Milljón flettingar á heimasíðunni

Fyrr í vikunni fór fjöldi flettinga á heimasíðu minni yfir milljón talsins. Það er ánægjulegur áfangi. Ég vil þakka öllum þeim fjölda fólks sem lesa vefinn daglega kærlega fyrir að kíkja í heimsókn.


Romney hættir - McCain nær útnefningunni

Mitt Romney Það ætti ekki að koma neinum að óvörum að Mitt Romney hafi ákveðið að draga framboð sitt til embættis forseta Bandaríkjanna og tryggja með því endanlega að John McCain verði forsetaefni repúblikana í nóvember. Hann fór illa út úr ofur-þriðjudeginum og gerði sér grein fyrir því að hann átti ekki lengur raunhæfa möguleika á útnefningu flokksins. Í stað að draga ferlið á langinn gerir hann sér grein fyrir því að slagurinn er í raun búinn.

Til þess að vera áfram í slagnum hefði Mitt Romney þurft að sigra allavega í Kaliforníu, Georgíu og Missouri á ofur-þriðjudegi. Það var forsenda þess að framboðið væri trúverðugt. En svo fór ekki. Tapið í Kaliforníu var mesta áfallið og í raun endalokin fyrir framboðið, sem trúverðugt afl hið minnsta. Auk þess náði hann ekki að komast af alvöru fram úr Huckabee og var aðeins hársbreidd öflugri en hann, náði ekki að komast heldur upp að hlið McCain. Svo að þetta var orðið glatað og heiðarlegt mat að líta svona á stöðuna og segja hreint út að betra sé að flokkurinn fari að undirbúa sig fyrir kosningarnar í nóvember.

Mitt Romney hefði getað haldið áfram vissulega og barist fram í marsmánuð, á mikla peninga og marga öfluga lykilstuðningsmenn. En það er einfalt hvernig landið liggur. John McCain hefur þegar náð rúmlega 60% þingfulltrúa til að tryggja sér útnefninguna. Hann leiðir slaginn, hefur byr í seglin og stendur mjög vel að vígi. Þrátt fyrir að McCain hafi ekki tekist að klára slaginn endanlega í orðsins fyllstu merkingu á ofur-þriðjudegi er forskotið einfaldlega það mikið og afgerandi að hann verður ekki stöðvaður. Romney gerði sér grein fyrir þessu og það vita allir að Mike Huckabee mun ekki stöðva hann. Þetta er búið spil.

Það er greinilegt að mörgum stuðningsmönnum hans brá í dag að hann ætlaði sér að hætta slagnum og í staðinn sætta sig við orðinn hlut. Það er eðlilegt að stuðningsmenn hans séu ósáttir og hafi talið að halda hafi mátt áfram einhverjar vikur. En allir sem þekkja sögu forkosninganna í Bandaríkjunum sjá bara með því að líta á tölurnar nú eftir ofur-þriðjudaginn að John McCain hefur náð það sterkri stöðu að enginn mun koma í veg fyrir að hann verði forsetaefni repúblikana í nóvember, berjist fyrir því að taka við af George W. Bush, keppinaut sínum í forkosningaslagnum harkalega fyrir átta árum.

Þessi niðurstaða markar endalok alvöru baráttu um útnefningu Repúblikanaflokksins, þó að Mike Huckabee verði kannski einhverjar vikur í viðbót í slagnum. Engu að síður er baráttan búin, barátta af alvöru. John McCain mun bráðlega geta farið að undirbúa kosningabaráttu, stilla saman strengi og marka strategíuna, auk þess að sameina flokkinn að baki sér. Margir repúblikanar lengst til hægri hafa ekki enn sætt sig við að McCain fronti flokkinn - það mun taka þá hópa einhvern smátíma til að ná áttum og skynja að nú er aðeins framundan að berjast við demókrata, ekki McCain.

Á meðan stendur slagur Barack Obama og Hillary Rodham Clinton um útnefningu Demókrataflokksins enn. Það er alvöru slagur, enda enginn með afgerandi forskot eftir ofur-þriðjudaginn og virðist allt vera opið. Af því leiðir að demókratar berjast enn blóðugri baráttu á meðan að repúblikanar geta skipulagt sína baráttu og lagt sínar meginlínur. Það má kannski þakka Mitt Romney öllum mönnum mest fyrir að hafa klárað mál með svo heiðarlegum og skynsömum hætti nú á þessum tímapunkti. Hann veit að þetta er best í stöðunni, fyrir flokkinn.

Það er greinilegt að vaxandi óróleiki er meðal demókrata vegna þeirrar stöðu, sem eðlilegt er. Það verður því spurt um hversu lengi baráttan standi enn. Þegar er flokksmaskínan farin að draga í land með að þetta verði látið dankast í gegnum sumarið, eins og sumir hafa spáð, og koma í veg fyrir blóðugt vígi á þinginu í Denver.

Það er alveg ljóst að demókratar geta ekki leyft sér slík hjaðningavíg átta til níu vikum fyrir forsetakosningar. En hver ætlar að marka reglur svo báðum líki? Þegar er farið að rífast um hvernig eigi að breyta reglum í miðju ferlinu. Það blasir við að bæði munu berjast meðan stætt er.

mbl.is Romney hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitísk staða Vilhjálms - snýr Guðmundur aftur?

Vilhjálmur Þ. Það fer ekki á milli mála að REI-skýrslan er áfellisdómur yfir stjórnsýslu REI-málsins og hversu illa það var unnið. Það hlýtur að verða spurt um pólitíska stöðu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóra, í kjölfar þessarar skýrslu, enda er alveg ljóst að þessi mistök voru gerð á vakt hans sem borgarstjóra á meðan að málið var keyrt framhjá öðrum borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins.

Það er afleitt að vafi sé uppi um umboð Vilhjálms á eigendafundi OR. Mér finnst þetta mál hafa skaddað Vilhjálm Þ. gríðarlega mikið sem stjórnmálamann. Það er sjálfstæðismanna og sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík að svara því hvort hann njóti trausts eftir þetta hneykslismál og geti tekið aftur við embætti borgarstjóra eftir þrettán mánuði. Hann þarf að sækja sér traust aftur til að geta tekið við embættinu aftur. Mér finnst það í sannleika sagt ekki sjálfgefið eftir svo alvarleg pólitísk mistök. Það þarf í það minnsta að gera málið almennilega upp og fá að vita með vissu hvort Vilhjálmur hafði ekki vit á að kynna sér lykilgögn málsins eða laug að borgarbúum.

Í þessum efnum verður spurt um pólitíska ábyrgð og ennfremur ábyrgð þeirra sem stýrðu borgarreknu fyrirtæki augljóslega á villustigum. Að mínu mati þarf ábyrgð á þessu máli bæði að fara inn í fyrirtækið og ekki síður þarf það að vera gert upp á vettvangi stjórnmálanna. Það verður eflaust horft til þess hvort að Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI og áður OR, muni geta setið áfram sem yfirmaður á Bæjarhálsi. Hörð orð gengu á milli hans og Vilhjálms í REI-málinu í haust þar sem þeir vörpuðu ábyrgð á málinu á hvorn annan. Það gengur engan veginn og þarf að skýra mál í kjölfar þessarar skýrslu. Geta þessir menn unnið saman?

Þetta mál er skaðlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Vissulega mistók Sjálfstæðisflokknum að vinna hreinan meirihluta í borgarstjórn í kosningunum 2006, en sem stærsti flokkurinn í borgarstjórn leiddi hann borgina áfram eftir að samstaða R-listans brast og flokkunum sem hann mynduðu mistókst að halda meirihluta. Eftir tólf ára minnihlutasetu hafði hann öll tækifæri til að standa sig vel, gera betur en R-listinn og stjórna borginni af krafti þegar að hann hlaut til þess styrk og stuðning að leiða meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Eftir stendur að Vilhjálmur gerði alvarleg mistök sem leiðtogi og borgarstjóri.

Sjálfstæðisflokknum mistókst að standa undir trausti kjósenda í Reykjavík í þessu máli og stýrði Orkuveitu Reykjavíkur í sömu vandræði og sama verklagið og einkenndi R-listann. Það er hin stóra niðurstaða málsins. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík þarf að vinna sig frá þessu máli og vinna sig frá augljósum mistökum og hreinsa sig af þeim spillingarfnyk sem leggur af málinu. Skýrslan er niðurstaða pólitísks stýrihóps. Eflaust hefði verið betra að fá óháða aðila til verksins, en eftir stendur að þetta er heiðarleg niðurstaða og ég trúi henni. Það vita allir að mistök voru gerð og alveg út í hött að afneita þeim.

Pólitísk staða Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar verður að ráðast á næstu dögum. Ennfremur verður spurt um stöðu mála hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Getur Guðmundur Þóroddsson tekið sisvona aftur við forstjórastöðu hjá OR á Bæjarhálsinum? Þetta eru stórar spurningar og heiðarlegast væri að taka vel til hjá Orkuveitunni og reyna að koma málum áfram með þeim hætti að hreinsa til hjá Orkuveitunni, skapa trúverðugleika þar eftir allt klúðrið.

Það sem er verst í þessu máli er að lögfræðingur FL Group átti beina aðkomu að þjónustusamningi REI og Orkuveitu Reykjavíkur um að REI fengi fyrsta valrétt á öllum verkefnum Orkuveitunnar erlendis. Það er algjörlega til skammar að þetta gerist undir forystu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og er dökkur blettur yfir forystu hans á þessu kjörtímabili hversu sterk ítök fyrirtæki úti í bæ höfðu yfir stöðu mála.

