Hvassar skeytasendingar milli Árna og Gunnars

Árni Johnsen Hvöss orð ganga nú á milli Gunnars Gunnarssonar, aðstoðarvegamálastjóra, og Árna Johnsen, alþingismanns, og hefur Gunnar ákveðið að kæra Árna fyrir ærumeiðingar í Morgunblaðsgrein í morgun. Það er orðið langt síðan að ég hef séð jafn harðorða yfirlýsingu gegn kjörnum fulltrúa og Gunnar beinir til Árna eftir þessi greinaskrif. Segir hann Árna vera Sjálfstæðisflokknum og þjóðinni til skammar.

Hef í sjálfu sér aldrei farið leynt með að ég vildi ekki Árna í þingframboð á síðasta ári. Fannst það rangt að hann færi aftur í framboð eftir alvarleg lögbrot sín fyrir nokkrum árum. Fannst það hvorki honum né Sjálfstæðisflokknum til góða. Fór meira að segja í viðtal á Stöð 2 til að tala gegn þingframboðinu eftir ítarleg bloggskrif. Er enn sömu skoðunar og finnst ekkert hafa breyst í þeim efnum að afleitt hafi verið að Árni hafi aftur farið á þing.

Enda sýnist mér það hafa sannast af því að Árna hefur ekki verið treyst fyrir trúnaðarstörfum innan flokksins, eftir að flokksmenn í Suðurkjördæmi völdu hann á þing, þó þeir hafi reyndar lækkað hann um sæti með útstrikunum á kjördegi og veikt pólitíska stöðu hans til muna. Hann hefur verið utangarðsmaður í þingflokknum. Var ekki treyst fyrir formennsku eða varaformennsku í þingnefndum eftir kosningarnar, né öðrum embættum, þó hann hafi átt fjórtán ára þingferil áður að baki er hann sneri aftur á þing.

Þegar að Einar Oddur Kristjánsson féll frá var Ólöf Nordal, nýliði á þingi, valin varaformaður samgöngunefndar fram yfir Árna. Árni hafði verið formaður samgöngunefndar áður, á árunum 1999-2001, er hann varð að segja af sér þingmennsku eftir að uppvíst varð um afbrot hans, sem mikið hefur verið fjallað um. Held að sagan muni dæma endurkomu hans á þing sem mistök og mér finnst forysta flokksins hafa fellt þann dóm vel með því að velja Árna ekki til neinna trúnaðarstarfa.

Árni gengur mjög langt í greinaskrifum sínum í dag og mér finnst hann ráðast ómaklega að Gunnari. Enda svarar hann vel fyrir sig og ætlar að kæra Árna. Má vera að Gunnar sé einum of hvassyrtur í yfirlýsingunni, en það þarf kannski ekki að koma að óvörum þar sem vegið er mjög að heiðri hans og þarf ekki að undrast að hann grípi til varna.

mbl.is Ætlar að kæra Árna Johnsen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svekkjandi úrslit - spennandi einvígi um titilinn

Chelsea fagnar sigriAnsi var það nú svekkjandi að Manchester United hafi ekki tekist að tryggja sér meistaratitilinn í dag, en sigur hefði nokkuð örugglega fært þeim titilinn vegna markatölunnar. En kannski er ekkert svo slæmt, þrátt fyrir gremjuna með úrslitin, að spennan haldist í einvígi Chelsea og United um titilinn eilítið lengur.

Bara ágætt að hafa spennu í þessu allt til síðasta leiks, þó ég verði að vera alveg heiðarlegur og viðurkenna að ég hefði ekki syrgt að komast hefði mátt hjá þeirri spennu með sigri í dag. Svo verður að auki áhugavert að sjá hvernig fer í Evrópubikarnum.

Chelsea og Manchester United eiga spennandi leiki framundan á móti Liverpool og Barcelona á næstunni. Allir knattspyrnuspekingar munu fylgjast vel með því.

Verður gaman að sjá hvort að sama lið nær að taka báða þessa titla.


mbl.is Chelsea sigraði Man Utd, 2:1, og liðin jöfn að stigum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttnæmur hárvöxtur fréttamanna

Haukur HólmHló vænt þegar að ég sá hversu fréttnæmt það þykir að fréttamaðurinn Haukur Hólm sé með veglega hliðarbarta. Tók reyndar fyrst eftir þessu þegar að Hólmararnir; Haukur, Svansí og Sturla voru öll saman við Rauðavatn um daginn að tala um flipp bílstjóranna. Merkilegt hvað hárvöxtur fréttamanna verður fljótt frétt.

Við sjáum þetta fólk svosem á hverjum degi, en common, hví er þetta frétt? Mér skilst að allar konur yfir fertugu hafi fengið flogakast þegar að Bogi Ágústsson skipti um hárgreiðslu og síminn í Efstaleitinu hafi rauðglóað þegar að kvenkyns aðdáendur hins gráhærða akkeris hringdu unnvörpum til að reyna að koma vitinu fyrir kallgreyið og fá hann til að vera með gömlu greiðsluna áfram.

Fréttakyntröllið Logi Bergmann stuðaði allar konur með virka sjón, held ég, þegar að hann fór að safna skeggi og þær tóku varla gleði sína á ný fyrr en hann hafði rakað sig. Þeir Bogi og Logi voru fljótir að fá viðbrögð á það hvernig þeir ættu að hafa andlitið á sér þegar að þeir breyttu út af venjunni.

Svo var fyndið hvernig allt stuðaðist til þegar að Sigmundur Ernir hafði smáskegg hérna í denn. Eitthvað lengra síðan en það endaði með því að kappinn rakaði sig fyrir húsfreyjur þessa lands, sérstaklega þær hérna fyrir norðan held ég.

Hár er fljótt að verða frétt í fréttamennskunni greinilega.


mbl.is Hárvöxtur Hauks Holm eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru heimilistækin okkar stórhættuleg?

Ísskápur springur á limminu Hlýtur að hafa verið óskemmtileg lífsreynsla að vakna upp við það að ísskápurinn springi. Ekki hægt annað en velta því fyrir sé hvað það séu eiginlega miklar líkur á að svona geti almennt gerst og fróðlegt að vita hvað kom eiginlega fyrir.

Þetta leiðir hugann að því hvort að heimilistækin okkar séu í raun öll stórhættuleg að einhverju leyti. Lengi hefur verið varað við að eldhætta sé af sjónvörpunum og þau geti verið stórhættuleg, sérstaklega gömlu týpurnar auðvitað.

Talandi um ísskápa. Er eiginlega stórhissa að gamli ísskápurinn sem ég átti um árabil hafi ekki sprungið, fyrst þessi gerði það. Hann var kominn mjög til ára sinna, gaf frá sér leiðinleg hljóð undir lokin og var farinn að frysta sig, myndaðist ísklumpur reglulega.

Þvílík hljóð og hann var svo gjörsamlega búinn með sínu bestu daga undir lokin. Fór sæll með hann á haugana og sá ekki mikið eftir honum. Datt hann þó strax í hug, einhverra hluta vegna, þegar að ég las þessa frétt.

Kannski eru heimilistækin okkar stórhættuleg að einhverju leyti, má vera. En lífið án þeirra væri frekar leiðinlegt.

mbl.is Ísskápurinn sprakk í tætlur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kveikt í fjölbýlishúsi - þvílík mannvonska

Enn einu sinni hefur eldur nú verið kveiktur af mannavöldum í fjölbýlishúsi í Reykjavík. Held að þetta sé í fimmta eða sjötta skipti sem það gerist á innan við ári. Dapurlegra er en orð fá lýst að kveikt sé í heimili fólks - eiginlega ótrúleg mannvonska sem í því felst. Heimili fólks er þeirra helgasti staður og skelfilegt sé eldur kveiktur til að vinna því skaða.

Á stundum sem þessum er hreinlega spurt hvað sé að gerast í samfélaginu, þegar að eldur er kveiktur í húsi og greinilega gert hreint tilræði við fólk sem býr þar.


mbl.is Eldur lagður að íbúðarhúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru umdeildar aðgerðir lögreglunnar réttar?

Frá mótmælum Deilt hefur verið um hlut lögreglunnar í mótmælunum við Rauðavatn á miðvikudag. Er sammála Láru Ómarsdóttur, fyrrum fréttamanni Stöðvar 2, í Kastljósviðtali í kvöld að lögreglan hafi ekki átt annarra kosta völ en taka á stöðu mála af ábyrgð og festu á miðvikudag. Mótmælin voru komin út í vitleysu. Ekkert benti til að bílstjórar ætluðu að færa bílana - engin stjórn var á því sem gerðist þar og flest sem benti til að ráðast ætti að lögreglumönnum.

Held að enginn sé hlynntur því að gas sé notað á fólk í mótmælum. En lögreglan þarf að beita valdi til að verjast ágangi þeirra sem veitast að henni. Sem betur fer eru ekki mörg dæmi um það í seinni tíð. Þarna var ástandið við suðumörk og flest sem benti til að stjórnleysið í hópnum væri orðið það mikið að taka yrði af skarið. Pétur Tyrfingsson ritaði ágætis grein á vef sinn um það hvernig öflugur leiðtogi hefði leitt sinn hóp í mótmælum en það hafi ekki gerst við Rauðavatn, þar sem enginn alvöru leiðtogi hefði frontað.

Mæli með þessari grein. Hann þekkir mjög vel mótmælasnilld og hvernig á að berjast frá verkalýðsdögunum og ég tel að hann hafi rétt fyrir sér hvar þetta varð að þeim skrípaleik sem blasti við þegar að leið á miðvikudaginn og unglingar í skemmtanaleit voru farnir að henda eggjum á lögreglumenn, bara vegna þess að það væri svo gaman en ekki vegna þess að þeir væru að verja af hugsjónaeldi málstað bílstjóranna. Lögreglunni ber að hafa stjórn á aðstæðum og ég tel að hún hafi orðið að grípa inn í.

Ekki ætla ég að segja hvort hún gekk of langt, en aðstæður voru þess eðlis að allt var farið út í vitleysu hvort eð er. Vonandi læra allir eitthvað á þessu máli, löggan sem og aðrir. Sérstaklega þó þessir bílstjórar, sem tókst undraskjótt að eyðileggja mótmælin fyrir sér, með lélegri taktík og afspyrnuslöppum talsmanni, sem því miður hefur alveg hjálparlaust gengisfellt í senn sjálfan sig og málstað þeirra sem hann frontar.

mbl.is Lögreglan eyddi gögnum af farsíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt ákvörðun hjá Láru - trúverðugleikinn í húfi

Lára Ómarsdóttir Mikið hefur verið rætt og ritað um uppsögn Láru Ómarsdóttur eftir eggjakastsmálið margfræga sem skaddaði trúverðugleika hennar. Mikið hefur gengið á hjá henni og eðlilega hefur hún gengið í gegnum erfið kaflaskil eftir mikil mistök. Hún stóð sig misjafnlega við að svara fyrir sig í spjallþáttum kvöldsins, var fín í Kastljósi en öllu slappari í Íslandi í dag, en þar var líka gengið nær henni og hún átti greinilega í meiri erfiðleikum með að verjast og var þar að auki í meiri tilfinningalegu uppnámi.

Lára gerði rétt með því að segja upp. Þetta mál skaddaði bæði hana og fréttastofu Stöðvar 2 - stefndi í allsherjarvandræðagang fyrir alla þá sem þar vinna. Enda snýst fréttamennska fyrst og fremst um trúverðugleika, verði fréttamaður uppvís að því að tala óviðeigandi eða reyna að krydda fréttirnar á vettvangi þeirra er illt í efni. Trúverðugleiki fréttastofunnar var undir í þessum efnum og Lára vissi vel að málið myndi ekki gufa upp nema með því að hún tæki af skarið. Hún kláraði þetta mál því bæði af skynsemi og röggsemi án þess að hika og á réttum tímapunkti.

Efast ekki um að Lára er dugleg og samviskusöm í sínu. Efasemdir hafa þó heyrst um hvort hún væri alltaf hlutlaus og ekki hafa allir verið sáttir við hana. Ekki ætla ég að dæma hana fyrir það. Fannst Lára oft standa sig vel og gera hlutina vel, hún var ófeimin við að taka á fréttunum, spyrja erfiðra spurninga og sauma að þeim sem gera mistök í pólitíkinni eða hafa ekki gert hlutina í takt við það sem þeir lofuðu sjálfir í kosningum eða í dagsins önn þess einmanalega lífs sem oft fylgir stjórnmálum. Í eigin klúðri var eðlilega spurt um hvort hún ætti ekki að taka ábyrgð á þeim. Ekkert annað kom til greina og hún náði að ljúka málinu áður en það varð stórslys fyrir fréttastofuna.

Kemur mér samt mest á óvart að Steingrímur Sævarr Ólafsson, fréttastjóri, hafi ekki sjálfur tekið á þessu máli. Sé frásögn hans rétt af því að hann sem fréttastjóri hafi ekki tekið til sinna ráða eða viljað ljúka málinu af ábyrgð og án þess að skuggi félli á trúverðugleika vinnustaðarins er eðlilegt að spurt sé hversu sterkur fréttastjóri hann sé eiginlega. En kannski er óþarfi að spyrja: Lára lauk málinu áður en trúverðugleiki stöðvarinnar gufaði upp. En vissulega er hann skaddaður á eftir, það er ekki hægt að neita því.

Vona að allir fréttamenn læri sitt á þessu klúðri Láru. Í fréttamennsku skiptir máli að koma fram af ábyrgð og fjalla um fréttir en ekki búa þær til, hvort sem það er gert með vandræðagangi eða ásetningi.

mbl.is Steingrímur Sævarr: Lára er maður að meiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband