27.4.2008 | 22:11
Fámenni hjá Sturlu - byrjað á vitlausum enda?

Held að bílstjórarnir hafi byrjað á vitlausum enda í mótmælum sínum. Hefðu þeir byrjað með einmitt svona týpu af mótmælum, löglegum fyrir það fyrsta, eins og Sturla var með í dag hefðu þeir náð meiri árangri; verið markvissari, yfirvegaðri og náð einhverjum stuðningi. Þeir höfðu sennilega mjög mikinn stuðning í upphafi en mistök talsmannsins og þeirra sem næst honum stóðu höfðu fljótt þau áhrif að landsmenn voru argir yfir að vera fastir í biðröð og þeir gengu einfaldlega of langt.
Í dag virkaði þetta eins og einn maður væri að mótmæla, maður án stuðnings, einkum almennings. Þetta var allavega mjög einmanalegt. Þetta hefur verið viðburðarík vika, hennar verður sennilega minnst sem vikunnar þegar að bílstjórarnir misstu stuðning almennings. Einvera Sturlu, með örfáa á eftir sér í göngunni verður táknræn fyrir það hvað hann var einmana.
![]() |
Sturla: Ég berst fyrir ykkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.4.2008 | 17:21
Óhugnaður í Austurríki
Mikil sorgarsaga er að afhjúpast nú í bænum Amstetten í Austurríki. Faðir hélt þar dóttur sinni fanginni í kjallara í hálfan þriðja áratug og átti með henni sjö börn. Eðlilegt er að spurt sé hvernig þetta hafi getað staðið svo lengi. Mér skilst að stelpan hafi verið talin týnd frá árinu 1984 og hún hafi verið talin af árum saman og þar séu helstu ástæður þess að ekki hafi verið leitað betur að henni. Er þessi saga reyndar svo ótrúleg að það hefur helst minnst á súrrealisma að sjá fréttir af þessu á bresku fréttastöðvunum.
Virðist föðurnum hafa tekist með miklum brögðum að halda öllu leyndu þar til nýlega að eitt af börnunum sjö þurfti á sjúkrahús. Er eiginlega með ólíkindum að svona geti gerst í nútímanum. Held að þetta sé með skelfilegri málum þar sem fólki er haldið föngnu og fær ekki að lifa eðlilegu lífi. Þarna er þó faðir að halda dóttur sinni, á með henni börn og hefur framið alvarlega glæpi, ekki aðeins einn heldur mun fleiri, sem verða væntanlega lengi í minnum hafðir.
Þetta lýsir auðvitað einhvers konar bilun og vitfirringu af verstu sort, enda er þetta hreinn óhugnaður. Vekur alltaf athygli kastljóss fjölmiðla þegar að fólk er heimt úr helju eftir áralanga vist sem fangi einhvers. Þetta málist virðist þó hreinlega einstakt að svo mörgu leyti - skelfilegt mál í alla staði.
Virðist föðurnum hafa tekist með miklum brögðum að halda öllu leyndu þar til nýlega að eitt af börnunum sjö þurfti á sjúkrahús. Er eiginlega með ólíkindum að svona geti gerst í nútímanum. Held að þetta sé með skelfilegri málum þar sem fólki er haldið föngnu og fær ekki að lifa eðlilegu lífi. Þarna er þó faðir að halda dóttur sinni, á með henni börn og hefur framið alvarlega glæpi, ekki aðeins einn heldur mun fleiri, sem verða væntanlega lengi í minnum hafðir.
Þetta lýsir auðvitað einhvers konar bilun og vitfirringu af verstu sort, enda er þetta hreinn óhugnaður. Vekur alltaf athygli kastljóss fjölmiðla þegar að fólk er heimt úr helju eftir áralanga vist sem fangi einhvers. Þetta málist virðist þó hreinlega einstakt að svo mörgu leyti - skelfilegt mál í alla staði.
![]() |
Lokaði dóttur sína inni í 24 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2008 | 16:13
Bíllausi dagurinn hans Sturlu

Þetta var vond vika fyrir bílstjórana. Held að allir sjái það, ekki síður bílstjórarnir en almenningur allur. Hef farið yfir stöðu þeirra mála hér í síðustu færslu. Málstaður þeirra og staða er stórlega sködduð. Þeir gerðu alvarleg mistök í baráttuherferð sinni, fóru verst allra sjálfir með málstaðinn sem þeir trúðu á og Sturla hefur komið mjög illa fyrir sem talsmaður þessa hóps. Ber mikla ábyrgð á því hvernig komið er fyrir þeim.
Sturla hefur meira að segja opnað moggablogg til að reyna að ná til okkar allra, bloggaranna jafnt og landsmanna allra. Heldur er það samt holur boðskapur í heildina. Enda sést það vel að hann áttar sig á mistökum sínum síðustu dagana. Erfitt er þó að gleyma því og sennilega er þessi gönguferð einhver leið til þess að byggja upp baráttuna. Efast um að það beri mikinn árangur. Þeir fengu vissa samúðarbylgju fyrst. Þeir sendu út statement um stöðu sína og náðu athygli en höfðu ekki kraft og klókindi til að fara með þá baráttu alla leið.
Held að engum hópi með kröfur gegn ríkinu hafi áður tekist að klúðra sínum málum jafn illa og bílstjórunum í þessari viku. Þetta vita allir. Staðreynd mála bara. Þessi ganga um stræti borgarinnar mun ekki breyta því að ríkisvaldið mun ekki tala við þá um kröfur sínar og baráttumál. Einfaldlega vegna þess að þeim tókst ekki að ná samstöðu með þjóðinni - fóru fram úr sér og verða víst að bíta úr nálinni með það.
![]() |
Bílstjóri í mótmælagöngu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.4.2008 | 01:18
Snautleg afsökun á ofbeldinu á Kirkjusandi
Eðlilegt er að Ágúst vilji reyna að bæta fyrir þessi mistök sín og reyna að svara fyrir sig. Það er þó oft erfitt þegar að engar eru málsbæturnar og afsökunarbeiðnin er hol í gegn. Finnst þetta frekar innantóm yfirlýsing, sett fram til þess eins að reyna að laga ásýnd sína í fjölmiðlum, en skiljanlega hefur þetta atvik eitt og sér gert út af við bílstjórabaráttuna miklu, fyrir utan öll önnur mistök þessa hóps, og gert það að verkum að samúð almennings við bílstjórana er meira og minna gufuð upp.
Sennilega var það dapurlegast af því öllu að Sturla Jónsson vildi ekki kannast við Ágúst á vettvangi en sagði samt í sömu andrá að maðurinn væri nýkominn úr hnéaðgerð. Sennilega er þetta eitt fyndnasta augnablik vikunnar rétt eins og þessi tilefnislausa líkamsárás á lögregluþjón er með þeim sorglegri. Ágúst má þó eiga það að hann sendir frá sér yfirlýsingu og er ekki alls varnað. En það vantar innilegheitin í yfirlýsinga. Það er eitthvað við þessa yfirlýsingu sem hljómar ekki heilt í gegn og ég held að allir sem lesi þetta finni það vel að innilegheitin vantar, því miður.
Öll þessi vika hefur verið dapurleg fyrir bílstjórana. Þeim tókst að klára sín mótmæli af algjörlega af eigin völdum og gera út af við alla möguleika á því að stjórnvöld töluðu við þá. Ferðin til Bessastaða, ruglið við Rauðavatn og þetta ofbeldi á Kirkjusandi, fyrir utan talsmanninn afspyrnuslaka hjálpast allt saman í vonda heildarmynd sem enginn gleymir. Og barátta bílstjóranna er því miður runnin út í sandinn, hafi hún einhvern tímann verið trúverðug.
![]() |
Missti stjórn á skapi sínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.4.2008 | 00:10
Sættir á milli Ólafs F. og Spaugstofunnar
Spaugstofan kvaddi reyndar með svolítið sérstökum þætti. Þar var Spaugstofan svolítið að biðjast afsökunar á húmor vetrarins og fengu þeir reyndar þekkta einstaklinga sem þeir hafa verið að grínast með í vetur til að taka þátt í herlegheitunum og voru allir sennilega að gera grín að sjálfum sér, ekkert síður Spaugstofumenn en gestirnir. Sérstaklega fyndin atriðin með Össuri, Birni Inga og Vilhjálmi Þ.
Mér skilst að Spaugstofan hafi ákveðið að næsti vetur verði þeirra síðasti á skjánum. Þeir eiga tuttugu ára afmæli með þáttinn á næsta vetri og viðeigandi fyrir þá að hætta á þeim tímamótum. Þó að Spaugstofan hafi stundum verið gloppótt verður því ekki neitað að þeir hafa leikið lykilhlutverk í grínsögu landsins. Hafa séð um þáttinn í tvo áratugi og haldið dampi í gegnum góða tíma og slæma. Ekki alltaf verið sammála gríninu þeirra, enda er aldrei hægt að hlæja svosem að öllu.
Allavega er gott að vita að Ólafur F. og Spaugstofan halda sáttir frá grínvetri þeirra síðarnefndu og hafa samið frið. Væntanlega verður þá Ólafur F. varla blörraður næsta vetur. Eða hvað?