1.9.2007 | 17:02
Krabbamein
Síðasti mánuður hefur verið fjölskyldu minni erfiður. Það eru nokkrar vikur liðnar síðan að móðir mín greindist með illkynja krabbamein. Við tók venjubundið ferli sem einkenndist af skurðaðgerð og að ná sér eftir það og ekki síður erfiður tími tekur brátt við sem einkennist af strangri lyfjameðferð. Það er ekki einstaklingsverkefni að taka þátt í slíku sjúkdómsferli. Slíkt er verkefni heillar fjölskyldu, enda eru veikindi af þessu tagi ekki eins að takast á við. Höfum við öll reynt að létta móður minni lífið síðustu vikurnar en þetta er erfiður pakki og það er ekki síður sálrænt áfall en annars eðlis að horfast í augu við.
Alla tíð hefur orðið krabbamein skelft mig. Það er eflaust með alla aðra, þetta er þungt og vont orð; sláandi og erfitt að horfast í augu við. Ég hef upplifað þann vonda vágest áður í minni fjölskyldu. Það er þungt og erfitt ferli, mjög sláandi ferli sem verður ekki mjög vel lýst með orðum, að takast á við og verður ekki undir neinn búið með alvöru nema að lenda beint í. Það verður bara að takast á við það, þó að höggið sem fylgi sjúkdómsgreiningu sé ávallt mikið. Það er óhjákvæmilegt. Um er að ræða sjúkdóm sem er erfiður við að eiga og engin orð geta undirbúið það sem við tekur við eftir slíkt.
Ég verð fúslega að viðurkenna að hugur minn hefur verið frekar fjarri þessari bloggsíðu síðustu vikurnar. Ég tók mér pásu fyrir um mánuði, fannst það réttast þá en hef síðan skrifað öðru hverju. Stundum eina færslu jafnvel hvern dag. Það er svosem misjafnlega mikið sem þarf að skrifa. Þetta er ágætis leið til að kúpla sig út úr öðru og að mörgu leyti hefur þessi vefsíða gefið mér mun meira en ég hef sennilega gefið henni. Þetta er fín leið til að tjá sig og finna skoðunum og hugsunum stað.
Ég vil þakka öllum þeim sem hafa sent mér eða okkur góðar kveðjur síðustu vikurnar. Þær met ég mjög mikils.
Alla tíð hefur orðið krabbamein skelft mig. Það er eflaust með alla aðra, þetta er þungt og vont orð; sláandi og erfitt að horfast í augu við. Ég hef upplifað þann vonda vágest áður í minni fjölskyldu. Það er þungt og erfitt ferli, mjög sláandi ferli sem verður ekki mjög vel lýst með orðum, að takast á við og verður ekki undir neinn búið með alvöru nema að lenda beint í. Það verður bara að takast á við það, þó að höggið sem fylgi sjúkdómsgreiningu sé ávallt mikið. Það er óhjákvæmilegt. Um er að ræða sjúkdóm sem er erfiður við að eiga og engin orð geta undirbúið það sem við tekur við eftir slíkt.
Ég verð fúslega að viðurkenna að hugur minn hefur verið frekar fjarri þessari bloggsíðu síðustu vikurnar. Ég tók mér pásu fyrir um mánuði, fannst það réttast þá en hef síðan skrifað öðru hverju. Stundum eina færslu jafnvel hvern dag. Það er svosem misjafnlega mikið sem þarf að skrifa. Þetta er ágætis leið til að kúpla sig út úr öðru og að mörgu leyti hefur þessi vefsíða gefið mér mun meira en ég hef sennilega gefið henni. Þetta er fín leið til að tjá sig og finna skoðunum og hugsunum stað.
Ég vil þakka öllum þeim sem hafa sent mér eða okkur góðar kveðjur síðustu vikurnar. Þær met ég mjög mikils.
1.9.2007 | 15:44
Vinnusamar köngulær - pödduhræðslan fræga

Þrátt fyrir þessa hræðslu við köngulær vekja þær alltaf mikla athygli. Þetta eru auðvitað vinnusöm dýr og það sést sennilega best af þessari ótrúlegu uppgötvun í Texas þar sem hefur fundist 190 metra breiður köngulóarvefur, hvorki meira né minna. Þetta er nú með því ótrúlegra sem sést hefur og telst meiriháttar afrek og ekki furða að þeir sem horfist í augu við köngulóarvefinn velti því fyrir sér hvað hafi eiginlega gengið á þegar að hann var gerður.
Ég hef séð ótrúlega margar kvikmyndir þar sem köngulær hafa komið við sögu og ekkert kippt mér svosem upp við það. Þó er ein mynd þar sem könguló tókst að kippa mér aðeins til og ég varð svona aðeins nervös. Það var Lord of the Rings: The Return of the King, hin margverðlaunaða óskarsverðlaunamynd og lokapunktur trílógíunnar ógleymanlegu. Þar er risaköngulóin Shalob svo sannarlega í stóru hlutverki um miðja myndina og eltingarleikur hennar við Fróða er bæði spennandi og nett ógnvekjandi, enda er köngulóin miskunnarlaus og vel úthugsuð.
Aðrar myndir um skordýr sem vekja alltaf tilfinningar eru t.d. The Giant Spider Invasion, Arachnophobia, Mimic (skelfilega spennandi skordýramynd - risapöddurnar gleymast ekki svo glatt), Them (nett scary :), Mothra (skáldleg og merkilega falleg innst inni), Eight Legged Freaks (þessi gleymist ekki fyrstu næturnar), The Monster that Challenged the World (ekta skordýrakölt), Starship Troopers (sannarlega ekki gamanmynd), Tremors (gleymi henni aldrei hehe), The Deadly Mantis og The Wasp Women. Þær eru miklu fleiri en þessar koma fyrst upp í hugann. Slær þó enginn þeirra út Shalob í LOTR: ROTK held ég.
