27.3.2008 | 23:56
Klofningur demókrata - mesta krísan frá 1968

Mér finnst það merkilegt hjá Netmogganum að birta í fyrirsögn að vinsældir Hillary einnar séu að minnka. Bæði Hillary og Obama fá þungan skell í þessari könnun og það er djúpstæður klofningur í flokknum með stöðu mála. Það virðist ekkert benda til að annað þeirra geti sameinað flokkinn að baki sér í stöðunni. 22% vilja að bæði dragi framboð sitt til baka og er það til marks um að nýjustu krísur þeirra hafa skaðað þau bæði; er þá ýkjur Hillary vegna Bosníuferðarinnar og krísuna vegna kjaftæðisins í fjölskylduklerk Obama.
Bæði hafa skaðast á undanförnum dögum. Þessi hnútuköst þeirra á milli og málin tvö fyrrnefndu eru ekki aðeins að skaða þau bæði persónulega heldur einnig Demókrataflokkinn. Það er fjarstæða að hvorugt þeirra dragi sig í hlé með stöðuna eins og hún er. Það er ekkert svo gríðarlegur munur á þeim í þingfulltrúaslagnum og ef Hillary sigrar í Pennsylvaníu hefur hún bæði stöðu og skyldu til að halda áfram. Það eru engar líkur á að Obama nái útnefningunni í forkosningaferlinu og því er undarleg krafa að flokkurinn sameinist að baki honum í þessari jöfnu stöðu þar sem hvorugur frambjóðandinn hefur náð útnefningunni.
Þeim vantar báðum talsvert upp á að ná hnossinu og stærðfræðin án Flórída og Michigan segir ósköp einfaldlega að þessi slagur verður tekinn alla leið til Denver. Það yrði pólitískt stórslys fyrir Demókrataflokkinn vissulega, en demókratar geta sjálfum sér um kennt með meingallað forkosningaferli sem hefur verið við lýði frá árinu 1984 en virðist nú í fyrsta skipti vera að skera flokkinn í tvær fylkingar; þeirra sem fylgja Hillary alla leið og þeirra sem fylgja Obama. Það er rammt hatur á milli þessara fylkinga og þrumufleygarnir fljúga á milli. Það er engin stjórn á þessum slag - hann er kominn út í tóma vitleysu.
Mér sýnist demókratar vera komnir í sína mestu krísu frá árinu 1968. Þá logaði flokkurinn stafna á milli í forkosningaferlinu. Robert F. Kennedy var myrtur á mikilvægasta hluta kosningabaráttunnar í júní 1968, að kvöldi þess dags sem hann sigraði forkosningarnar í Kaliforníu, og tvær fylkingar börðust hatrammlega fyrir hnossinu á flokksþinginu í Chicago í Illinois. Að lokum vann Hubert Humphrey, varaforseti Johnson-stjórnarinnar, útnefninguna en tapaði forsetakosningunum fyrir Richard Nixon. Ólgan þá skaðaði flokkinn, sem fyrir var stórlega skaddaður vegna veikrar stöðu Johnsons forseta.
Það er vissulega eitt og annað ólíkt með stöðu demókrata í kosningunum 1968. Þeir höfðu þá Hvíta húsið, Johnson forseti hafði orðið að hætta við að sækjast eftir endurkjöri öðru sinni, sem hann gat þar sem hann hafði aðeins setið innan við hálft kjörtímabil Kennedys forseta, sem myrtur var í heimaríki Johnsons, Texas, í nóvember 1963. Víetnamstríðið sligaði Johnson. Með því að hann dró sig í hlé gat flokkurinn endurnýjað sig en var sjálfum sér verstur í forkosningaferlinu og flokksþingið í Chicago var fjarri því settlegt.
Þessar væringar anno 2008 eru skaðlegar fyrir þann flokk sem fyrirfram var talinn með pálmann í höndunum. Þetta er komið í rembihnút hinn mesta. Bæði forsetaefnin eru sköðuð og hafa ekki náð útnefningunni á heiðarlegan hátt í forkosningaferlinu enn - það sem verra er að flokkurinn þeirra er mun meira skaddaður og að óbreyttu virðist hreinn vígvöllur blasa við demókrötum næstu mánuðina. Tel blasa við að demókratar megi ekki við blóðugu sólarlagi í Denver og gildir þá einu hvort forsetaefnið tapar þar úr þessu.
Sá eini sem getur brosað þessa dagana í forsetaslagnum vestanhafs er John McCain, hinn lífsreyndi hermaður og pólitíski klækjarefur, sem á áttræðisaldri þarf aðeins að sigra einn demókrata til að komast í Hvíta húsið, hljóta hnossið sem hann hefur viljað árum saman. Eins og staðan er núna myndi ég telja mjög líklegt að hann vinni kosningarnar. Demókratar eru búnir að klúðra mikilvægum tíma fyrir sér í tóma vitleysu. Það er vandséð hvernig þeir geti reddað sér úr þessu feni með sómasamlegum hætti.
![]() |
Vinsældir Hillary Clinton minnka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.3.2008 | 20:50
Sterk skilaboð bílstjóra - umdeild mótmæli
Það má alveg deila um hvort rétt hafi verið að mótmæla án þess að tilkynna það fyrirfram og að því leyti eru ummæli slökkviliðsstjórans í borginni skiljanleg og eiga alveg rétt á sér. Það er alvarlegt mál þegar að aðalsamgönguæðar eru lokaðar af fyrir slökkviliði og sjúkraflutningsfólki sem þurfa að eiga greiða leið, enda aldrei að vita hvenær að þörf sé á því að komast um lokaðan veginn í slíkum mótmælum.
Mér fannst skilaboðin sem atvinnubílstjórar sendu út mjög sterk og afgerandi. Það er svo annað mál hvort að svo afgerandi mótmæli verði umdeild og jafnvel kalli á að málstaðurinn fái ekki samúð almennings. Það var greinilegt að sumir sem voru á eftir bílstjórunum sem mótmæltu voru ekki sátt við þessi mótmæli vegna þess að það sjálft var í bið eftir að komast sinnar leiðar.
Mótmæli með einum eða öðrum hætti geta komið skilaboðum vissra hópa í samfélaginu á framfæri. Þess eru líka dæmi að mótmæli skaði málstaðinn. Þetta er mál sem flestir eru sammála um. Í dag voru þetta fyrst og fremst sterk mótmæli sem náðu sínum árangri en spurning hvort að síendurtekin mótmæli af þessu tagi verði til að styrkja atvinnubílstjóra og málstað þeirra.
![]() |
Lokun vegarins háalvarlegt mál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.3.2008 | 16:48
Táknræn mótmæli atvinnubílstjóra

Þessum skilaboðum er ekki aðeins beint að olíufélögunum heldur stjórnvöldum. Mörgum hefur blöskrað aðgerðaleysi þeirra að undanförnu. Sofandagangurinn hefur virst algjör hjá þessari sterku ríkisstjórn í þingmannafjölda, sem virðist ekki hafa sterkar lausnir þegar að kemur að stóru málunum. Í eldsneytismálunum er eðlilega spurt um hvað stjórnvöld ætli sér að gera.
Sérstaklega finnst mér sofandagangur fjölmiðla áberandi hvað varðar að fá álit Kristjáns Möllers, samgönguráðherra, á eldsneytisálögum. Sem stjórnarandstæðingi á sínum tíma blöskraði hann þegar að bensínlítrinn var í tæpum 123 krónum og díselolía í 120 krónum og kallaði þá eftir því um öll torg að fjármálaráðherra ætti að lækka álögur á eldsneyti. Sagði reyndar að ráðherrann ætti að gera eitthvað til að verða ekki uppnefndur skattpíningarráðherrann. Hver er skoðun sama manns nú?
Skil vel mótmæli atvinnubílstjóra. Þetta er hjartans mál fyrir landsmenn alla og eðlilega lætur fólk í sér heyra. Það er samt ekkert sem bendir til að bjart sé framundan og því spurt um hvað stjórnvöld ætli sér að gera.
![]() |
Bílstjórar hætta aðgerðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.3.2008 | 13:39
Eftirlýsti Pólverjinn í Keilufellsmálinu handtekinn
Held að flestum hafi fundist nóg um lýsingarnar á ofbeldinu sem grasserar í samfélaginu og hvernig viss hópur Pólverja kúgar samlanda sína hérlendis, eins og virðist hafa verið í þessu máli. Þessi afbrot innflytjenda eru alvarleg og það verður að taka á þeim. Keilufellsmálið er dæmi um gróft ofbeldisverk sem ber að fordæma og uppræta. Við lifum ekki í saklausu samfélagi lengur og ofbeldið er að verða meira og grimmara en við höfum áður upplifað.
![]() |
Eftirlýstur Pólverji fundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2008 | 11:22
Að flýja úr leikskólanum

Þegar að ég var á gæsluvellinum í Norðurbyggðinni í æsku var það heitasta ósk mín að ná að strjúka þaðan, allavega ná að gera það einu sinni. Gerði nokkrar heiðarlegar tilraunir til þess á fyrstu dögunum. Samdi meira að segja flóttaáætlun í huganum (sem virkar ekkert síður spennandi en aðrar fangelsisflóttatilraunir) og var nokkuð líklegur með að taka það plan alla leið.
Hætti þó við það þegar að ég komst að því að þetta fangelsi var ekkert svo leiðinlegt og að það var eiginlega ekkert síður skemmtilegra að vera þarna en heima hjá sér. En fyrsta hugsun mín á þessu blessaða svæði var hvernig að ég kæmist í burtu og eflaust var ég ekki einn um það.
En þetta er einn af þessum sérstöku fréttamolum sem koma minninu á flug og eflaust erum við mörg sem sömdum flóttaplan í huganum af gæsluvelli eða leikskóla og vildum losna úr þessu víggirta krakkafangelsi. En það er auðvitað best að halda kyrru fyrir og sætta sig við það sem maður ræður ekki við.
En í minningunni var þetta ekkert svo voðalegur staður. Þarna eignaðist ég nefnilega marga trausta vini, suma hef ég ekki hitt árum saman en rekst stundum á einn og einn sem man eftir mér og þessu gæsluvallarlífi sem er einhvern veginn í minningunni svolítið sérstakt.
![]() |
Flótti úr leikskóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2008 | 00:46
Glæsilegur íslenskur sigur í Slóvakíu

Það er orðið nokkuð um liðið síðan að landsliðið hefur getað leyft sér þann munað að gleðjast yfir leik sínum og það er fullt tilefni til þess í kvöld. Það var auðvitað gæfuspor að skipta um þjálfara í haust og ráða Ólaf Jóhannesson, margreyndan þjálfara, til að taka við landsliðinu. Það þurfti að skipta um kúrs. Og ég tel að það séu allar forsendur til að hann geti náð þeim árangri sem við öllum ætlumst til af honum.
Ákvarðanir hans fyrir leikinn sýndu vel að hann er að hugsa um að breyta vel til. Eiður Smári var t.d. ekki fyrirliði og honum send viss skilaboð með því. Það á enginn neitt pláss hjá Ólafi. Heilt yfir er mikilvægt að nýr þjálfari stokki upp og mér finnst hann hafa lagt góðan grunn að því sem koma skal á næstunni.
Öll vonum við að bjartari tímar séu framundan hjá landsliðinu nú eftir þennan sigur í vináttulandsleik við Slóvakana. Við getum verið stolt af okkar mönnum því á þessu kvöldi. Það eru margir góðir nýjir leikmenn að sýna að þeir standa sig vel og nýjir tímar eru vonandi framundan - það er lykilatriði að á þessum góða efnivið verði byggt nýtt og sterkt landslið á komandi árum.
![]() |
Eiður og Gunnar tryggðu sigur gegn Slóvökum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)