Ólafur F. og Vilhjálmur Þ. borgarstjórar til kosninga

Vilhjálmur Þ. og Ólafur F. Það er ánægjulegt að heyra að Sjálfstæðisflokkurinn og Ólafur F. Magnússon hafi myndað nýjan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Strax í upphafi hefur hann gert betur en 100 daga vinstrimeirihlutinn; lagt fram málefnasáttmála og plan að verkum þá 28 mánuði sem eru til borgarstjórnarkosninganna 2010.

Ólafur F. mun taka við embætti borgarstjóra á fimmtudag og verður áhugavert að sjá hann í því embætti, þar til að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson tekur aftur við embættinu undir lok kjörtímabilsins og heldur inn í næstu kosningar sem borgarstjóri. Þeir hafa mikla reynslu af setu í borgarstjórn og eru traustir forystumenn í meirihlutanum og geta stýrt málum af krafti með tveggja afla meirihluta.

Það er greinilegt að Ólafur F. hefur fengið nóg af því að eiga við málefnalausan meirihluta og er ákvörðun hans fyllilega skiljanleg. Eðlilega er fýla í fyrri meirihluta. Það kom mér spánskt fyrir sjónir að sjá Björn Inga barma sér yfir því að hann hafi verið svikinn, fengið aðrar upplýsingar og ekki heyrt atburðarásina fyrir. Þetta er ekkert ósvipað því sem hann gerði sjálfur er hann stakk sjálfstæðismenn í októbermánuði og er kannski áhugaverð og nýstárleg lífsreynsla fyrir hann að lenda í því sama, fá rýtinginn í bakið, eins og hann hefur gert við svo marga aðra.

Það eru áhugaverðir tímar í borgarmálunum og líflegir mánuðir framundan. Ólafur F. og Sjálfstæðisflokkurinn felldu meirihluta R-listans í kosningunum fyrir tæpum tveim árum og eðlilegt að nú fái þeir tækifærið til að stjórna borginni. Til þess hafa þeir gott umboð kjósenda sem felldu R-listann frá völdum. Það hefði að mínu mati átt að mynda þennan meirihluta fyrir tveim árum - betra er þó seint en aldrei.

mbl.is Ólafur og Vilhjálmur stýra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr meirihluti í Reykjavík - Ólafur F. borgarstjóri?

Ólafur F. og Vilhjálmur Þ. í sextugsafmæli Davíðs Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og F-lista hefur verið myndaður í borgarstjórn Reykjavíkur. Eftir 102 daga valdasetu vinstrimeirihlutans er hann fallinn og er orðinn skammlífasti valdhafinn í Reykjavíkurborg og Dagur B. Eggertsson lætur af embætti eftir einn stysta valdaferil í embætti borgarstjóra. Þetta eru sögulegar vendingar og sætur sigur fyrir Sjálfstæðisflokkinn eftir margfræg svik Björns Inga Hrafnssonar.

Hef skrifað talsvert um þetta í dag. Ákvað að tefla á tæpasta vað í upphafi og skrifa um þetta í morgun, þrátt fyrir að lítið hefði verið skrifað um það og margir þyrðu ekki að taka kjaftasögurnar trúanlegar. Var ekki með stöðuna alveg örugga þá reyndar. Eftir því sem leið á daginn spjallaði ég við marga sjálfstæðismenn í Reykjavík og heyrði ennfremur í mönnum sem tengjast Ólafi F. Magnússyni. Skynjaði fljótt eftir hádegið að það væru stórtíðindi í aðsigi og nýr meirihluti í kortunum. Þetta hefur verið stórmerkileg atburðarás, ekki síðri og áhugaverðari en þegar að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks féll.

Það er talað um að Ólafur F. Magnússon verði borgarstjóri allavega hluta tímabilsins. Ekki rétt að fullyrða neitt um það nú þegar en bíð hinsvegar formlegrar staðfestingar á því. En er á hólminn kemur eru þessi meirihlutaslit gríðarlegt pólitískt áfall fyrir Dag B. Eggertssson, fráfarandi borgarstjóra, Svandísi Svavarsdóttur og auðvitað Björn Inga Hrafnsson. Og mikill sigur fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Nú fær hann aftur völd til að vinna að stefnu sinni og verkum sem hann leiddi svo farsællega fram til októbermánaðar.

mbl.is Nýr meirihluti kynntur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meirihlutinn að falla - fundað um nýjan meirihluta

Ráðhús Reykjavíkur Flest bendir nú til þess að vinstrimeirihlutinn í Reykjavík riði til falls og bráðlega verði myndaður nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og F-lista. Það er nú ljóst að sögusagnir um að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ólafur F. Magnússon hafi rætt um myndun nýs meirihluta, sem gengið hafa í allan dag, eru sannar. Viðræður hófust af alvöru um helgina og hafa staðið í dag ennfremur.

Slökkt hefur verið á símum helstu áhrifamanna, innan beggja afla í allan dag og unnið að myndun meirihlutans. Það segir í raun allt sem segja þarf. Atburðarásin hefur þó verið hröð í dag. Framan af degi reyndu Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, og samherjar hans að neita sögusögnum um fall meirihlutans og að nýr meirihluti væri í burðarliðnum, F-listinn með Ólaf F. Magnússon væri á útleið úr meirihlutanum með þeim. Það eru nú hinsvegar allar líkur á að myndun nýs meirihluta sé langt á veg komin og jafnvel að hann verði kynntur nú á næstu klukkustundum.

Sögusagnir hafa verið um að deilt sé um hver verði borgarstjóri í Reykjavík í nýjum meirihluta. Sjálfstæðismenn geri kröfu um að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verði aftur borgarstjóri og að Ólafur F. Magnússon heimti hluta af því sem lifir kjörtímabilsins sem borgarstjóri. Það er erfitt að segja um hvað sé satt í þeim efnum. Hitt er þó ljóst að viðræður hafa farið fram og þær hafa staðið um nokkurn tíma. Það er því fjarri því ósannindi eins og reynt var að halda fram í svörum við skrifum mínum og fleiri í dag að myndun nýs meirihluta væri hafin.

Það er greinilegt að það hefur verið stirt milli aðila í fyrri meirihluta og virðist deila um málefnasamning hafa gert út af við meirihlutann, fari svo, sem allt bendir til, að vinstrimeirihlutinn sé á fallanda fæti. Hann hefur nú starfað í þrjá mánuði án málefnagrunns og greinilega verið ólga um viss mál - nægir þar að nefna deilur um gömul hús á Laugavegi, sem ætti að vera smámál.

En það eru spennandi tímar framundan í borgarmálunum með enn einum meirihlutanum, þeim þriðja á innan við hálfu ári - og kannski þriðja borgarstjóranum á sama kjörtímabilinu, ef Vilhjálmur Þ. verður ekki aftur borgarstjóri. Allir fylgjast spenntir með borgarstjórakapal nýs meirihluta.

Ennfremur er ljóst að þriggja mánaða borgarstjóraferli Dags B. Eggertssonar er að ljúka. Hann hefur nú aðeins verið borgarstjóri í tæpa 100 daga, aðeins örfáum dögum lengur en Árni Sigfússon fyrir einum og hálfum áratug.

Tvennum sögum fer af meirihlutaviðræðunum

Ólafur F. og Vilhjálmur Þ. Tvennum sögum virðist fara af meirihlutaviðræðum Sjálfstæðisflokks og F-lista og hefur Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, vísað á bug fréttum af falli meirihlutans. Það vekur þó nokkra athygli að hvorki næst í Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson eða Ólaf F. Magnússon - þeir eru utan þjónustusvæðis að því er virðist og hefur svo verið allt frá því að fréttin af viðræðunum birtist fyrst á vísir.is fyrir fjórum tímum; á ellefta tímanum í morgun.

Merkilegt er að í viðtali við dv.is neitar Margrét Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi, að fram fari viðræður Ólafs F. við sjálfstæðismenn og segir ekki flugufót fyrir frétt vísis, en segir svo í næstu setningu að það sé afskaplega ólíklegt að viðræður hafi farið fram - hafi það verið raunin þá þyki henni undarlegt að slíkt hafi ekki borið á góma þegar hún ræddi við Ólaf F. Magnússon í morgun. Með öðrum orðum að þá veit hún ekkert með vissu hvað er að gerast og virðist ekki hafa náð sjálf sambandi við hann. Ef hún fullyrðir í hádeginu eða síðar þetta að þá blasir við öllum að hún er jafn blind fyrir því hvað aðalmaður framboðs hennar er að gera. Enn hefur hann ekki neitað sjálfur fréttinni opinberlega og það hafa sjálfstæðismenn ekki heldur gert.

Það er ekki nema von að spurning vakni hversu sterkt samband Ólafs og Margrétar er eiginlega, fyrst að þau hafi ekki talað hreint út saman eftir birtingu fréttarinnar og hún segi að það sé ólíklegt að viðræður hafi farið fram en segi svo í annarri setningu í sama viðtali að það sé ekki flugufótur fyrir fréttinni. Ekki virðast samskiptin vera merkileg í þessum félagsskap. Reyndar hafa kjaftasögur verið háværar að vík sé orðin milli vina í F-listanum, þeirra Ólafs og Margrétar, sem sat í borgarstjórn í nokkra mánuði á síðasta ári og var forseti borgarstjórnar fyrstu vikur nýja meirihlutans, eða þar til Ólafur F. sneri aftur í borgarstjórn með vottorð upp á vasann.

Enn eru stórar spurningar eftir í þessum meirihlutakapal. Enn stendur eftir að einn stærsti vefmiðill landsins skúbbaði fregnum af meirihlutaviðræðum. Þeim hefur enn ekki verið neitað af leiðtogum Sjálfstæðisflokks og F-lista, þeirra sem eiga að vera að ræða saman, þegar að fjórir klukkutímar eru liðnir frá birtingu fréttarinnar. Einu sem hafa talað eru Dagur B. Eggertsson og Margrét Sverrisdóttir, sem hvorugt hefur vald til að stoppa myndun nýs meirihluta, ef það er rétt að Ólafur og Vilhjálmur sitji á fundi og hafi rætt meirihlutamyndun.

Það verður áhugavert að heyra meira af þessu máli og hvenær að þeir félagar Ólafur og Vilhjálmur verði í símasambandi, en ekki utan þjónustusvæðis.

mbl.is Borgarstjóri: Enginn fótur fyrir meirihlutaviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur F. og Vilhjálmur að mynda nýjan meirihluta?

Ólafur F. og Vilhjálmur Þ. í sextugsafmæli Davíðs Ólafur F. Magnússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson vinna nú að myndun nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og F-lista í borgarstjórn Reykjavíkur og hefur sú vinna staðið yfir um helgina skv. frétt á vísir.is, sem tilkynnti fyrst allra um viðræðurnar formlega fyrir klukkustund. Það eru stórmerkileg tíðindi fari það svo að þeir myndi meirihluta og vinstrimeirihlutinn, sem aðeins hefur setið í rúma þrjá mánuði, sé fallinn.

Það hefur eiginlega blasað við um nokkuð skeið að gjá sé innan þessa meirihluta og hann hefur fjarri því virkað heilsteyptur síðustu vikurnar, eftir því sem nýjabrumið hefur farið af honum og hann hefur tekið til verka við að stjórna borginni. Hann tók við völdum án málefnasamnings og þótt þunnur þrettándi þar sem hver og einn talar í sína átt og sást það best í málum húsanna á Laugavegi þar sem að minnsta kosti þrjár skoðanir voru uppi. Nú virðist honum hafa þrotið lífsþróttinn strax í upphafi og kemur varla að óvörum.

Völva Vikunnar spáði því að meirihlutinn myndi falla á árinu og gott ef ég sagði það ekki sjálfur í viðtali á gamlársdag á Rás 2. Var alltaf viss um að þetta yrði erfið vist og gæti orðið mikil rimma milli aðila með fjögur öfl og tæpasta mögulegan meirihluta í höndunum. Það hefur t.d. verið ljóst að staða Björns Inga Hrafnssonar hefur þrengst innan meirihlutans, þrátt fyrir að hann héldi lykilformennskum í upphafi, að þá er hann lokaður inni með þessum öflum og illa fer fyrir honum ofan á alla brunarústina í Framsókn í Reykjavík fari svo að hann sitji nú eftir valdalaus í minnihluta.

Það verður áhugavert að fylgjast með fréttum í dag og atburðarás myndunar þessa nýja meirihluta sem er í kortunum. Fari svo að þessi meirihluti verði myndaður lýkur borgarstjóraferli Dags B. Eggertssonar eftir aðeins rúma þrjá mánuði og hefur hann þá ekki verið borgarstjóri í Reykjavík mikið lengur en Árni Sigfússon nokkra mánuði í aðdraganda kjördags árið 1994, eftir að Markús Örn Antonsson sagði af sér.

Persónuleg átök Clinton-hjónanna og Obama

Hillary Rodham Clinton og Barack ObamaÁtökin á milli Barack Obama og Hillary Rodham Clinton um útnefningu demókrata í forsetakosningunum í nóvember er að verða sífellt persónulegri og harðskeyttari, nú þegar ljóst er að um einvígi þeirra er að ræða og John Edwards í raun úr leik. Um mikið er að tefla og mátti eiga von á að öllum brögðum yrði beitt - þó hefur þetta farið lengra en svartsýnustu menn höfðu spáð. Minnir orðið á skítkastið og áróðursmennskuna sem einkenndi slag Bush og McCain hjá repúblikunum árið 2000 - í þeim skilningi að þetta er vægðarlaus rimma.

Það má reyndar fullyrða nú þegar að ekki verða þau saman í framboði í nóvember fyrir demókrata hvort sem vinnur. Eftir allt sem á undan er gengið þessar vikurnar er óhugsandi að Hillary bjóði Obama varaforsetaútnefningu og Hillary mun ekki fara á framboðið með Obama, nái hann útnefningunni. Það er því ekki nema von að það sé viss kurr í demókrötum yfir því að sá frambjóðandinn sem tapar úr þessu fari í fýlu og dragi sína liðsheild út úr baráttunni og gæti með því auðveldað repúblikunum að halda Hvíta húsinu í fjögur ár. Ólgan þessa dagana er orðin svo harðskeytt að vonlítið er að sameiginlegt sögulegt framboð blökkumanns og konu verði niðurstaðan.

Nú er Obama kominn í hörkurimmu gegn Bill Clinton, fyrrum forseta Bandaríkjanna, og virðast þeir skiptast á skotum á hverjum degi og þær verða sífellt hvassari. Sannkallaðir þrumufleygar. Obama sakaði Clinton um að breiða lygasögur út um sig og Clinton var fljótur að svara fyrir sig í gærkvöldi. Enginn friður þarna á milli. Hef reyndar ekki séð Clinton í öðrum eins ham og síðan að hann varðist eins og ljón fyrir því að halda forsetaembættinu fyrir áratug og eða frá því úr forsetakosningunum tveim sem hann vann á tíunda áratugnum. Hann logar eins og eldhnöttur og hefur ekki verið meira hvass og lifandi í ótalmörg ár.

Það er ekki óeðlilegt að Clinton grípi til vopna sinna í þessari stöðu. Að mörgu leyti er barist um yfirráðin í Demókrataflokknum í þessum forkosningum. Clinton-hjónin hafa verið helstu stjörnur flokksins í einn og hálfan áratug - sú staða hefur verið í mikilli óvissu síðan að Obama tók Iowa í byrjun mánaðarins. Þeim tókst þó að stöðva hina miklu bylgju til Obama í New Hampshire, þvert á allar skoðanakannanir og gegn spám allra stjórnmálaspekúlanta, sem höfðu spáð Hillary áður rósagöngu í útnefningaferlinu nær allt síðasta ár. Það er þó vissulega enn óvissa yfir því hvað gerist og baráttan er enn á fullu.

Obama gæti með sigri í Suður-Karólínu á laugardaginn náð aftur svipaðri bylgju og það í suðurríkjunum, því svæði sem var Clinton svo fengsælt í forsetakosningunum 1992 og umfram allt tryggði honum sigurinn í hinni sögulegu baráttu við George H. W. Bush og Ross Perot. Blökkumenn í suðrinu hafa fylkt sér jafnan um Clinton-hjónin og fylgdu þeim og Al Gore alla tíð í blíðu og stríðu á átta ára forsetaferli Clintons, en Gore náði ekki sömu tökum á þeim þegar að suðurríkjamaðurinn George W. Bush sigraði fyrir átta árum. Suður-Karólína verður prófsteinn á styrk þeirra og gæti verið örlagaríkt fylki í þessum slag.

Þessi átök eru svo hatrömm að eðlilegt er að spyrja sig að því hvort að demókratar muni eftir allt saman auðvelda repúblikunum baráttuna, fari svo að McCain taki Flórída í næstu viku og raki saman fylgi á ofur-þriðjudegi, eins og sumir spá. McCain yrði frambjóðandi sem myndi sækja á miðjuna og baráttan við hann gæti orðið tvísýn fyrir demókrata, þó hann sé kominn á áttræðisaldurinn. Átökin um blökkumennina er orðinn að slag hvítrar konu og blökkumanns - þau slíðruðu þó sverðin skamma stund eftir hörð orðaskipti í síðustu viku, þar sem deilt var um hvort dýrkaði meir dr. Martin Luther King. Það var mjög barnaleg umræða.

Rimman um Nevada og túlkun á stöðunni þar, þar sem báðir aðilar hrósuðu eiginlega sigri þrátt fyrir sex prósentustiga sigur Hillary, hefur kveikt bálið aftur og það til mikilla muna. Clinton talar eins og leiftrandi predikari og sparar ekki stóru orðin í heift sinni og Obama svarar í sömu mynt. Átökin um leið orðin persónulegri og flóknari en var fyrir aðeins nokkrum vikum. Þarna er barist um völd og áhrif í einum flokki og stjörnuljóminn yfir þeim slag er orðinn of mikill til að allir geti deilt þeim glampa er yfir lýkur.

Þar liggur stærsta átakalínan, það er verið að berjast um yfirráð í flokknum. Þetta á eftir að verða heljar mikið show fyrir okkur sem fylgjumst með bandarískum stjórnmálum, spái ég. Ef þetta er það sem koma skal mun ólgan í slag þeirra Hillary og Obama verða engu vægari en í sjálfum forsetakosningunum síðla árs.


mbl.is Obama í stríð við Clinton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur býður Birni Inga í Samfylkinguna

Össur SkarphéðinssonÍ lok blóðugrar helgar í Framsóknarflokknum þar sem hnífar hafa verið á lofti í slag hinna fornu félaga Björns Inga Hrafnssonar og Guðjóns Ólafs Jónssonar hefur Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, nú boðið Birni Inga í Samfylkinguna upp á sitt einsdæmi. Þetta boð vekur sannarlega athygli. Myndi Björn Ingi þiggja það boð yrði hann væntanlega óbreyttur félagi í liðsheild Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra, og þyrfti að byrja að plotta sig frá grunni. Ekki tel ég það líklega fléttu í stöðunni sem uppi er.

Mun líklegra er að þetta hafi verið einn leikþáttur eins og Guðjón Ólafur hefur bent á. Eins og komið er fyrir Birni Inga eru valkostirnir að vinna áfram í Framsókn eða ganga viðskiptalífinu á hönd eins og Finnur Ingólfsson og Árni Magnússon, aðrir pólitískir afkomendur Halldórs Ásgrímssonar, gerðu svo eftirminnilega þegar að sól flokksins tók að hníga til viðar. Enn hefur Björn Ingi annars ekki svarað beint ásökunum Guðjóns Ólafs, nema í hálfkveðnum vísum og vælutóni. Ekki mun Björn Ingi endalaust geta flúið flokksfélaga sína með þeim hætti og skýrra svara beðið. Hann svaraði reyndar fréttamanni með SMS-skeyti í dag. Það er í fyrsta skipti í langan tíma sem hann afþakkar að láta ljós sitt skína í viðtali.

Það væri gaman að vita hvernig að Samfylkingarfólk tekur þessu boði Össurar til Björns Inga. Er hann að tala fyrir hönd annarra en sjálfs sín? Svar óskast! Ég man þá tíð að Samfylkingarfólk talaði harkalega gegn Birni Inga, fyrir og á meðan að REI-skandallinn geisaði á hápunkti. Á einni nóttu voru þau þó tilbúin til að gleyma öllu tali um að hann væri gerspilltur og gengu í eina sæng með honum í nýjum vinstrimeirihluta á haustdögum og fóru allt í einu að slá skjaldborg um hann. Það var eftirminnilegur umsnúningur, þó fáir hafi umpólast meira en Bjarni Harðarson, alþingismaður, sem hafði óskað eftir afsögn Björns Inga en koðnaði niður með það.

Framsóknarflokkurinn er illa staddur eftir helgina. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, grætur krókódílatárum yfir því að lagt sé til Björns Inga og virkaði næstum því sannur með sorrýsvipinn sinn heima á Selfossi í kvöldfréttunum. Hann missir ekki svefn yfir því að frægðarsól Björns Inga hnígi til viðar og hann verði skotspónn í átökum af þessu tagi. Enda var vörn hans fyrir Björn Inga ekki beint sannfærandi. Hún hefði kannski verið það ef ekki væri vitað um undirliggjandi deilur og að jafnvel muni hann hjóla í Guðna á næsta flokksþingi. En formaðurinn er ekki mjög áhyggjufullur yfir hnífaslagnum í Reykjavík.

Það er langt síðan að einn flokkur hefur logað eins glatt í höfuðstaðnum eins og við erum að verða vitni að á þessari blóðugu helgi framsóknarmanna. Þetta eru fjarri því bara átök tveggja manna, þetta er miklu stærra en svo. Þarna eru heilir armar að berjast hatrammlega og sér ekki fyrir endann á því, eflaust er þetta eins og Skaftárhlaup að spretta fram eftir gos í iðrum jarðar um nokkuð skeið.

Það er freistandi að telja að þarna séu örlagarík slagsmál í gangi sem hafi áhrif á heill og hag elsta stjórnmálaflokks landsins, sem þessa dagana minnir þó æ meir á eldgamalt fley án haffærisskírteinis en glæsifleytu fornrar tíðar.




Bloggfærslur 21. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband