari enn eitt árið til Hafnarfjarðar. Vonir þeirra aukast altént við þetta. Nú er það næsta verkefni KR að fara til Kópavogs og spila við HK. Það ætti að verða áhugaverður leikur. HK vann KR fyrr í sumar með sögulegum hætti og eflaust vill Vesturbæjarveldið forna hefna þeirra ófara.

Staða KR er umhugsunarverð í boltanum núna. Þetta tap í kvöld sýnir vel hversu illa komið er fyrir liðinu og hversu hörð baráttan verður fyrir það á næstu vikum. Það er ekki nema von að fólk sé farið að spyrja sig hinnar stóru spurningar hvort KR muni falla í haust. Það verða svo sannarlega nöpur þáttaskil fyrir fornt íþróttaveldi verði það örlög þess á þessu boltasumri.

Boltinn hér á Akureyri.... jamm veit ekki hvað skal segja. Þvílík sorgarsaga. Bæði liðin okkar í tómu tjóni. Þór er með 16 stig og KA með 15 og næstneðst í fyrstu deild. Afleitt, gjörsamlega afleitt. KA spilar við Reyni í Sandgerði upp á hvort liðið falli á laugardag. Fjarri því það sem að var stefnt og Þór er á svipuðum slóðum. Vona að næsta sumar verði okkur betra hér.

mbl.is FH, Fylkir og ÍA höfðu sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband