REI-málið er til skammar fyrir Sjálfstæðisflokkinn

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins

Ég tek heilshugar undir með leiðarahöfundi Morgunblaðsins í morgun. Þar er hvasst ritað en þau skrif eru heiðarleg og rétt. REI-málið er auðvitað til skammar fyrir Sjálfstæðisflokkinn, er ein mesta skömm flokksins í tæplega 80 ára sögu hans. Með því máli og mistökum tengdum því klúðraði Sjálfstæðisflokkurinn því að taka völdin sannfærandi og traust eftir tólf ára valdatíð R-listans.

Viðtal Kastljóssins í gærkvöldi sýndi hringlandahátt Sjálfstæðisflokksins með forystu REI enn í dag. Það er eðlilegt að því sé velt fyrir sér hvort eigi að fara í landvinninga á erlendri grund með peningum skattborgara eður ei. Það er annaðhvort. Í þessum efnum verður ekki bæði sleppt og haldið. Það þarf skýra forystu og afdráttarlaus svör. Sé þeim ekki svarað heiðarlega og eftir hugsjónum Sjálfstæðisflokksins fer illa fyrir þeim sem ætlar að tala sem hægrimaður í borgarstjórn Reykjavíkur. Ekki flóknara en það, takk.

Kjartan Magnússon skildi eftir sig fleiri spurningar en þeim sem hann svaraði í viðtalinu í gærkvöldi. Hversvegna er ekki hægt að koma með skýr svör og afdráttarlausa stefnu. Endar REI-málið með því að sú sýn sem Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, mótaði verði sú sem farin verður eftir allt saman. Til lítils var þá barist í upphafi, segi ég og skrifa. Í þessum efnum er ekki spurt um klíkuplott og vinaleg svör heldur hugsjónir. Ef þessi borgarstjórnarflokkur getur ekki staðið vörð um hugsjónir Sjálfstæðisflokksins eru þau í mjög vondum málum.

Finnst Mogginn tala heiðarlega og hreint út í dag. Það er eðlilegt. Man satt best að segja ekki eftir svo hvössum skrifum þaðan áður í garð forystu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hringlandahátturinn er orðinn algjör og fólki er nóg boðið. Kastljósviðtalið í gær svaraði engum meginspurningum. Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík eiginlega að gera, eru engar lausnir uppi og hvað varð um hugsjónirnar? Þetta eru spurningar sem þarf að fá svör fyrir.

Hef ekki farið leynt með það mat mitt að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hafi klúðrað sínum málum allverulega. Ekkert virðist það batna með þessum loðnu og lélegu svörum. Ekkert virðist ljóst og enn eru spurningar uppi um meginatriði. Hvar er pólitísk sýn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík? Er hún virkilega engin. Aumt er hlutskipti þessa fólks ef það er stóra svarið við stóru spurningunum.

Hvað er það í REI-málinu sem þolir ekki dagsins ljós? Hverjum er verið að bjarga? Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að standa vörð um hugsjónir sínar? Þetta eru stóru spurningar og svörin við þeim ráða því hvort Sjálfstæðisflokkurinn endurvinnur sér traust að nýju með leiðtoga sem hefur fyrir löngu brennt allar brýr að baki sér.


Bloggfrí

Ætla að taka mér frí frá bloggskrifum næstu dagana. Verð í Reykjavík um helgina og ætla að taka því rólega á meðan. Kem aftur væntanlega eftir helgina.

Að lifa með krabbameini

Vona að leikkonunni Cynthiu Nixon muni ganga vel í baráttu hennar við brjóstakrabbameinið. Þekki vel þessa baráttu við krabbameinið, enda hefur móðir mín átt erfiðan vetur, eftir að hún greindist með krabbamein síðsumars 2007. Við hafa tekið miklar meðferðir bæði lyfja- og geislameðferð, sem sér nú fyrir endann á, sem betur fer. Það er eitt að heyra af slíkum veikindum og annað að upplifa í nánustu fjölskyldu sinni.

Það er áfall fyrir alla sem upplifa þegar að ástvinur veikist svo alvarlega. Þetta er erfið barátta sem tekur á, ekki bara fyrir þann sem greinist, heldur alla sem nærri honum stendur. Þetta er sameiginlegt verkefni heillar fjölskyldu.

mbl.is Cynthia Nixon með brjóstakrabbamein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband