31.1.2008 | 22:14
Governator styður McCain - lykilhlutverk Giuliani

Það er mikilvægt fyrir McCain að hafa fengið stuðning Schwarzenegger. Með því hlýtur hann um leið stuðning stjörnuljómans í Hollywood sem hefur verið á bakvið ríkisstjórann í gegnum leik- og stjórnmálaferil. Enginn efast um hvernig landið liggur í fylkinu á þriðjudag. Í dag fékk McCain reyndar fleiri bandamenn og það úr suðrinu; Rick Perry, ríkisstjóri í Texas, eftirmaður George W. Bush á ríkisstjórastóli, og báðir þingmenn flokksins í öldungadeildinni frá Georgíu lýstu yfir stuðningi við hann. Það fer því ekki framhjá neinum hvernig landið liggur - McCain er byrjaður að fá mikilvægan kjarnastuðning, enda eðlilegt þegar ljóst er í raun orðið hver frambjóðandi flokksins verður.
Það hefur löngum verið sagt að John McCain hafi ekki stuðning flokkskjarnans. Ljóst er að hann hefur náð langleiðinni að útnefningunni á eigin vegum. Það er vissulega rétt. Hann reis úr glataðri stöðu og átti sér endurkomu og er eðlilega kallaður comeback kid, þrátt fyrir að vera á áttræðisaldri. Endurkoma hans er stórmerkileg og verður áhugavert að skrifa um hana að loknum kosningunum, hvort sem hann verði forseti Bandaríkjanna eður ei. Hann hefur skrifað merkilegan kafla í forkosningasögunni sama hvernig fer. Það eru stórmerkileg tíðindi að maður á þessum aldri eigi raunhæfa möguleika á valdamesta embætti heims. Það hefði enginn spáð honum því eftir tapið fyrir Bush árið 2000 að hann yrði frambjóðandi flokksins á eftir honum.
Roberta McCain, móðir frambjóðandans, hefur verið ein helsta stjarnan í stuðningssveit hans, eins og ég benti á í pistli mínum í síðustu viku. Hún talaði afdráttarlaust um það fyrir rúmri viku að stuðningur flokkskjarnans við son sinn hefði aldrei verið til staðar, hefði vantað í forsetakosningunum 2000 og væri ekki sjáanlegur, en hann yrði í sjónmáli tæki hann Flórída. Það reyndust orð að sönnu. Það blasir reyndar við að stuðningur Mel Martinez og Charlie Crist hafi fært McCain endanlega sigurinn í Flórída. Eins og staðan er orðin núna má þó búast við að McCain fái stuðning víða innan úr kjarnanum, nú þegar að útnefningin er í sjónmáli.
Nú þegar að Rudy Giuliani hefur dregið framboð sitt til baka og stutt McCain blasir við að hann mun leika lykilhlutverk í herbúðum hans. Ekki aðeins kom hann fram með McCain í gær og lýsti yfir stuðningi við hann á blaðamannafundi í forsetabókasafni Ronalds Reagans í Simi-dal í Kaliforníu heldur hefur hann verið á ferð með McCain í dag um Kaliforníu og var við hlið þeirra er Schwarzenegger lýsti yfir stuðningi sínum. Á morgun munu McCain og Giuliani koma fram saman í kvöldþætti Jay Leno í Burbank í Kaliforníu, sem sýnir mjög vel að Giuliani mun vera öflugur við hlið frambjóðandans og eðlilegt að velta því fyrir sér hvort hann sé ráðherraefni í mögulegri stjórn hans.
Það sem er ekki vitað nú er hver keppinautur John McCain um forsetaembættið verði. Hörð barátta er framundan næstu vikurnar í einvíginu milli Hillary Rodham Clinton og Barack Obama. Svo mikil er harkan þar að talað er um slag upp á hvern þingfulltrúa fram á vorið. Það gæti vissulega farið svo að McCain gæti slappað af í nokkrar vikur meðan að slagur þeirra klárast, en mun líklegra er þó að spurt verði að því hvernig ofur-þriðjudagur fari og byrinn fylgi aðeins öðru þeirra úr þeirri baráttu víðsvegar um landið.
![]() |
Schwarzenegger styður McCain |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2008 | 19:40
Hryðjuverkaleiðtogi drepinn - hvar er Bin Laden?

Það hefur verið leitað lengi að Osama Bin Laden. Hann hefur hvílt sem skuggi yfir forsetaferli George W. Bush. Nú þegar að líður að því að Bush fari úr Hvíta húsinu er óneitanlega spurt hvort að hann muni nást áður en að nýr forseti er kjörinn og tekur við. Ekki virðist miklar líkur vera til þess. Hann hefur þó minnt á sig reglulega síðustu árin og margir segja að myndband með honum á elleftu stundu kosningabaráttunnar 2004 hafi tryggt endurkjör Bush.
Pakistan hefur verið eitt helsta skjól hryðjuverkamanna á valdaferli Pervez Musharraf og flestir telja að Osama Bin Laden leynist þar. Landið er markað af hryðjuverkum og ógnum á alla bóga. Það hefur verið merkilega lítið talað um Bin Laden í bandarísku forsetakosningunum. Það breytist þó ætli hann sér að leika hlutverk á lokaspretti baráttunnar, en kannski hefur hann ekki talað enn af neinum þunga þar, þar sem að Bush er á útleið. Baráttan gegn honum fer þó ekki eftir forsetaefnum og allir virðast vilja ná honum.
Það hafa nokkur lítil peð á taflborði liðssveitar Bin Laden verið drepnir eða handsamaðir. Vonandi mun sá dagur renna upp fyrr en síðar að Bin Laden sjálfur náist. Sá um daginn að sonur hans var að biðla til föðurins um að hætta þráhyggju sinni. Sú skoðun ómar um heimsbyggðina held ég.
![]() |
Háttsettur al-Qadaliði drepinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.1.2008 | 18:31
Verðskuldaður heiður fyrir Sigurð og Þorstein

Stíll Sigurðar er rómaður - hef lesið verk hans af áhuga. Þessi bók veldur ekki vonbrigðum og færir honum nýja aðdáendur, með því besta sem hann hefur gert. Löngu tímabært að hann fái þessi verðlaun! Þorsteinn gerði vandað og traust rit um Sigfús Daðason, sem var eitt okkar fremsta skáld á tuttugustu öld, og skáldverk hans. Traust bók og góður minnisvarði um merkan mann.
Verð þó að viðurkenna að ég varð svolítið hissa að Vigdís Grímsdóttir vann ekki fyrir bókina um Bíbi, sem var besta ævisaga síðasta árs og mjög vinsæl, líka svo virkilega vel skrifuð; skrifuð af list og áhuga. Fangaði líka lesendur. Fyrirfram taldi ég hana standa sterkasta. Hún einhvern veginn stóð algjörlega upp úr þeim fjölda misgáfulegra ævisagna sem voru á markaðnum. Las Bíbi af áhuga eftir jólin og sá mest eftir því að hafa ekki fengið hana í jólagjöf, yndislega skrifuð.
Verst er þó að bestu skáldverk ársins voru ekki tilnefnd. Það var skandall að Himnaríki og helvíti, frábært bókmenntastórvirki Jóns Kalmans, og Sandárbókin, eftir Gyrði, voru ekki tilnefndar. Það er afleitt þegar að bestu verk hvers árs fá ekki tilnefningu og sess sem bestu bækur ársins með formlegum hætti og rýrir annars ágæt verðlaun. En af skáldverkunum sem voru tilnefnd stóð Sigurður einfaldlega upp úr, besta bókin.
Það er orðið lífseigt yfir því spjalli hvort verðlaunin séu úrelt og fókuseri í vitlausar áttir. Þetta eru góð verðlaun, en það rýrir þau að ekki eru bestu ritin tilnefnd og verið virkilega að verðlauna hið allra besta. Kannski þarf að víkka hópinn sem útnefnir bækurnar, þetta verði ekki vinahópur sem velur vissa velvildarvini og sleppir þeim sem standa fyrir utan eða tekur þá út sem hafa unnið áður.
Þetta eiga ekki að vera heiðursverðlaun, heldur verðlaun þar sem hið besta á að standa upp úr.
![]() |
Sigurður og Þorsteinn fá bókmenntaverðlaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2008 | 15:33
Heppnir Akureyringar

Það eru tveir áratugir liðnir frá því að fyrsti lottóvinningur Íslandssögunnar kom til Akureyrar, en þá vann Ólöf Ananíasdóttir nokkrar milljónir. Ólöf hafði skömmu áður misst mann sinn og var mikið fjallað um þennan fyrsta lottóvinningshafa landsins. Um áratugur er liðinn frá því að hjón hér í bæ unnu stóran vinning í Víkingalottóinu. Minnir að það hafi verið 42 milljónir og það þótti mikið hér þá.
Vil óska vinningshafanum til hamingju. Það hlýtur að hafa gríðarleg áhrif á lífsstandardinn að taka svona stóran pott og vonandi mun verða vel haldið utan um það. Vona að viðkomandi fylgi ekki algjörlega eftir lífsstandard Lýðs Oddssonar, lottóvinningshafa í túlkun Jóns Gnarr, í auglýsingunum.
Það hlýtur að þurfa sterk bein að lifa með svo stórum vinningi í sjálfu sér, enda sannarlega dæmi um að fólk hafi illa getað höndlað svo mikla gæfu.
![]() |
Akureyringur fékk stóra vinninginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)