Pólitíska ábyrgð málsins ber Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sem gerði afgerandi mistök. Hann hefur gengist við þeim mistökum, enda ekki annað hægt. Það er hans og sjálfstæðismanna að svara því hvort hann eigi að taka ábyrgð á þeim mistökum.

mbl.is Efast um umboð borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snjóflóð fyrir vestan - mildi að vel fór

Snjóflóð Þetta hefur verið kuldalegur dagur og víða ófærð og vont veður. Varla ferðaveður þar sem verst hefur verið. Fólk á að hafa vit á að fara ekkert. Það er gott að heyra að konan sem keyrði bílinn sem lenti í snjóflóðinu fyrir vestan hafi sloppið ómeidd og ekki hafi verið meiðsl á fólki í þessum þremur snjóflóðum í Súðavíkurhlíð.

Í þessum veðuraðstæðum geta fallið snjóflóð, gil geta hreinsast og því ekkert annað vit en loka þessum vegum. Það á enginn að ana út í óvissuna í slíku veðri og langbest að halda kyrru fyrir auðvitað.

mbl.is Þrjú snjóflóð í Súðavíkurhlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður húmor krakkanna á öskudegi

Með hnífana í bakinu Öskudagurinn er nú sem fyrr stóri dagur krakkanna. Það er gaman að sjá að þeir hafi fylgst það vel með pólitíkinni að gera grín að henni á deginum og pikka upp það sem hefur verið í umræðunni. Fannst það ansi skemmtilegt að sjá drenginn á Selfossi með hnífana í bakinu og gera smá grín að Framsóknarflokknum og ólgunni þar.

Á vísir.is sá ég að annar drengur lék Ólaf F. og var auðvitað með borgarstjórakeðju um hálsinn. Skondið og gott. Flestir krakkar fara kannski í búningi einhverra kvikmynda-, teiknimynda- og sjónvarpsþáttapersóna en það er ánægjulegt að enn aðrir taka upp það sem er í umræðunni og koma með smá skopsýn í þá átt.

Gervið hjá stráknum á Selfossi vakti líka athygli, auðvitað var hann vel dressaður og með bindi - hnífarnir í bakinu voru líka vel gerðir. Þetta er allavega gervi sem vekur athygli og vel heppnað.

mbl.is Með hnífasett í bakinu á öskudegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfellisdómur yfir Vilhjálmi - pólitískt viðskiptatafl

Vilhjálmur Þ.

Það er ekki hægt að segja annað en að REI-skýrslan sé áfellisdómur yfir stjórnsýslu alls málsins og einkum Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, formanni borgarráðs og fyrrum borgarstjóra, en fram kemur þar orðrétt að hann hafi ekki haft afgerandi umboð til vinnubragða sinna í málinu. Verður áhugavert að sjá hvernig hann svarar þessari skýrslu á morgun.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson á samkvæmt meirihlutasamkomulagi Sjálfstæðisflokks og F-lista að verða aftur borgarstjóri í Reykjavík eftir rúma þrettán mánuði, 22. mars 2009. Þar sem Björn Ingi Hrafnsson hefur hætt þátttöku í stjórnmálum og sagt af sér sem borgarfulltrúi er Vilhjálmur Þ. einn lykilmanna REI-málsins enn í borgarstjórn Reykjavíkur og því ljóst að spurt verður um hvort málið skaði hann frekar, jafnvel það mikið að hann verði ekki borgarstjóri að nýju samkvæmt samkomulaginu.

Las skýrsluna áðan á vef vísis. Það er áhugaverð lesning og öllum holl sem vilja kynna sér málið betur. Auk alls þess stórundarlega sem gerðist í því máli og vitað var eru þar ýmis atriði sem varpa öðru ljósi á heildarmyndina. Það sem er hið allra ljótasta er hvað FL-Group var með puttana í öllu ferlinu, reyna að manípúlera þessu öllu frá stjórnmálamönnum með umboð kjósenda, ná yfirráðum yfir málinu. Mjög ógeðfellt og áhrif fyrirtækjanna yfir þessu máli eru það dapurlegasta. Aðkoma þeirra var greinilega ráðandi, með því er illur grunur minn og fleiri allan feril málsins staðfestur.

Frá upphafi skrifaði ég gegn ákvörðunum þeirra sem héldu á málinu. Það var illa unnið, of hratt og flausturslega. Þetta lyktar af spillingu og skýrslan gefur fullt tilefni til þess að svo hafi verið. Það sem er verst er hvað stjórnmálamennirnir léku eins og lítil börn með auðjöfrunum, vildu vera peð í mjög stóru viðskiptatafli.

Þetta fólk á að hætta í pólitík og fara í bissness með eigin peninga, ekki annarra. Kannski endar Björn Ingi í bissness núna, eins og annar fallinn krónprins framsóknarmanna, Finnur Ingólfsson.


Bloggfærslur 7. febrúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband