13.4.2008 | 19:23
Þorgerður Katrín á að sniðganga Ólympíuleikana
Geri þá kröfu til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, að hún sniðgangi Ólympíuleikana í Peking í sumar og tali með því gegn mannréttindabrotum stjórnvalda í Kína. Ákveði hún að fara er ekki hægt annað en líta svo á að ráðherrann sé að hampa stjórnvöldum í Kína og mannréttindabrotum þeirra. Við eigum að taka af skarið sem fyrst um að ekki verði farið. Þetta hefur Angela Merkel, kanslari Þýskalands, þegar gert með myndarbrag.
Öllu mannréttindasinnuðu fólki er fyrir löngu nóg boðið hvernig stjórnvöld í Kína fótumtroða mannréttindi. Á þessu Ólympíuári í Kína er mikilvægt að taka af skarið og tala máli mannréttinda, ekki bara í Kína heldur um víða veröld. Það er gert með því að sniðganga Ólympíuleika í landi einræðis og skoðanakúgunar. Það er gullið tækifæri að berja á Kínverjum á þessu ári og tala gegn stjórnvöldum þar með því einmitt að sniðganga Ólympíuleikana.
Þorgerður Katrín á að vita þetta og ætti að senda út þau skilaboð sem fyrst að hún ætli að sitja heima. Fari stjórnmálamenn á íþróttahátíð í einræðisríki er auðvelt að túlka það sem svo að mannréttindi skipti þá engu máli. Í slíkri ferð felast allavega pólitísk skilaboð. Ætla rétt að vona að Þorgerður Katrín sé það merkilegur stjórnmálamaður að afþakka pent að fara til Kína.
![]() |
Murderers" málað á kínverska sendiráðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
13.4.2008 | 18:19
Klúður hjá Obama - sjálfstortíming demókrata

Þegar allt kemur til alls er Barack Obama því miður ekkert annað en reynslulaus stjórnmálamaður og virðist bæði snobbaður og úr tengslum við almenning. Obama hefur gert alvarleg mistök á síðustu vikum og er að færa bæði Hillary og John McCain gullin tækifæri til að leggja hann í rúst pólitískt. Enginn stjórnmálamaður með viti í baráttu um valdamesta embætti heims lætur svona ummæli flakka, nema þá að honum sé skítsama um allt. Enda hefur það komið fram að Obama sagði þetta á lokuðum fundi í San Francisco, vissi ekki að ummælin voru tekin upp og hefur tekið klaufalega á viðbrögðum almennings.
Sérstaklega eru þetta alvarleg mistök fyrir Obama í ljósi þess að hann á eftir að fara í forkosningar í Pennsylvaníu og Indiana - sannfæra almenning þar, sem hann hefur talað kuldalega um, um að kjósa sig og það sem fulltrúa vonar og nýrra tíma. Sá grunnur veikist mjög með svona ummælum og vandséð hvernig fólk á þessum slóðum geti séð að Obama sem sannan boðbera málflutnings síns. Svona ummæli skaða hann í þeim ríkjum sem hann má ekki við að tapa í, hvort sem það verður gegn Hillary eða McCain. Það má treysta því að þessi ummæli verði spiluð aftur og aftur, ekki mun vanta þá sem vilja rústa þessum manni.
Held reyndar að demókratar séu búnir að klúðra þessu kosningaári. Obama hefur afhjúpað sig sem hatursfullan tækifærissinna, nauðaómerkilegan stjórnmálamann að öllu leyti, og Hillary náði ekki að sameina flokkinn að baki sér. Flokkurinn er klofinn og vandséð hvernig þar verði sameinast um frambjóðanda. Mistök Obama veikja hann ekki síst meðal óákveðinna kjósenda sem munu hér eftir taka öllu sem hann segir með varúð. Honum hefur verið hrósað með skrúðmælgi sínu en hann virðist mjög gloppóttur og falskur innst inni eftir allt saman.
Er farinn að hallast að því að John McCain verði næsti forseti Bandaríkjanna. Hann nýtur góðs af sjálfstortímingu demókrata. Heimskulega kjaftablaðrið í Obama og vitleysan í Hillary hefur leitt til þess að þau hafa bæði fallið í áliti. Get ekki betur séð en að demókratar séu komnir í algjört fen með forkosningaferlið og hafi misst sig út í algjöra vitleysu. Obama hefur sérstaklega fallið í áliti, átti eiginlega von á að hann væri vandaðri stjórnmálamaður og missti sig ekki í svona snobbhatur á almúgafólki.
Það versta er að hann hefur ekki einu sinni manndóm til að biðjast afsökunar á ruglinu í sér. En við hverju má búast frá manni sem fór með konu og börn í sunnudagsmessu til rugludallsins Jeremiah Wright.
Þetta kallast víst elítuismi sem hrjáir Obama - ekki satt?
![]() |
Obama harmar ummæli sín |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.4.2008 | 15:21
Margir í bænum um helgina

Það má alltaf búast við einhverju skralli þar sem mikill fjöldi kemur saman, er bara hluti af dæminu og ég held að allir sem komu hingað hafi skemmt sér vel að mestu leyti. Söngkeppni framhaldsskólanna er að verða fastur viðburður á Akureyri og það er mjög ánægjulegt að fá allan þennan hóp hingað og sérstaklega gott fyrir skólana hér að vera með keppnina á heimavelli.
Þannig að ég tel að allir geti verið vel sáttir eftir helgina. Hingað komu mjög margir og vonandi hafa allir fundið eitthvað skemmtilegt við sitt hæfi.
![]() |
Erill hjá lögreglunni á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2008 | 00:25
Flott söngkeppni á Akureyri - þörf á breytingum?

Vil óska Sigurði Þór Óskarssyni, sem söng fyrir Verzlunarskóla Íslands, innilega til hamingju með verðskuldaðan sigur, en mér fannst hann standa sig hiklaust best í kvöld með flott lag, íslenskaða útgáfu af The Professor með Damien Rice. Fulltrúar skólanna hér stóðu sig vel; bæði Stefán Þór Friðriksson með Radiohead-lagið Fake Plastic Trees og Helga Maggý Magnúsdóttir með Coldplay-smellinn Fix You. Lagið sem lenti í þriðja sætinu, sungið af fulltrúa FÁ, var líka súpergott.
Hér um helgina hefur mikið af ungu fólki verið í bænum vegna keppninnar og ég vona að það hafi skemmt sér vel og notið þess að koma norður. Vonandi verður það fastur liður hér eftir að keppnin sé haldin hér nyrðra. Skemmtilegt að horfa á keppnina, enda eru mörg góð tónlistarefni í þessum hópi, flestir undirbjuggu sig vel og lögðu allt sitt í atriðið. Flest mjög fagmannlega gert. Ekki geta allir unnið, en ég hef trú á því að í þessum hópi sé margir mjög efnilegir söngvarar sem geti farið mjög langt.
Í fyrra sigraði Dalvíkingurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson keppnina, fyrir VMA, með Deep Purple-laginu Perfect Stranger. Man ekki hvað það hét á íslensku í flutningi hans. En hvað með það, Eyþór Ingi stóð sig langbest í keppninni þá og hefur vakið mikla athygli síðan. Þá varð Arnar Már Friðriksson í öðru sætinu, man reyndar ekki fyrir hvaða skóla. Þeir keppa um næstu helgi til úrslita um söngvarastöðuna í Bandinu hans Bubba. Tveir flottir söngvarar. Mér finnst þó Eyþór Ingi bera af og er viss um að hann sigri.
Reyndar er einn galli við keppnina. Hún er eiginlega of löng. 32 söngatriði eru ansi veglegt prógramm og væri ekki svo galið að splitta keppninni upp og gera þetta þéttara prógramm. Þó það sé alltaf gaman af söngkeppnum er þetta kannski einum of langt. Mætti hugsa um margar leiðir til að stokka þetta eitthvað upp.
![]() |
Verslósigur í söngkeppni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)