Skordýr eru hluti tilverunnar. Samt skelfa þær fólk, mismikið þó. Sumir leika sér að hræðslunni í nett pirrandi kvikmyndum, bækur hafa verið skrifaðar og heimildarþættir gerðir. Gleymi aldrei löngum þætt fyrir nokkrum árum þar sem Attenborough skannaði hugarheim köngulóanna. Ógleymanlegur þáttur. Sá maður er reyndar algjör snillingur en hann fór ansi nærri því að toppa sig í þeirri skordýraþáttaröð.
En sennilega fer aldrei hræðslan í huga fólks. Það er þó misjafnt hvernig fólk lifir með hræðslunni. Ráðlegg þeim sem eru verst haldnir fóbíunni að horfa alls ekki á fyrrnefndar myndir. Það gæti orðið svolítið nastý kvöldstund yfir þeim með popp og kók. Þá er nú betra að horfa frekar á góða pöddulausa spennumynd eða rómantískan sykursnúð.
![]() |
Risavefur í Texas |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2007 | 13:50
Hveitibrauðsdögum vinsællar ríkisstjórnar lokið

Skv. nýjustu könnun Gallups styðja 80% landsmanna ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Þetta er einn mesti stuðningur við ríkisstjórn hérlendis í skoðanakönnunum til þessa og greinilegt að hún hefur afgerandi umboð til verka og stuðningur landsmanna við hana er afdráttarlaus, altént á þessum tímapunkti. Hún hefur gott veganesti til verkanna. Vald hennar er mikið og t.d. er hún svo sterk á Alþingi að hún getur veitt afbrigði við þingmál án liðsinnis frá stjórnarandstöðunni.
Ríkisstjórn dr. Gunnars Thoroddsens mældist með um 80% stuðning í upphafi er hún var mynduð fyrir tæpum þrem áratugum, í febrúar 1980, en síðar seig mjög á ógæfuhliðina. Telst sá stuðningur sá mesti við ríkisstjórn í sögu landsins fram að þessu, en taka skal þó fram að sú mæling var í könnunum Dagblaðsins á þeim tíma og áður en Gallup-kannanir voru komnar til sögunnar í þeirri mynd sem nú þekkist hérlendis. Sú stjórn var mynduð við mjög umdeildar aðstæður og eftir langvinna stjórnarkreppu. Vinsælustu stjórnir til þessa í mælingum Gallups eru ríkisstjórnir Davíðs Oddssonar á tíunda áratugnum.
Staða ríkisstjórnarinnar er eins og fyrr segir mjög afgerandi og þessi mæling segir allt sem segja þarf um hversu góðan byr hún hefur frá landsmönnum. Það er ekki öfundsvert að vera í stjórnarandstöðu við þessar aðstæður og óhætt að segja að reyna muni á stjórnarandstöðuflokkanna í þeirri erfiðu stöðu sem uppi er fyrir þá og sést afgerandi með þessari Gallup-könnun. Stjórnin er svo voldug að hún hefur þingið algjörlega í hendi sér. Best sást það skömmu fyrir þinglok með kosningum í landskjörstjórn og kjörstjórnir í kjördæmum, en af fimm sætum hefur stjórnarmeirihlutinn fjögur til ráðstöfunar.
Stjórnarandstaðan er því vissulega að vakna upp við hlutskipti sitt. Samt sem áður mun hún eflaust bíta vel frá sér á næsta þingvetri þó staða flokkanna sem hana mynda sé veik. Við öll sem fylgjumst með stjórnmálum vonumst auðvitað eftir því, enda er ekkert gaman af stjórnmálum ef stjórnarandstaðan er veik og máttlaus og hún verður því að stíga vel í lappirnar og sanna sig. Þar tekur við erfið vinna við að yfirstíga gremju milli aðila og fróðlegt að sjá hvernig það gengur.
Reyndar fylgir könnun frá Gallup með þessari mælingu á stjórnina. Þar kemur fátt að óvörum. Stjórnarflokkarnir halda sínu og eru að mælast með 70% fylgi, ótrúlega sterk staða sem kemur ekki að óvörum sé litið á sterka stöðu ríkisstjórnarinnar. Stóru tíðindin eru þau að Framsóknarflokkurinn er ekkert að græða milli mánaða, þrátt fyrir formannsskipti og kjör nýs varaformanns. Hann mælist innan við 10%. Þar eru framundan erfiðir tímar við uppbyggingu, svo mikið er ljóst.
Finnst reyndar fréttamat mbl.is stórundarlegt þegar kemur að þessari könnun. Þar stendur í fyrirsögn að stuðningur við stjórnina dali. Vissulega minnkar mælingin um 3% á milli mánaða, en það virkar hjákátlegt sem fyrirsagnaefni þegar á það er litið að stjórnin mælist með 80% stuðning, sem er söguleg mæling í okkar stjórnmálasögu. Fyrirsögnin hefði því auðvitað átt að snúast að því að aðeins 20% landsmanna styðja ekki stjórnina.
Það væri hvaða stjórn sem er hreykin af því í lýðræðisríki að njóta 80% stuðnings kjósenda í könnun. Það sýnir sterka stöðu stjórnvalda. En nú er hveitibrauðsdögunum lokið og alvaran tekur við. Það er spennandi þingvetur framundan og nú reynir á ríkisstjórnina og verk hennar.
![]() |
Stuðningur við ríkisstjórnina dalar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.9.2007 kl. 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)